Morgunblaðið - 09.10.2008, Qupperneq 38
38 FIMMTUDAGUR 9. OKTÓBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
PORTÚGALSKI arkitektinn Álvaro
Siza fékk á þriðjudaginn helstu verð-
laun sem veitt eru fyrir bygging-
arlist í Bretlandi, Hin konunglegu
gullverðlaun. Siza hefur haft mikil
áhrif á unga breska hönnuði, en eina
byggingin sem hann hefur gert
hingað til á Bretlandseyjum er sýn-
ingarskáli við Serpentine-galleríið
sem stóð aðeins í takmarkaðan tíma
árið 2006. Siza aðhyllist módernisma
í arkitektúr, en leggur jafnframt
áherslu á að laga byggingar að um-
hverfi sínu. Þannig notar hann mikið
hvítkalkaðan stein þegar hann hann-
ar hús í heimalandinu, en t.d. múr-
stein í byggingar í Hollandi.
Siza verð-
launaður
Stílhreint Hús eftir Siza í Portúgal.
EINN af virtustu
rithöfundum
Bretlands, Marg-
aret Drabble, hélt
því fram á dög-
unum að útgáfu-
fyrirtæki hennar
þrýsti á hana að
gera bækur sínar
einfaldari og auð-
skiljanlegri.
Þetta sagði hún á fundi gamalla
nemanda Cambridge-háskóla, en
Drabble tekur bráðlega við for-
mennsku í breska rithöfunda-
sambandinu, The Society of Aut-
hors.
„Ég hef það á tilfinningunni að
þeir vilji miða bækurnar mínar við
lægsta samnefnarann og að það sé
það sem markaðurinn krefst,“ sagði
hún um útgáfufyrirtækið Penguin í
samtali við The Independent.
Drabble lýsti sig einnig mótfallna
því að gera stjörnur úr rithöfundum
og sagði að athyglin ætti fyrst og
fremst að beinast að verkum þeirra
og sagðist hún í því samhengi efast
mikið um gildi bókmenntaverðlauna.
Einfald-
aðar bók-
menntir
Margaret Drabble
ALLA fimmtudaga í þessum
mánuði verða haldnir hádeg-
istónleikar í Vonarsal SÁÁ við
Efstaleiti. Í þessari tónleikaröð
koma fram Haukur og Ragn-
heiður Gröndal og Óskar og
Ómar Guðjónssynir.
Gítarleikarinn Ómar Guð-
jónsson ríður á vaðið í dag.
Hann hefur meðal annars leik-
ið með hljómsveitunum Jagúar
og Latínhljómsveit Tómasar
R. Einarssonar, en á tónleikunum leikur hann efni
af sólóplötunni Fram af.
Tónleikarnir hefjast klukkan 12:15 og standa í
rúman hálftíma. Hægt er að kaupa léttan hádeg-
isverð á staðnum.
Tónlist
Gítartónar í Vonar-
sal í hádeginu
Ómar Guðjónsson
DAGBÆKUR og bréf Franz
Kafka bera einstakri lífssýn
hans merki og það á ekki síst
við um Bréf til föðurins, sem
Forlagið gefur nú út í nýrri ís-
lenskri þýðingu.
Franz Kafka var þrjátíu og
sex ára gamall þegar hann
skrifaði föður sínum gríð-
arlangt bréf sem var ekki ætl-
að til birtingar og raunar aldrei
afhent. En það varðveittist og
er ekki aðeins ákæruskjal á hendur föðurnum
heldur einnig játningabók og tilraun bréfritarans
til þess að skilja æsku sína, fjölskyldu og uppeldi.
Ástráður Eysteinsson og Eysteinn Þorvaldsson
þýddu og rituðu eftirmála.
Bókmenntir
Bréf til föðurins
í nýrri þýðingu
Bréf til föðurins.
Í KVÖLD koma söngkonan
Andrea Gylfadóttir ásamt
hljómsveit og Kvartett Jóns
Páls Bjarnasonar fram á tón-
leikum djassklúbbsins Múlans.
Með Andreu leika Eðvarð Lár-
usson á gítar, Þórður Högna-
son á bassa og Birgir Bald-
ursson á trommur og munu
þau leika djass- og blúsperlur á
persónulegan hátt í nýstár-
legum útsetningum.
Múlinn er samstarfsverkefni FÍH og Jazzvakn-
ingar. Tónleikarnir fara fram á Café Rósenberg
við Klapparstíg 25 og hefjast klukkan níu. Að-
gangseyrir er 2.000 kr. og 1.000 kr. fyrir nem-
endur.
