Morgunblaðið - 09.10.2008, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. OKTÓBER 2008 21
FRÉTTASKÝRING
Eftir Svein Sigurðsson
svs@mbl.is
GORDON Brown, forsætisráð-
herra Bretlands, kynnti í gær áætl-
un stjórnar sinnar til bjargar
bankakerfinu en hún felur það í sér
í raun, að átta stórir bankar verði
þjóðnýttir að hluta. Til þessa verða
notaðir 50 milljarðar punda og
kvað Brown tilgang þessara „rót-
tæku ráðstafana“ vera að tryggja
stöðugleika í bankastarfseminni og
gera bönkunum kleift að ástunda
venjulega lánastarfsemi.
„Óvenjulegir tímar krefjast
djarfra og víðtækra lausna. Nú er
tíminn til að brjótast úr viðjum
venjubundinnar hugsunar og úr-
eltra kenninga og ráðast til atlögu
við vandann með nýjum hætti,“
sagði Brown á blaðamannafundi í
Downingstræti í gær.
Brown tilkynnti einnig, að
bankakerfið fengi aðgang að 200
milljörðum punda í skammtíma-
lánum á venjulegum viðskipta-
kjörum og sagðist viss um, að það
fé myndi skila sér með vöxtum aft-
ur til almennings. Fyrir utan þetta
verða að minnsta kosti 25 milljarð-
ar punda til ráðstöfunar vegna ann-
arra fjámálastofnana og Englands-
banki, sem hafði áður ákveðið að
styrkja lausafjárstöðu bankanna
með 50 milljörðum punda, ætlar að
hækka upphæðina í 200 milljarða
punda. Þá verða veittar lánsá-
byrgðir að upphæð 250 milljarðar
punda til að greiða fyrir lánastarf-
semi bankanna í milli.
Forgangshlutir í bönkunum
Bankarnir, sem verða í raun
þjóðnýttir að hluta, eru Abbey;
Barclays; HBOS; HSBC; Lloyds
TSB; Nationwide Building Society;
Royal Bank of Scotland og Stand-
ard Chartered.
Alistair Darling, fjármálaráð-
herra Bretlands, sagði, að aðrir
bankar og fjármálastofnanir gætu
sótt um aðstoð í samræmi við
björgunaráætlunina en gegn að-
stoðinni fær ríkið svokallaða for-
gangshluti í bönkunum. Þeir eru að
því leyti frábrugðnir venjulegu
hlutafé, að þeir bera fasta vexti en
fá ekki aðrar arðgreiðslur.
Breska ríkið mun ekki taka að
sér rekstur fyrrnefndra banka en
hins vegar mun það hafa hönd í
bagga með endurskipulagningu
þeirra. Það á sem sagt ekki það
sama við um þessa banka og lána-
stofnanirnar Northern Rock og
Bradford & Bingley, sem eru nú al-
veg í höndum ríkisins.
Tími ofurlauna er liðinn
Robert Peston, viðskiptaritstjóri
BBC, breska ríkisútvarpsins, segir,
að aðstoðin sé ekki ávísun á, að
bankarnir geti farið sínu fram
eins og áður. Viðræður muni fara
fram við banka um að þeir taki
upp eðlilegar lánveitingar til hús-
eigenda og lítilla fyrirtækja en
auk þess er það ófrávíkjanlegt
skilyrði, að tími ofurlauna heyri
sögunni til og arðgreiðslur verða
endurskoðaðar.
George Osborne, sem fer með
fjármálin í skuggaráðuneyti
Íhaldsflokksins, sagði í gær, að
flokkurinn vildi leggja sitt af
mörkum með uppbyggjandi hætti.
Bætti hann við, að nú væri verið
að skrá lokakaflann í sögunni um
„tíma ábyrgðarleysisins, ofur-
launa og bónusa“.
„Þjóðin mun ekki þola, að
greiddir verði bónusar undir þess-
um kringumstæðum,“ sagði Os-
borne.
