Morgunblaðið - 09.10.2008, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 09.10.2008, Blaðsíða 20
20 FIMMTUDAGUR 9. OKTÓBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT FRÉTTASKÝRING Eftir Kristján Jónsson kjon@mbl.is HVORKI Barack Obama, forseta- frambjóðandi demókrata, né John McCain, frambjóðandi repúblikana, unnu afgerandi sigur í öðrum kapp- ræðum þeirra sem fram fóru í Tenn- essee á þriðjudagskvöld. En þar sem Obama hefur síðustu dagana verið að auka forskot sitt í skoðanakönnunum verður hann að teljast hafa haft betur þar sem honum dugði í reynd að halda sínum hlut. Umræðurnar þóttu á margan hátt vera endurtekning á fyrstu kappræð- unum en þær snerust að mestu um efnahagsmál. Þriðju og síðustu kapp- ræðurnar verða á miðvikudag. Ljóst var að Obama var afslappaðri og naut hann þess að vera með vind- inn í bakið í könnunum en McCain reyndi ákaft að ná föstu skoti á keppi- nautinn. „Það er enginn tími til að þjálfa sig í starfinu, vinur minn,“ sagði hann eitt sinn og vísaði þá til mikillar reynslu sinnar, andspænis reynsluleysi hins 47 ára Obama. En stjórnmálaskýrendur eru flest- ir á því, einnig staðfastir repúblik- anar, að tilraunir McCains til að slá keppinautinn út af laginu hafi lang- oftast misheppnast með öllu. Obama hafi tekist að koma fram sem maður er gæti vel ráðið við forsetahlut- verkið, hafi haldið ró sinni og yfir- vegun. Um 80 manns voru í salnum. Þátttakendur áttu að fá tvær mínútur til að svara spurningum sem komu úr sal en einnig frá fólki annars staðar í landinu með aðstoð netsins. Ein slík var eftirminnileg, spurt var hvaða fórnir Bandaríkjamenn gætu þurft að færa vegna þess vanda sem nú er við að etja. Hvorugum keppinautanna tókst vel upp við að svara, að mati fréttamanns BBC. Stjórnandi kapp- ræðnanna var sjónvarpsmaðurinn kunni, Tom Brokaw. Þar sem báðir fóru oft langt fram yfir tilsettan tíma í svörum sínum varð hann að vara þá við og sagði þá vera að fara jafn mikið fram úr og gert væri í fjárlögum ríkisins! AIG-menn fóru í skemmtiferð eftir hrunið Obama sagði m.a. að stjórnendur AIG-tryggingarisans hefðu farið í 400 þúsund dollara skemmtiferð á kostn- að fyrirtækisins eftir að ríkið var búið að bjarga fyrirtækinu. „Fjármála- ráðuneytið ætti að fá þetta endur- greitt,“ sagði Obama. Athygli vakti tillaga McCains um að lagðir yrðu fram 300 milljarðar dollara af hálfu stjórnvalda til að kaupa upp veðlán allra þeirra sem ættu á hættu a missa húsnæði sitt. Væri um að ræða geysilega róttæka aðgerð með ríkið í aðalhlutverki, að- gerð sem er í miklu ósamræmi við áherslur McCains sem boðar almennt lítil ríkisafskipti og vill treysta mark- aðslögmálunum. McCain sakaði hins vegar Obama um að hafa þegið mik- inn fjárstuðning frá hálf-opinberu húsnæðislánasjóðunum Freddie Mac og Fannie Mae. Undirmálslán þeirra, þ. e. lán til fólks sem hafði enga burði til að standa í skilum, eru talin hafa átt mikinn þátt í skuldsetningarkrepp- unni sem er að sliga hagkerfið. McCain sagði að Obama og liðsmenn hans á þingi hefðu ekki tekið undir gagnrýni sína á framferði stofnan- anna tveggja fyrir tveim árum. McCain þótti sýna Obama óvirð- ingu er hann kallaði hann „þennan þarna“ í kappræðunum er skatta- lækkanir á olíuframleiðslu voru til umræðu. „Vitið þið hver greiddi at- kvæði með þeim? Þessi þarna,“ sagði McCain og benti á andstæðinginn. „Vitið þið hver greiddi atkvæði gegn þeim. Ég.“ McCain skoraði fá mörk Reuters Báðir ánægðir Forsetaefnin Barack Obama og John McCain brosa í kappræðunum í Nashville í Tennessee. Stolt Michelle Obama fylgdist með manni sínum í Nashville.  