Morgunblaðið - 10.10.2008, Side 34
34 FÖSTUDAGUR 10. OKTÓBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ
AFMÆLI
Atvinnuauglýsingar
Atvinna óskast
ⓦ
Áhugasamir hafi
samban við Ólöfu í
síma: 899 5630.
Óska eftir
blaðberum
í Njarðvík
Blaðbera
vantar
Húsasmíðanám með vinnu
Við Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi er boðið
upp á verklega kennslu í húsasmíði um helgar og fjar
kennslu í bóklegum greinum. Nýir hópar byrja í janúar.
Umsóknarfrestur er til 15. nóvember.
Nánari upplýsingar veita skólastjórnendur í síma 4332500.
Miðað er við að nemendur sem nýta sér helgarkennslu í húsasmíði
hafi náð a.m.k. 20 ára aldri og hafi starfað við byggingariðnað.
Sérgreinum á námsbraut í húsasmíði er raðað á 2 ár svo þeir sem
hefja nám í janúar 2009 geta lokið þeim í desember 2010.
Minnt er á að úr miðbæ Reykjavíkur er um 45 mín. akstur á Akranes.
Strætisvagn nr. 27 er um 35 mín. á leiðinni frá Mosfellsbæ.
Vélstjóri
Vélstjóri óskast til afleysinga. Umsækjandi þarf
að hafa VF-IIréttindi.
Upplýsingar gefur Jón Ingi í síma 825 4417.
Einnig er hægt að senda umsóknir á netfangið:
joningi@fisk.is.
Atvinna óskast
25 ára líffræðingur (karlmaður) óskar eftir
vinnu strax. Er jafnvígur á íslensku og ensku.
Margt kemur til greina. Upplýsingar í síma
692 5696.
Raðauglýsingar 569 1100
Nauðungarsala
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir:
Frostafold 157, 204-1709, Reykjavík, þingl. eig. Þrotabú Þórsafl hf.,
gerðarbeiðandi Kaupþing banki hf., þriðjudaginn 14. október 2008
kl. 11:00.
Funafold 54, 204-2409, Reykjavík, þingl. eig. Sigurjón H. Valdimars-
son, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður ogTollstjóraembættið, þriðju-
daginn 14. október 2008 kl. 11:30.
Laugavegur 7, 225-0053, 101 Reykjavík, þingl. eig. Innheimtan ehf.,
gerðarbeiðandiTollstjóraembættið, þriðjudaginn 14. október 2008
kl. 14:30.
Reyrengi 4, 221-3740, Reykjavík, þingl. eig. Guðrún Hafdís Bene-
diktsdóttir og Halldór Jónsson, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður,
Reykjavíkurborg ogTryggingamiðstöðin hf., þriðjudaginn 14. október
2008 kl. 10:30.
Rósarimi 2, 221-9845, 112 Reykjavík, þingl. eig. Helgi Már Veigarsson,
gerðarbeiðendur Húsasmiðjan hf. og Vátryggingafélag Íslands hf.,
þriðjudaginn 14. október 2008 kl. 10:00.
Vatnsstígur 3b, 225-9268, Reykjavík, þingl. eig. Björn Einarsson,
gerðarbeiðandi Frjálsi fjárfestingarbankinn hf., þriðjudaginn
14. október 2008 kl. 14:00.
Sýslumaðurinn í Reykjavík,
9. október 2008.
Félagslíf
Í kvöld kl. 20.30 halda Þórður
Ingi Guðjónsson og Jón Ma.
Ásgeirsson fyrirlestur sem þeir
nefna ,,ArfTómasar postula" í
húsi félagsins Ingólfsstræti
22, en þeir eru höfundar bók-
arinnar ,,Frá Sýrlandi til Íslands -
ArfurTómasar postula".
p
Á laugardag 11. október kl.
15- 17 er opið hús. Kl. 15.30
heldur Kristín Erla Einarsdóttir
erindi sem hún nefnir: ,,Heimur-
inn er spegill sálar þinnar."
