Morgunblaðið - 09.10.2008, Page 6
6 FIMMTUDAGUR 9. OKTÓBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ
ALÞINGI
EINAR K. Guðfinnsson, sjávarútvegs- og landbúnaðar-
ráðherra, telur mjög knýjandi að ljúka afgreiðslu mat-
vælafrumvarpsins á þessu haustþingi. Hann kom fyrir
sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd Alþingis á opnum
fundi í gær og kynnti helstu mál vetrarins. Einar sagði að
mikil vinna hefði verið lögð í matvælafrumvarpið í sumar
með það að markmiði að koma til móts við athugasemdir
sem urðu til þess að frumvarpið fékkst ekki afgreitt á síð-
asta þingi. Hann sló þó þann varnagla að ekki hefði verið
farið yfir málið í ríkisstjórn og milli stjórnarflokkanna og
því gæti það tekið breytingum.
Einar sagði ýmis úrræði vera til staðar til að koma í veg
fyrir að matvæli sem ógnað geta heilbrigði manna eða
dýra væru flutt inn til landsins. EES-samningurinn opn-
aði á það. T.d. mætti grípa inn í ef grunur væri um kam-
fýlóbakter-sýkingu og koma í veg fyrir að kjúklingur sem
gæti verið sýktur færi á markað.
Tilkynningarskylda fremur en starfsleyfi
Í máli Einars kom einnig fram að vaktakerfi dýralækna
geti verið óbreytt og gerðar verði breytingar á frumvarp-
inu þannig að allar greinar landbúnaðarins verði ekki
háðar starfsleyfi „Ýmsar atvinnugreinar eins og sauð-
fjárrækt og hrossarækt verða tilkynningaskyldar en
þurfa í sjálfu sér ekki starfsleyfi,“ sagði Einar.
halla@mbl.is
Matvælin fái afgreiðslu
Ljúka þarf afgreiðslu matvælafrumvarpsins nú í haust, segir landbúnaðarráð-
herra Breytingar hafa verið gerðar til að koma til móts við athugasemdir
Í HNOTSKURN
» Matvælafrumvarpið ollimiklum deilum á síðasta
þingi og fékkst ekki afgreitt.
» Um er að ræða Evrópu-sambandslöggjöf sem fel-
ur í sér að Ísland yrði hluti af
innri markaði EES með land-
búnaðarvörur.
NEFNDARFUNDIR fastanefnda
Alþingis voru opnaðir fjölmiðlum í
fyrsta skipti í gær. Sjávarútvegs-
og landbúnaðarnefnd reið á vaðið í
gærmorgun og í hádeginu kom
heilbrigðisnefnd saman. Fundunum
er sjónvarpað beint í ríkissjónvarp-
inu og á alþingisrásinni auk þess
sem hægt er að fylgjast með í gegn-
um netið. Ekki verða þó allir nefnd-
arfundir opnir heldur einungis þeir
sem tilefni þykir til.
Var það mál manna að form-
legheitin hefðu verið miklu meiri
en vant er og smátitrings gætti
meðal stjórnarandstöðuþingmanna
með að fundirnir þar sem ráð-
herrar kynna sín mál skyldu verða
fyrir valinu. Þeir yrðu þá of „ráð-
herramiðaðir“. halla@mbl.isMorgunblaðið/Árni Sæberg
Fundir opnir
í fyrsta sinnDaufur fundur
Þingfundur var með daufara móti í
gær. Enginn þingmaður tók til máls
undir liðnum störf þingsins en þar
geta þingmenn rætt mál líðandi
stundar hver við annan. Þetta er
harla óvenjulegt en á göngunum
sögðu menn bara: „Um hvað ættum
við svo sem að tala núna?“ Allt var í
járnum í fjármálalífinu og hlutirnir
breyttust á hverri klukkustund.
Skrafað á göngum
Þingfundur silaðist áfram með um-
ræðum um þingmannamál. M.a. tal-
aði Birkir J. Jóns-
son fyrir því að
hluti námslána
breytist í styrk að
námi loknu og
Guðjón A. Krist-
jánsson, flutti
frumvarp um að
frítekjumark á líf-
eyristekjur yrði
hækkað í 100
þúsund krónur á
mánuði. Að öðru
leyti bar fátt til tíðinda og meira var
skrafað á göngum þingsins en í sjálf-
um þingsalnum.