Áætluninni vel tekið
Vonast er til, að björgunaráætl-
unin muni auðvelda starfsemi á
fjármálamarkaði og tryggja fram-
tíð breska bankakerfisins. Segja
sérfræðingar, að fólk ætti ekki
lengur að þurfa að óttast um
sparifé sitt og talsmenn bankanna
fagna aðgerðum stjórnvalda. Þá
brást breski kauphallarmarkaður-
inn einnig vel við tíðindunum.
Eftir mikið gengishrun síðustu
daga hækkaði FTSE-vísitalan um
tæplega 6,50 punkta í gærmorg-
un.
Breskir bankar fá aðstoð
Átta stórir bankar verða þjóðnýttir að hluta Breskir stjórnmálamenn segja
að verið sé að skrá síðasta kaflann í sögu „ábyrgðarleysis og ofurlauna“
Í BRETLANDI hefur björgunaráætlun stjórnarinnar almennt verið
fagnað en ekki eru þó allir alveg á einu máli um, að hún muni duga.
David Woo og Paul Robinson, greinendur hjá Barclays Capital,
fjárfestingararmi Barcleys-banka, sögðu, að með aðstoðinni væru
stjórnvöld að ná tökum á kreppunni og með henni væri verið að slá
skjaldborg um bankana skyldi ástandið innanlands og utan eiga
eftir að versna. Sérfræðingar hjá hinum þýska Commerzbank voru
hvað neikvæðastir. Þeir sögðu, að áætlunin bæri vissulega vott um
djörfung en hún væri samt í anda þeirra hugmynda Breta í langan
tíma, að sem fæstar reglur ættu að gilda um fjármálamarkaðinn.
„Hafi einhvern vantað sönnun fyrir því, að hið engil-saxneska mód-
el af kapitalismanum væri í vanda, þá hefur henni verið mokað
framan í þá,“ sögðu sérfræðingarnir hjá Commerzbank.
Greinir á um áætlunina
NÝTT dulkóðunarkerfi, sem er sagt
vera algerlega öruggt, var reynt í
fyrsta sinn í Vín í Austurríki í gær.
Tókst tilraunin mjög vel að sögn vís-
indamanna hjá Evrópustofnuninni
SECOQC en skammstöfunin stend-
ur fyrir Örugg fjarskipti á grundvelli
kvantafræðilegrar dulkóðunar.
Í yfirlýsingu frá SECOQC segir,
að líklegir notendur séu stjórnar-
stofnanir, fjármálastofnanir og fyr-
irtæki með mörg útibú og nú hilli
undir, að þau geti dulkóðað fjarskipti
sín í milli með öruggum hætti. Búist
er við, að kerfið verði tilbúið innan
þriggja ára.
Tæknin byggist á því, að sendur er
straumur ljóseinda, fótóna, og segja
höfundarnir, að reyni einhver óvið-
komandi að komast inn, þá verði
þess vart á stundinni.
Kvantafræðileg dulkóðun hefur
verið notuð til að flytja upplýsingar
beint milli tveggja staða en ekki sem
hluti af stóru neti. Evrópskir vís-
indamenn hafa unnið að smíði kerf-
isins í hálft fimmta ár og naut starfið
blessunar og stuðnings eins af feðr-
um kvantafræðilegrar eðlisfræði,
Antons Zeilingers hjá Vínarháskóla.
Boða hina
öruggu
dulkóðun
Byggist á grundvelli
kvantafræðinnar
ÚTLIT er fyrir að hagvöxturinn í
heiminum minnki verulega í ár og á
næsta ári, að því er fram kemur í
nýrri skýrslu Alþjóðagjaldeyr-
issjóðsins (IMF).
„Hagkerfi heimsins er nú að fara í
mikla niðursveiflu vegna hættuleg-
asta áfalls á fjármálamörkuðum iðn-
ríkjanna frá fjórða áratug síðustu
aldar,“ segir í skýrslu Alþjóðagjald-
eyrissjóðsins.
IMF spáir því að hagvöxturinn í
heiminum, sem var um 5% á síðasta
ári, verði 3,9% í ár og aðeins 3% á
næsta ári. Gangi það eftir verður
þetta minnsti hagvöxtur í heiminum
frá árinu 2002.
