Morgunblaðið - 09.10.2008, Page 25
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Verkleg Jónína Sigríður Björnsdóttir hugar að hákarlinum í hjallinum á Ísólfsstöðum.
Eftir Atla Vigfússon
Tjörnes | „Ég held að hákarlinn sé
að verða tilbúinn,“ segir Jónína Sig-
ríður Björnsdóttir bóndi á Ísólfs-
stöðum um leið og hún skoðar stóra
bita af hákarli sem eru í hjalli í
túninu á bænum hjá henni. „Veðrið
hefur verið gott í sumar og það er
eins með heyið og hákarlinn að
hann verkast betur í þurrum sunn-
anvindum heldur en í vætutíð og
þess vegna verður hann góður
núna.“
Um er að ræða þrjá hákarla sem
voru allir 14-15 fet og veiddust í vor
en tveir þeirra náðust á öngla með
selspiki í sjónum út af Tjörnesi.
Það er Kristinn Lúðvíksson sjó-
maður á Húsavík sem hefur veg og
vanda af verkuninni núna en hefð
er fyrir hákarlaverkun á Ísólfs-
stöðum.
Þegar hákarlarnir veiddust voru
þeir skornir og settir í kös, síðan
var fergt yfir og látið vera í plast-
kari að lámarki í 5 vikur. Segl var
breitt yfir til þess að flugan færi
síður í og í byrjun júní var tekið úr
kösinni, allt þvegið upp og settur
vír í stykkin til þess að láta þau
hanga í a.m.k. fimm mánuði.
Þykkustu bitarnir eru 4-5 kg og í
lok október verða þeir tilbúnir til
þess að setja í frost en aðalneyslu-
tíminn er á þorranum og þykir há-
karlinn frá Ísólfsstöðum sérstakt
lostæti. Minni bitar eru tilbúnir og
búið að frysta þá til vetrarins.
Jónína Sigríður segir að engin
fluga hafi verið í hákarlinum og þar
hafi tíðarfarið hjálpað en gott er að
hengja upp í þurrum vindi því þá
myndast þykk skorpa og síðan er
mjög gott að fá þurrkatíð eins og
var á heyskapartímanum í sumar
þegar leið á.
Hákarlinn hefur
verkast vel í ár
Í HNOTSKURN
» Sporðar og bægsli há-karla voru áður soðin,
súrsuð og sviðin.
» Áður fyrr var ótrú á þvíað eta hákarl nýjan en þó
voru hákarlahausar soðnir ný-
ir og etnir með hrárri tólg.
Það var kallað hákarlastappa.
Sumir steiktu hákarl á glóð,
allan í smábitum.
úr bæjarlífinu
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. OKTÓBER 2008 25
Only 16 lots left to build your new dream
Orlando Vacation Home!
Choose a 4 ,5 or 6 bedroom home, low down
payment and financing available!
Hurry and call your Orlando home experts today...
LAST CHANCE
Windsor Hills Resort
Thorhallur Gudjonsson at
Gardatorg - 896 8232
Meredith Mahn in Orlando at
(321) 438 5566
www.LIVINFL.com
Ástandið í efnahagslífinu snertir
auðvitað Akureyringa eins og aðra
landsmenn. Fólk hefur fjölmennt í
bankana til þess að athuga með inni-
stæður sínar, að sögn bankamanns
sem ég hitti í gær. En hann taldi fólk
þó aðeins vera að róast.
Hveiti seldist upp í Bónus í vikunni
og ef marka má það ætla Akureyr-
ingar að vera duglegir að baka á
næstunni til þess að spara.
