Morgunblaðið - 10.10.2008, Qupperneq 28
28 FÖSTUDAGUR 10. OKTÓBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Agnar Gúst-afsson, hæsta-
réttarlögmaður,
fæddist í Reykjavík
hinn 28. október
1926. Hann lést á
Landspítalanum í
Reykjavík föstudag-
inn 26. september
síðastliðinn, 81 árs
að aldri. Foreldrar
hans voru Gústaf
Kristjánsson, kaup-
maður í Reykjavík,
og Ólafía Guð-
mundsdóttir. Yngri
hálfsystkini Agnars, samfeðra,
eru Inga Dóra, f. 1. maí 1931 og
Valur, sem er látinn. Móðir þeirra
beggja var Sigurlaug Aðalbjörg
Sigurðardóttir, ástkær stjúpmóð-
ir Agnars. Agnar átti tvo yngri
hálfbræður, sammæðra, í Dan-
mörku, Leif og Ib Andersen.
Agnar kvæntist 22. september
1951 Ingu Dóru Hertervig, f. 8.
desember 1930. Synir þeirra eru
Gústaf, f. 21. maí 1952, d. 21. nóv-
ember 2007, og Snorri, f. 30. des-
ember 1955, kvæntur Júlíönu Sig-
urveigu Guðjónsdóttur, börn
þeirra eru Margrét Hlín, f. 20.
mars 1987, og Agnar Óli, f. 3. maí
1990.
Agnar lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum í Reykjavík
1946 og cand. juris frá Háskóla Ís-
lands 1952. Agnar starfaði sem
fulltrúi hjá Ólafi
Þorgrímssyni 1952
til 1958. Síðan rak
Agnar málflutn-
ingsskrifstofu, fyrst
í félagi við Sigurð
Reyni Pétursson
hrl. og Gísla G. Ís-
leifsson hrl. en síðar
einn, frá 1962. Agn-
ar varð héraðs-
dómslögmaður 1953
og hæstarétt-
arlögmaður 1962.
Ásamt lögmanns-
skrifstofunni rak
Agnar fasteignasölu og varð um
síðir og var lengi vel elsti starf-
andi fasteignasali á landinu og
með elstu starfandi lögmönnum
landsins. Agnari voru falin ýmis
trúnaðarstörf. Hann starfaði
lengi í samskiptanefnd Félags
fasteignasala. Árin 1998 til 2003
tók hann þátt í störfum yfirfast-
eignamatsnefndar. Hann var
starfandi sem lögmaður til ævi-
loka.
Agnar var mikill áhugamaður
um hesta og hestamennsku. Hann
ferðaðist víða um landið á hest-
baki ásamt eiginkonu sinni og fé-
lögum. Þau voru meðal fárra sem
riðu yfir Skeiðará á seinni hluta
20. aldar, áður en áin var brúuð.
Útför Agnars verður gerð frá
Fossvogskirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 15.
Pabbi var grandvar maður. Hann
var oftast nær ekki margmáll, en
þeir sem þekktu hann vissu að þegar
hann tók til máls þá var þess virði að
taka mark á því. Pabbi var þægileg-
ur maður í umgengni. Hann hafði
óbeit á deilum. Mislíkaði honum eitt-
hvað lét hann það skýrt í ljós en án
þess að efna til óþarfa misklíðar. Í
hans huga var einkunnin þrasari ein
sú versta sem nokkur gat fengið. Ég
held að eini stimpillinn, sem honum
fannst verri, hafi verið að vera skot-
heldur, sem hjá pabba þýddi að rök-
ræður við þann mann væru tilgangs-
lausar.
Pabbi var vinfastur. Hann var að
vísu ekki mikið fyrir margmenni en
hann átti marga vini og rækti þá vel.
