Morgunblaðið - 10.10.2008, Side 8
8 FÖSTUDAGUR 10. OKTÓBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ
GUÐLAUGUR Þór Þórðarson heil-
brigðisráðherra hefur opnað nýjan
vef um geðheilsu barna sem ber
heitið www.umhuga.is. Á nýja
vefnum verður hægt að nálgast
upplýsingar um helstu þætti í upp-
eldi og aðstæðum barna og ung-
linga sem hafa áhrif á geðheilsu
þeirra á uppvaxtarárum. Vefurinn
er ætlaður foreldrum og uppal-
endum, fagfólki sem vinnur með
börnum og ekki síst börnunum
sjálfum. Foreldrar þurfa á þessum
tímum að hlúa vel að börnum sínum
og láta umræður um fjármálaerfið-
leika ekki koma í veg fyrir sam-
verustundir með fjölskyldunni, seg-
ir í tilkynningu.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Geðheilsuvefur
STJÓRN Neytendasamtakanna
krefst þess að stýrivextir Seðla-
bankans verði þegar lækkaðir
verulega. Háir stýrivextir þjóna
engum tilgangi miðað við núver-
andi aðstæður í þjóðfélaginu og eru
til þess fallnir að auka enn á þann
vanda sem heimili jafnt sem fyrir-
tæki standa frammi fyrir.
„Jafnframt beinir stjórnin þeim
tilmælum til allra að standa sem
fastast gegn verðhækkunum enda
bitnar vaxandi verðbólga illa á
heimilunum,“ segir í ályktun sam-
takanna.
Lækkun stýri-
vaxta strax
SJÁLFSTÆÐISFÉLAG Suður-
Þingeyinga hefur sent frá sér
ályktun þar sem skorað er á stjórn-
völd að hraða undirbúningi við ál-
ver á Bakka við Húsavík, þannig að
framkvæmdir geti hafist sem fyrst.
Sjálfstæðismenn telja þetta vera
nauðsynlegt í ljósi síðustu atburða í
efnahagsmálum þar sem í ljós hefur
komið nauðsyn þess að skjóta fleiri
stoðum undir íslenskt atvinnulíf.
Styðja Bakka
SAMTÖK atvinnulífsins hafa stofn-
að vinnuhóp til að fylgjast með af-
leiðingum fjármálakreppunnar fyr-
ir atvinnulífið í landinu. Vinnu-
hópurinn er skipaður fulltrúum
allra aðildarsamtaka SA og fulltrú-
um Viðskiptaráðs Íslands. Safnað
verður saman upplýsingum um
áhrif á fyrirtæki, vandamál sem
upp koma og hvernig unnt sé að
bregðast við þeim. Samtökin munu
koma upplýsingum á framfæri við
fulltrúa ríkisstjórnarinnar og gæta
þannig þannig hagsmuna fyrir-
tækja í landinu.
SA bregðast
við kreppunni
Samson Global ekki
í greiðslustöðvun
Samson eignarhaldsfélag ehf. hefur
óskað eftir greiðslustöðvun, en þetta
á hins vegar ekki við um Samson
Global Holdings, eins og fram kom í
Morgunblaðinu í gær. Þessi tvö fé-
lög eiga engan eignarhlut hvort í
öðru. Beðist er velvirðingar á þess-
um mistökum.
Rangt nafn
Rangt nafn var í myndatexta í
Morgunblaðinu fyrir viku með mynd
af byssunni, sem notuð var til að
setja Sjávarútvegssýninguna. Rétt
nafn byssumannins er Rúdolf Jós-
efsson. Beðist er velvirðingar á þess-
um mistökum.
LEIÐRÉTT
!"# $%$%"&'"(
!)#&)* +$&,$ %
$%+-.$."(
Eftir Önund Pál Ragnarsson
onundur@mbl.is
VONBRIGÐIN með fall Kaupþings í
fyrrinótt voru gríðarlega mikil hjá ís-
lenskum ráðamönnum. Geir H.
Haarde forsætisráðherra og Björgvin
G. Sigurðsson viðskiptaráðherra lýstu
því báðir yfir á sameiginlegum blaða-
mannafundi í Iðnó klukkan fjögur í
gær. „Úr því sem var komið var ekki
um annað að ræða en að vinna úr
þeirri stöðu eins og hægt er,“ sagði
Geir. Bankanum var skipuð skila-
nefnd og hann tekinn undir stjórn
Fjármálaeftirlitsins. Þar með eru allir
viðskiptabankarnir þrír komnir undir
væng ríkisins og íslenska bankaútrás-
in að fullu búin að gefa eftir.
Ríkið ræður við bankana
Í samtali við Morgunblaðið í Iðnó í
gær sagði Geir ekki vafa á því að ríkið
ráði við þær miklu skuldbindingar
sem felast í öllum þessum yfirtökum.
„Ég tel að bankarnir sem út úr þessu
koma, nýir viðskiptabankar fyrir inn-
anlandsmarkaðinn, verði fyrirtæki
sem komi sér fljótt og vel fyrir hér á
markaðnum og stuðli að árangri og
arði. Ég óttast ekki að verið sé að
hætta peningum almennings með
óeðlilegum hætti.“ Hann sagði eigið fé
verða sett inn í bankana á næstunni til
að tryggja starfsemi þeirra, aðspurð-
ur hvort fyrirtæki gætu almennt
borgað út laun um næstu mánaðamót.
Treystir Davíð
En er ekki kominn tími á mynd-
arlega vaxtalækkun?
