Morgunblaðið - 10.10.2008, Blaðsíða 14
14 FÖSTUDAGUR 10. OKTÓBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ
„ÉG hef miklar áhyggjur af þróun-
inni,“ segir Ronald, tölvunarfræð-
ingur frá Filippseyjum, sem búið
hefur og starfað á Íslandi sl. átta ár.
Hann starfar m.a. fyrir bróður sinn
sem rekur netfyrirtæki sitt frá
London. „Bróðir minn millifærði
laun til mín og systur minnar, sem
einnig býr hérlendis, 1. október sl.,
að utan inn á bankareikning systur
minnar í Landsbankanum, en
greiðslan hefur enn ekki skilað
sér,“ segir Ronald og óttast að hann
geti ekki greitt af húsnæðislánum
sínum í þessum mánuði.
„Ég átti von á um 180 þús. kr. sem
ég þarf að nota til þess að greiða af
íbúðarlánum nú í október,“ segir
Ronald, en hann keypti sér 111 fm
íbúð í Reykjavík fyrir ári fyrir um
21,5 milljónir króna. „Ég átti ekk-
ert upp í útborgun en fékk 90% lán
frá Spron og þau 10% sem upp á
vantaði frá Landsbankanum,“ segir
Ronald og tekur fram að greiðslu-
byrði þessara lána hafi um síðustu
mánaðamót verið í kringum 120
þús. kr.
Raunar hefur Ronald ekki búið í
íbúðinni heldur framleigt hana síð-
an hann keypti hana til þess að hafa
efni á því að greiða af íbúðinni.
Sjálfur leigir Ronald sér húsnæði
sem kostar um 80 þúsund krónur á
mánuði. „Fjölskyldan sem leigði
íbúðina mína hafði ekki tök á að
greiða leiguna síðustu mánaðamót,
þar sem verktakafyrirtækið þar
sem fjölskyldufaðirinn vann er far-
ið á hausinn,“ segir Ronald.
silja@mbl.is
Féð kom
ekki
Óttast að geta ekki
greitt af íbúðarláni
Eftir Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
EFTIR að stóru bankarnir þrír hafa
fallið hver á fætur öðrum velta marg-
ir fyrir sér framtíð annarra fjármála-
fyrirtækja, eins og tryggingafélag-
anna. Eigendur flestra þeirra hafa
orðið fyrir skakkaföllum í banka-
kreppunni en stjórnendur trygginga-
félaganna, sem rætt var við í gær,
sögðu þau óháð sínum eigendum og
væru sjálfstætt rekin.
Fram hefur komið að aðaleigandi
Tryggingamiðstöðvarinnar, Stoðir,
áður FL Group, er í greiðslustöðvun.
Sigurður Viðarsson, forstjóri TM,
segir að þótt eigandi félagsins hafi
tapað fjármunum þá standi Trygg-
ingamiðstöðin sterkt. Um það leyti
sem Stoðir fóru í greiðslustöðvun hafi
TM fært peningalegar eignir sínar að
mestu leyti yfir í ríkistryggða papp-
íra, til að baktryggja sig. Þetta eigi þó
ekki við um allar eignir TM. „Engar
líkur eru á að TM fari eitthvað, nema
þá að ríkið verði gjaldþrota.“
Sala á NEMI kemur til greina
Tryggingamiðstöðin er eina ís-
lenska tryggingafélagið sem lætur
meta lánshæfi sitt. Standard&Poor’s
lækkaði í gær lánshæfiseinkunn fyr-
irtækisins, í ljósi afdrifa Stoða, úr
BBB í BB. Sigurður segir að þetta
hafi engin áhrif á starfsemi TM á Ís-
landi, en geti mögulega haft áhrif á
starfsemi dótturfélagsins í Noregi,
NEMI. Mögulega geti NEMI misst
einhverja viðskiptavini erlendis, þó
að erfitt sé að meta það núna, en Sig-
urður segir Norðmenn hafa lýst yfir
miklum áhyggjum vegna tíðindanna
af íslensku bönkunum. NEMI hefur
aðallega tryggt skipafélög og fleiri
fyrirtæki. Aðspurður segir Sigurður
það geta komið vel til greina að TM
selji norska félagið.
