Morgunblaðið - 09.10.2008, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 09.10.2008, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 9. OKTÓBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir, annaei@mbl.is, Bergþóra Njála Guðmundsdóttir, ben@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Bankakreppan Hvað verður um Icesave? Það er algjörlega óvíst á þessari stundu. Bresk stjórnvöld gera ráð fyrir því að Tryggingarsjóður innistæðueigenda tryggi innistæður reiknings- eigenda fyrir allt að 20.000 evrum. Ekki liggur fyrir hvort Tryggingarsjóðurinn muni ábyrgjast breskar innistæður, eignir sjóðsins núna nægja ekki fyrir slíkri ábyrgð. Gordon Brown, forsætisráðherra Breta, hótaði í gærmorgun að Bretar myndu höfða mál gegn íslenskum stjórn- völdum vegna vandræða sem breskir sparifjáreig- endur hafa lent í með að leysa sparifé sitt af Ice- save-reikningum. Hann lýsti því jafnframt yfir að bresk yfirvöld myndu ábyrgjast innistæður landa sinna. Fram kom á blaðamannafundi í gær að íslensk stjórnvöld myndu vinna náið með Bretum til þess að finna lausn á vandanum. Mjög líklega myndu eignir Landsbankans að stærstum hluta hrökkva til að tryggja innistæður á Icesave-reikningunum. Veittu íslensk stjórnvöld formlegt leyfi fyrir því að þessar ábyrgðir yrðu veittar? Íslendingar eru aðilar að EES-samningnum sem heimilaði Landsbankanum að opna útibú í öðr- um löndum. Ábyrgð vegna Icesave-reikninganna er byggð á sérstökum reglum [European pass- port scheme] en öll aðildarríkin á evrópska efna- hagssvæðinu hafa skuldbundið sig til þess að veita lágmarksvernd upp á 20.000 evrur fyrir hvern innistæðueigenda hjá banka sem starfar utan heimalandsins ef til gjaldþrots kemur. Þannig að já, íslensk stjórnvöld höfðu skuld- bundið sig til þess að tryggja þessar innistæður. Hvað þýðir tryggingavernd íslenska ríkisins gagnvart breskum eigendum sparifjár í Landsbankanum fyrir íslenska skattgreið- endur? Íslensk stjórnvöld hafa gefið út að innistæður ís- lenskra reikningseigenda gangi fyrir. Ef íslensk stjórnvöld ætla að tryggja að Tryggingarsjóður innistæðueigenda standi við skuldbindingar sín- ar gagnvart breskum innistæðueigendum og eignir Landsbankans erlendis nægja ekki til þess að ábyrgjast innistæður breskra sparifjáreigenda og allt fer á versta veg, gæti íslenska ríkið og þar með skattgreiðendur þurft að greiða hundr- uð milljarða króna. Miðað við lágmarksvernd fyr- ir hvern innistæðueigenda og innistæðueigendur eru 200.000 talsins í Bretlandi, er þessi upp- hæð 560 milljarðar króna. Þessi upphæð er þó líklega mun lægri þegar öllu er á botninn hvolft. Njóta innistæður í peningamarkaðssjóðum verndar? Innistæður í peningamarkaðssjóðum falla ekki undir tryggingu á innistæðum skv. 9. gr. laga um innistæðutryggingar. Ber ríkinu því ekki að ábyrgjast innistæður í þeim eða verðbréfa- sjóðum. Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráð- herra sagði á blaðamannafundi í gær, að verið væri að leita leiða til að koma að minnsta kosti hluta af peningasjóðum bankanna í það form að fólk tapi ekki á að eiga þar fé. Ekki verði um að ræða að fólk tapi aleigu sinni. » Viðskipti Mun fólk missa vinnuna í bönkunum? Viðskiptaráðherra hefur sagt að engin breyting verði á högum almennra starfsmanna Lands- bankans. Starfsmenn eru þó uggandi. Friðbert Traustason formaður og framkvæmdastjóri Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja segir að talað hafi verið um að verulegri hagræðingu megi ná fram, sem yfirleitt þýðir að fækka fólki. Halda bankastarfsmenn launum sínum þótt Fjármálaeftirlitið taki bankann yfir? Eftir því sem næst verður komist mun ekkert breytast hvað launakjör almennra starfsmanna bankanna varðar. Hvers vegna komst Kaupþing í þrot? Umræða um að íslenska ríkið ætlaði ekki að tryggja Icesave-reikninga Landsbankans hafði mjög slæm áhrif í Bretlandi. Breska fjármálaeft- irlitið lét loka dótturfyrirtæki Kaupþings í Bret- landi, Singer & Friedlander. