Morgunblaðið - 10.10.2008, Blaðsíða 4
4 FÖSTUDAGUR 10. OKTÓBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„ÉG HEF unnið að rannsókn-
um að erfðameðferð á blindum
hundum í einum þriggja alþjóð-
legra rannsóknarhópa. Niður-
stöðurnar hafa verið góðar og
hundarnir fengið sjón,“ segir
Ragnheiður Bragadóttir, yfir-
maður sjónhimnuskurðlækn-
ingadeildar háskólaskóla-
sjúkrahússins í Ullevål í Ósló,
um þátttöku sína í þróun nýrr-
ar meðferðar gegn arfgengum
sjúkdómi. „Núna er búið að meðhöndla fyrstu
sjúklingana, þrjá sjúklinga við Moorfield-sjúkra-
húsið í London og hjá stofnuninni Instistute of
Ophthalmology í sömu borg, segir Ragnheiður.
„Niðurstöðurnar voru kynntar á stærsta rann-
sóknarþingi heims á sviði augnrannsókna, sem
að smita frumur í sjónhimnu þeirra með frísku
geni. Þá fer þetta ensím að virka og ljósnæma pró-
teinið í sjónhimnunni endurnýjast eins og það á að
gera.
Niðurstöðurnar nú eru sönnun þess að meðferð-
in virkar. Það eru margir erfðagallar sem valda
sjúkdómum í sjónhimnu. Þetta verður fyrsti sjúk-
dómurinn af mörgum sem hægt verður að með-
höndla og þá fyrst og fremst í ungu fólki.“
haldið er á Flórída. Þar var skýrt frá því að yngsti
sjúklingurinn, 19 ára strákur, hefði fengið sjónina
að hluta til til baka.“
Ragnheiður hélt erindi um rannsóknir sínar við
háskólann í Ósló og hjá blindrafélaginu í borginni á
degi sjónarinnar í gær. Erindin vöktu athygli og
má nefna að á vef Aftenposten birtist viðtal við
Ragnheiði um rannsóknir hennar.
Fæðast með skerta sjón eða nánast blind
Ragnheiður segir meðferðina þróaða gegn arf-
gengum sjónhimnusjúkdómi þar sem börn fæðast
með skerta sjón eða nánast blind. Hún segir að til
viðbótar við sjúklingana í Bretlandi hafi alls sex
sjúklingar gengist undir meðferðina í Bandaríkj-
unum, en að hjá þessu fólki sé að finna sama erfða-
galla og í áðurnefndum hundum.
„Þessir sjúklingar eru fæddir með erfðagalla
sem þeir hafa erft frá báðum foreldrum. Það er
ekki framleitt ákveðið ensím í sjónhimnu þeirra.
Það sem er því gert er að það er notaður vírus til
Fá hluta sjónar á ný
Ragnheiður Bragadóttir sjónhimnufræðingur tekur þátt í þróun meðferðar sem ger-
ir sjúklingum með arfgengan sjónhimnusjúkdóm kleift að fá hluta sjónarinnar á ný
Ragnheiður
Bragadóttir
Í HNOTSKURN
»Að loknu háskólanámi á Íslandi héltRagnheiður til sérfræðináms í augn-
lækningum í Linköping í Svíþjóð.
»Hún sinnti síðan rannsóknum í Svíþjóðog í Bandaríkjunum og er nú yfirmaður
sjónhimnuskurðlækningadeildar háskóla-
skólasjúkrahússins í Ullevål í Ósló.
BLIKUR eru á lofti í efnahagsmálum þjóðarinnar.
Síðustu daga hafa fá jákvæð tíðindi borist henni
og margir reyna að rýna í framtíðina. Spáð er í
draumaráðningar en skyldi það vita á gott að
regnbogar endi ofan í reykháfum? Eða er regn-
boginn kannski að rísa þaðan upp með þá von að
við fáum áfram notið litadýrðarinnar sem lífið
hefur upp á að bjóða? Regnbogar hafa a.m.k. ver-
ið algeng sjón í Stykkishólmi síðustu daga.
Regnbogi í reykháfi veit vonandi á gott
Ljósmynd/BruceMcMillan
LÖGMAÐUR
Færeyja, Kaj Leo
Johannesen, hef-
ur sent Geir H.
Haarde forsætis-
ráðherra bréf þar
sem hann lætur í
ljós samhug með
Íslendingum
vegna banka-
kreppunnar.
„Í Færeyjum
fylgjumst við vel með því sem er að
gerast á Íslandi. Sem þjóð eruð þið
nákomin okkur. Við gleðjumst með
ykkur þegar vel gengur og sam-
hryggjumst ykkur þegar illa gengur,“
segir í bréfinu.
Þess megnug að leysa vandann
Johannesen kveðst harma hversu
hart alþjóðlega fjármálakreppan hef-
ur leikið Íslendinga. „Þið hafið áður
sýnt að þið getið sigrast á erfiðleikum
sem þjóðin hefur orðið fyrir. Við vit-
um að það býr mikill styrkur í fólkinu
og erum sannfærð um að þið eruð
þess megnug að leysa vandann. Ég vil
að þið vitið að við erum alltaf tilbúin til
að rétta ykkur vinarhönd. Landstjórn
Færeyja sendir íslensku þjóðinni
bestu óskir um bjartari tíð.“
Kaj Leo Johannesen er leiðtogi
Sambandsflokksins og varð lögmaður
Færeyja í liðnum mánuði þegar hann
tók við af Jóannesi Eidesgaard, leið-
toga Jafnaðarflokksins. Johannesen
er 44 ára gamall og hefur setið á fær-
eyska lögþinginu frá árinu 2001.
bogi@mbl.is
Vinar-
kveðja frá
Færeyjum
Kaj Leo
Johannesen
Láta í ljós samhug
með Íslendingum
MAÐURINN sem slasaðist alvar-
lega í bílslysinu á Þorlákshafnarvegi
í fyrrdag liggur á gjörgæsludeild
Landspítalans og er haldið sofandi í
öndunarvél. Að sögn vakthafandi
svæfingarlæknis er líðan hans
óbreytt.