Vingaðist pabbi við einhvern hélt
hann tryggð til æviloka. Ég man eft-
ir ófáum fjölskylduferðum, þegar ég
var strákur, til sveitabæjanna þar
sem pabbi var í sveit þegar hann var
yngri. Við fórum suður með sjó til að
heimsækja Hákon á Hafurbjarna-
stöðum og undir Eyjafjallajökul að
heimsækja Þorlák á Eyjarhólum. Í
sveit hjá Þorláki, eða Láka á Eyj-
arhólum, eins og hann var yfirleitt
kallaður, smitaðist pabbi af áhuga
fyrir hestamennsku. Láki var ann-
álaður hestamaður og afburðamaður
á margan hátt. Við pabbi fórum oft í
heimsókn til hans. Það var ævintýri
fyrir lítinn patta að ríða út með þeim
á ströndunum undir Eyjafjallajökli.
Hestamennskan var mikið áhugamál
hjá pabba. Ég minnist þess að stór
þáttur í áhuga hans á hestum var ríkt
fegurðarskyn hans á þeim. Það var
einnig svo um öll önnur áhugamál
pabba, að fegurðarskyn og smekk-
vísi var ríkur þáttur. Hann var mikill
tónlistaráhugamaður. Einkum hafði
hann áhuga á djass- og óperutónlist.
Hann átti ekki langt að sækja það því
Einar Kristjánsson heitinn, yngri
bróðir Gústafs afa, föður pabba, var
óperusöngvari af guðs náð. Þá kunni
hann einnig vel að meta góða mynd-
list. Hann og Dieter Roth heitinn,
sem nú er heimsfrægur myndlistar-
maður, voru miklir vinir. Pabbi átti
myndir eftir marga kunnustu mynd-
listarmenn landsins. Ósjaldan keypti
hann myndir afburða listamanna áð-
ur en þeir náðu því að verða verulega
þekktir. Samt held ég að pabbi hafi
fyrst og fremst verið maður tungu-
málsins. Ljóðlist og bókmenntir voru
honum hjartfólgnar. Pabbi hélt mik-
ið upp á Rubaiyat-ljóðin eftir pers-
neska skáldið Omar Khayyam, sem
gefin voru út í íslenskri þýðingu
snemma á síðustu öld, en hann sagði
að þau væru hættulega munúðleg og
gætu orðið mönnum að falli. Þetta er
lýsandi fyrir pabba. Hann kunni að
meta fegurðina og listina en sjálfs-
aginn var í fyrirrúmi. Græðgi og yf-
irlæti voru andstyggð í augum
pabba. Hann sá og kunni að meta
fegurðina í hversdagslegustu hlutum
og fannst fegurðin og réttlætið felast
í gullnu reglunni og því að vera sjálf-
um sér nægur. Ég þykist vita að
störf pabba hafi markast af þessum
sömu einkennum. Ég veit að í sínum
störfum leitaði hann einatt sátta.
Pabbi var ávallt reiðubúinn til að
hlusta. Og ef menn voru reiðubúnir
til að hlusta á móti gaf hann þeim
traust og góð ráð.
Snorri Agnarsson.
Við fráfall tengdaföður míns
stendur eftir tómarúm og dagarnir
eru litlausari um sinn, því hlý og
sterk nærvera hans var ávallt mik-
ilvægur hluti af lífi litlu fjölskyldunn-
ar. Þar fór maður sem hefur varðað
líf mitt frá unglingsárum. Hann var
eins og klettur, alltaf til staðar. Hann
gaf mikið af sér en vildi svo ósköp lít-
ið í staðinn.
Agnari kynntist ég fyrir þrjátíu
árum og þessari hlýju glettni sem
fylgdi honum gjarnan þótt hann gæti
líka verið alvörugefinn. Margþætt
lífsreynsla mótaði hann. Hann var
fróður en jafnframt lítillátur, gegn-
heill, og sá það góða í fólki. Hann
sóttist ekki eftir athygli eða upphefð,
en vann verk sín af samviskusemi,
nákvæmni og réttvísi. Hann var sí-
lesandi og kunni margar sögur og
var afburða góður í íslensku. Mikill
fróðleiksþorsti einkenndi hann alla
tíð, ásamt hlýju, kímnigáfu og visku.
