Morgunblaðið - 10.10.2008, Qupperneq 16
16 FÖSTUDAGUR 10. OKTÓBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Eftir Ylfu Kristínu K. Árnadóttur
ylfa@mbl.is
„FÓLK er mjög reitt og hissa, að fá
hvergi upplýsingar um hvað verður
um peningana þess,“ segir Jóna
Hálfdánardóttir, sem búsett er í
Amsterdam í Hollandi. Um 120 þús-
und Icesave-reikningseigendur eru í
Hollandi og segir Jóna að fjöldi
þeirra ætli að höfða mál gegn
Landsbankanum.
Aðalefni sjónvarpsþáttar
Fjallað var um málið í stórum
fréttaskýringarþætti, Nova, í fyrra-
kvöld. Þar talaði hagfræðingur
nokkur um „casino“-samfélag á Ís-
Þóra segir að hún og íslenskir vin-
ir hennar hafi velt því fyrir sér hvort
þau ættu að segjast vera frá öðru
landi en Íslandi. „Við erum ekki vin-
sæl í London núna,“ segir hún. Þá
segir Þóra marga Íslendinga ósátta
við gengi VISA og Mastercard sem
síðustu daga hefur verið mun hærra
en almenna gengið. Nefnir hún að í
fyrradag hafi VISA-gengið á pund-
inu verið tæpar 300 kr.
Spurð um umfjöllun blaðanna
nefnir Þóra eftirminnilega setningu
sem birtist í blaðinu The Guardian:
„The party is over for the little
island who tried to buy the world“.
(ísl. Gamanið búið hjá litlu eyjunni
sem reyndi að kaupa heiminn).
talið var. Ísland eitt sé ábyrgt fyrir
upphæðinni og nú sé ekki víst að
þeir geti borgað.
Ekki vinsæl í London
Þóra Hilmarsdóttir nemi er bú-
sett í London í Bretlandi og segir að
í sínum vinahópi sé vart talað um
annað en ástandið hér á landi. „Það
er mikið talað um þetta hérna og
fjallað um ástandið í blöðum og sjón-
varpi. Fyrir skömmu var Geir H.
Haarde á Channel 4 hérna í Lond-
on,“ segir Þóra og bætir við: „Ég var
í tíma í dag [í gær] og kennarinn
spurði hvaðan ég væri. Þegar ég
svaraði Íslandi sagði hann „Æ,
greyið þú núna.““
fjallað um Icesave og vitnað í Geir
H. Haarde og sagt að af orðum hans
að dæma væru hollenskir við-
skiptavinir ekki nógu mikilvægir. Á
forsíðu blaðsins var mynd af aðal-
útibúi Landsbankans og undir henni
fyrirsögnin: „Forsætisráðherra Ís-
lands segir við Hollendinga: Sorrý.“
Jóna segir fjármálaráðherra Hol-
lands hafa reynt að ná sambandi við
íslensk stjórnvöld en það gangi illa.
Hann segi að Íslendingar verði að
taka ábyrgð á gjörðum sínum en
mikið hefur verið fjallað um að ekki
hafi verið um sameiginlega rík-
isábyrgð að ræða á Icesave-
reikningunum fyrir 20 þúsund evr-
um á hvern sparifjáreiganda eins og
landi sem ekki væri hægt að treysta.
Í dagblaðinu Volkskrant (ísl. Al-
þýðublaðið) var í gær fjallað um
bága efnahagsstöðu landsins og sagt
að Rússar réttu Íslendingum
kannski hjálparhönd. Einnig var
Mikið fjallað um Icesave erlendis
Þóra
Hilmarsdóttir
Jóna
Hálfdánardóttir
Úttekt á málinu í stórum hollenskum fréttaskýringarþætti þar sem sagt var að íslensku samfélagi væri
ekki treystandi Vinsælt fréttaefni í Bretlandi „Ekki vinsæl í London núna,“ segir íslenskur nemi
FÓLK ætti ekki að taka háar upphæðir í reiðufé
út úr bönkunum, sagði Geir H. Haarde forsætis-
ráðherra á fjölmennum blaðamannafundi í Iðnó í
gær. „Það gerir málið erfiðara viðfangs og það
er líka ákveðin áhætta sem felst í því fyrir al-
menning að liggja með mikla peninga í lausu fé
heima hjá sér eða annars staðar þar sem pening-
arnir kunna að vera óvarðir,“ sagði Geir og
hvatti fólk til að sýna stillingu á meðan efna-
hagsvandræðin ganga yfir. Blaðamannafundir
hafa verið haldnir daglega í þessari viku og þeir
orðið fjölmennari með hverjum deginum.