Tónlist
Djassklúbburinn
Múli á Rósenberg
Andrea Gylfadóttir
Eftir Einar Fal Ingólfsson
efi@mbl.is
NÚTÍMINN sættir sig ekki við
gagnrýnislausar skýringar og því
notum við í dag ýmsar aðferðir til að
varpa nákvæmara ljósi á uppruna
kristindómsins, og á það hversu fjöl-
breyttur hann hefur verið allar göt-
ur frá upphafi og til þessa dags,“
segir Jón Ma. Ásgeirsson, prófessor
í guðfræði við Háskóla Íslands.
Jón flytur í kvöld, fimmtudags-
kvöld, klukkan 20 fyrirlestur á rann-
sóknarkvöldi Félags íslenskra fræða
í húsi Sögufélagsins við Fischer-
sund. Fyrirlesturinn kallar hann
Arfur Tómasar postula og krist-
indómur á krossgötum. Fjallar Jón
um nokkra þætti Tómasarkristni í
samhengi bókarinnar Frá Sýrlandi
til Íslands – Arfur Tómasar postula,
eftir þá Þórð Inga Guðjónsson bók-
menntafræðing, sem nýlega kom út.
Þrjú rit tileinkuð Tómasi postula,
rituð á fyrstu og fram á þriðju öld,
eru talin hafa myndað fornan meið á
meðal frumkristinna bókmennta.
Þetta eru Tómasarguðspjall, Tóm-
asarkver og Tómasarsaga. Tóm-
asarsaga, og þá einkum styttar lat-
neskar gerðir frá fjórðu öld, hefur
þekkst í þýðingum, en tvö fyrsttöldu
ritin urðu fyrst þekkt með fundi Nag
Hammdi-handritanna árið 1945.
„Tómasarguðspjallið var með því
fyrsta sem varð til innan kristninn-
ar, en Tómasarkver og það sem við
köllum Tómasarsögu eru nokkuð
yngri,“ segir Jón og bætir við að
þetta sé merkileg saga sem hann
fjalli um í fyrirlestrinum.
„Tómasarkristni, sem svo er köll-
uð, sanmanstendur af þessum þrem-
ur ritum og skipar merkan meið
þegar í fornkirkjunni. Örlög þess-
arar deildar kristindómsins voru að
verða meira og minna bannfærð
undir lok 4. aldar, þegar fram á sjón-
arsviðið steig miðstýrt vald róm-
verskrar kirkju.
Þá var lögð lína af fulltrúum
ákveðinna hópa sem náðu sam-
komulagi, samnefnara sem þeir gátu
unað við. Birtingarform þess eru rit-
in í Nýja testamentinu í dag. Um leið
tóku þeir að afneita kenningum ým-
issa sem ekki voru þátttakendur í
samkomulaginu. Þeir eru oft kallaðir
villutrúarhópar eftir það. Tóm-
asarguðspjall og Tómasarkver voru
á meðal rita sembönnuð voru og
hurfu af sjónarsviðinu.“
Ólíkar túlkanir á Jesú
Rit þessi dúkkuðu óvænt upp í
einum merkasta handritafundi 20.
aldar. Þar með, segir Jón, var hægt
að skrifa sögu þessa forna hóps.
„Ég mun fjalla um hvað það þykir
orðið hæpið í dag, út frá sjónarhóli
vísindanna, að taka gagnrýnislaust
undir boðun kirkjunnar, sem hefur
frá 4. öld til þessa dags byggst á
samkomulagi um hvaða rit eigi að
sýna. Við erum að kynnast því, í
gegnum apókrýf rit Nýja testamest-
isins, sem ekki voru höfð með í Biblí-
unni, að frá upphafi, þegar Jesús
kemur fram á sjónarsviðið, verða til
afskaplega ólíkar túlkanir á persónu
hans, orðum og gerðum.
Þessar rannsóknir bregða allt
öðru ljósi á uppruna kristindómsins.
Okkur er kennt að kristindómurinn
sé í beinu framhaldi af gyðingdómi,
en nú sýna rannsóknir að þetta er
flóknara en svo. Það kemur t.d. í ljós
að sumar hreyfingar í frumkristni
hafna tengslum við gyðingdóminn á
meðan aðrir töldu að við ættum að
halda okkur við gyðinglega siði.