Þá tók hann lífsins verkefnum af
æðruleysi og reisn og heyrðist aldrei
kvarta hvað sem gekk á. Hann fylgd-
ist vel með starfi okkar, jafnan óspar
á hvatningu og uppörvun og raunar
líka umvöndun ef honum þótti á því
nauðsyn. Í samskiptum var hann
umhyggjusamur og nærgætinn.
Varðveisla minja og minninga var
Agnari hugleikið viðfangsefni. Hann
var unnandi djass og klassískrar tón-
listar og átti mikið safn platna og
geisladiska. Hans verður ekki
minnst án þess að tengdamóður
minnar sé getið, svo einstaklega náið
var samband þeirra hjóna sem var-
aði í tæp sextíu ár. Hún stóð ávallt
þétt og ósérhlífin við hlið hans í lífi og
starfi. Agnar og Inga opnuðu mér
faðm sinn eftir að ég giftist Snorra
syni þeirra, og þar hef ég átt skjól
alltaf síðan. Þá kynntist ég Agnari
sem afa barnanna minna, þar var
ekkert of gott fyrir þau. Agnar hafði
ekki hátt um tilfinningar sínar en
væntumþykjan var sýnd í verki. Það
er sárt að missa og sakna og það tek-
ur tíma að aðlagast breytingum. En
hann hefði viljað að við værum dug-
leg, þakklát og glöð. Þeir missa mik-
ið sem mikið hafa átt. Það er auð-
fundið nú.
Nú er komið að mér að þakka fyrir
alla hjálpina, hvatninguna og góðlát-
legu kankvísina. Hann var skemmti-
legur og góður maður hann tengda-
faðir minn og okkur þótti svo afar
vænt um hann. Allar góðu minning-
arnar munu ylja okkur og lýsa veg-
inn um ókomna tíð.
Fyrir hönd fjölskyldunnar vil ég
koma á framfæri þakklæti til starfs-
fólks deildar 13 E, skilunar- og gjör-
gæsludeildar og allra þeirra starfs-
manna á Landspítalanum, sem um
lengri og skemmri tíma veittu hon-
um kærleiksríka hjúkrunar- og
læknisþjónustu síðustu árin. Megi
fagmennska ykkar og umhyggja nýt-
ast áfram sem best öðrum til góðs.
Sigurveig.
Afi minn var góður maður. Hann
var hæglátur og sjálfum sér nógur
en jafnframt ákveðinn og hafði
sterka réttlætiskennd. Hann elskaði
fjölskylduna sína og vildi allt fyrir
hana gera. Ég man best eftir afa sitj-
andi í hægindastólnum í stofunni
heima hjá ömmu og sér, með annan
ökklann hvílandi á hinu hnénu og að
leysa krossgátu. Afi var snillingur í
krossgátum. Það er ljúfsárt að hugsa
um allar góðu minningarnar um afa.
Eins og hvernig hann sagði alltaf
hvur í staðinn fyrir hver og hvað
hann var alltaf ánægður þegar ég
fékk góðar einkunnir í skólanum.
Afi var næstum áttatíu og tveggja
ára þegar hann dó og við vissum í
hvað stefndi, en ég skil þetta samt
ekki. Ég veit að afi er farinn og ég fæ
ekki að tala við hann aftur en sama
hversu þróaðri tegund ég tilheyri þá
skildi ég ekki þegar ég sá að afi var
dáinn að hann fyndi það ekki ef ég
stryki á honum handarbakið eða
hvíslaði í eyrað á honum. Eða af
hverju gerði ég það þá? Þróun teg-
undarinnar miðast að því að lifa.