Á fimmtudögum kl. 16.30 -
18.30 er bókaþjónustan opin
með miklu úrvali andlegra
bókmennta.
Starfsemi félagsins er öllum
opin.
www.gudspekifelagid.is
I.O.O.F. 12 189101081/2 Sk.
I.O.O.F. 1 18910108 8½.O.*
Framhaldsaðalfundur
Framhaldsaðalfundur Astma- og
ofnæmisfélagsins verður haldinn þriðjudaginn
14. október kl. 18.00, að Síðumúla 6.
Dagskrá:
Kosning í stjórn styrktarsjóðs félagsins.
Astma- og ofnæmisfélagið
Fundir/Mannfagnaðir
Tækifæri á
fasteignamarkaði
RE/MAX Lind og RE/MAX Þing taka nú við
umsóknum um störf við sölu og þjónustu á
fasteignamarkaði. Reynsla af fasteigna-
markaði og/eða fjármálamarkaði æskileg.
Yfirgripsmikil starfsþjálfun og námskeið að
hefjast. Sendið nákvæma starfsferilsskrá á
box@mbl.is merkt,,Fas - 21945.”
Einn fróðasti og
skemmtilegasti maður
sem ég hef þekkt og
umgengist, Jón Ás-
geirsson tónskáld, á
stórafmæli á morgun.
Jón Gunnar Ás-
geirsson er fæddur á
Ísafirði 11. okt. 1928.
Hann brautskráðist úr
Tónlistarskólanum í
Reykjavík árið 1955,
en þar voru aðalkenn-
arar hans Árni Krist-
jánsson og dr.Victor
Urbancic. Jón stundaði
framhaldsnám við Konunglega skoska
tónlistarskólann í Glasgow og síðar
Guildhall tónlistarskólann í London.
Jón hefur helgað líf sitt og starf tón-
list; 1956 var hann ráðinn fyrsti skóla-
stjóri nýstofnaðs tónlistarskóla á Nes-
kaupstað. Frá árinu 1961 kenndi hann
við Kennaraskóla Íslands og varð þar
lektor og síðan dósent þegar skólinn
varð að háskóla og loks fyrsti prófess-
or í listgrein á Íslandi árið 1996. Sl.
vor veitti Kennaraháskóli Íslands Jóni
doktorsnafnbót í heiðursskyni, fyrir
mikilvægt framlag hans til kennara-
menntunar á sviði tónlistar og tónlist-
aruppeldis í skólum landsins. Þá hefur
honum hlotnast ýmis annar heiður;
var útnefndur borgarlistamaður
Reykjavíkur 1996, og sæmdur ridd-
arakrossi hinnar íslensku fálkaorðu
fyrir störf í þágu lista og menningar
árið 2001.
Jón hefur í áranna rás starfað sem
stjórnandi lúðrasveita, kórstjóri og
tónlistarkennari, skrifað tónlistar-
gagnrýni í tugi ára, en þekktastur er
hann án efa sem tónskáld. Hann hefur
samið sönglög sem hvert mannsbarn
á Íslandi þekkir, útsett af virðingu og
ótrúlegu innsæi ógrynni íslenskra
þjóðlaga og dansa, samið ýmsa ein-
leikskonserta, hljómsveitar- og
kammerverk, þrjár óperur í fullri
lengd; Þrymskviðu sem frumflutt var
í Þjóðleikhúsinu á Listahátíð 1974,
Galdra-Loft, frumfluttan í Íslensku
Jón Ásgeirsson
óperunni 1996 og Mött-
ulssögu sem vonandi
verður frumflutt á af-
mælisári tónskáldsins!
Leiðir okkar Jóns
hafa legið saman allt frá
því ég var barn, fannst
mér hann vera tröll og
finnst enn. Við höfum átt
gjöfult og gott samstarf
bæði í Söngskólanum,
þar sem Jón starfaði
sem tónlistarkennari
nær frá stofnun skólans
1973, þar til hann lét af
störfum fyrir aldurs sak-
ir. Hann var einn af stofnendum
Styrktarfélags Söngskólans, forkólfur
að húsakaupum og sat lengi í stjórn
skólans.
