Morgunblaðið - 10.10.2008, Qupperneq 18
Eftir Þorbjörn Þórðarson
thorbjorn@mbl.is
BRESKA fjármálaeftirlitið krafðist
þess að Landsbankinn færði auknar
eignir út til Bretlands gegn því að
bankanum yrði heimilt að færa Ice-
save-reikninga sína til dótturfélags
síns þar í landi, Heritable-bankans.
Ekki náðist samkomulag milli bank-
ans og eftirlitsins um hvernig ætti að
standa að slíkri eignafærslu og því
varð ekkert úr áformum Landsbank-
ans.
Halldór J. Kristjánsson, banka-
stjóri Landsbankans, sagði í viðtali
við Morgunblaðið í gær að breska
fjármálaeftirlitið [Financial services
authority] hefði mátt „aðstoða
Landsbankann betur“ við að færa
Icesave-reikningana til dótturfélags
í Bretlandi.
„Það er stefna eftirlitsins að tjá sig
ekki um viðræður sem það hefur átt
við fyrirtæki sem sæta eða hafa sætt
eftirliti,“ sagði Joseph Eyre, fjöl-
miðlafulltrúi hjá breska fjármálaeft-
irlitinu, þegar óskað var eftir við-
brögðum við ummælum Halldórs.
„Það var reynt að bregðast við
með stjórnendum Landsbankans
þannig að eignir yrðu færðar úr
útibúum í dótturfélög. Það var ekki
einfalt ferli og því miður var gerð
krafa um töluvert miklar eignir sem
yrðu færðar niður á móti [til Bret-
lands],“ segir Jónas Fr. Jónsson, for-
stjóri Fjármálaeftirlitsins.
Vildu jafna eignir og skuldir
„Það var gerð krafa að við færðum
eignir út til tryggingar,“ segir Hall-
dór. Aðspurður hversu mikið breska
fjármáleftirlitið krafðist að yrði fært
segir Halldór að viðræður þeirra við
eftirlitið hefðu aðallega snúist um
upphæðir og í hvaða áföngum eignir
yrðu færðar. „Það var auðvitað
markmiðið að ná jöfnuði milli eigna
og skulda en það var ekki auðvelt
þegar efnahagsreikningur Lands-
bankans var að dragast saman á
fyrstu sex mánuðum þessa árs og
efnahagsástandið í heiminum var
eins og það var. Þeir hefðu þurft að
sýna meiri sveigjanleika í ljósi efna-
hagsástandsins,“ segir Halldór.
Breska eftirlitið vildi auknar
eignir út til að tryggja Icesave
Ekki náðist samkomulag milli Landsbankans og breska fjármálaeftirlitsins
Í HNOTSKURN
»Fyrr á þessu ári skapaðistumræða í Bretlandi vegna
stærðar og umfangs Icesave-
reikninganna, um hvort inn-
lánstrygging væri í Bretlandi
eða Íslandi.
» Í mars á þessu ári varaðibreska fjármálaeftirlitið
þarlenda innistæðueigendur
við að huga ekki aðeins að
góðum vöxtum erlendra
banka heldur einnig þeirri
áhættu sem fylgdi reikning-
unum.
»Breska fjármálaeftirlitiðfylgist með lausafjárstöðu
erlendra útibúa þar í landi.
»„Það er undantekning.Lausafjáreftirlit með
útibúum, t.d Icesave, er hjá
gistiríkinu, þ.e Bretlandi. En
almenna reglan er heimarík-
iseftirlit,“ segir forstjóri FME.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
18 FÖSTUDAGUR 10. OKTÓBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTASKÝRING
Eftir Bjarna Ólafsson
bjarni@mbl.is
SÚ HÆTTA er fyrir hendi að fleiri
félög eigi eftir að lúta í lægra haldi
vegna þjóðnýtingar ríkisins á við-
skiptabönkunum þremur, Glitni,
Kaupþingi og Landsbanka. Stærstu
eigendur bankanna munu með þeim
aðgerðum tapa tugum, ef ekki
hundruðum milljarða króna og hafa
þegar tvö félög fengið greiðslu-
stöðvun. Stoðir, stærsti eigandi
Glitnis, óskaði eftir greiðslustöðvun
skömmu eftir að ákveðið var að ríkið
eignaðist 75% í bankanum. Sú að-
gerð verður reyndar að engu með
þjóðnýtingu Glitnis, en staða Stoða
er engu betri við þær aðstæður.