Tómasarkristni leggur upp-
haflega mikið út frá grískum hefð-
um, ekki gyðinglegum. Hin opinbera
boðun á erfitt með að horfast í augu
við það. Fyrir utan að píslarsagan er
alls ekki í Tómasarguðspjalli.“
Fjölbreytilegri kristni
Jón Ma. Ásgeirsson prófessor fjallar um arf Tómasar postula og Tómasarkristni
í fyrirlestri í kvöld Segir boðun kirkjunnar vera á krossgötum
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Prófessorinn „Þessar rannsóknir bregða upp allt öðru ljósi af uppruna
kristnidómsins,“ segir Jón Ma. Ásgeirsson um skoðun á apókrýfum ritum.
„ÞAÐ er nú ofsögum sagt að þeir séu byrjaðir að
pakka niður, ég vil ekki taka svo sterkt til orða,
en það hafa komið til mín menn sem hafa sagt að
ef ástandið skáni ekki muni þeir ekki geta haldið
samningi sínum hér áfram lengi,“ segir Þröstur
Ólafsson, framkvæmdastjóri Sinfóníuhljóm-
sveitar Íslands, um stöðu erlendra hljóðfæraleik-
ara hjá sveitinni í ljósi efnahagsástandsins.
Þröstur segir að það séu um fimm erlendir
leikarar sem eru í þessari stöðu og ef þeir færu
allir í einu gæti það haft áhrif á starf Sinfóníunn-
ar.
„Þetta gæti orðið mjög bagalegt en þeir hafa
sinn samning sem þeir verða að segja upp þannig
að þeir láta sig ekki bara hverfa í skyndi. Ef þeir
fara myndum við reyna að verða okkur úti um
sambærilega hljóðfæraleikara hér innanlands.
En þessir leikarar komust inn í hljómsveitina því
þeir voru á þeim tíma betri en aðrir sem sóttu um
þannig að það væri hætta á að þetta bitnaði á
gæðum Sinfóníunnar.“
Aðspurður segir Þröstur þetta ástand líklega
ekki hafa áhrif á væntanlega Japansferð hljóm-
sveitarinnar.
„Ég held að það fari engir útlendingar frá okk-
ur fyrir ferðina til Japans, enda hafa þeir upp-
sagnarfrest og enginn búinn að segja upp ennþá.
Það er kannski ekki fyrr en næsta haust að þeir
hætta að skila sér.“
ingveldur@mbl.is
Gæti bitnað á gæðunum
Rokkari Fiðluleikarinn Rachel B. Pine hefur
jafnt áhuga á þungarokki og klassískri tónlist.
Erlendir hljóðfæraleikarar Sinfóníunnar eru í
erfiðri stöðu Enginn búinn að segja upp ennþá
Hvað greinir Tómasarguðspjall
frá guðspjöllum Nýja testament-
isins?
Í Tómasarguðspjalli er til að mynda
ekki talað um upprisu frá dauðum.
Píslarsagan er þar alls ekki. Tóm-
asarguðspjall er álitið eldra en guð-
spjöllin í Nýja testamentinu, þannig
að túlkun á örlögum Jesú í písl-
arsögulegu ljósi er af mörgum sér-
fræðingum í dag talin yngri en þess-
ar hefðir sem varðveittar eru í
Tómasarguðspjalli og fleiri ritum.
Er Kristur þá ekki frelsarinn?
Frelsunin þar byggist ekki á því að
Jesús hafi dáið og risið upp frá dauð-
um, heldur á því að þú þekkir sjálfan
þig og að í gegnum þekkinguna kom-
ist þú aftur til upprunans.
Áberandi er sú hugmynd að ein-
staklingar eigi sér nokkurs konar tví-
buramynd í heimi eilífðarinnar.
S&S
RACHEL Barton Pine verður ein-
leikari á tónleikum Sinfón-
íuhljómsveitar Íslands í kvöld, í sí-
gaunasveiflu hljómsveitarinnar.
Fluttar verða tónsmíðar sem sækja
innblástur sinn í tónlist Roma-
fólksins – flökkuþjóðar sem á ein-
staka hefð í trylltum fiðluleik og
þjóðsagnaarfi tengdum fiðlum.
Aðdáun Barton Pine á þunga-
rokki hefur vakið eftirtekt, sem
hún hefur nýtt sér til að vekja
áhuga ungs fólks á klassískri tón-
list. Hún hikar ekki við að leika
Metallica í bland við Mozart í þeirri
köllun sinni.
Á tónleikunum í kvöld verða m.a.
leikin verkin Zigane eftir Maurice
Ravel, ungverskir dansar eftir
Brahms og Carmen-fantasía Pablos
de Sarasates.
Sígaunasveifla
En ég held að tónlist-
in sé aldrei skemmti-
leg þegar það er ekki gaman
að gera hana 45
»