Aukinn geymsluréttur
Útgerðir munu geta geymt meiri
kvóta milli ára en þær hafa hingað til
getað ef hugmyndir Einars K. Guð-
finnssonar sjávarútvegsráðherra ná
fram að ganga. Hann greindi frá því á
opnum fundi með sjávarútvegs- og
landbúnaðarnefnd í gær að til standi
að auka svonefndan geymslurétt úr
20% í 33%. Ennfremur verður þá
heimilt að veiða 5% meira af humri
og draga það frá árið eftir og það
sama gildir þá um humar og úthafs-
rækju.
Einar K.
Guðfinnsson
ÞETTA HELST …
GUÐLAUGUR Þór Þórðarson heil-
brigðisráðherra og Hanna Birna
Kristjánsdóttir borgarstjóri lýstu í
gær yfir vilja til að gera þjónustu-
samning til þriggja ára sem kveður á
um að borgin taki yfir stjórn heima-
hjúkrunar. Í frétt á vef heilbrigðis-
ráðuneytisins segir að stefna bæði
borgaryfirvalda og ríkisstjórnar sé
sú að fólk geti sem lengst búið á eigin
heimili við öryggi og þátttöku í sam-
félaginu, þrátt fyrir t.d. veikindi eða
færniskerðingu. Stjórnvöld telji að
með því að sameina félagslega
heimaþjónustu og heimahjúkrun,
ásamt því að styrkja þjónustuna, sé
auðveldara að ná þessu markmiði.
Reynsla af sambærilegum verk-
efnum sýni að skipulagt starf milli
þjónustuaðila skili betri yfirsýn yfir
þarfir notenda og heildstæðari þjón-
ustu við þá. Með einni þjónustugátt
verði aðgangur að þjónustunni ein-
faldari, hún markvissari og auðveld-
ara að sníða hana að þörfum ein-
stakra notenda. ylfa@mbl.is
Borgin tekur yfir
heimahjúkrun
Hanna Birna
Kristjánsdóttir
Guðlaugur Þór
Þórðarson
ÁKVEÐIÐ hefur verið að hægja á
framkvæmdum við uppbyggingu
miðbæjar Garðabæjar á Garðatorgi,
vegna óvissu í efnahagslífinu.
Ákvörðunin var tekin sameiginlega
af bæjaryfirvöldum og Fasteigna-
þróunarfélaginu Klasa hf., sem unn-
ið hefur að uppbyggingu miðbæj-
arins. Fyrsta áfanga Garðatorgs
lauk í sumar. Þetta kemur fram í til-
kynningu frá Garðabæ. Nú er ljóst
að framkvæmdunum sem áttu að
hefjast í haust verður frestað. Bif-
reiðastæði sem eru nú afgirt verða
gerð aðgengileg aftur en lóð bens-
ínstöðvarinnar, sem nú hefur verið
rifin, verður áfram girt af. Gamla
Hagkaupahúsið stendur áfram. Mik-
il óvissa ríkir um þróun verðlags,
kostnað við byggingar og almennt
rekstrarumhverfi verslana. Einnig
er óvissa um horfur á íbúðamarkaði.
„Því telja Garðabær og Klasi það
sýna ábyrgð að hægja á verkefninu
tímabundið,“ segir í tilkynningunni.
Enn er stefnt að því að verslanir
og þjónusta geti hafið rekstur á
Garðatorgi í lok árs 2010.
Garðatorg bíður betri tíma
FRÉTTIR
Jóhanna Sigurðardóttir
Ég styð verkefnið
Glitnir og Velferðarsjóður barna eru stoltir bakhjarlar “Verndarar barna”
Kynntu þér verkefnið Verndarar barna
inn á www.blattafram.is
Það er á okkar ábyrgð að vernda börnin!
Það eru engar auðveldar, algildar og gulltryggðar
lausnir á þeim vandamálum sem tengjast kynferðisof-
beldi á börnum. Bestu viðbrögðin í einum aðstæðum
eru ekki endilega besti kosturinn í öðrum. Verndarar
Barna námskeiðið mun gefa þér ógrynni upplýsinga
sem munu auðvelda þér að finna þín eigin svör – hver
svo sem tengsl þín við vandann eru.
Ein af hverjum fimm stúlkum og einn af hverjum tíu
drengjum verða fyrir kynferðisofbeldi fyrir 18 ára aldur.
Markmið okkar er að fyrirbyggja kynferðisofbeldi á
börnum.
Við bjóðum þér að slást í lið með okkur.