Morgunblaðið - 10.10.2008, Síða 1
F Ö S T U D A G U R 1 0. O K T Ó B E R 2 0 0 8
STOFNAÐ 1913
277. tölublað
96. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
Ferskur,
svalur og til í allt!
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
0
8
-0
7
2
6
Leikhúsin
í landinu >> 41
DAGLEGTLÍF
BJARGVÆTTURINN
FRÁ NÝJA-SJÁLANDI
AF LISTUM
Le Clézio er höf-
undur upplifana
Fall viðskiptabankanna þriggja gæti
haft alvarlegar afleiðingar fyrir
mörg fyrirtæki sem eru tengd
stærstu hluthöfunum með einum
eða öðrum hætti. »18
Þjóðnýting bankanna
gæti haft dómínóáhrif
Lífeyrissjóðir landsins vinna nú að
því baki brotnu að meta stöðu sjóð-
anna og hámarka eign hvers og eins
sjóðfélaga, að sögn Tómasar Möller
hjá Íslenska lífeyrissjóðnum. »11
Sparnaður fólks í líf-
eyrissjóðum mun rýrna
Í Atvinnuleysistryggingasjóði voru
rúmlega 13,5 milljarðar króna 2007.
Miðað við 3% atvinnuleysi myndi
það duga í 19 mánuði. Þá er miðað
við að ekkert bættist í sjóðinn. »15
Grunnatvinnuleysis-
bætur eru 136.000
Ævisparnaður hjónanna Ómars og
Sigurbjargar upp á 60 milljónir
króna er nú í uppnámi vegna ein-
dreginna ráðlegginga þjónustufull-
trúa í Landsbankanum. »13
Hjón óttast um 60 millj-
óna króna sparifé sitt
NOKKUÐ hefur verið um að íslensk
innflutningsfyrirtæki hafi verið beðin
um að staðgreiða vörur við pöntun frá
erlendum birgjum.
Knútur Sigmarsson, framkvæmda-
stjóri Félags íslenskra stórkaup-
manna, telur að um tímabundið
ástand sé að ræða. Hann segir að inn-
flutningur sé ekki í hættu og skemm-
ur heildsala séu fullar af vörum.
Hermann Guðjónsson, forstjóri
N1, veit mörg dæmi þess að íslensk
fyrirtæki hafi verið beðin um að stað-
greiða vörur erlendis. Hann segir að
sumir birgjar hafi fengið fyrirmæli
frá félögum sem tryggja útflutning
þeirra um að Ísland sé allt komið í
staðgreiðsluviðskipti.
Andrés Magnússon, framkvæmda-
stjóri Samtaka verslunar og þjónustu,
segir þess dæmi að greiðslur hafi ekki
borist héðan til birgja. Nú ríði á að
tryggja að til sé gjaldeyrir til versl-
unar. » 16
Íslendingar staðgreiði
Talið að um tímabundið ástand sé að ræða og enn eru vöru-
skemmur heildsala hér á landi sagðar fullar af vörum
Morgunblaðið/Sverrir
Lager Nægar vörur eru til í landinu.
ÍSLENSK sjö
manna fjöl-
skylda, sem flutti
frá Lúxemborg
til Íslands vorið
2007, býr nú við
þrengri kost eftir
að mánaðarleg
afborgun af hús-
næðisláni var
komin í 198 þús-
und krónur. Í
upphafi var afborgunin 107 þúsund
krónur.
Elísabet Iðunn Einarsdóttir hús-
móðir segist þrátt fyrir kreppu-
ástandið vera fegin að vera komin
aftur heim til Íslands. » 12
Afborgunin fór úr 107
í 198 þúsund á mánuði
Elísabet Iðunn
Einarsdóttir
MIKIÐ er rætt um afdrif spari-
fjár á Icesave-reikningum í Hol-
landi og Englandi. Jóna Hálfdán-
ardóttir, sem býr í Hollandi, segir
að þar sé fólk bæði reitt og hissa yf-
ir að fá ekki að vita hvað verði um
peninga þess hjá Icesave.
Þóra Hilmarsdóttir í Englandi
sagði Íslendinga ekki vinsæla í
London nú. Í vinahópi hennar er
vart um annað talað en ástandið
hér á landi og mikið sé fjallað um
það í blöðum og sjónvarpi. » 16
Mikið rætt um Icesave
í Englandi og Hollandi
„ÞAÐ er ekki búið að segja nein-
um upp heldur er búið að tala við
fullt af fólki og segja því að það fái
ekki vinnu í nýja bankanum,“ segir
Helga Jónsdóttir, formaður félags
starfsmanna Landsbankans. Óljóst
sé um greiðslur til þeirra sem ekki
fá vinnu áfram.