Akureyringar eru frægir fyrir að
borða heima hjá sér í hádeginu, í
mun meira mæli en á borgarhorn-
inu, þannig að við spörum varla mik-
ið með því að sniðgenga veitinga-
staði. Kannski maður byrji á því að
sleppa koníakinu með kaffinu í há-
deginu …
Í upphafi fundar bæjarstjórnar á
þriðjudaginn las forseti upp yfirlýs-
ingu frá öllum fulltrúum í bæjar-
stjórn þar sem tekið var skýrt fram
að bæjarstjórn „muni beita sér, með
öllum tiltækum ráðum, fyrir því að
hjól samfélagsins haldi áfram að
snúast hér í bæ með velferð bæjar-
búa að leiðarljósi.“
Sveitarfélögin eru stór hluti af hags-
tjórninni í landinu og því ekki
undanþegin þátttöku í þeim aðgerð-
um sem nauðsynlegar eru til að
halda samfélaginu gangandi, segir í
yfirlýsingunni, og bæjarbúar eru
fullvissaðir um að í því efni mun bæj-
arstjórn Akureyrar ekki skerast úr
leik. „Það eru ýmis jákvæð teikn á
lofti. Grunnstoðir bæjarfélagsins
eru öflugar og vel í stakk búnar að
taka á móti tímabundinni ágjöf.
Samfélagið okkar er sterkt og sam-
an munum við komast í gegnum
þennan brimskafl.“
Ingibjörg Ösk Stefánsdóttir hefur
verið ráðin framkvæmdastjóri Hofs
menningarfélags, en það félag mun
reka samnefnt menningarhús á
Akureyri. Ingibjörg hefur lokið
B.Sc.-prófi í viðskiptafræði frá
Háskólanum á Akureyri og er að
ljúka meistaranámi í viðskiptafræði
frá sama skóla.
Fimm vaskir félagar í björgunar-
sveitinni Súlum á Akureyri eru lagð-
ir af stað í leiðangur til Indlands, þar
sem hópurinn ætlar að klífa fjallið
Mt. Shivling í Himalayafjöllunum,
en það er 6.543 metrar á hæð. Í
hópnum eru Berglind Aðal-
steinsdóttir, tvíburabræðurnir
Gunnar Sveinn Ragnars og Eiríkur
Geir Ragnars, Kári Erlingsson og
leiðangursstjórinn Arnar Þór Em-
ilsson.
Óvænt og skemmtileg atvik verða
gjarnan í handboltaleikjum. Þegar
Akureyri vann Stjörnuna um daginn
stöðvaði annar dómarinn skyndilega
leikinn og vísaði kústastrákunum
burt af vellinum! Atli Ragnarsson
formaður Akureyrar leysti þá af og
stóð vaktina það sem eftir lifði leiks
og bíða menn nú spenntir eftir leik
Akureyrar og HK í kvöld: hvort
kústastrákarnir verði reknir út af.
AKUREYRI
Skapti Hallgrímsson
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Hof Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir
hefur verið ráðin framkvæmda-
stjóri menningarfélagsins Hofs.
Ingibjörg Unnur Sigmundsdóttirá Ísafirði orti vísu, þegar hún
var að glíma við áhrif velsældar-
tímabilsins á hrossinu sínu:
Alltaf bregst hann illa við
öllu sem ég bið hann.
Syfjaður með sigin kvið
samt er eitthvað við’ann.
Seinna á ferð í fjörusandi.
Geturðu ekki hreyft þig hót
hér er þéttur sandur.
Hafið upp þinn hruma fót
hæruskotni gandur.
Það var þungt hljóðið í Ingólfi
Ómari Ármannssyni þegar hann
orti á föstudag:
Þykir afleitt ástandið
ennþá gengið lækkar
eymdin blasir víða við
verðlag stöðugt hækkar.
Stefnir allt á versta veg
veik er fjárhagsstaða
gengisfelling gríðarleg
gerir mikinn skaða.
Nú er tæp vika síðan og komið
annað hljóð í strokkinn:
Brátt við lygnan siglum sjó
senn mun birta aftur.
