Morgunblaðið - 09.10.2008, Side 8
8 FIMMTUDAGUR 9. OKTÓBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
ÍBÚAFJÖLDI á Norðurlöndum hef-
ur tvöfaldast frá upphafi 20. aldar
og umsóknum um pólitískt hæli hef-
ur fjölgað um 62% frá árinu 2005 til
2007. Þetta kemur fram í Norræn-
um hagtölum sem komnar eru út.
Árið 2007 tóku feður á Íslandi 33
prósent af öllu barneignaorlofi á Ís-
landi, sem er met og langhæsta
hlutfall á Norðurlöndum. Í frétta-
tilkynningu er ályktað að þetta geti
verið ein ástæða þess að flest börn
fæðast hér á landi miðað við mann-
fjölda. Orkunotkun á hvern mann
er mest á Íslandi en minnst í Dan-
mörku. Þá kemur fram að um þess-
ar mundir er vinsælast að skíra
ungbörn á Íslandi Jón eða Söru. Í
Finnlandi eru vinsælustu nöfnin
Veeti og Ella, en í Danmörku eru
það Mikkel og Mathilde.
Flest börn og
mest orka
INNVIGTUN mjólkur í sl. viku var
2.167.959 lítrar og er það 0,65%
minna en á sama tíma í fyrra. Þetta
kemur fram á heimasíðu Lands-
sambands kúabænda.
Líkt og undanfarin ár er innvigt-
unin að ná lágmarki á þessum árs-
tíma, síðan fer hún stigvaxandi og
nær hámarki í maí. Þessi árstíð-
arsveifla hefur farið minnkandi
undanfarin ár. Í fyrra var munur á
mestu og minnstu innvigtun um
23%, en árið 2005 var þessi munur
um 33%.
Í lítrum talið var munurinn á síð-
asta ári um 500 þúsund lítrar á
mestu og minnstu innvigtun, en ár-
ið 2005 var þessi munur nær 600
þúsund lítrar.
Nokkuð minna
af mjólk
MATREIÐSLUMAÐUR ársins 2008
var krýndur í fyrradag á fundi
Klúbbs matreiðslumanna, og var
það Jóhannes Steinn Jóhannesson,
matreiðslumaður á Silfri (Hótel
Borg), sem hlaut heiðurinn. Keppni
um matreiðslumann ársins hefur
verið haldin hvert ár síðan 1994 og
er það Klúbbur matreiðslumeistara
sem að henni stendur.
Matreiðslu-
maður ársins
Eftir Sigtrygg Sigtryggsson
sisi@mbl.is
HÆSTIRÉTTUR hefur úrskurðað
að kortafyrirtækið Valitor hf., útgef-
andi Visa-korta, skuli veita embætti
ríkisskattstjóra yfirlit yfir hreyf-
ingar á greiðslukortum, sem gefin
voru út og skuldfærð erlendis, en
notuð á Íslandi til úttektar í bönkum
eða til greiðslu á vörum og þjónustu
á tímabilinu 1. júlí 2006 til og með 30.
júní 2007, enda hafi heildarúttekt
hvers korts á tímabilinu numið að
minnsta kosti fimm milljónum ís-
lenskra króna. Valitor hafði neitað
að veita þessar upplýsingar og borið
fyrir sig þagnarskyldu.
Fram kemur í dómi Hæstaréttar,
að ríkiskattstjóri hafi óskað eftir
upplýsingunum vegna þess að grun-
ur leiki á að aðilar, sem séu skatt-
skyldir hér á landi, hafi komið eign-
um og tekjum undan skattlagningu
með því að flytja fjármagn og fjár-
málaumsvif sín úr landi, þótt skatt-
skylda þeirra hérlendis sé óbreytt.
Unnið gegn skattsvikum
Að sögn Skúla Eggerts Þórðar-
sonar ríkiskattstjóra er undanfari
þessa máls sá, að norræn skatta-
yfirvöld leituðu leiða til að stemma
stigu við skattsvikum, sem fara í
gegnum svokölluð aflandsfélög, þ.e.
félög sem skráð eru í skattapara-
dísum. Þetta eru nokkur lönd, t.d. í
Karabíska hafinu og eyjum við Bret-
land. Rökstuddur grunur hafi verið
um að í sumum tilvikum hafi fjár-
málastofnanir ráðlagt þeim sem
vildu fela peninga að fara með þá úr
landi og fá sér svo erlend greiðslu-
kort til að geta komið peningunum í
lóg. Sú leið hafi verið farin að leita að
þessum peningum í gegnum korta-
fyrirtæki svo mætti freista þess að
skattleggja þá samkvæmt lögum og
reglum.
Skúli Eggert segir að íslensk
skattayfirvöld hafi ákveðið að fara
þessa leið og í því skyni leitað eftir
upplýsingum frá íslensku kortafyr-
irtækjunum. Tvö af þremur fyrir-
tækjum hafi afhent umbeðnar upp-
lýsingar en Valitor hf. hafi hins
vegar neitað. Höfðaði ríkisskattstjóri
mál fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur
sem felldi úrskuð honum í vil 12.
september s.l. Hæstiréttur staðfesti
úrskurðinn með dómi s.l. föstudag.