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins var hringt í Kaupþing í London fyrir kl. 7 í gærmorg- un og bankinn krafinn um 300 milljóna punda greiðslu fyrir kl. 9. » Forsíða og 11 Hvað verður um hlutafé hluthafa Landsbankans? Samkvæmt því sem Davíð Oddsson, formaður bankastjórnar Seðlabankans, sagði í Kastljósi á þriðjudag, verður allt eigið fé Landsbankans lát- ið renna í þrotabú ásamt erlendum eignum bankans. Hlutafé telst til eigin fjár fyrirtækja og mun hlutaféð því renna í þrotabúið og er það því tapað hluthöfunum. »Viðskipti Hvers vegna hafa Samson, Landsbankinn Lúxemborg og Stoðir (FL-Group) óskað eftir greiðslustöðvun? Eftir að helstu eignir félaganna, Landsbankinn og Glitnir, gátu ekki staðið við skuldbindingar sínar og voru teknar yfir af Fjármálaeftirlitinu þurkaðist hlutafé félaganna út. Skuldir félaganna voru að nokkru leyti með veð í hlutafé í bönk- unum. Veðið hvarf um leið og hlutaféð hvarf og því neyddust félögin til að óska eftir greiðslu- stöðvun. » 12 Skerðast lífeyrisréttindi almennings vegna fjármálakreppunnar? Ljóst þykir að eignir lífeyrissjóðanna muni rýrna vegna ástandsins á fjármálamörkuðum og neyð- arlaga Alþingis. Allt bendir til þess að lífeyrir og lífeyrisréttindi muni taka að skerðast á fyrri hluta næsta árs. Hvað gengur Rússum til að vilja lána okkur peninga? Sú staðreynd að Rússar láta finna sífellt meira fyrir sér á alþjóðavettvangi á þátt í að grun- semdir hafa vaknað um að annað og meira en vinarbragð liggi að baki þeim vilja rússneskra stjórnvalda að ræða möguleikann á fjögurra milljarða evra láni til íslenskra stjórnvalda. Rúss- land er ekki lengur flækt í skuldahala frá tímum Sovétríkjanna og hefur olíugróðinn leitt til þess að ráðamenn í Moskvu telja aftur óhætt að hnykla vöðvana í samskiptunum við Vesturlönd. Þessi breytta sviðsmynd, að viðbættum áhuga Rússlandsstjórnar á norðurslóðum og mögulegri olíuvinnslu þar, skýrir öðrum þræði hvers vegna ýmsir vilja meina að Rússar séu með hugann við þann ávinning sem slík lánafyrirgreiðsla kynni að bjóða upp á í samskiptum við íslensk stjórnvöld. Má þar nefna orkuauðlindir og mögulegt sam- starf á því sviði. »13 Hvert á fólk sem líður illa vegna fjárhagserfiðleika að leita? Á morgun eða í síðasta lagi á mánudaginn verð- ur opnuð móttaka í Heilsuverndarmiðstöðinni við Barónsstíg. Þar verður fagfólk á vegum Landspítalans sem tekur á móti fólki og veitir því viðeigandi meðferð. Þeir sem þangað leita þurfa að panta tíma og óska eftir viðtali. Upplýs- ingar um símanúmer verður að finna á heima- síðu Landspítalans. Einnig er hægt að hafa sam- band við hjálparsíma Rauða krossins (1717). »13 Verða húsnæðislánin, sem Íbúðalánasjóður yfirtekur, á sömu kjörum og þau eru nú? Íbúðalánasjóður mun taka við íbúðalánum banka á þeim kjörum og með þeim skilyrðum sem lánasamningarnir kveða á um. Ekkert liggur fyrir um hvort og hvernig vaxtakjör lánanna munu breytast við yfirfærslu til Íbúðalánasjóðs. Þurfa lántakendur að greiða þinglýsing- argjald og stimpilgjöld að nýju til ríkisins við yfirfærslu lána frá bönkum til Íbúðalána- sjóðs? Nei. »1 8 Er ekki einhver atvinnustarfsemi sem geng- ur vel þrátt fyrir áföll síðustu daga? Útflutningsgreinar standa vel nú þegar krónan