Morgunblaðið/RAX
Ekki gott að geyma háar fjárhæðir heima
Eftir Guðna Einarsson og
Björn Jóhann Björnsson
ÍSLENSK innflutningsfyrirtæki
hafa undanfarna daga verið krafin
um fyrirframgreiðslu við pöntun á
vörum frá útlöndum.
Knútur Signarsson, fram-
kvæmdastjóri Félags íslenskra stór-
kaupmanna, staðfesti að nokkrir af
félagsmönnum FÍS hefðu verið
krafðir staðgreiðslu hjá birgjum í
Evrópu og Asíu. Hann heyrði fyrst
af þessu í fyrradag. Knútur kvaðst
vera sannfærður um að þetta væri
tímabundið ástand.
„Fréttir hafa flogið um allan heim
um að Ísland sé komið á hausinn.
Ég veit að félagsmenn mínir hafa
verið í sambandi við sína erlendu
birgja og útskýrt málin fyrir þeim,“
sagði Knútur. Hann sagði að þróun
gengis krónunnar og látlausar yf-
irlýsingar ráðamanna um að krónan
muni styrkjast hafi valdið því að
menn hafi frestað greiðslu reikn-
inga.
„Svo gott sem undantekningar-
laust hafa þeir fengið lengri
greiðslufrest hjá birgjum, enda
flestir verið í viðskiptum við þá í
áratugi. Nú eru innflytjendur farnir
að fá tilkynningar um að væntanlega
verði ekki vörur afgreiddar nema
þær verði greiddar fyrirfram,“ sagði
Knútur. Hann sagði að innflutningur
væri alls ekki að hætta og skemmur
heildsala væru fullar af vörum.
Hermann Guðmundsson, forstjóri
N1, staðfesti í samtali við mbl.is í
gær að fyrirtækið hefði lent í þessu í
viðskiptum við fyrirtæki í Þýska-
landi og víðar. Hann sagðist vita um
mörg önnur íslensk fyrirtæki sem
hefðu lent í þessu sama og nefndi
m.a. Norðurlöndin, Bretland og
Bandaríkin í því sambandi.
Hermann segir N1 ekki lenda í
því að fá ekki olíu afgreidda, enda
hafi ráðamenn lýst yfir að svo verði
ekki, en hins vegar sé ljóst að borið
geti á skorti á innfluttum vörum á
einhverjum sviðum á næstunni.
„Margir hafa verið að óska skýr-
inga á ástandinu á Íslandi. Sumir
hafa fengið um það fyrirmæli frá
sínum tryggingafélögum, sem
tryggja útflutning fyrirtækjanna, að
Ísland sé komið í staðgreiðslu-
viðskipti, bara heildin, og engin fyr-
irtæki tekin sérstaklega út úr hvað
það varðar. Þetta er ein af þeim af-
leiðingum sem nú dynja yfir íslenskt
viðskiptalíf þessa dagana. Lán
birgja til íslenskra fyrirtækja al-
mennt eru mikið til að hverfa, á
meðan þessi óvissa ríkir um hvað
tekur við,“ segir Hermann. Hann
telur að um tímabundið ástand sé að
ræða sem vonandi lagist á næstu
dögum og vikum.
„Fréttin um Ísland fer eins og
eldur um heimsbyggðina, við erum
forsíðufrétt alls staðar og skilj-
anlega grípur um sig ótti hjá okkar
viðskiptavinum. Ég tel þetta ekki
vera stórmál til lengri tíma litið.
Þetta er stundarhræðsla sem grípur
um sig. Síðan munu birgjar og fyr-
irtæki hér innanlands fara yfir stöð-
una og tryggja aftur eðlileg fyr-
irgreiðsluviðskipti.“
Staðgreiðslu krafist
Erlendir birgjar biðja nú íslensk innflutningsfyrirtæki um staðgreiðslu
Talið er að um tímabundið ástand sé að ræða meðan óvissa ríkir
„Bankakerfið
virkar ekki,
greiðslur til og
frá landinu
virðast vera
frystar. Við höf-
um mörg dæmi
um að greiðslur
íslenskra fyr-
irtækja til
birgja erlendis
hafi ekki skilað sér,“ sagði Andrés
Magnússon, framkvæmdastjóri
Samtaka verslunar og þjónustu
(SVÞ). Hann segir að skjót við-
brögð þurfi til þess að viðskiptin
við útlönd stöðvist ekki algjörlega.
„Það er meginverkefni að
tryggja að það sé til gjaldeyrir til
þess að versla á milli landa. Það er
aðalverkefnið nú. Það er ekki virk-
ur gjaldeyrismarkaður og enginn
gjaldeyrir til að eiga viðskipti.“
Andrés sagði að ef þetta ástand
lagaðist ekki þá myndu viðskipti
við útlönd stöðvast. Það gæti gerst
á skömmum tíma. Hann sagði að
einhver brögð hefðu verið að því að
aðildarfyrirtæki SVÞ hefðu verið
krafin um staðgreiðslu í við-
skiptum við erlend fyrirtæki und-
anfarið. Eins hefði verið greinilegt
að viðskipti við Ísland hefðu verið
„sett á frost“ í Bretlandi í gær.
Aðalmálið nú að tryggja gjaldeyri til viðskipta
Andrés Magnússon
VONIR standa til að hægt sé að
finna sambærilega lausn á mál-
efnum Icesave-reikningseigenda í
Hollandi og nú er unnið að með
Bretum, að því er fram kom í máli
Geirs H. Haarde forsætisráðherra á
blaðamannafundi í Iðnó í gær.
Blaðamenn frá Hollandi og fleiri
löndum spurðu Geir út í þetta og
vildu skýr svör fyrir tugþúsundir
hollenskra reikningseigenda.
Geir sagði íslensk stjórnvöld
gera sitt besta til að finna lausn á
vandanum en að samstarf við bæði
hollensk og bresk stjórnvöld væri
nauðsynlegt. Hann svaraði játandi
spurningunni um hvort samskipti
væru milli íslenskra og hollenskra
stjórnvalda og að það væri aðeins
tilviljun að athyglin hefði beinst
meira að Bretum. Bresk stjórnvöld
hefðu einfaldlega haft samband
fyrr. halla@mbl.is
Hollenskir
Icesave-eig-
endur uggandi
ÓLAFUR Jóhann-
esson, þjálfari ís-
lenska landsliðs-
ins í knattspyrnu,
segist ekki hafa
fundið fyrir
neinni andúð í
garð íslensku
landsliðsmann-
anna af hálfu Hol-
lendinga vegna
Icesave-reikninga
Landsbankans í Hollandi, sem eru í
uppnámi. Íslenska landsliðið er í
Rotterdam og mætir Hollendingum í
undankeppni HM á morgun.
,,Við höfum verið spurðir út í
þetta en við höfum ekki fundið fyrir
neinni andúð. Íslenska þjóðin á ekki
marga vini í útlöndum um þessar
mundir að því er virðist en við höf-
um alveg þorað að labba um göturn-
ar hér í Rotterdam með merki Ís-
lands á bakinu. Þetta hefur því
ekkert truflað okkur.“
gummih@mbl.is
Engin andúð
í garð liðsins
Ólafur
Jóhannesson
Bankakreppan
ÁRNI Mathiesen fjármálaráðherra
hélt í gær til Washington á ársfund
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Al-
þjóðabankans. Mun Árni þar eiga
tvíhliða fundi með fulltrúum banda-
rískra og breskra stjórnvalda, auk
þess sem hann mun hitta fulltrúa
fjölmargra fjármálafyrirtækja sem
átt hafa viðskipti við Ísland.
Fundirnir hefjast í dag og standa
fram á þriðjudag í næstu viku.
Árni fer til
Washington