Obama hélt sínum hlut í kappræðunum í Tennessee og keppinaut hans tókst ekki að slá hann út af laginu með tali um reynsluleysi  McCain vill að ríkið ábyrgist öll hættuleg húsnæðislán Hvað dugar best gegn McCain? Obama hefur reynt að spyrða McCain vandlega við stefnu repúblik- anans George W. Bush forseta en Bush er einn óvinsælasti forseti í sögu landsins. Er stuðningur við hann nú álíka mikill og við Richard Nixon er hann hrökklaðist frá 1974. En gegn Obama? McCain hefur beitt ýmsum rökum en einkum bent á reynsluleysi Obama. Obama á auk þess erfitt með að ná tengslum við verkamenn úr röðum hvítra. Hann virkar oft á þá sem yfir- stéttarmaður þótt hann sé ekki af ríku fólki. Hvað segir Obama um kreppuna? Obama segir að í tíð Bush hafi við- skiptalífið fengið um of lausan taum- inn og bendir á að McCain hafi ávallt boðað slíka stefnu sem er í samræmi við kenningar frjálshyggju. Einnig hafi ríkið safnað skuldum þótt skatt- ar hafi verið lækkaðir á auðmenn. En hvað vill McCain gera? Hann segir keppinaut sinn Obama eindreginn vinstrisinna sem ávallt hafi boðað hærri skatta á almenning og aukin ríkisútgjöld, það sé ekki lausnin. Sjálfur sé McCain maður málamiðlana og hafi oft sýnt hæfi- leika til að vinna með demókrötum. S&S INDVERJAR ætla að skjóta ómönnuðu geimfari á braut um tunglið síðar í mánuðinum og vonast til þess að verða á undan Kínverjum að senda mannað geimfar til tunglsins og ná þar með forystu í geimferðakapp- hlaupi Asíurisanna tveggja. Indverska geimrannsóknastofn- unin (ISRO) hyggst skjóta geim- farinu Chandrayaan 1 (Geimferð 1) á loft 22. þessa mánaðar ef veður leyfir. Hægt verður að fresta geimskotinu til 26. október. Geimfarið á að vera á braut um tunglið í tvö ár og rannsaka efna- samsetningu og steindir yfir- borðsins. Indverjar viðurkenna að þeir hafi dregist aftur úr í geimferða- kapphlaupinu við Kínverja sem skutu fyrsta mannaða geimfari sínu á loft árið 2003 og sendu ómannað geimfar að tunglinu fyr- ir ári. Í síðasta mánuði fór kín- verskur geimfari í 15 mínútna geimgöngu fyrstur Kínverja. Indverjar ætla að senda annað ómannað geimfar (lendingarfar og geimvagn) til tunglsins árið 2011. Þeir stefna að því að senda fyrsta Indverjann í geiminn árið 2014 og skjóta mönnuðu geimfari til tunglsins ekki síðar en árið 2020 – fjórum árum á undan Kín- verjum. bogi@mbl.is 6 8 O 6  / "  >                    6:"5    ! "    ) # * +,-  6868  6:  "68"                               !     "#   $%    $ %& %   '(() #   $%  *  ! %!        6 8 O   8 O 8P@9O# "  .  =2    2 :* =# *2#= #        % & & '   '  (  )  $  & *     & +  , '-'&&      ". =M .2 2 " ./ $     0 < 0 6 + ,- .  +    .  /  . 0 .     ' $)     .1#" 6 #@0@ @ M .2 20    2 A G< 0 6GCC.  # # *2 =#* =.M=2M  *   = = *# 02  .=      Í geimferða- kapphlaupi við Kínverja ELDRI bróðir Hamid Karzais, for- seta Afganistans, Qayum Karzai, tók í nýliðnum mánuði þátt í trúarlegum málsverði í Sádi-Arabíu með fyrr- verandi talíbanaleiðtogum, að sögn fréttavefs breska ríkisútvarpsins, BBC. Talið er hugsanlegt að atburð- urinn sé fyrirboði friðarviðræðna milli stjórnvalda í Kabúl og hreyf- ingar talíbana. Heimildarmenn segja að samn- ingaviðræður hafi farið fram við þetta tækifæri en báðir aðilar harð- neita því. Bandarískir og breskir embættismenn hafa að undanförnu sagt að ef takast eigi að koma á var- anlegum friði sé óhjákvæmilegt að semja við talíbana. Þótt tugþúsundir erlendra hermanna styðji við bakið á stjórn Karzais hefur ekki tekist að ráða niðurlögum sveita talíbana sem hafa enn sterk ítök í landinu. Auk áðurnefndra manna tóku Nawas Sharaf, fyrrverandi forsætis- ráðherra Pakistans og minnst 15 Afganar þátt í veislunni. Talíbanar náðu völdum í Afganistan 1996 en stjórn þeirra féll í kjölfar innrásar Bandaríkjamanna 2001. Var hún gerð til að ráða niðurlögum al- Qaeda-manna er nutu gestrisni talíb- ana. kjon@mbl.is Forsetabróðir ræddi við talíbana Gæti verið undanfari friðarsamninga Reuters Á skrá Afgani ljósmyndaður í kosningamiðstöð í Parwan-héraði, norðan við Kabúl, í gær. Stefnt er að þing- og forsetakosningum í landinu á næsta ári.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.