Þá óskaði Samson eignarhalds-
félag, stærsti eigandi Landsbank-
ans, eftir greiðslustöðvun eftir þjóð-
nýtingu ríkisins á þeim banka.
Stærsti eigandi Kaupþings, Ex-
ista, hefur ekki óskað eftir greiðslu-
stöðvun og mun félagið vera að
vinna úr sínum málum. Fram hefur
komið að eignir félagsins í norska
tryggingafélaginu Storebrand og
finnska fjármálafyrirtækinu Sampo
hafa verið seldar. Exista á þar fyrir
utan Skipti, eignarhaldsfélag Sím-
ans, VÍS tryggingafélag og stóran
hlut í Bakkavör. Sparisjóðirnir eiga
margir hlut í Exista í gegnum eign-
arhaldsfélagið Kistu. Fari svo að
Exista þurfi að láta undan munu
sparisjóðirnir verða fyrir höggi.
Stoðir og Samson
Stoðir, stærsti eigandi Glitnis,
eiga 39% hlut í Baugi Group og þá á
félagið Tryggingamiðstöðina að
fullu. Þessi félög gætu farið illa úr
gjaldþroti Stoða. Þá eiga aðilar
tengdir Stoðum Haga, sem er við-
kvæmt af sömu sökum.
Aðrir stórir hluthafar í Glitni eru
Þáttur og Saxbygg. Félög tengd eig-
endum Þáttar eru Milestone, Askar
Capital og Sjóvá og standa þau óhjá-
kvæmilega veikar nú en áður. Þá er
Byggingafélag Gylfa og Gunnars
annar eigandi Saxbyggs, stórs hlut-
hafa í Glitni, og mun það óhjákvæmi-
lega verða fyrir áhrifum.
Stærsti eigandi Landsbankans,
Samson hefur fengið greiðslu-
stöðvun, eins og áður segir. Eig-
endur Samson eiga stóra hluti í Eim-
skipafélaginu og Icelandic. Þá hefur
komið í ljós að vegna erfiðleika Sam-
son er mikil óvissa um 25 milljarða
króna ábyrgð sem fallið gæti á Eim-
skipafélagið vegna sölu félagsins á
XL Leisure. Telja verður stöðu
Straums öllu sterkari, en ljóst má
vera að ákveðin óvissa ríkir um
framtíð bankans, einkum þegar
lánshæfiseinkunn hans hefur verið
lækkuð.
Fjöldi fyrirtækja í hættu
Þjóðnýting ríkisins á viðskiptabönkunum gæti haft alvarlegar afleiðingar fyrir
mörg fyrirtæki sem tengd eru eigendum bankanna með einum eða öðrum hætti
ATHUGA ber að félögin sem hér
eru talin upp eru misvel stæð en
engin ástæða er til að ætla að þau
rambi á barmi gjaldþrots. Þeir
kubbar sem uppistandandi eru á
myndinni hér fyrir ofan sýna að-
eins tengd félög og gefa ekki til
kynna fjárhagslega stöðu þeirra.
Aftur á móti er staðan óneit-
anlega veikari en hún var fyrir
þjóðnýtingu bankanna og sum
þeirra munu óhjákvæmilega lenda
í einhverjum vandræðum.
Þessi upptalning sýnir einnig að
inngrip ríkisvaldsins í bankana
gæti enn dregið dilk á eftir sér og
að afleiðingarnar yrðu almennari
og meiri en þær eru þegar orðnar.