Sjóvá í nýrri stöðu
Sjóvá-Almennar er alfarið í eigu
Milestone, fjárfestingafélags Karls
Wernerssonar, sem var meðal stórra
hluthafa í Glitni. Þór Sigfússon, for-
stjóri Sjóvár, segir viðskiptavini fé-
lagsins ekki þurfa að hafa neinar
áhyggjur af sínum tryggingum. Líkt
og önnur tryggingafélög sé Sjóvá
sjálfstætt rekið félag.
„Hjá Sjóvá erum við að kynna nið-
urstöður í tryggingastarfsemi okkar
þar sem samsett hlutfall er 102 og
stefnt að 100 fyrir allt árið. Það þýðir
með öðrum orðum að iðgjöld og tjón
eru í jafnvægi. Þetta er ný staða frá
því sem áður var. Fyrir um þremur
árum var samsetta hlutfallið yfir 120
sem þýðir að þar sem nú er jafnvægi
hafi þá verið tap upp á um tvo millj-
arða.“
Þór segir veruleg umskipti því hafa
orðið á tryggingarekstrinum á síð-
ustu árum.
„Við tókum þá ákvörðun fyrir
þremur árum að við gætum ekki reitt
okkur á fjárfestingatekjur félagsins
heldur þyrfti tryggingastarfsemin
sjálf að standa undir sér. Við tíma-
settum þetta ágætlega og uppskerum
nú árangur. Þetta þýðir að við stönd-
um núna mun keikari frammi fyrir
erfiðu ástandi en ella,“ segir Þór en
bætir við að fjárfestingastarfsemi fé-
lagsins skili tapi á árinu. Sjóvá hafi
ekki átt hlutabréf í bönkunum eða
umtalsverð bankabréf. Aðrar eignir
hér á landi hafi lækkað í verði. „Fé-
lagið hefur vel dreift eignasafn með
eignum bæði hér og erlendis.“
Nægt fé hjá Verði
Vörður tryggingafélag er að 50%
hluta í eigu SP Fjármögnunar, dótt-
urfélags Landsbankans sáluga, og
Landsbankinn og Byr sparisjóður
skipta með sér öðrum eignarhlutum.
Öllum er kunnugt um örlög Lands-
bankans en Guðmundur Jóhann
Jónsson, framkvæmdastjóri Varðar,
segir félagið hafa nægilegt rekstrarfé
og lausafé inni á bankareikningum.
Innstreymi standi undir rekstrinum,
en vissulega sé óvissa um eigur fé-
lagsins í verðbréfum.
„Við vitum ekki frekar en almenn-
ingur og fyrirtæki hvernig þær eigur
verða gerðar upp þegar upp verður
staðið,“ segir Guðmundur, sem hefur
verið í sambandi við Fjármálaeft-
irlitið, FME, og gert því grein fyrir
stöðu Varðar.
Hefur áhrif á allt
Vátryggingafélag Íslands, VÍS, er
að fullu í eigu Exista, sem átti stóran
hlut í Kaupþingi og hefur orðið að
losa sig við erlendar eignir eins og
Sampo og Storebrand. Guðmundur
Örn Gunnarsson, forstjóri VÍS, segir
félagið standa sterkum fótum og við-
skipti muni ganga eðlilega fyrir sig.
Reksturinn hafi gengið ágætlega á
árinu. Verst sé að verða vitni að því
áfalli sem yfir þjóðina gengur.
„Starfsemi VÍS er fyrst og fremst
hér á landi en auðvitað hefur svona
ástand áhrif á allt,“ segir Guðmundur
Örn en mælir ekki með því við fólk að
það segi upp sínum tryggingum við
núverandi aðstæður.