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn telur
að í Bandaríkjunum minnki hagvöxt-
urinn úr 2% í 1,6% í ár, en aðeins
0,1% á næsta ári. Sjóðurinn telur að
þjóðarframleiðslan vestra dragist
saman á síðustu þremur mánuðum
ársins og fyrstu þremur mánuðum
næsta árs. Hagfræðingar nota yf-
irleitt hugtakið samdráttur þegar
þjóðarframleiðsla dregst saman að
raunvirði tvo ársfjórðunga í röð.
bogi@mbl.is
Spáir sam-
drætti vestra
HÚN er gegnsæ, bjöllulaga, með
langa þræði og á að auki stóran þátt í
nóbelsverðlaunum þessa árs í efna-
fræði.
Hér er um að ræða marglyttuna
Aequorea Victoria en hún framleiðir
eggjahvítuefni, sem gerir hana sjálf-
lýsandi verði hún fyrir áreiti. Þeir,
sem fá efnafræðiverðlauin Nóbels á
þessu ári, Japaninn Osamu Shimom-
ura og Bandaríkjamennirnir Martin
Chalfie og Roger Tsien, hafa fundið
aðferð til að nýta próteinið og því er
unnt að fylgjast með því hvort
krabbameinsæxli sé að mynda nýjar
blóðæðar eða hvernig taugasjúk-
dómurinn Huntingtons-sjúkdómur-
inn berst á milli heilafrumna.
Próteininu er komið fyrir í erfða-
menginu og hefur tekist að bæta við
ýmsum litum, til dæmis rauðum,
bláum og gulum. Með þessum hætti
er í raun unnt að kortleggja ólíkar
frumur. svs@mbl.is
Merkilegt prótein
í marglyttum
Þrír fengu Nóbelsverðlaun í efnafræði
AP
Heillaóskir Osamu Shimomura.
FJÁRLAGAHALLINN í Banda-
ríkjunum var meiri en nokkru sinni
fyrr á fjárhagsárinu 2008 sem lauk
30. september, samkvæmt nýrri spá
Fjárlagaskrifstofu Bandaríkjaþings.
Fjálagahallinn er talinn hafa num-
ið 438 milljörðum dollara, en hann
var 162 milljarðar dollara á síðasta
ári. Fyrra met er frá árinu 2004 þeg-
ar hallinn var 413 milljarðar dollara.
Fjárlagaskrifstofan sagði að
tekjur ríkisins hefðu minnkað um
nær tvö prósent. Samdrátturinn
varð m.a. til þess að fyrirtæki
greiddu 65 milljörðum dollara (nær
18%) minna í tekjuskatt en árið áður.
Talið er nær öruggt að fjárlaga-
hallinn verði enn meiri á næsta ári
vegna bankakreppunnar. Talið er
líklegt að hann fari yfir 500 milljarða
dollara. Viðbúið er því að næsti for-
seti Bandaríkjanna geti ekki efnt öll
kosningaloforð sín á næsta kjörtíma-
bili. bogi@mbl.is
. ,&2 / ! % %3, 4 5
@M A A@ * *HFE* @1=*. M
2@M M CDDE.#2 # # =@2 * Q# * #
# * - @ #*M .2 # *M 2 ..
* # # #2 *M $1
$2
$
$
$
. .
/
0
/
1-
67 676 668 9(( 9((6
2
'
Q 2@M # :
RHFE
;<!
Stefnir í enn
meiri halla
MIKLAR þrengingar eru á fjármálamörkuðum
um allan heim og margir óttast um atvinnu sína
og sparifé, jafnvel allan ævisparnaðinn. Í
Pakistan er líka hart í ári þótt áhyggjur almenn-
ings þar snúist minnst um bankainnstæður. Þar
snýst baráttan alla daga um að hafa til hnífs og
skeiðar, einkum eftir að matur og aðrar nauð-
synjar stórhækkuðu í verði. Þetta fólk í borginni
Hyderabad beið klukkustundum saman eftir því
að dreifingarmiðstöð fyrir matvæli yrði opnuð í
von um að komast yfir einn hveitisekk á tvöföldu
verði.
AP
Barist við skortinn í Pakistan