Lögreglan á Selfossi rannsakar
tildrög slyssins sem varð með þeim
hætti að tveir bílar úr gagnstæðri átt
rákust harkalega saman. Maðurinn
hlaut alvarlega höfuðáverka en öku-
maður hins bílsins slapp við alvarleg
meiðsl. orsi@mbl.is
Á gjörgæslu
eftir bílslys
ÍSLAND og Nýja-Sjáland eru ásamt
Ástralíu og Bandaríkjunum, að
hluta, nefnd sem dæmi um lönd þar
sem ábyrgri fiskveiðistjórnun er
framfylgt. Þar er þó enn hægt að
gera betur.
Þetta kemur fram í nýrri skýrslu
frá FAO, Matvæla- og landbúnaðar-
stofnun Sameinuðu þjóðanna.
Fréttavefur BBC greindi frá þessu
nýlega.
Samkvæmt frétt BBC eru færð
rök fyrir því í skýrslunni, að með því
að endurskipuleggja stjórn fiskveiða
mætti efla fiskistofna og auka arð-
semi sjávarútvegs. Þannig mætti
leggja helmingi þess flota sem nú er
gerður út án þess að afli drægist
saman. Árlega eru veiddar um 80
milljónir tonna af fiski í heiminum.
Það magn hefur verið nánast óbreytt
í heilan áratug.
Í frétt BBC kemur einnig fram að
Alþjóðabankinn og FAO áætli að tap
af útgerð fiskiskipa í heiminum nemi
árlega um 50 milljörðum Banda-
ríkjadala. Í skýrslu frá árinu 2006
kemur fram að niðurgreiðslur til
greinarinnar nemi 30 milljörðum
dala. guna@mbl.is
Ábyrgar fiskveiðar
hér að mati FAO
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
FAO telur Ísland framfylgja ábyrgri
fiskveiðistjórnun.
Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson
orsi@mbl.is
Ríkissaksóknari
hefur ákveðið að
mæla fyrir um op-
inbera rannsókn á
Hafskipsmálinu,
þ.e. ætluðum
brotum ónafn-
greindra dómara
við skiptarétt
Reykjavíkur, rík-
islögmanns, ríkis-
saksóknara, rannsóknarlögreglu-
stjóra ríkisins og starfsmanna þeirra.
Beiðni um opinbera rannsókn barst
frá lögmönnum Björgólfs Guðmunds-
sonar, Páls Braga Kristjónssonar,
Helgu Thomsen, ekkju Ragnars
Kjartanssonar, Þórðar H. Hilmars-
sonar og Helga Magnússonar 2. októ-
ber vegna meintra brota embættis-
manna við rannsókn fyrir skiptarétti
Reykjavíkur og þegar ákvörðun var
tekin um og gerð var rannsókn á
grundvelli skýrslu skiptaréttarins til
ríkissaksóknara á ætlaðri refsiverðri
háttsemi fólksins og annarra fyrrver-
andi forsvarsmanna Hafskips.
Segja dómana ekki standast
Með skýrslu skiptaréttar hafi verið
settar fram ávirðingar gegn tilgreind-
um forsvarsmönnum Hafskips sem
hafi þurft að sæta ýmsum þvingunar-
ráðstöfunum, meðal annars gæslu-
varðhaldi á sínum tíma. Hafi þeir ver-
ið ákærðir en sýknaðir af flestum
ákæruliðum. Þá telja rannsóknar-
beiðendur að dómar í Hafskipsmálinu
um sakfellingar fái ekki staðist.
Ríkissaksóknari telur rétt að fallast
á kröfu rannsóknarbeiðenda m.a.
vegna þeirra einkahagsmuna sem
þessir aðilar telja sig hafa og fordæm-
is sem fyrir hendi er um rannsókn
slíks máls og afstöðu tveggja aðila
sem krafan tekur til og sem telja það í
þeirra þágu að rannsóknin fari fram.
Hafskipsmálið
verði rannsakað
Valtýr Sigurðsson
FORSETI Íslands,
Ólafur Ragnar
Grímsson, dvaldi á
hjartadeild Land-
spítala – háskóla-
sjúkrahúss mánu-
dag og þriðjudag í
þessari viku þar
sem hann gekkst
undir hjartaþræð-
ingu og kransæða-
víkkun. Aðgerðin
tókst ágætlega en í framhaldi af henni
hafa læknar ráðlagt forseta að vera
ekki í fullu starfi næstu daga.
Forseti Íslands
á sjúkrahúsi
Ólafur Ragnar
Grímsson
ÓLÍKT færri gestir voru í Viðey í
gærkvöldi miðað við í fyrra þegar
Friðarsúlan var tendruð. Aðeins átta
manns fylgdust með atburðinum, en
þar voru á ferð félagar úr Kayak-
klúbbi Reykjavíkur sem létu sig hafa
það að róa í rokinu út í Viðey og
komu sér fyrir í brekkunni ofan við
Virkisfjöru. Úti fyrir Virkishól lón-
aði ferja með gestum sem fögnuðu
tendrun súlunnar. orsi@mbl.is
Friðarróður
út í Viðey