Morgunblaðið - 10.10.2008, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. OKTÓBER 2008 9
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigur 5
• Sími 581 2141
15% afsláttur
af stökum jökkum,
drögtum og buxum
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
sími 557 1730 sími 554 7030
KVARTBUXUR
str. 36-56
Laugavegi 44 • Sími 561 4000 • www.diza.is
Opið virka daga kl. 10:30-18:00 • laugard. kl. 11:00-16:00
m
b
l1
05
51
47
Hún getur verið þunn eða
þykk, stutt eða síð, einlit
eða mynstruð, skrautleg
eða einföld. Klassísk eða
skondin, sumar peysur eru
spari aðrar hversdags og
sumar verða uppáhaldsflík
allra tíma.
Þannig eru peysurnar
í Dizu, líttu við
og finndu þína.
Eftir Sigtrygg Sigtryggsson
sisi@mbl.is
MÖRG verðmæt verk hafa bæst í málverkasafn
Landsbankans þann tíma sem Björgólfur Guð-
mundsson var stjórnarformaður bankans. Hann
hlúði vel að safninu og beitti sér fyrir kaupum á
verkum eftir nýja og gamla meistara. Safnið er nú
komið í eigu íslensku þjóðarinnar á nýjan leik, eft-
ir að ríkið yfirtók bankann.
Frægasta verkið, sem bæst hefur í safnið, er án
efa Hvítasunnudagur eftir hinn mikla meistara
málaralistarinnar, Jóhannes S. Kjarval. Það þóttu
miklar fréttir í byrjun árs 2007 þegar verkið kom í
leitirnar í Danmörku og að það yrði selt á uppboði.
Verkið er í kúbískum anda og málað á árunum
1917–1919 í Kaupmannahöfn. Vitað var um tilvist
myndarinnar, en ekki afdrif hennar fyrr en verkið
fannst í Danmörku. Verkið hafði alla tíð verið í
einkaeigu.
Mikil leit var gerð að verkinu
Kristín G. Guðnadóttir, listfræðingur og ásamt
öðrum höfundur bókar um Kjarval sem kom út
2005, fagnaði því þegar verkið kom í leitirnar. Á
sínum tíma hefði hún gert talsvert til þess að finna
það en án árangurs. Mest hefði verið leitað á Ís-
landi, en vitað hefði verið um tilvist þess þar sem
til voru skissur að því. „Verkið er frá þessu kúb-
íska tímabili og gefur okkur ýtarlegri og fyllri
mynd af því tímabili á hans ferli,“ sagði Kristín.
Hún sagði að Kjarval hefði verið að prófa sig
áfram með þennan stíl, sem eiginlega mætti kalla
danskan kúbisma, strax eftir að hann kláraði aka-
demíuna. Hann hefði verið leitandi á þessum tíma
en verkið hefði verið mjög framsækið þegar það
var málað. Verkið gæfi fyllri mynd af þessu stutta
kúbíska skeiði hans.
Málverkið var úr safni Nienstedts heildsala, en
Kjarval bjó hjá fjölskyldunni þegar hann var við
nám í Konunglegu dönsku listakademíunni. Sam-
kvæmt áletrun gaf Kjarval Nienstedts-hjónunum
málverkið í silfurbrúðkaupsgjöf í maí árið 1919.
Listasafn Reykjavíkur tók þátt í uppboðinu
framan af en safnið hafði ekki fjármuni til að berj-
ast við þá sem hæst buðu. „Ef kaupandinn er ís-
lenskur vonumst við til að geta unnið með honum
og sýnt verkið í framtíðinni,“ sagði Hafþór Yngva-
son, forstöðumaður Listasafns Reykjavíkur að
uppboðinu loknu. Og Hafþóri varð að ósk sinni því
hulunni var svipt af kaupandanum í nóvember
2007. Kaupandinn reyndist vera Landsbankinn,
og var málverkið sýnt í fyrsta sinn á sýningu sem
opnuð var á Kjarvalsstöðum 2. desember 2007.
Hvítasunnudagur var og er enn dýrasta Kjar-
valsmálverkið, sem selt hefur verið á uppboði.
Málverk Svavars Guðnasonar, Gullfjöllin, sem
Listasafn Íslands keypti mörgum árum áður, fór á
svipuðu verði, sé það framreiknað.
Dýrasta verkið eftir Íslending er hins vegar
verkið Fivefold eye eftir Ólaf Elíasson, sem seld-
ist á margföldu matsverði á uppboði hjá Cristies í
London í október 2007. Verkið er skúlptúr úr stáli
og speglum og var slegið á rúmlega 80 milljónir
króna á þávirði.
Verðmæt viðbót í safnið
Dýrasta nýja verkið í
safni Landsbankans er
eftir Jóhannes S. Kjarval
Morgunblaðið/Frikki
Hvítasunnudagur Ólafur Ingi Jónsson safnvörður við hið verðmæta verk.
Málverkið Hvítasunnudagur eftir Kjarval var
slegið óþekktum kaupanda á uppboði hjá upp-
boðsfyrirtækinu Bruun Rasmussen í Kaup-
mannahöfn 27. febrúar 2007.
Uppboðshúsið hafði metið verkið á 100-150
þúsund danskar krónur sem reyndist heldur bet-
ur vera vanmat, því fyrstu boð voru yfir 300
þúsund danskar krónur.
