Morgunblaðið - 09.10.2008, Side 48
FIMMTUDAGUR 9. OKTÓBER 283. DAGUR ÁRSINS 2008
Þjóðleikhúsinu
Macbeth
»MEST LESIÐ Á mbl.is
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 250 ÁSKRIFT 2950 HELGARÁSKRIFT 1800 PDF Á MBL.IS 1700
ÞETTA HELST»
Kaupþing óskaði eftir
skilanefnd í gærkvöldi
Fjármálaeftirlitið er nú við stjórn-
völinn í öllum viðskiptabönkunum
þremur. Kaupþing reri öllum árum
að því að halda stöðu sinni í gær, en
eftir greiðslustöðvun í London varð
ekki aftur snúið. » Forsíða
Aukin áhrif Rússa
Rússar gætu notað risalán til Ís-
lendinga til þess að komast til áhrifa
með margvíslegum hætti. Til dæmis
sem vogarafl í viðræðum um yfir-
ráðarétt á norðurheimskautssvæð-
inu eða til að bæta orðspor sitt eftir
stríðið í Georgíu fyrr á árinu. » 13
Icesave-skuldin við Breta
Bankarnir máttu stofna til skulda
við breska sparifjáreigendur vegna
þess að Ísland er EES-ríki. Líklega
duga eignir Landsbankans fyrir
stórum hluta skuldanna vegna Ice-
save-innlánsreikninganna, en heild-
arupphæðin er um 560 milljarðar ís-
lenskra króna. » 2
SKOÐANIR»
Staksteinar: Ísland láti bankana róa
Forystugreinar: Núllpunktur |
Samstaða í borginni
Ljósvaki: Hressing úr óvæntri átt
UMRÆÐAN»
Umhverfisskálkar
Kennitalan sem notendanafn á netinu
Get ég veðsett frúna?
Vinir Íslands
Margir tapa fé
Selja hlutabréfin og kaupa …
Stundum nefndur bjargvættur …
Paulson varar við fleiri gjaldþrotum
VIÐSKIPTI »
2
2
2
2
2
2
3"*4$ - ) *
5
#- 2
2
2 2
, 6 !0 $
2 2
2 2 2
2 7899:;<
$=>;9<?5$@A?7
6:?:7:7899:;<
7B?$66;C?:
?8;$66;C?:
$D?$66;C?:
$1<$$?E;:?6<
F:@:?$6=F>?
$7;
>1;:
5>?5<$1)$<=:9:
Heitast 10°C | Kaldast 2°C
SA 13-18 m/s en
austan 15-23 suðvestan
til fram undir hádegi.
Víða rigning, síst norð-
austanlands. » 10
Minningartónleik-
arnir um Vilhjálm
Vilhjálmsson eru um
helgina og þar ætlar
Laddi að frumsýna
nýjan karakter. » 40
TÓNLIST»
Laddi bætir
í safnið
FÓLK»
Clint Eastwood er
harður húsbóndi. » 41
Arnar Eggert Thor-
oddsen er hættur að
gapa og farinn að
geispa yfir tónlist
bresku sveitarinnar
Oasis. » 44
TÓNLIST»
Gapir ekki
lengur
FÓLK»
Yoko Ono er komin til
landsins. » 41
TÓNLIST»
Coldplay nýtur mikilla
vinsælda á landinu. » 44
Menning
VEÐUR»
1. Fjöldi fólks á mótmælasamkomu
2. Ekki hægt að halda gengi föstu
3. Kaupþing í … í greiðslustöðvun
4. Alvarlegt slys á Þorlákshafnarvegi
SKÓRINN
kreppir víðar að
en í bankageiran-
um þessa dagana
og nú hafa mörg
körfuknattleiks-
lið brugðið á það
ráð að segja upp
samningum við
erlenda leikmenn
og þjálfara.
Körfuknattleiks-
félag Ísafjarðar, sem leikur í næst-
efstu deild, er ekki þar á meðal en
hvorki fleiri né færri en fjórir er-
lendir leikmenn verða hjá félaginu í
vetur auk þess sem þjálfarinn er frá
Makedóníu.
„Ég á ekki von á því að okkar
ágætu leikmenn séu á förum frá okk-
ur,“ segir Ingólfur Þorleifsson, for-
maður KFÍ. „Eins og staðan er núna
þá höldum við okkar striki en maður
veit ekki hvað gerist á næstu dögum
í því ástandi sem er í peningamálum
landsins.“
Engin
kreppa á
Ísafirði?