Skilningur á lífinu hjálpar okkur að
lifa af. Skilningur á dauðanum hjálp-
ar ekki við það og því höfum við ekki
þennan skilning.
Afi var partur af heild sem lifir
áfram. Meðan hann lifði gerði hann
ýmislegt til að bæta líf heildarinnar
og það er að mínu mati æðsta tak-
mark einstaklingsins. Ég er stolt af
afa mínum og vona að ég muni ná
þessu takmarki í mínu lífi eins og
hann.
Amma, ég elska þig og ég veit að
þú munt vera með okkur lengi í við-
bót. Ég og fjölskyldan viljum gera
allt sem við getum til að þér líði vel.
Margrét.
Í dag kveðjum við með virðingu og
þökk Agnar Gústafsson, kæran
frænda og vin. Þegar aldurinn færist
yfir og maður hefur fengið að lifa
fullu og gjöfulu lífi verður maður
sáttari við að horfast óhræddur í
augu við hið óumflýjanlega þegar
ástvinir kveðja.
Við rúmið mitt hangir gömul út-
saumuð mynd af krossi með hvítum
engli sem umvefur akkeri. Fyrir
neðan er skrautsaumað á þýsku:
„Verði þinn vilji“. Þá setningu í fað-
irvorinu legg ég alltaf sérstaka
áherslu á í hverfulleika lífsins og
einnig nú þegar við systurnar erum
að reyna að sætta okkur við að Agn-
ar sé farinn frá okkur þótt við hefð-
um viljað njóta samvista við hann
enn um skeið.
Hugurinn leitar aftur í tímann,
jafnvel áður en Inga Dóra varð lífs-
förunautur hans í blíðu og stríðu. Þá
var hann enn í háskólanum og bjó í
föðurhúsum hjá Gústafi föðurbróður
okkar í Samtúni. Heimili föður-
bræðra okkar Gústa og Braga og
eiginkvenna þeirra stóðu okkur
systrum alltaf opin. Þau vildu allt
gera fyrir stelpurnar hans Einars.
Við fráfall föður okkar tók vinátta
Agnars og Ingu Dóru við. Hann var
akkerið, vinurinn, ráðgjafinn og gott
var til hans og Ingu Dóru að leita.
Setjast í leðursófann á skrifstofunni
þar sem Inga, stoð og stytta Agnars,
var ritari og bauð upp á kaffisopa á
meðan við Agnar kímdum yfir hve
eyðslusöm við hefðum verið í geisla-
diskainnkaupum en við deildum
áhuga á klassískri tónlist. Hann var
mikill unnandi tónlistar og safnari.
Sérstaklega heilluðu hann bass-
araddir rússneskra söngvara. En
djassinn átti líka hug hans og oft
heyrðist djasstónlistin á fullu úr her-
bergi hans í Samtúninu í gamla
daga.
Ég get ekki annað en brosað þeg-
ar ég minnist stuttrar viðkomu
minnar sem starfskraftur á lög-
fræðiskrifstofu hans og Sigurðar
Reynis Péturssonar í Austurstræti í
kringum 1960. Ég gegndi m.a. síma-
vörslu fyrir framan skiptiborð með
ótal rauðum tökkum. Símavarsla
mín fólst mest í því að slíta sambandi
þeirra í miðjum samtölum. Því var
tekið með húmor og án skamm-
aryrða af öðlingunum tveim.
Agnar var hógvær, ekki maður
margra orða en undir niðri skynj-
uðum við einlæga væntumþykju og
vináttu. Við erum það sem við gef-
um. Hann gaf okkur af miklu hjarta.
Við þökkum lífsgjöf hans og fórnfúst
ævistarf, hann var sístarfandi og
atorkumikill enda átti hann ekki
langt að sækja það þar sem pabbi
hans var, „Gústi í Drífanda“ . Við er-
um þess fullvissar að Agnar vaki yfir
fjölskyldu sinni og vísi þeim til vegar
áfram og að þau gangi til góðs eins
og hann gerði.