Ég hef átt því láni að fagna að fá
tækifæri til að syngja, stjórna og setja
upp sönglög, kórlög og óperur Jóns,
ég hef notið samstarfsins við þennan
gjöfula, gáfaða, trausta, aðsópsmikla,
hávaðasama og stór-skemmtilega
heiðursmann og aldrei hefur borið
skugga á okkar samstarf.
Samstarfsfólk Jóns við Söngskól-
ann í Reykjavík býður til morgun-
veislu á afmælisdegi hans. Boðið verð-
ur upp á andlega og veraldlega nær-
ingu og koma þar ýmsir við sögu;
Óperukórinn í Reykjavík, Graduale-
kór Langholtskirkju, Karlakórinn
Fóstbræður, Kvennakór við Háskóla
Íslands og nemendur og kennarar
Söngskólans.
Söngskólinn í Reykjavík óskar Jóni,
konu hans Elísabetu, börnum þeirra
Þorgeiri, Arnþóri, Guðrúnu Jóhönnu
og barnabörnunum til hamingju með
afmælið og býður öllum vinum og
vandamönnum Jóns til veislunnar í
tónleikasal Söngskólans – Snorrabúð,
Snorrabraut 54 og er áætlað að hún
standi frá kl. 09.00 – 11.00 afmæl-
ismorguninn 11. okt. Þar mun Söng-
skólinn einnig kynna ýmsa tónlistar-
viðburði sem efnt verður til í tilefni
afmælisárs Jóns Ásgeirssonar í vetur.
Garðar Cortes.
MINNINGAR
✝ Óskar PálmarÓskarsson
fæddist í Reykjavík
14. febrúar 1944.
Hann lést á
Landspítalanum í
Fossvogi 3. októ-
ber síðastliðinn.
Foreldrar hans
voru Óskar V.
Eggertsson, f. 26.6.
1908, d. 17.9. 1992,
og Sigurlaug Sig-
urbjörnsdóttir, f.
14.4. 1908, d.
22.12. 2003.
Systkini Óskars voru María
Sigríður, Ágúst Hreinn, Elsa,
Guðborg, Davíð og Eggert. Eft-
irlifandi eru Davíð og Eggert.
Óskar kvæntist Lilju Guð-
björnsdóttur 29.5. 1965 og eiga
þau þrjú börn. a) Guðbjörn, f.
23.1. 1966, búsettur í Phoenix,
Arizona, sambýliskona hans er
Stephanie Johnsson og eiga þau
soninn Dakoda Baldur, f. 2000,
fyrir á Guðbjörn soninn Skyler
Ægi, f. 1996. b) Lilja Rós, f.
26.4. 1968, gift
Þorsteini Sigmars-
syni og eiga þau
synina Sindra, f.
1993, Vigni, f.
1997, og Daníel, f.
1999. c) Hilmar, f.
5.3. 1974. Sam-
býliskona hans er
Margrét Hrönn
Ægisdóttir. Stjúp-
synir Hilmars eru
Daníel Rúnar Arn-
bjargarson, f.
2001, og Einar
Bjarki Arnbjarg-
arson, f. 2004.
Óskar ólst upp í Reykjavík
og á Akranesi. Hann gekk í
grunnskóla í Reykjavík. Fyrri
hluta starfsævi sinnar vann
Óskar við verslunarstörf og út-
keyrslu hjá Ellingsen en stofn-
aði síðan bifreiðaverkstæðið
Skúffuna á Smiðjuvegi. Hann
hætti störfum vegna veikinda
árið 2005.
Útför Óskars fer fram frá
Kópavogskirju í dag kl. 13.