„Þessar aðgerðir [síðustu daga]
munu þýða að það dregur verulega úr
þenslunni og líklegt er að þjóðarfram-
leiðslan dragist saman um tíma. Það
er líka þannig að ef hægt er að ná
ákveðinni festu á vinnumarkaðnum og
samkomulagi milli aðila þar, minnkar
óvissan í þjóðfélaginu. Allt eru þetta
hlutir sem skipta máli þegar vextir
eru ákveðnir.“
Telur þú að ummæli Davíðs Odds-
sonar í Kastljósinu á þriðjudag hafi
aukið á vandann?
„Nei.“
Hefur þú fullt traust á Davíð?
„Að sjálfsögðu.“
Spurður um samtöl Árna Mathie-
sen fjármálaráðherra við Alistair Dar-
ling, fjármálaráðherra Bretlands,
sagði Geir misvísandi skilaboð um fyr-
irætlun íslenskra stjórnvalda ekki frá
Árna komin.
„Við höfum hins vegar sagt, og það
kom fram í yfirlýsingu frá mér í gær,
að við fögnum því að Bretarnir ætla til
að byrja með að taka á sig þá ábyrgð
sem er þarna í gildi gagnvart inni-
stæðueigendum. Í öðru lagi kom það
fram af minni hálfu að það er nauð-
synlegt að ríkisstjórnirnar, eða
fulltrúar þeirra, setjist saman niður
til þess að fara í gegnum þetta. Nú er
búið að ákveða að Bretar muni senda
hingað menn í því skyni. Það var líka
ákveðið í lagasetningunni á mánu-
dagskvöld að gera kröfur innistæðu-
eigenda á banka forgangskröfur, þeg-
ar kemur til uppgjörs. Það á líka við í
Bretlandi. Þess vegna gerum við okk-
ur vonir um að eignir bankans þar í
landi muni fara langleiðina með það
að dekka þær kröfur sem komu upp
þar.“
Engum einum um að kenna
Ef í ljós kemur að viðbrögð Breta í
gærmorgun voru vegna skilaboða frá
embættismanni á Íslandi, væri þá rétt
að sá embættismaður viki úr starfi?
„Það er ekki hægt að svara þessari
spurningu. Ég tel ekki að ummæli
einhvers eins manns liggi þarna að
baki.“
Hvers vegna hafa norrænir gjald-
eyrisskiptasamningar ekki verið
virkjaðir?
„Það er vegna þess að ekki hefur
verið þörf á því.“
Sérðu fyrir þér að hún komi upp á
næstu dögum?
„Ég á ekki von á því reyndar því ég
held að ástandið hér muni jafna sig
hratt og gjaldeyrir fara að streyma
inn í landið með eðlilegum hætti á nýj-
an leik. Þá mun gjaldeyrismarkaður-
inn taka við sér aftur. Það var alltaf
hugsunin með þessum línum að nota
þær bara í neyð, þetta átti ekki að
vera hluti af daglegum viðskiptum
hér inn í landið.“
Varaformaður Samfylkingarinnar
hefur lýst því yfir að hann vilji Davíð
Oddsson úr seðlabankanum. Þrýst-
ingur á það vex. Er hætta á því að rík-
isstjórnin haldi ekki út af því máli?
„Við höfum átt mjög gott samstarf í
þessari kreppu. Ég get ekki séð fyrir
mér að það komi upp alvarlegri
vandamál en þau sem við erum núna
að fást við. Stjórnarsamstarfið hefur
gengið mjög vel, jafnvel þó að formað-
ur Samfylkingarinnar sé á sjúkrabeði
í útlöndum. Hún hefur að vísu reynt
að fylgjast með þessu eins vel og hún
hefur getað, en ef eitthvað er þá hefur
þetta þjappað stjórnarflokkunum
saman,“ sagði Geir.
Gríðarleg vonbrigði með
endalok Kaupþings
Bretar munu fljótlega senda menn til Íslands til að fara yfir málefni Icesave
Morgunblaðið/Golli
Svara Mikið mæðir á Geir H. Haarde og Björgvini G. Sigurðssyni.
GENGISTRYGGÐ íbúðalán verða
mögulega fryst þar til gjaldeyr-
ismarkaðurinn er kominn í eðlilegra
form. Þetta kom fram í máli Geirs H.
Haarde forsætisráðherra og Björg-
vins G. Sigurðssonar viðskiptaráð-
herra á blaðamannafundi í Iðnó í
gær. Sagðist Geir ætla að beina því til
bankanna að þeir skoði þennan
möguleika og að nánari útfærsla af
hugmyndinni yrði kynnt síðar.
Á vefsvæði greiningardeildar
Kaupþings sagði í gær að þetta
myndi án efa róa taugar margra sem
hafa séð gengistryggð lán sín allt að
tvöfaldast á nokkrum mánuðum.
Jafnframt er spurt, þar sem gríðarleg
verðbólga sé framundan, hvort ekki
eigi líka að bæta handhöfum verð-
tryggða lána þann skaða sem geng-
isfall krónunnar hefur í för með. „Því
má spyrja sig hvort jafnræðis gæti að
fullu milli lántakenda eða hvort kom-
ið verði sömuleiðis til móts við þá sem
horfa nú fram á hækkandi verð-
tryggð lán,“ sagði í hálffimm fréttum
greiningardeildarinnar. halla@mbl.is
Gengistryggð lán
mögulega fryst
Hvað um verðtryggð lán? spyr Kaupþing
Morgunblaðið/Ásdís
Bankakreppan