Skúli Eggert segir að nú hafi
Hæstiréttur samþykkt sömu aðferð
og beitt var á Norðurlöndunum.
Næsta skref sé að bera saman
þær upplýsingar sem fást frá korta-
fyrirtækjunum við þær upplýsingar
sem fram koma á skattskýrslum við-
komandi. Ef í ljós komi, að fólk hefur
notað slík kort án þess að gefa upp
bankainnistæður erlendis, verði
málin skoðuð sérstaklega.
Skúli Eggert segir að í því úrtaki,
sem beðið var um frá kortafyrir-
tækjunum, hafi þess verið gætt að
hafa upphæðirnar það háar, að engin
hætta væri á því að þarna kæmu
fram ferðamenn eða fólk sem dveld-
ist aðeins tímabundið hér á landi.
Hann sagði ennfremur að sam-
svarandi könnun í Danmörku hefði
m.a. leitt í ljós að þar dvaldist fólk
sem dönsk yfirvöld höfðu ekki hug-
mynd um að byggi þar, en hefði með
réttu átt að greiða skatta í Dan-
mörku. Fram kemur í dómi héraðs-
dóms, að upplýsingar sem dönsk
yfirvöld veittu ríkisskattstjóra hafi
leitt til athugunar og síðan gjald-
breytinga í einu tilviki hér á landi.
Hæstiréttur klofnaði
Hæstiréttur klofnaði í niðurstöðu
sinni. Jón Steinar Gunnlaugsson
skilaði sératkvæði en Árni Kolbeins-
son, Garðar Gíslason, Gunnlaugur
Claessen og Páll Hreinsson stóðu að
dómsorðinu. Segja þeir að lagaskil-
yrði til að taka kröfu ríkisskattstjóra
til greina séu uppfyllt og því sé úr-
skurðurinn staðfestur. Umbeðnar
upplýsingar séu nægilegar, viðeig-
andi og ekki umfram það sem nauð-
synlegt sé miðað við tilgang vinnsl-
unnar.
Kortaviðskipti skoðuð
Hæstiréttur úrskurðar að Valitor hf. veiti skattayfirvöldum upplýsingar
Ríkisskattstjóri hyggst skoða möguleg undanskot Íslendinga frá skatti
Morgunblaðið/Sverrir
Í HNOTSKURN
»Ríkisskattstjóri fer sömuleið og skattyfirvöld á
Norðurlöndum hafa farið til
að sannreyna undanskot frá
skatti.
»Skattayfirvöld hér á landihafa ekki hugmynd um
þann fjölda, sem kann að
koma út úr þessari könnun.
Skúli Eggert Þórðarson rík-
isskattstjóri telur líklegt að
fjöldinn verði á bilinu 40–60.
»Skúli Eggert flutti sjálfurmálið fyrir Hæstarétti en
Ólafur Eiríksson hrl. var lög-
maður Valitor.
Í séráliti segir Jón Steinar Gunn-
laugsson hæstaréttardómari, að
við málflutning fyrir Hæstarétti
hafi málsaðilar vísað til allmargra
dóma réttarins, þar sem fjallað
hafi verið um heimildir skatt-
yfirvalda til þess að krefjast upp-
lýsinga varðandi framtöl og skatt-
skil gjaldenda og sinna almennu
skatteftirliti.
Í engu þeirra hafi verið leyst úr
því hvort í ákvæðum laga felist
heimild skattyfirvalda til þess að
krefjast upplýsinga án þess að
nafngreina þá gjaldendur, sem
upplýsingaöflunin beinist að.
Af tilteknum lagatextum verði
ekki ótvírætt ráðið að skattyfir-
völdum sé heimilað að leita upp-
lýsinga á borð við þær sem greinir
á um í þessu máli án þess að nafn-
greina þá sem upplýsingar varða
og rannsókn eða eftirlit beinist að.
Hann telji að vafa í þessu efni eigi
að skýra varnaraðila (Valitor hf.) í
hag. Því beri að fella hinn kærða
úrskurð úr gildi og synja kröfu
sóknaraðila.
Segir að vafann eigi að skýra Valitor í hag
ÖLLUM borgurum í Garðabæ, 75
ára og eldri, er nú boðið upp á ör-
yggisheimsóknir frá Landsbjörg. Í
heimsókninni er farið yfir helstu
öryggisatriði heimilisins og sé þeim
ábótavant eru vandamálin leyst á
staðnum ef íbúar óska. Samkvæmt
Slysaskrá Íslands gerast 75% slysa
hjá eldri borgurum inni á eða við
heimili þeirra. Um 18% þeirra sem
slasast þurfa að leggjast inn á
sjúkrahús í einhvern tíma og hluti
þeirra nær ekki fyrri færni.
Eldri borgarar
fá heimsókn
FRÉTTIR