Helga segir ljóst að margir bíði
enn örlaga sinna. Í sumum deildum
hafi margir verið glaðir að fá vinnu
áfram en síðan mátti finna grátandi
fólk á göngum. » 17
Mikið uppnám meðal
starfsmanna Landsbanka
Eftir Önund Pál Ragnarsson
onundur@mbl.is
WOUTER Bos, fjármálaráðherra
Hollands, hefur hótað að draga ís-
lenska ríkið fyrir dómstóla ef það
stendur ekki við skuldbindingar sín-
ar gagnvart hollenskum sparifjár-
eigendum í Icesave-reikningum
Landsbankans. Þeir eru um 120.000
talsins.
„Ef í ljós kemur að rangar upplýs-
ingar hafi verið veittar er ljóst að
framundan eru málaferli við íslensk
stjórnvöld,“ er haft eftir Bos, í tíma-
ritinu Elsevier.
Seðlabanki Hollands ábyrgist
innistæðurnar gagnvart sparifjár-
eigendum upp að 100.000 evrum, en
varðandi fyrstu 20.887 evrurnar
verða þeir fyrst að láta reyna á
ábyrgð íslenskra yfirvalda. Bos
ítrekaði að hann myndi gera allt sem
í hans valdi stæði til þess að Ísland
stæði við skuldbindingar sínar. Hon-
um leist ekkert á tillögur um að hol-
lenska ríkið ábyrgðist einnig þessar
fyrstu tuttugu þúsund evrur.
Dagblaðið Telegraaf birti í gær
frétt með fyrirsögninni „Ísland vinn-
ur ekki lengur með að lausn Icesave-
málsins“. Haft var eftir Geir H.
Haarde forsætisráðherra frá því á
blaðamannafundinum í gær, að Hol-
land yrði að ábyrgjast innistæður
Hollendinga í íslenskum bönkum.
Það myndi hjálpa ef Holland gæfi út
slíka yfirlýsingu eins og Stóra-
Bretland.
Bos hefur ekki talað við Árna
Þar segir blaðið að ráðherrann
hafi í þingumræðum í gær sagt að
vel kæmi til greina að Alþjóðagjald-
eyrissjóðurinn (IMF) spilaði hlut-
verk í málefnum Íslands. Lagði hann
áherslu á það að fyrir sitt leyti kæmi
stuðningur IMF við íslensk stjórn-
völd ekki til greina nema þau kæmu
til móts við hollenska sparifjáreig-
endur.
Tal náðist af Árna Mathiesen á
flugvelli í New York í gærkvöldi.
Hann sagði Wouter Bos ekki hafa
reynt að ná í sig. Hins vegar hefði
ráðuneytisstjóri í fjármálaráðuneyt-
inu rætt við sendiherra Hollendinga
og fleiri embættismenn. Vonast sé til
þess að koma samskiptum við þá í
formlegan farveg, eins og við Breta.
Árni mun hitta bæði Bos og Darling
og ræða við þá í Washington.
Gordon Brown, forsætisráðherra
Bretlands, er afar harðorður í garð
Íslands og hótar enn lögsókn gegn
íslenska ríkinu.
Hollendingar
hóta lögsókn
Ráðherra segist munu gera allt til
að Ísland standi við skuldbindingarnar
Myndi berjast gegn aðstoð IMF við
Ísland nema Icesave yrði tryggt fyrst
Gordon Brown | 6
„ÉG HEF merkt það mjög greinilega á þátttöku í helgihaldi að fólk kemur og
þjappar sér saman í kirkjunni til þess að þakka lífið og efla með sér æðru-
leysi við þessar aðstæður,“ sagði séra Bjarni Karlsson í Laugarneskirkju.
Honum finnst fólk almennt vera yfirve gað og æðrulaust þessa dagana.
Tvær bænastundir voru í Dómkirkjunni í gærkvöldi en kirkjan er opin frá
kl. 20 til 22 á fimmtudagskvöldum. Séra Hjálmar Jónsson leiddi bænina þar
sem fólk átti stund með sjálfu sér og Guði sínum.
Morgunblaðið/Kristinn
Fólk eflir með sér æðruleysi