Morgunblaðið - 09.10.2008, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. OKTÓBER 2008 45
EIN FLOTTASTA ÆVITÝRAMYND ÁRSINS MEÐ
ÍSLENSKU LEIKKONUNNI ANÍTU BRIEM Í EINU
AF AÐALHLUTVERKUNUM.
/ SELFOSSI/ KEFLAVÍK/ AKUREYRI
EMMA ROBERTS ER
NÝJA STELPAN, Í
NÝJA SKÓLANUM
ÞAR SEM NÝJU
REGLURNAR ERU
TIL VANDRÆÐA!
SÝND Í ÁLFABAKKA
-DV
-S.V., MBL
SÝND Í ÁLFABAKKA
“MÖGNUÐ MYND SEM HELDUR
ÁHORFENDUM ALLANTÍMANN”
-S.M.E., MANNLÍF
“REYKJAVÍK ROTTERDAM ER ÁVÍSUN UPP Á
ÚRVALSSKEMMTUN”
-DÓRI DNA, DV
QUEEN RAQUELA kl. 10:10 B.i. 12 ára
REYKJAVÍK ROTTERDAM kl. 8 - 10:10 B.i. 14 ára
WILD CHILD kl. 8 LEYFÐ
QUEEN RAQUELA kl. 8 B.i. 12 ára
BABYLON A.D. kl. 8 - 10 B.i. 16 ára
CHARLIE BARTLETT kl. 10 B.i. 12 ára
QUEEN RAQUELA kl. 8 - 10:10 B.i. 12 ára
REYKJAVÍK ROTTERDAM kl. 10:20 B.i. 14 ára
PINEAPPLE EXPRESS kl. 8 B.i. 16 ára
SÝND Í KEFLAVÍK SÝND Í KEFLAVÍK
SÝND Í KRINGLUNNI
-BBC
-HJ.,MBL
JÁKVÆÐASTA MYND ÁRSINS
MYND SEM ÞÚ VERÐUR AÐ SJÁ
Sally Hawkins sem fékk
Berlínabjörninn
fyrir besta leik skapar
hina eftirminnilegu
Poppy sem sér heiminn
alltaf jákvætt
Mike Leigh leikstjóri
Secrets & Lies og
Veru Drakeer meistari
í persónusköpun
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG SELFOSSI SÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNI SÝND Í KEFLAVÍK OG SELFOSSI
-IcelandReview
“AFRAKSTURINN ER MÖGNUÐ
MYND Í ALLT ÖÐRUM GÆÐAFLOKKI
EN NOKKUR ÍSLENSK SPENNUMYND
(EÐA ÞÁTTARÖÐ) HINGAÐTIL.”
-B.S., FRÉTTABLAÐIÐ
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
FYRSTU tónleikar Motion Boys
fóru fram í Iðnó hinn 24. maí í
fyrra, en þeir gengu ekki áfalla-
laust fyrir sig því hljóðkerfið brást
illilega og þurfti sveitin því að
hætta leik þegar hann stóð sem
hæst. Segja má að fallið hafi reynst
fararheill því síðan þá hefur allt
gengið að óskum og í dag lítur
fyrsta plata sveitarinnar dagsins
ljós - hin magnaða Hang On. Þeir
Biggi, Bjössi, Tobbi og Gísli Galdur
kláruðu plötuna í Gróðurhúsi Val-
geirs Sigurðssonar í sumar. Þeir
segja að mikill sviti og mikið blóð
séu á plötunni. En þó engin tár.
En hvernig plötu lögðu þeir fé-
lagar upp með að gera?
Biggi: „Við vildum búa til svolítið
öðruvísi poppplötu - plötu með ein-
stakan hljóðheim.“
Bjössi: „Við fórum líka í stúdíó
með dálítið skýra mynd af því
hvaða sánd við vildum, sem var
gott. Tónlistin sjálf var meira á
reiki, hún fékk að þróast aðeins í
stúdíóinu.“
Tobbi: „Ég held að við höfum nú
bara lagt upp með að klára plötuna
yfirleitt.“
Á réttum tíma
Umfram allt er Hang On
skemmtileg plata, glaðleg og hress-
andi. Það veitir víst ekki af á þess-
um síðustu og verstu …
Biggi: „Nei, en það eru nú líka
svolítið dimmar pælingar í gangi.
Það má samt alveg segja að það sé
mikil gleði í lögunum.“
Tobbi: „Kreppan var nefnilega
ekki komin þegar við vorum að
gera plötuna.“
Bjössi: „Ég held líka að þegar
þessir strákar koma saman þá verði
alltaf mikil gleði.“
Bjössi: „En það er nú samt tölu-
verð spenna á plötunni, og mikið
pælt í hljóðum.“
Verðið þið þá ekki einir af fáum
sem geta hugsanlega grætt á
kreppunni – virkar ekki platan eins
og hálfgert þunglyndismeðal?
Bjössi: „Ég vona það. Platan
kemur allavega á réttum tíma. Ég
myndi bara þakka guði fyrir að það
sé svona hljómsveit í gangi á svona
tímum. Við munum verða til staðar
fyrir fólk þannig að það getur farið
út úr húsi og gleymt sér á góðum
tónleikum með Motion Boys. Við
erum ekki að fara að tala um krepp-
una.“
„Allavega ekki á þessari plötu …“
bætir Gísli við og uppsker mikinn
hlátur.
Tónlist Motion Boys verður
þannig til að Biggi semur lögin en
síðan fara þau í gegnum mikla með-
ferð hjá bandinu. Þeir segja þetta
fyrirkomulag hafa gengið vel fyrir
sig.
Bjössi: „Þetta gekk mjög vel fyrir
sig í stúdíóinu – við rifumst aldrei.