Fjölskyldan var honum allt og við
biðjum góðan guð að varðveita Ingu
Dóru og afkomendur hans og gefa
þeim styrk í söknuði þeirra. Guð
blessi minningu Agnars Gústafsson-
ar.
Valgerður og Brynja.
Ferðmikill hvíti fákurinn er,
fljótt hann þig milli ára ber.
Þú hrekkur við er heyra fer
hófatak Bleiks á eftir þér.
(Karl Kristjánsson)
Agnar Gústafsson sat sinn hvíta
fák af snilld langa vegferð, þar til sá
bleiki hljóp hann uppi, en enginn á
undankomu frá því.
Agnar hóf lögfræðistörf fljótt eftir
að hann lauk lagaprófi frá Háskóla
Íslands árið 1952. Hann vann nokk-
urn tíma hjá öðrum lögmönnum, en
hóf fljótlega rekstur eigin stofu í fé-
lagi við fleiri. Viðfangsefnin urðu
margþætt, svo sem málflutningur á
báðum dómstigum, ráðgjöf, skjala-
gerð, skattframtöl og fasteignasala.
Agnar varð einkar vinsæll og vel lið-
inn af þeim sem til hans leituðu,
enda maðurinn hófsamur og háttvís í
öllum samskiptum. Hann kynnti
ekki verk sín á torgum eða í flóð-
ljósum fjölmiðla, þurfti þess reyndar
aldrei. Fjöldamargir skjólstæðingar
Agnars áttu hann að trúnaðarvini í
áratugi og leituðu til hans með
áhyggjur sínar og erfiðleika. Mörg-
um hefur einnig verið það auðveld-
ara, því að hann fann sig illa í að
beita gjaldskrá lögmanna að þeim
efri mörkum sem hún heimilar, og
marga krafði hann aldrei um
greiðslu. Nær allan starfsferil Agn-
ars starfaði hans mæta eiginkona,
Inga Dóra Hertervig, með honum að
margvíslegum viðfangsefnum, og
síðasta aldarfjórðunginn störfuðu
þau tvö saman og sinntu án annarra
starfskrafta öllum verkefnum sem
lögfræðistofunni bárust. Agnar og
Inga eignuðust tvo syni, sem báðir
urðu óvenju stæltir og öflugir menn
og stunduðu líkamsrækt. Gústaf
Agnarsson varð fremstur afreks-
manna í lyftingum og átti um tíma
auk þess Íslandsmet í langstökki
innanhúss. Gústaf andaðist í nóvem-
ber sl. eftir langvarandi veikindi.
Hann naut mikillar umhyggju for-
eldra sinna í veikindum sínum.
Snorri, yngri sonurinn, sneri sér að
háskólanámi og er nú prófessor við
Háskóla Íslands.
Agnar átti sér hugðarefni utan
hins daglega amsturs, m.a. stunduðu
hann og kona hans, Inga Dóra,
hestamennsku í fjöldamörg ár. Þau
byggðu með undirrituðum og fleiri
félögum hesthús á félagssvæði
Hestamannafélagsins Fáks. Þaðan
voru stundaðar útreiðar flestar helg-
ar vetrarlangt, sem veittu ótalmarg-
ar kærar samverustundir og oft æv-
intýri þegar glímt var við baldna
fola. Fjöldamörg sumur hélt svo
vina- og kunningjahópurinn í löng
sumarferðalög og oftast var haldið
inn á hálendi Íslands. Lengsta ferðin
var tvær vikur í óbyggðum. Í slíkum
ferðum reynir á flest í mannlegum
samskiptum. Óvænta erfiðleika þarf
að leysa, því þeirra má ætíð vænta í
löngum ferðum við hin margvísleg-
ustu veðurskilyrði. Í öllum ferðum
reyndist Agnar ætíð hinn trölltrausti
félagi, sem hélt sínu jafnaðargeði
hvað sem á gekk. Stórviðri, þokur
eða beljandi jökulvötn settu ekki hik
að honum ef áfram þurfti að halda. Í
öllum ferðum fylgdi Inga Dóra
bónda sínum og gaf honum ekkert
eftir. Þau áttu afburðatrausta ferða-
hesta, sem vinur þeirra Þorlákur
Björnsson í Eyjarhólum hafði valið
þeim úr stóði sínu.