Margir voru um hituna og mikil spenna í upp-
boðssalnum. Þrír fóru yfir milljón og að lokum
voru tveir um boðið. Sá sem hreppti málverkið
bauð í gegum síma. Það reyndist vera fulltrúi
Landsbankans, eins og síðar átti eftir að koma í
ljós.
Verkið var slegið á 1,3 milljónir danskra króna,
sem á þeim tíma var jafnvirði 15,2 milljóna ís-
lenskra króna. Við verðið bættust 20% upp-
boðslaun og 5% höfundarréttargjald. Við flutn-
ing málverksins til Íslands bættist 24,5%
virðisaukaskattur svo heildarkostnaður við verk-
ið, þegar það kom til Íslands, var um 25 milljónir
króna.
Mikil spenna í salnum þegar verkið var boðið upp
EKKI er að sjá að efnahagskreppan
komi fram í nýjasta útboði Vega-
gerðarinnar, en tilboð voru opnuð á
þriðjudaginn. Reyndust öll tilboðin
vera hærri en áætlaður kostnaður
við verkið.
Verkið sem um ræðir er endur-
bygging á 4,6 kílómetra löngum
kafla Borgarfjarðarvegar, frá Lag-
arfossvegi að Sandi í Hjaltastaða-
þinghá, ásamt klæðningu á Lagar-
fossvegi. Áætlaður kostnaður var 70
milljónir og 528 þúsund krónur.
Lægsta tilboðið átti Ísgröfur ehf. á
Laugum, 71,9 milljónir. Hæsta til-
boðið kom frá Bíladrangi ehf. í Vík,
95,2 milljónir. Sjö fyrirtæki buðu í
verkið. sisi@mbl.is
Há tilboð
í vegagerð
Eftir Höllu Gunnarsdóttur
halla@mbl.is
ÁHÆTTUMEÐVITUND gerði það
að verkum að verðbréfafyrirtækið
Auður Capital stendur vel nú þegar
fjármálakreppa
ríður yfir heim-
inn. Þetta segir
Halla Tómasdótt-
ir, stjórnarfor-
maður Auðar, og
bendir á að fyrir-
tækið hafi ekki
verið skuldsett
heldur einungis
verið með eigið
fé. „Við þurftum
þar af leiðandi
ekki að lengja neinar lánalínur og
lausafjárskortur kemur ekki niður á
okkur eins og svo mörgum fjármála-
fyrirtækjum. Við settum öryggið of-
ar ávöxtuninni en náðum samt að
ávaxta vel og leituðum sérstaklega
eftir traustum og gegnsæjum fjár-
festingarkostum,“ útskýrir Halla en
Auður stýrir hátt í átta milljörðum
króna.
Samstarf frekar en samkeppni
Halla segir markaðinn hafa ein-
kennst af mikilli áhættusækni jafnt
hér á landi sem annars staðar. „Karl-
lægu gildin réðu för með áherslu á
skammtímagróða frekar en lang-
tíma, samkeppni frekar en samstarf
og áhættusækni frekar en áhættu-
meðvitund,“ segir Halla og leggur
mikla áherslu á að bæði konur og
karlar starfi innan fjármálageirans,
jafnt í uppsveiflu sem í niðursveiflu.
Fjármálakreppan gæti þó reynst
Auði erfið eins og öðrum fyrirtækj-
um. „Innflæðið hjá okkur hefur verið
mikið síðustu daga og vikur en það
er mjög erfitt að taka fjárfestingar-
ákvarðanir í núverandi umhverfi.
Kerfið er lamað,“ segir Halla Tóm-
asdóttir.
Áhættumeðvitund varð til
þess að Auður stendur vel
Karllæg gildi réðu ferðinni á fjármálamarkaðnum
Halla
Tómasdóttir
Í HNOTSKURN
» Auður Capital er verð-bréfafyrirtæki og býður
m.a. upp á eignastýringu og
fyrirtækjaráðgjöf.
» Fyrirtækið var stofnað afHöllu Tómasdóttur og
Kristínu Pétursdóttur og fékk
starfsleyfi sl. vor.
» Auður gefur sig út fyrirað veita óháða fjármála-
ráðgjöf og leggur áherslu á
samfélagslega og siðferðilega
ábyrgð.
GÆTT verður
að jafnræði
kynjanna við
skipan banka-
stjórna, sagði
Björgvin G. Sig-
urðsson við-
skiptaráðherra á
blaðamanna-
fundi í Iðnó í
gær aðspurður
um stefnu í jafn-
réttismálum nú þegar ríkið er orð-
ið svo gríðarlega valdamikið í
fjármálalífinu. „Við munum reyna
að gæta þess í hvívetna að það
verði gætt jafnræðis á milli
kynjanna eins og annarra grund-
vallaratriða í þessu umróti öllu,“
sagði Björgvin og þegar hann var
inntur eftir því hvers vegna hlut-
fall kvenna hefði verið svo lágt
sem raun bar vitni í skilanefndum
bankanna sagði hann þær aðeins
hafa afmarkað hlutverk. „Þær í
rauninni vinna sína vinnu á 1-2
sólarhringum og færa það síðan
yfir til nýrrar bankastjórnar bank-
ans,“ sagði Björgvin.
Bæði kyn í
bankastjórnir
Björgvin G.
Sigurðsson