Tryggingarnar í lagi
Stjórnendur tryggingafélaganna segja þau standa traustum fótum þrátt fyrir
fjármálaskelli eigendanna og verðlækkun á eignum Lækkað lánshæfismat TM
! "#
$%& '(
)
%'(
'( (* ) '(
+#
!
, '( (*
-.
/
#
Guðmundur
Jóhann Jónsson
Þór
Sigfússon
Guðmundur Örn
Gunnarsson
Sigurður
Viðarsson
„VIÐ reynum að horfa björtum augum til
framtíðar. Við verðum að gera það því ég er
ólétt og þá þýðir ekkert annað en að vera já-
kvæður,“ segir Paulina Jalsha, sem kom ásamt
eiginmanni sínum, Prvemet, til Íslands í febr-
úar sl.
„Við erum hraust og bæði í vinnu, þannig að
þetta á allt saman örugglega eftir að blessast,“
segir Paulina sem hefur unnið við ræstingar og
á gistiheimili síðan hún kom til landsins, en
Prvemet vann fyrst í byggingarbransanum en
vinnur nú sem kokkur á veitingahúsi.
Aðspurð segist Paulina enn sem komið er
ekki finna fyrir miklum þrengingum í þjóðfélag-
inu, enda séu enn til vörur í búðum og lífið virðist
halda áfram sinn vanagang þrátt fyrir fréttir af
versnandi efnahagslífi.
Spurð hvers vegna Ísland hafi orðið fyrir valinu
á sínum tíma segir Paulina að þau hjón hafi langað
til þess að geta búið saman, en Prvemet hafði um
tíma búið og starfað í Bretlandi meðan Paulina
kláraði háskólanám sitt í Póllandi. „Við höfðum
þannig verið aðskilin um nokkurn tíma og fannst
tími til kominn að geta verið saman aftur,“ segir
Paulina.
silja@mbl.is
Horfum björtum
augum til framtíðar
Pólskt par búsett hérlendis segist enn sem komið er
ekki finna fyrir miklum þrengingum í þjóðfélaginu
Morgunblaðið/Golli
Jákvæð Paulina Jalsha kom hingað í febrúar.
FRAMSÓKNARFLOKKURINN
hefur lagt fram frumvarp á Al-
þingi þar sem lagt er til að stöður
Seðlabankastjóra verði ávallt aug-
lýstar opinberlega. Markmiðið er
að þeirra sögn að faglega verði
staðið að ráðningu Seðlabanka-
stjóra og að hæfniskröfur séu há-
skólamenntun og reynsla og þekk-
ing á peningamálum og öðrum
efnahagsmálum.
Ákvarðanir rökstuddar
Í frumvarpinu er líka kveðið á
um að þegar ákvörðun um hækkun
eða lækkun stýrivaxta er tekin á
fundi bankastjórnar Seðlabankans
skuli birta fundargerðina opinber-
lega og um leið sé gerð grein fyrir
forsendum ákvörðunarinnar og
þeim markmiðum sem eigi að nást.
halla@mbl.is
Faglegan
Seðlabanka
Bankakreppan
SIGRÍÐUR Ingi-
björg Ingadóttir
hefur sagt sig úr
bankaráði Seðla-
bankans. Hún
biður þjóðina af-
sökunar á því að
hafa ekki axlað
ábyrgð sína fyrr.
Sigríður segir í
yfirlýsingu að
hún telji að alvar-
leg mistök hafi verið gerð í hagstjórn
Íslands og stjórn fjármálakerfisins.
Seðlabankinn beri mikla ábyrgð á
þeim mistökum. Hún telur mikil-
vægt að sátt ríki um stjórn Seðla-
bankans. Til að svo verði þurfi að
skipta um bankastjórnina. Hún hvet-
ur bankastjórana Davíð Oddsson,
Eirík Guðnason og Ingimund Frið-
riksson, til að axla sína ábyrgð á mis-
tökunum og segja af sér nú þegar.
Segir sig úr
bankaráði
Sigríður Ingibjörg
Ingadóttir