Agnar var mikill tónlistarunnandi,
enda ekki langt að sækja það fyrir
hann, bróðurson Einars Kristjáns-
sonar óperusöngvara. Á næðisstund-
um á fögru heimili hans lék Agnar
löngum stundum margvíslega tón-
list, en var jafnframt oft með verk-
efni fyrir framan sig, því vinnusamur
var hann fram á síðustu daga sem
heilsan leyfði.
Ég og fjölskylda mín á honum
þakkir að gjalda fyrir holl ráð og að-
stoð ásamt vináttu og ljúfum sam-
skiptum um langa tíð, og er hans sárt
saknað.
Hvíli Agnar í friði.
Sveinbjörn Dagfinnsson
og fjölskylda.
Í dag er til moldar borinn Agnar
Gústafsson hæstaréttarlögmaður.
Þrátt fyrir að andlát Agnars hefði
ekki átt að koma á óvart, þar sem
hann hafði átt við vanheilsu að stríða
um sinn, bregður manni óneitanlega
við þegar vinir hverfa á braut. Ósjálf-
rátt er þá dokað við og horft til baka.
Ég var sem ungur maður á byrjunar-
reit við að stofna fyrirtæki. Þá var ég
svo lánsamur að velja Agnar sem
minn lögfræðing. Allar götur síðan í
áratugi hefur hann sinnt því starfi
með miklum ágætum. Eins hefur
mín fjölskylda notið handleiðslu
Agnars í þeim málum sem til þurfti á
hverjum tíma.
Agnar var þekktur fyrir að vera
afar vandvirkur og nákvæmur í sín-
um störfum, heilsteyptur og ráða-
góður. Í mínum störfum gegnum æv-
ina var ekki ónýtt að hafa slíkan
mann sér við hlið. Fyrir það er ég
þakklátur. Margir af mínum kolleg-
um geta eflaust tekið undir þetta,
sem nutu leiðsagnar Agnars. Versl-
un og viðskipti voru hugleikin hon-
um, enda átti hann ekki langt að
sækja það því faðir Agnars var vin-
sæll kaupmaður hér í borg, Gústaf
Kristjánsson, í daglegu tali þekktur
sem Gústi í Drífanda.
Ég vil ljúka þessum fáu línum með
því að þakka Agnari samferðina fyrir
hönd minnar fjölskyldu. Það er
mannbætandi að hafa átt slíkan
mann að félaga. Ég sendi Ingu Dóru,
Agnar Gústafsson
Einn vísifingur hreyfist,
skrifar hægt,
en heldur sínu striki.
Engri nægt
af trú né speki tekst
að fipa hann
né tár þín geta einn
stafkrók burtu fægt.
(Rubaiyat eftir Omar Khayyam í
þýðingu Magnúsar Ásgeirssonar.)
Hvíl í friði elsku afi minn.
Agnar Óli.
Við þökkum Agnari vin-
áttu, tryggð og ómetanlega
aðstoð í gegnum tíðina – við
Dieter heitinn Roth og okkur
öll.
Við söknum hans sem fjöl-
skylduvinar.
Ingu Dóru og niðjum
þeirra sendum við hugheilar
samúðarkveðjur.
Vera Roth,
Björn Roth,
Karl Roth,
Guðríður Adda Ragn-
arsdóttir,
Sigríður Björnsdóttir.
HINSTA KVEÐJA