Fallinn er frá kær félagi og góður
vinur eftir harðvítuga baráttu við ill-
vígan sjúkdóm. Óskar gekk til liðs
við Lionsklúbbinn Munin í nóvem-
ber 1977 og hefur alla tíð verið einn
af okkar traustu félögum sem gott
var að leita til. Hann gegndi þar
ýmsum nefndarstörfum og sat í
stjórn klúbbsins. Þegar unnið var
við hin ýmsu verkefni tók hann þátt
í þeim af lífi og sál.
Minningar frá lionsstarfinu eru
margar. Þegar börnin okkar voru að
vaxa úr grasi fórum við oft með þau
í dagsskemmtiferðir á vorin. Þar var
Óskar hrókur alls fagnaðar, grillið
gjarnan við höndina og pulsunum og
öðru góðgæti raðað í liðið. Guð-
mundur heitinn málari stjórnaði
okkur í málningarvinnunni í Lundi.
Hann ákvað að súlurnar í salnum
væru verkefni sem Óskar gæti
leyst. Og auðvitað gerði hann það og
þær bera vandvirkni hans glöggt
vitni.
Það var gott að heimsækja Óskar
ef við lögðum leið okkar í Skúffuna.
Ófáa kaffibolla þáðum við þar með
góðu meðlæti af umræðum um
menn og málefni. Við fráfall Óskars
er okkur félögunum í Lionsklúbbn-
um Munin efst í huga þakklæti fyrir
ánægjulega samvinnu og trausta
vináttu. Hans verður sárt saknað í
okkar hópi. En minning um góðan
dreng, félaga og vin mun ávallt lifa
með okkur. Lilju og fjölskyldu hans
vottum við okkar dýpstu samúð og
biðjum Guð að styrkja þau og blessa
í sorginni.
F.h. Lionsklúbbsins Munins,
Einar Long Siguroddsson,
formaður.
Skoðaðu hug þinn vel, þegar þú ert glaður,
og þú munt sjá, að aðeins það, sem valdið
hefur hryggð þinni, gerir þig glaðan.
Þegar þú ert sorgmæddur, skoðaðu þá aftur
hug þinn, og þú munt sjá, að þú grætur
vegna þess, sem var gleði þín.
(Úr Spámanninum.)
Í dag þegar við kveðjum góðan
vin og félaga leitar hugurinn í minn-
ingarsjóð liðinna ára. Það sem er
efst í sjóðnum eru gleðistundirnar.
Við sem þetta skrifum höfum öll
þekkt Óskar og Lilju til fjölda ára.
Það var svo að árið 2003 stofnuðum
við nokkur hjón jeppaklúbbinn
Gaman saman. Markmið okkar var
að ferðast og hafa gaman af, farnar
eru tvær ferðar á ári með mismun-
andi áherslum. Það sem hefur ein-
kennt þessar ferðir er gleðin.
Því miður greindist Óskar með ill-
vígan sjúkdóm sem varð til þess að
hann gat ekki ferðast með okkur
lengur, en hans síðasta ferð var árið
2006, hann þá komin í hjólastól en
lét það ekki aftra sér frá að koma
með enda hugurinn sterkari en lík-
aminn var hann hrókur alls fagn-
aðar og skemmti sér konunglega
með í þessari ferð.
Í veikindum sínum hafði hann
góðan stuðning eiginkonu sinnar
Lilju sem í gegnum veikindin hans
sýndi það æðruleysi og styrk sem
hún hefur til að bera.
Kæri vinur, þar sem þín ferð er
komin á endastöð þá kveðjum við í
Jeppaklúbbnum þig með söknuði og
þökkum þér samfylgdina og biðjum
almættið að geyma þig.
Eiginkonu þinni, henni Lilju,
börnum, tengdabörnum og barna-
börnum vottum við okkar dýpstu
samúð og biðjum almættið um styrk
þeim til handa.
F.h. Jeppaklúbbsins
Gaman saman,
Daníel G. Björnsson.
Óskar Pálmar
Óskarsson