Félög hér á landi eru mörg tengd
eignatengslum og það sem kemur
einu þeirra illa getur haft áhrif á
fjölda annarra fyrirtækja.
Inngrip ríkis gæti dregið dilk á eftir sér
ÚTLITIÐ er ekki bjart á erlendum
hlutabréfamörkuðum og vilja fjár-
festar ekki halda í neitt nema rík-
isskuldabréf og reiðufé, að því er
segir í frétt Wall Street Journal.
Bandaríska Dow Jones-vísitalan
lækkaði sjöunda daginn í röð í gær
og nam lækkunin 7,3%.
Reiknast mönnum til að tap fjár-
festa í gær hafi numið 872 milljörð-
um Bandaríkjadala í gær og 2.500
milljörðum samtals undanfarna sjö
viðskiptadaga.
Ekki er búist við því að ástandið
batni á hlutabréfamörkuðum fyrr en
alþjóðlegir lánsfjármarkaðir vakna
til lífsins á ný.
Bílar og fjármálafyrirtæki
Meðal þess sem olli lækkunum
gærdagsins var ákvörðun matsfyrir-
tækisins Standard & Poor’s að
lækka lánshæfiseinkunn bílafram-
leiðandans General Motors. Í kjöl-
farið hrundi gengi bréfa GM um
31%.
Þá lækkuðu fjármálafyrirtæki og
bankar mikið í verði. Citigroup um
10% og Bank of America um 11,2%.
Heimsmarkaðsverð á hráolíu hélt
áfram að lækka í gær. Lækkaði
Brent-Norðursjávarolía um 3,63% á
núvirðismarkaði og stendur nú í
rúmum 80 dölum á fatið.
bjarni@mbl.is
Ekki linnir
lækkunum
Sa
m
so
n
Lánshæfis-
einkunn
Neyða
r-
lög Lands-bankinn
Stoðir
Ákvörðun
tekin
Baugur
Hagar
Straum
ur
Eim
skip
Icelandic
Dómínó-áhrif
Ákvörðun tekin um kaup
ríkisins á 75% hlut í Glitni
29. september
Stoðir hf. óska eftir
greiðslustöðvun
Matsfyrirtæki lækka
lánshæfiseinkunnir
ríkis og banka
Baugur, Hagar og
Tryggingamiðstöðin
gætu verið í hættu í
kjölfar erfiðleika Stoða
Neyðarlög sett
6. október
Landsbankinn
þjóðnýttur
7. október
Samson ehf. óskar eftir
greiðslustöðvun
Straumur gæti
verið í hættu í
kjölfar þjóðnýtingar
Landsbankans
TM
Bankakreppan
HOLLENSKA
ríkisstjórnin hef-
ur ákveðið að
verja allt að 20
milljörðum evra í
stuðning við hol-
lenskar fjármála-
stofnanir vegna
fjármálakrepp-
unnar.
Fjármálaráð-
herra Hollands segir að stjórnvöld
séu reiðubúin til þess að tryggja að
hollenskir sparifjáreigendur fái
meirihlutann af innistæðu sinni á
Icesave-reikningum Landsbankans í
Hollandi. Talið er að innistæður Hol-
lendinga á Icesave-reikningum séu
um 1,6 milljarðar evra. Fjármálaráð-
herra Hollands, Wouter Bos, segir
að þeir sem eigi fjármuni á Icesave
muni á einn eða annan hátt fá sparifé
sitt til baka upp að 100 þúsund evr-
um.
Samkvæmt frétt AP-fréttastof-
unnar er talið að meirihluti fjár á
Icesave í Hollandi falli undir ábyrgð
íslenskra stjórnvalda en efi sé um
greiðslugetu. gummi@mbl.is
Icesave í
Hollandi
sagt tryggt
Wouter Bos