Yfir lýðinn færist fró
þá fagnar sérhver kjaftur
VÍSNAHORNIÐ pebl@mbl.is
Yfir lýðinn færist fró
Bónus
Gildir 9. - 12. október verð nú verð
áður
mælie. verð
KF lambahjörtu í raspi ................ 399 499 399 kr. kg
KF ósoðin lifrarpylsa................... 398 532 398 kr. kg
KF ósoðinn blóðmör ................... 359 479 359 kr. kg
KF sveitabjúgu ........................... 299 359 299 kr. kg
KF lambasaltkjöt blandað ........... 349 449 349 kr. kg
KS fersk lambalifur .................... 187 198 187 kr. kg
KS fersk lambahjörtu ................. 187 198 187 kr. kg
NV ferskt nautahakk................... 798 898 798 kr. kg
Holta ferskir kjúklingabitar .......... 359 479 359 kr. kg
Myllu heimilisbrauð, 770 g ......... 129 209 167 kr. kg
Fjarðarkaup
Gildir 9. - 11. október verð nú verð
áður
mælie. verð
Nautabuff úr kjötborði ................ 1.498 1.898 1.498 kr. kg
Hamborgarar, 4 stk. m/brauði .... 396 498 396 kr. pk.
Móa grillaður kjúklingur .............. 698 898 698 kr. kg
Ísfugl kjúklingabringur ................ 1.622 2.704 1.622 kr. kg
Lamba ribeye úr kjötborði ........... 2.198 2.798 2.198 kr. kg
Spareribs soðið ......................... 1.064 1.418 1.064 kr. kg
Krónan
Gildir 9. - 12. október verð nú verð
áður
mælie. verð
Grísahnakki m/trönub./sveppum 1.959 2.798 1.959 kr. kg
Grísalundir fylltar m/apríkósum... 1.959 2.798 1.959 kr. kg
Móa kjúklingur ferskur 1/1 ......... 539 899 539 kr. kg
Ungnautapiparsteik ................... 1.795 3.095 1.795 kr. kg
Meistara marmarakaka .............. 359 459 359 kr. stk.
Lamba satin hvítur ..................... 423 515 423 kr. pk.
Ariel regular compact ................. 699 799 699 kr. pk.
Shop rite eldhúsrúllur................. 499 599 499 kr. pk.
Weetaflakes .............................. 369 498 369 kr. pk.
Exact dandruff sjampó classic .... 140 299 140 kr. stk.
Nóatún
Gildir 9. - 12. október verð nú verð
áður
mælie. verð
Móa kjúklingabringur ................. 1.769 2.949 1.769 kr. kg
Lambafille country style ............. 2.998 4.298 2.998 kr. kg
Ungnautaborgari, 120 g ............. 139 199 139 kr. stk.
Grísasnitsel m/ fyllingu .............. 1.389 1.998 1.389 kr. kg
Laxaflök beinhreinsuð ................ 998 1.598 998 kr. kg
Nóatúns bayonneskinka ............. 1.399 1.998 1.399 kr. kg
Floridana appelsínusafi.............. 199 249 199 kr. ltr
Focaccia pitsa m/ pepperóní...... 159 298 159 kr. stk.
Steinbakað kornbrauð................ 299 439 299 kr. stk.
Meistara djöflaterta, 1/2............ 399 625 399 kr. stk.
Þín Verslun
Gildir 9. - 15. október verð nú verð
áður
mælie. verð
SS kindabjúgu soðin .................. 619 728 619 kr. kg
Delba fjölkornabrauð, 250 g....... 199 259 796 kr. kg
Delba rúgbrauð 250 g................ 199 259 796 kr. kg
Chocolate cookies, 225 g........... 239 315 1.063 kr. kg
Canderel strásæta, 90 g............. 639 798 7.100 kr. kg
Campbells aspassúpa, 295 g ..... 199 239 675 kr. kg
Gevalia Cappuccino Daim, 168 g 589 739 3.506 kr. kg
Chicago Town, 13 cm pepperóní . 639 919 639 kr. stk.
Corny stangir, 6 x 25, g .............. 279 379 47 kr. stk.
Maraþon milt, 700 g.................. 549 798 785 kr. kg
helgartilboðin
Sláturtíðin hafin