Ja, nema einu sinni …“
Og um hvað snerist það rifrildi?
Tobbi: „Einhverja R’N B-slaufu
hjá Bigga. Hún var slegin út af
borðinu.“
Bjössi: „Við héldum að hann væri
að grínast, en hann var ekki að grín-
ast.“
Tobbi: „Ég held að hann hafi bara
verið búinn að fá sér of mikið kaffi.“
Biggi: „Já – ég var í einhverju
tómu rugli þarna. Eftir á að hyggja
þakka ég fyrir að hafa verið stöðv-
aður með þetta.“
„Eins pródúktívur og Biggi er, þá
er hann alveg mannlegur og kemur
stundum með einhverjar hug-
myndir sem eru þroskaheftar. Og
við höfum alveg vald til að segja
bara: rólegur!“ segir Bjössi við mik-
inn hlátur félaga sinna.
Umfram allt gaman
Það er því ljóst að mikil samstaða
ríkir innan Motion Boys.
Bjössi: „Já – þetta er rosalega mikil
hljómsveit, og það er það sem ég fíla.
Við erum allir mjög skólaðir í þessum
hljómsveita-bransa og þegar við hitt-
umst eru allir svo rólegir. Það eru
nefnilega allir komnir út úr þessum
meik-pælingum. Við erum orðnir það
gamlir að við viljum bara gera tónlist
sem fyrst og fremst við fílum. En svo
er bara ótrúlega gaman að vera í þess-
ari hljómsveit, og ég hlakka alltaf til
að æfa með henni.“
„Ég hlakka nú líka til að meika það
með þessari hljómsveit …“ bætir
Tobbi við í léttum dúr.
Biggi: „En ég held að tónlistin verði
aldrei skemmtileg þegar það er ekki
gaman að gera hana. Þá flýtur hún
bara einhvern veginn í gegn.“
„Það er bara þannig að hljómsveitir
ganga ekkert nema kemistrían gangi,“
segir Gísli og þeir félagar sammælast
um að þeir hafi allir verið í sveitum
þar sem „kemistrían“ virkaði ekki.
Hvað tónlist Motion Boys varðar
hafa menn líkt henni við tónlist
sveita á borð við The Killers, Scis-
sor Sisters og jafnvel Duran Duran.
Hvað finnst þeim um það?
Bjössi: „Ég hef nú aldrei verið
ánægður þegar það er verið að líkja
mér við aðrar hljómsveitir.“
Gísli: „Trabant var alltaf tengd
við Scissor Sisters, ég man eftir því
á tímabili.“
Biggi: „Mér finnst nú Scissor Sis-
ters bara leiðinlegir. Ég held hins
vegar að eftir að fólk hlustar á plöt-
una sé líklegra að það líki okkur við
Roxy Music, Bowie, T.Rex eða eitt-
hvað svoleiðis.“
Bjössi: „Ég hef hlustað á Killers.
Mér finnst við bara miklu betri. En
við skiljum alveg að fólk þurfi að
staðsetja hljómsveitir. Mínus hefur
til dæmis alltaf verið líkt við Queens
of The Stone Age, og Trabant við
Scissor Sisters. Það var hins vegar
ekki meiningin hjá þessum bönd-
um.“
Einn dagur í einu
Töluverð vinátta ríkir milli með-
lima Motion Boys og meðlima
hljómsveitanna Jeff Who? og
Sprengjuhallarinnar, en allar sveit-
irnar senda frá sér plötu á næstu
dögum. Þeir félagar segja þó enga
sérstaka samkeppni í gangi.
Biggi: „Sprengjuhöllin ætlar til
dæmis að vera með einhvern gjörn-
ing á útgáfutónleikunum. Við vor-
um með svona gjörning fyrir þá í
fyrra. En við vitum reyndar ekkert
hvað þeir ætla að gera …“
En hvað gerist svo? Ætlið þið
eitthvað að spila úti á landi? Eða í
útlöndum?
Biggi: „Ég væri nú alveg til í að
taka túr um landið, en ætli við för-
um ekki bara í göngu-túr út á land.
Ég held að við höfum varla efni á
því að reka alvöru langferðabíl eins
og staðan er í dag.“
Bjössi: „Eins og við erum að
vinna þetta núna tökum við bara
einn dag í einu. Við erum með út-
gáfutónleikana núna, svo spilum við
á Airwaves og svo vitum við ekki
hvað við gerum. En við förum pott-
þétt eitthvað út á land.“
Gísli: „Við höldum þessu öllu
opnu …“
Meðal gegn þunglyndi
Fyrsta plata Motion Boys, Hang On, kemur út í dag Útgáfunni fagnað með tónleikum á Nasa í
kvöld Hljómsveitarmeðlimir boða gleði og hamingju, og hvetja fólk til að gleyma sér á tónleikum
Morgunblaðið/Golli
Samstaða „Það er bara þannig að hljómsveitir ganga ekkert nema kemistrían gangi,“ segir Gísli Galdur.
Útgáfutónleikar Motion Boys
verða á Nasa í kvöld. Húsið verður
opnað kl. 20 og tónleikarnir hefj-
ast kl. 21. Miðaverð er 500 kr. en
1.500 kr. ef platan er keypt með.
Söngur: Birgir Ísleifur Gunn-
arsson – var áður í Byltunni.
Hljómborð: Þorbjörn Sigurðs-
son – var áður í Byltunni og Jeff
Who? og er í Dr. Spock.
Trommur: Björn Stefánsson –
var í Mínus.
Hljómborð, hljóð og slagverk:
Gísli Galdur Þorgeirsson – var í
Trabant, Quarashi og Gho-
stigital.
Motion Boys eru: