Morgunblaðið - 10.10.2008, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. OKTÓBER 2008 17
TÍSKA
OG FÖRÐUN
Stórglæsilegt sérblað um tísku og
förðun fylgir Morgunblaðinu
föstudaginn 17. október.
Meðal efnis er:
• Andlitshúðin.
• Líkamshúðin.
• Brúnkukrem.
• Ilmvötn.
• Varalitir.
• Förðun og snyrtivörur.
• Hárið í vetur, hvað er í tísku.
• Kventíska.
• Karlmannatíska.
• Fylgihlutir.
• Skór.
• Brjósthaldarar.
• Aðhaldsnærföt.
• Góð stílráð.
Allar nánari upplýsingar veitir Katrín Theódórsdóttir
í síma 569 1105 eða kata@mbl.is.
Ásamt fullt af öðru spennandi efni
og fróðleiksmolum.
Auglýsendur!
Pantið fyrir klukkan 16,
mánudaginn 13. október.
Eftir Höllu Gunnarsdóttur, Elvu Björk
Sverrisdóttur og Guðna Einarsson
STAÐA Davíðs Oddssonar seðla-
bankastjóra hefur ekki verið rædd
innan ríkisstjórnarinnar og Björg-
vin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra
vildi á blaðamannafundi í Iðnó í gær
ekkert gefa út á skoðanir sam-
flokkssystkina sinna um að Davíð
eigi að víkja. Geir H. Haarde for-
sætisráðherra sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær að hann bæri
fullt traust til Davíðs Oddssonar
seðlabankastjóra. Morgunblaðið
leitaði til forystumanna annarra
stjórnmálaflokka og spurði þá um
afstöðu til forystu Seðlabanka Ís-
lands.
„Ég tel að þeir eigi að víkja.
Seðlabankinn mun ekki njóta trú-
verðugleika meðan þessir menn
stjórna honum. Mistökin, í fyrsta
lagi, voru afar óheppileg ummæli
seðlabankastjóra í Kastljósi í vik-
unni, þar sem Íslendingum var bein-
línis lýst sem kennitöluflökkurum,“
segir Ágúst Ólafur Ágústsson, vara-
formaður Samfylkingarinnar.
Í öðru lagi hafi Seðlabankinn haft
á könnu sinni að efla gjaldeyrisforð-
ann, en ekki gert. Í þriðja lagi eigi
Seðlabankinn að tryggja aðgang að
lánsfé, en það hafi ekki verið gert. Í
fjórða lagi eigi bankinn að vinna
gegn verðbólgu, en það hafi heldur
ekki verið gert. Ágúst Ólafur segir
Seðlabankann þurfa að svara fyrir
þau mistök sem gerð hafa verið.
Ríkisstjórnin ber höfuðábyrgð
Steingrímur J. Sigfússon, formað-
ur VG, segir að vissulega beri Seðla-
bankinn ábyrgð. „En það gera fleiri
og fyrst og fremst ríkisstjórn Ís-
lands,“ segir Steingrímur. Seðla-
bankinn starfi á grundvelli sam-
starfsyfirlýsingar Seðlabanka og
ríkisstjórnar og á grundvelli laga
frá Alþingi. Fleiri í stjórnkerfinu en
Seðlabankinn þurfi að horfast í
augu við sína frammistöðu og megi
t.d. nefna Fjármálaeftirlitið.
Steingrímur segist horfa á málin
heildstætt. „Ég tek ekki þátt í því
að ætla að fara að tína einn út úr og
gera hann að allsherjarsökudólgi
fyrir hina. Að mínu mati liggur
ábyrgðin síðustu daga og vikur fyrst
og fremst hjá ríkisstjórn.
Guðjón Arnar Kristjánsson, for-
maður Frjálslynda flokksins, segir
að ef menn meti það svo að seðla-
bankastjóri hafi talað óvarlega í
Kastljósi Sjónvarpsins á þriðjudags-
kvöldið og valdið Íslandi m.a. þeim
viðbrögðum sem urðu í Bretlandi,
sé það mjög alvarlegur hlutur. Dav-
íð hafi verið „glannalegur þegar
hann talaði um erlendu fjárfesting-
arnar. Þetta fer allt til útlanda jafn-
óðum sem íslenskir ráðamenn segja
hér heima í þessari viðkvæmu
stöðu“. Davíð sé í forsvari fyrir
Seðlabankann en líta megi svo á að
hann tali einnig fyrir hönd hinna
bankastjóranna í Seðlabankanum.
„Ég held að það sé best að spara
allar nornaveiðar og átök við þessar
aðstæður,“ sagði Guðni Ágústsson,
formaður Framsóknarflokksins.
„Það má gagnrýna Seðlabankann
fyrir ýmsa hluti í peningastefnunni.
Ég hef gagnrýnt stýrivexti og geng-
isskráningu en ríkisstjórnin hefur
varið það allt saman í þinginu. Efna-
hagsstefna þjóðarinnar er á ábyrgð
ríkisstjórnarinnar og pen-
ingastefnan er það einnig. Þess
vegna tel ég, ekki síst þegar það er
innan stjórnarflokkanna, að slíkar
ásakanir sem nú ganga yfir séu
óheppilegar fyrir Ísland við þessar
aðstæður. Ég ætla engan dóm að
fella á þessu stigi um seðla-
bankastjórana þrjá.“
Stefnan gagnrýnd
Forsætisráðherra ber fullt traust til Davíðs Oddssonar
seðlabankastjóra Ummæli í Kastljósi gagnrýnd
Steingrímur J.
Sigfússon
Guðjón Arnar
Kristjánsson
Ágúst Ólafur
Ágústsson
Guðni
Ágústsson
Björgvin G.
Sigurðsson
Geir H.
Haarde
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„ÞETTA er að ganga yfir eins og
höggbylgja. Það er verið að tala við
fólk. Sumir eru að fara heim, öðrum
hefur verið sagt að þeir fái vinnu í
nýja bankanum. Ég veit ekki um
umfangið, en held að allir starfs-
menn útibúanna og innlendrar starf-
semi verði áfram í vinnu,“ segir
Helga Jónsdóttir formaður félags
starfsmanna Landsbankans um af-
drif um 1.500 starfsmanna bankans
eftir að skilanefnd ríkisins tók hann
yfir.
Helga segir að á þessari stundu sé
ekki ljóst hvort þeim starfsmönnum
Landsbankans sem sagt hefur verið
upp störfum verði greiddur þriggja
mánaða uppsagnafrestur.
Hún gagnrýnir ríkisstjórnina
harðlega og segir hana með þessu
ganga á bak loforða sinna.
„Þrátt fyrir digurbarkaleg orð
Björgvins G. Sigurðssonar við-
skiptaráðherra um að enginn myndi
tapa neinu né missa vinnuna og svo
framvegis virðist raunin ætla að
verða önnur,“ segir Helga.
„Það er ekki búið að segja neinum
upp. Heldur er búið að tala við fullt
af fólki og segja því að það fái ekki
vinnu í nýja bankanum. Það er hlut-
verk skilanefndarinnar að segja upp
fólki og ganga frá málum og þess
vegna er þetta allt óljóst.“
Helga segir ljóst að margir starfs-
menn muni tapa háum fjárhæðum.
Það sem sé verst í þessu öllu sam-
an sé óvissan með uppsagnarfrest-
inn. Sumir séu enn að bíða örlaga
sinna. Í sumum deildum hafi starfs-
mennirnir verið glaðir með að halda
vinnunni um leið og finna hafi mátt
grátandi fólk á göngum.
Tapa háum fjárhæðum
„Það er enda búið að standa svona
að þessu,“ segir Helga. „Þetta er
jafnvel sama fólkið og er búið að
tapa sparnaði sínum í hlutabréfum.
Þetta er jafnvel fólk sem hefur tekið
erlend lán í myntum. Núna virðist
sem búið sé að rífa af því laun og
uppsagnarfrestinn. Hvaða vit er í
því? Hvers konar bananalýðveldi bú-
um við í. Þetta er náttúrlega með
ólíkindum.“
Helga segir starfsfólki bankans
hafa borist aðstoð úr samfélaginu.
„Stéttarfélagið greiðir fyrir
sálfræðiþjónustu. Við höfum einnig
fengið skilaboð frá prestum um að
þeir hyggist bjóða fram aðstoð sína.
Það er dásamlegt að fólk sé að bjóða
fram slíka þjónustu. Starfsfólk
Landsbankans í Lúxemborg fékk
áfallahjálp í dag (í gær) en ég veit á
þessari stundu ekki um starfsmenn
okkar í Lundúnum.“
Hún segir hluta starfsfólksins
hafa verið boðið að halda störfum
gegn því að gangast við mikilli
kjaraskerðingu. Yfirmennirnir í
bankanum viti hins vegar ekki hvaða
laun þeir muni geta boðið. Því sé
ekki ljóst hver skerðingin verði.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Áhyggjur Frá fundi Björgvins G. Sigurðssonar viðskiptaráðherra og Árna M.
Mathiesen fjármálaráðherra með starfsmönnum Landsbankans í vikunni.
„Hvers konar banana-
lýðveldi búum við í?“
Formaður félags starfsmanna Landsbankans segir stjórn-
völd svíkja gefin loforð Óvissa ríkir um uppsagnarfrest