KFÍ ætlar að halda í
erlenda leikmenn
KFÍ er með fjóra
erlenda leikmenn.
HÁKARLINN er að verða tilbúinn hjá Jónínu Sigríði
Björnsdóttur, bónda á Ísólfsstöðum á Tjörnesi. Hún
segir hið sama eiga við um hey og hákarl, að hann
verkast betur í þurrum sunnanvindum.
Kristinn Lúðvíksson, sjómaður á Húsavík, hefur veg
og vanda af verkuninni en hefð er fyrir hákarlaverkun
á Ísólfsstöðum. Um er að ræða þrjá hákarla sem veidd-
ust í vor, tveir náðust á öngla með selspiki. | 25
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Hákarlinn brátt tilbúinn
Eftir Sigtrygg Sigtryggsson
sisi@mbl.is
ÍSLENSKA þjóðin hefur á ný eignast hið geysi-
verðmæta málverkasafn Landsbankans. Safnið
fylgdi þegar ríkið seldi Landsbankann árið 2002.
Safnið telur nú um 1.700 myndverk.
Að sögn Ásgeirs Friðgeirssonar, talsmanns
Björgólfs Guðmundssonar, er safnið á sínum
stað í bankanum. Safnið sé nú í raun í umsjá
skilanefndar, sem Fjármálaeftirlitið skipaði til að
taka bankann yfir. „Málverkasafnið er eign
bankans en ekki einkasafn. Það hefur aldrei ver-
ið eignfært enda talið mjög erfitt að meta það til
fjár,“ segir Ásgeir.
Aðalsteinn Ingólfsson listfræðingur hefur ver-
ið listrænn ráðunautur Landsbankans hin seinni
ár. Hann segir að eignadeild Landsbankans hafi
haldið utan um safnið, annast varðveislu þess og
lán á verkum.
Að sögn Aðalsteins eru nú um 1.700 myndverk
í safninu. Þegar bankinn var einkavæddur voru
myndverkin um 1.300 talsins. Síðan bankinn var
einkavæddur hefur markvisst verið bætt við
safnið með kaupum á verkum eftir þekkta lista-
menn.
Aðalsteinn segir að í safninu séu mörg frábær
listaverk og sum þeirra teljist með mestu perlum
íslenskrar myndlistarsögu. Að því leyti sé safnið
ómetanlegt. Sum verkanna frá fyrri tíð séu
reyndar ekki ýkja merkileg. Þá hafi ekki verið
fylgt markvissri stefnu varðandi listaverkakaup.
Dæmi séu um að verk hafi verið tekin upp í
skuld eða keypt fyrir greiðasemi.
Bankinn á í safni sínu verk eftir alla helstu
frumkvöðla málaralistarinnar hér á landi. Til að
mynda eru í safninu um 60 verk eftir Jóhannes
S. Kjarval. Um er að ræða nokkur af bestu olíu-
málverkum listamannsins, en einnig er þarna að
finna mörg smærri verk.
Í aðalbanka Landsbankans eru nokkur nagl-
föst verk, sem Aðalsteinn segir að séu alveg ein-
stök í sinni röð. Nefnir hann sem dæmi verk
Jóns Stefánssonar í afgreiðslusal bankans, vegg-
myndir Kjarvals á bankastjóraganginum og
stóra mósaíkmynd Nínu Tryggvadóttur í sal, þar
sem gjaldeyrir var afgreiddur fyrr á árum.
Safnið á ný til þjóðarinnar
Geysilega verðmætt málverkasafn fylgdi í kaupunum þegar Landsbankinn
var einkavæddur á sínum tíma Í safninu eru um 1.700 myndverk
Í HNOTSKURN
»Hlutafélög voru stofnuð um ríkisbank-ana árin 1997-1998 og fylgdu mál-
verkasöfn þeirra.
»Málverkasöfnin fylgdu einnig þegareinkaaðilar keyptu bankana af ríkinu
árið 2002.
»Fyrrverandi eigendur Landsbankanskeyptu um 400 myndverk á meðan þeir
áttu bankann. Verkin eru eftir marga af
fremstu listamönnum þjóðarinnar.
Morgunblaðið/Kristinn