Morgunblaðið - 09.10.2008, Page 4
4 FIMMTUDAGUR 9. OKTÓBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
„TÆKNIN geng-
ur út á það að við
setjum tölvukerfi
um borð í skipin.
Þau reikna síðan
út allan orkubú-
skap í skipunum,
leita að veik-
leikum í rekstri
þeirra og finna
svo leiðir að betr-
umbótum, til
dæmis leiðum að aukinni nýtingu
orkukerfanna. Þau koma svo upp-
lýsingum til vélstjórans eða skip-
stjórans, sem geta svo breytt still-
ingum á kerfum sínum, segir Jón
Ágúst um tæknina.
„Með þessu móti má ná fram auk-
inni nýtni, en þetta kerfi, sem
margir tóku þátt í að þróa, er í stöð-
ugum samskiptum við áhöfnina.“
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„VIÐ erum búin að þróa orkustjórn-
unarkerfi í yfir tíu ár og þetta hefur
verið það sem Marorka hefur verið
að gera og einbeitt sér að. Við byrj-
uðum að afhenda þessi kerfi í inn-
lend skip og snerum okkur svo að
flutningaskipaútgerðum, ferjuút-
gerðum og útgerðum skemmtiferð-
arskipa á Norðurlöndum. Þetta hef-
ur þróast mjög hratt hjá okkur
undanfarið. Marorka hefur vaxið
mjög mikið og er orðin leiðandi á
sviði orkusparandi tækni,“ sagði Jón
Ágúst Þorsteinsson, framkvæmda-
stjóri Marorku, eftir að greint var
frá því að fyrirtækið hefði hlotið um-
hverfisverðlaun Norðurlanda í ár.
Jón Ágúst segir tæknina spara út-
gerðum verulega fjármuni í formi
minni olíunotkunar.
Sýnt fram á mikinn sparnað
„Við höfum sýnt fram á mikinn
orkusparnað með kerfum okkar.
Við höfum verið að tala um að ol-
íusparnaður í skipum geti verið frá
fjögur og upp í tíu prósent sem er
gífurlegur sparnaður. Ef maður tek-
ur flutningaskipaflota Norður-
landanna, sem er einn sá stærsti í
heimi, þá skiptir þessi tækni miklu
máli, ekki aðeins hvað varðar sparn-
aðinn heldur sérstaklega með tilliti
til minni mengunar, sem aftur sann-
ast af því að fyrirtækin eru að kaupa
tæknina okkar aftur og aftur.“
Inntur eftir því hvernig markaðs-
sókn Marorku hafi gengið segir Jón
Ágúst fyrirtækið hafa tekið við bók-
unum langt fram á næsta ár. Þar
megi nefna pantanir í fjögur stór
skip í Noregi, ásamt því sem stefnt
sé að aukinni sókn í Danmörku.
Þá hafi fyrirtækið opnað skrif-
stofu í Grikklandi, þaðan sem þegar
séu farnar að berast pantanir.
Hvað snerti áhrif mikilla gengis-
sveiflna að undanförnu á rekstur
Marorku segir Jón Ágúst að sitt mat
sé að krónan hafi verið allt of sterk
undanfarin ár. Hátt gengi hafi verið
mjög erfitt fyrir útflutningsfyrir-
tækin. Eftir veikingu krónunnar hafi
Marorka fundið það „alveg undir
eins að það hjálpaði fyrirtækinu.“
Orðin leiðandi í orkusparnaði
Marorka hlýtur umhverfisverðlaun
Norðurlanda fyrir orkusparandi tækni
Ljósmynd/Marorka
Leitar lausna Hér má sjá forritið sem Marorka hefur þróað til að spara orku.
RÚMLEGA þrítugur karlmaður
slasaðist alvarlega í bílslysi á Þor-
lákshafnarvegi í gær. Hann var einn
í bíl sínum sem rakst framan á annan
bíl sem kom á móti. Í þeim bíl var
kona sem slasaðist en þó ekki alvar-
lega.
Maðurinn hlaut svonefnd háorku-
meiðsl sem geta hlotist af hörðum
árekstrum. Festist hann í bílflakinu
en var losaður og fluttur meðvitund-
arlaus með þyrlu Landhelgisgæsl-
unnar til Reykjavíkur. Að sögn
læknis á slysadeild var maðurinn
með alvarlega höfuðáverka. Hann
liggur nú á gjörgæslu í öndunarvél.
Vegna slyssins var veginum lokað á
meðan lögregla og sjúkralið sinntu
störfum.
Slasaðist
alvarlega
í árekstri
ÍSLENSKA konan sem saknað hef-
ur verið í Færeyjum frá því á mánu-
dag fannst látin síðdegis í gær. Hin
látna hét Valgerður Kristín Brand,
til heimilis í Heiðvangi 16 í Hafn-
arfirði. Hún fæddist 18. júní 1947.
Leit úr lofti og á sjó leiddi til þess
að hún fannst á reki í sjónum milli
Straumeyjar og Vogeyjar. Leit-
armenn fundu hana klukkan 15.10 að
staðartíma. Að sögn lögreglunnar í
Færeyjum fer réttarrannsókn fram í
dag en óvíst er hvenær jarðneskar
leifar hinnar látnu verða fluttar til
Íslands.
Lögreglan í Færeyjum telur að
slys hafi valdið því að konan féll
fram af klettum og lenti í sjónum.
Íslensk kona fannst
látin í Færeyjum
Áköf leit lögreglu bar árangur í gær
INGIMAR Friðgeirsson á Akureyri, fyrrverandi
bóndi á Þóroddsstöðum í Kaldakinn, fagnaði 100
ára afmæli í gær. Hann var ókvæntur og barn-
laus en ættingjar hans héldu afmælisbarninu
kaffisamsæti á Dvalarheimilinu Hlíð. Meðal
gesta var Árni bróðir hans, til hægri á myndinni,
sem varð 95 ára fyrr á þessu ári. Þeir eru tveir
eftir af tíu systkinum. Ingimar var fjárbóndi á
Þóroddsstöðum í hálfa öld en flutti til Akureyrar
árið 1984. Hann er heilsuhraustur en heyrir lítið
sem ekkert. Meðal þeirra sem glöddu afmælis-
barnið með nærveru sinni í gær var Sigrún
Björk Jakobsdóttir bæjarstjóri og frænka þeirra
bræðra, Kolbrún Friðgeirsdóttir, sem sker hér
sneið af afmælistertunni.
Ingimar Friðgeirsson á Akureyri fagnaði aldarafmæli í gær
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Við hestaheilsu en heyrnin orðin léleg
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
hefur dæmt 19 ára pilt í árs fangelsi
fyrir kynferðisbrot gegn 14 ára
stúlku. Var refsingin skilorðsbundin
í tvö ár.
Pilturinn viðurkenndi að hafa haft
samfarir við stúlkuna í september
2007. Sömuleiðis viðurkenndi hann
að hafa gert sér grein fyrir því að
hún var 14 ára. Hann sagðist hins
vegar hafa staðið í þeirri trú að heim-
ilt væri fyrir 14 ára einstakling að
hafa samfarir. Kvaðst hann hafa
komist að því í viðtölum við verjanda
sinn að óheimilt væri að hafa sam-
farir við yngri einstakling en 15 ára.
Sálfræðingur sem bar vitni stað-
festi að pilturinn væri í meðallagi
greindur að upplagi. Sökum lítillar
skólagöngu væri hann neðarlega á
mælikvarða að því er varðaði munn-
lega greind. Verkleg greind hans
væri hins vegar í meðallagi. Að mati
dómsins nægði þetta ekki til að gera
greinarmun á honum og öðrum ein-
staklingum og þess vegna ætti ekki
að leysa hann undan refsiábyrgð.
Var hann því sakfelldur en þar sem
þetta var fyrsta refsing hans og
vegna ungs aldurs var refsingin skil-
orðsbundin. Var hann jafnframt
dæmdur til að greiða stúlkunni 400
þúsund krónur í bætur en hún hafði
krafist 1,5 milljóna króna. Auk þess
dæmdist sakarkostnaðar að fjárhæð
880 þúsund krónur á ákærða. Ekki lá
fyrir sálfræðimat á líðan stúlkunnar
eftir atburðinn.
Málið dæmdu héraðsdómararnir
Símon Sigvaldason, Anna M. Karls-
dóttir og Ásgeir Magnússon. Verj-
andi ákærða var Guðrún Sesselja
Arnardóttir hdl. og sækjandi Kol-
brún Benediktsdóttir fulltrúi ríkis-
saksóknara.
Dæmdur fyrir kyn-
ferðisbrot gegn stúlku
19 ára piltur hlýtur 12 mánaða skilorðsbundið fangelsi
Leitar að
veikleikum
Jón Ágúst
Þorsteinsson
FLUGVÉL frá Continental-flug-
félaginu lenti í gær á Keflavíkur-
flugvelli vegna veikinda eins far-
þega sem misst hafði meðvitund um
borð. Hann var kominn til meðvit-
undar þegar vélin lenti og fluttur á
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja til
skoðunar. Þá tók lögreglan á
Suðurnesjum á móti tveimur kon-
um í sömu vél vegna ölvunar og
óspekta og voru þær skildar eftir á
Íslandi.
Veikur farþegi
og flugdólgar