er hvað veikust. Loðdýrarækt stendur t.d. mjög vel þar sem skinnverð hefur náð nýjum hæðum. Þá stendur ál- og fiskiðnaður einnig vel. »Viðskipti Hvaða áhrif hefur fjármálakreppan á menningarlífið í landinu? Safnstjóri Listasafns Íslands segir ástandið eiga eftir að koma illa við margar menningarstofn- anir. Framlag ríkisins til safnsins í fyrra var 132 milljónir og sértekjur voru 55 milljónir en stærsti styrkur sérteknanna var framlag Eignarhalds- félagsins Samson, sem er í eigu Björgólfsfeðga. Þá voru Stoðir aðalstyrktaraðili Sinfón- íuhljómsveitar Íslands en þær eru nú komnar í greiðsluþrot. Þjóðleikhússstjóri segir að verið sé að leita leiða til að draga saman seglin. Fer íþróttahreyf- ingin illa út úr fjármálaskell- inum? Mörg stór fjármála- fyrirtæki eru helstu styrktaraðilar íþróttafélaganna. Sagt hefur verið að fyrirtækin reyni að standa við gildandi samninga en félög- unum gangi illa að fá umsamdar fjár- hæðir frá þeim. Enga fyrirgreiðslu sé að fá og yfirdráttarheimildir nánast úr sögunni. Íþrótta- félögin þurfi því að draga úr kostnaði, m.a. með því að senda erlenda leikmenn heim. Hvað eru sendimenn Alþjóðagjaldeyrissjóðs- ins að gera hér á landi? Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn, IMF, sendi hóp, svo- kallað Fact-Finding-Team, hingað til lands, til að veita íslenskum stjórnvöldum ráðgjöf við lausn á þeim vanda sem við er að etja á fjármálamark- aði. Stendur til að leita til Alþjóðagjaldeyr- issjóðsins? Íslensk stjórnvöld afþökkuðu fjárhagslega að- stoð frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum (IMF) við lausn bankakreppunnar hér. Með því að þiggja slíka aðstoð myndu stjórnvöld tímabundið afsala sér stjórn eigin peningamála. Af hverju eru norrænu lánalínurnar ekki virkjaðar? Engin skilyrði þarf að uppfylla áður en hægt er að virkja lánalínur Seðlabankans hjá seðlabönk- um Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar. Það hefur ekki verið gert hingað til, væntanlega vegna þess að ekki hefur verið talin þörf á því, að svo stöddu. Hvað þarf að koma til svo að það verði gert? Meti ráðamenn í Seðlabankanum stöðuna svo að peninganna sé þörf má gera ráð fyrir að lánalín- urnar verði virkjaðar. Verður haldið áfram með byggingu tónlistar- hússins fyrst Landsbankinn getur ekki stað- ið við skuldbindingar sínar? Stefán Hermannsson, framkvæmdastjóri Aust- urhafnar-TR, segir fullkomna óvissu ríkja um framhald verksins. Bæði Landsbankinn og Nýsir standa að framkvæmdum, en fyrirtæki eiga bæði í miklum fjárhagserfiðleikum. » 18 Af hverju eru útlendingar, sem hér hafa starfað, á leið heim til sín? Mörg fyrirtæki, sérstaklega í byggingariðnaði, hafa verið að draga saman seglin og segja upp fólki. Það er því ekki eins mikla vinnu að hafa í dag og fyrir nokkrum misserum. Gengi krón- unnar hefur fallið hratt síðustu vikur og mánuði, en við það lækkar verðgildi þeirra fjármuna sem útlendingar geta sent til fjölskyldna í heimaland- inu. Síðustu daga hefur fólk þar að auki átt í erf- iðleikum með að fá gjaldeyrisyfirfærslu. » 12 S&S Morgunblaðið/Kristinn Álag Mikið hefur mætt á forystumönnum okkar síðustu daga. Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra talar í símann í stjórnarráðinu. Á mánudag tilkynnti forsætis- ráðherra að mjög alvarleg staða blasti við í fjármálalífi landsins. Síðdegis sama dag var upplýst að Landsbankinn gæti ekki staðið við skuldbindingar sínar. Á þriðjudag var orðið ljóst að eins væri komið fyrir Glitni. Í gærkvöldi bárust fréttir af því að staða Kaupþings væri orðin mjög alvarleg.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.