Morgunblaðið - 10.10.2008, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. OKTÓBER 2008 37
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
ÞETTA
SPARAÐI
MÉR TÍMA
FÓLK SAGÐI AÐ
ÞETTA VÆRI
EKKI HÆGT...
ÞAÐ HAFÐI RÉTT
FYRIR SÉR
MÁ ÉG SJÁ
MYNDINA AF
STELPUNNI
FYRIR UTAN
HVÍTA HÚSIÐ
AFTUR?
ÞAÐ ER RÉTT... HÚN
ER EKKI MEÐ TEPPI
EN KANNSKI ER
ÁSTÆÐA FYRIR ÞVÍ...
KANNSKI HAFA FORELDRAR
HENNAR EKKI EFNI Á TEPPI
EKKERT SJÓN-
VARP FYRR EN ÞÚ
LÆRIR HEIMA
ÉG ER AÐ
LÆRA
NEI, ÞÚ
SITUR HÉRNA
Í SÓFANUM
HOBBES ER
AÐ LESA
BÓKINA
FYRIR MIG
ÞEGAR HANN ER BÚINN
ÞÁ SEGIR HANN MÉR UM
HVAÐ BÓKIN ER OG ÉG
SEGI HONUM UM HVAÐ
SJÓNVARPSÞÁTTURINN
ER. ÞANNIG GETUM VIÐ
AFKASTAÐ TVÖFALT MEIRU
MAMMA
SAGÐI AÐ ÉG
ÆTTI AÐ
LESA OG ÞÚ
ÆTTIR AÐ
HORFA Á
SJÓNVARPIÐ
ER DÝRALÍFS-
MYND Í
SJÓNVARPINU
Í KVÖLD?
Á FÆTUR
MEÐ ÞIG!
EINS
OG SKOT!
ÚFF...
ÉG ÞARF Í ÞAÐ
MINNSTA EKKI AÐ KAUPA
VEKJARAKLUKKU
GUÐ
HJÁLPI ÞÉR
VONANDI EYÐILÖGÐUM VIÐ
EKKI FYRIR YKKUR KVÖLDIÐ
NEI, ÞAÐ VAR
FRÁBÆRT AÐ
HITTA ÞIG
ÉG HEF VERIÐ
AÐ HUGSA UM
AÐ EIGNAST ANNAÐ
BARN EN EFTIR
AÐ ÉG HITTI ÞIG ÞÁ
HELD ÉG AÐ TVÖ
SÉU ALVEG NÓG
AUK ÞESS VILL
MAÐURINN MINN
EKKI EIGNAST FLEIRI.
EKKI SATT, LALLI?
LALLI? MIKIÐ ER HANNSÆTUR. MÁ ÉG
HALDA Á HONUM?
KORDOK, SEGÐU
MÉR HVAR DARA
DORSET ER!
ÁTTU VIÐ
KONUNA ÞÍNA?
HÚN
ER
ÞARNA?
ÉG SAGÐI HONUM
AÐ ÉG VÆRI EKKI
KONAN ÞÍN...
EN
HANN
TRÚÐI MÉR
EKKI
Velvakandi
STÖÐUGUR straumur af leikskólabörnum í Kópavogi liggur nú í Gerð-
arsafn þar sem þau skoða skínandi Inkagull, ævaforna leirmuni, þá elstu
frá því 4000 f. Kr., nútímamálverk, vefnað og fleira. Þar hafa þau einnig
hitt fyrir vefara frá Ekvador að störfum – en sýningin er hluti af suður-
amerískri menningarhátíð sem nú stendur yfir í Kópavogi.
Ljósmynd/ Bent Marinósson
Í Gerðarsafni
Frábært framtak
MIG langar að þakka
Gísla Einarssyni og
hans sauðum fyrir
þetta frábæra framtak
sem sauðamessan er.
Við fjölskyldan úr borg
Davíðs brugðum undir
okkur betri fætinum til
að fá smápásu frá vol-
æðinu og skelltum okk-
ur á sauðamessu í
Borgarnesi sl. laug-
ardag. Það var hin
mesta og besta
skemmtun og mynd-
arlega að öllu staðið,
skemmtiatriði, fjár-
rekstur í gegnum bæinn, sölutjöld,
söngur, svo ég tali nú ekki um kjöt-
súpuna sem var ausið í mannskapinn
í stórum stíl. Það var sko engin
kreppusúpa, full af kjöti og yljaði
vel. Svo ég segi bara „bestu þakkir“
fyrir, allir sem að komu.
Valgerður Tómasdóttir.
Íslandshreppur í Brusselsýslu
eða sjálfstætt Ísland?
MÉR brá í brún þegar ég las for-
ustugrein Morgunblaðsins mánu-
daginn 6. október sl., þann mikla ör-
lagadag í sögu lýðveldisins. Þótt
Morgunblaðið hafi aldrei verið raun-
verulegt flokksblað líkt og gömlu
flokksblöðin Alþýðublaðið, Tíminn
og Þjóðviljinn, þá hefur það í mínum
huga alltaf legið ljóst fyrir að það
fylgdi Sjálfstæðisflokknum að mál-
um. Það hefur einnig verið nokkuð
ljóst að andstaða við inngöngu Ís-
lands í Evrópusambandið hefur ver-
ið mest í Sjálfstæðisflokknum. Er
síðasta vígið þá fallið? Ég neita að
trúa því fyrr en í fulla hnefana. En
þegar sjálft Morgunblaðið tekur upp
heróp Evrópusinna,
hægri-kratanna í Sam-
fylkingunni og annarra
úrtölumanna sem ekki
nenna lengur að vera
hluti af sjálfstæðri
þjóð, um að aðild að
Evrópusambandinu
muni öllu bjarga í efna-
hagsmálum landsins,
en annars fari allt til
fjandans, þá er mér
verulega brugðið. Það
er sorglegt að sjá í
þessum grátkór leið-
toga ASÍ og spor-
göngumenn gamla
SÍS-veldisins sem átti
þó, þrátt fyrir allt, að
vera sverð og skjöldur bændamenn-
ingarinnar, sóma Íslands í þúsund
ár. Já mér varð hugsað til þjóð-
skáldsins: Hvar er þín fornald-
arfrægð, frelsið og manndáðin best?
Farin til Brusselíu? Væri ég ekki
orðinn aldraður og fótfúinn myndi
ég hugsa alvarlega um að flytja til
Vesturheims. En kannske læt ég
bara nægja að segja upp áskriftinni
að Morgunblaðinu.
Hermann.
Áskorun
ÉG skora á ráðamenn að loka vín-
búðum á meðan svona illa stendur á í
efnahagsmálum landsins. Það er
ekki á kreppuna bætandi að fólk sé
að drekka mikið áfengi og sér-
staklega þegar svo margir eiga um
sárt að binda, þá grípa sumir til þess
ráðs að hugga sig með áfengi. Ríkið
ætti að loka vínbúðunum.
Eldri borgari.
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og
13–15 | velvakandi@mbl.is
Félagsstarfeldriborgara
Aflagrandi 40 | Leikfimi kl. 8.30, dag-
blaðalestur kl. 9, vinnustofa kl. 9-16,
bingó kl. 13.30, ath. breyttan tíma.
Bólstaðarhlíð 43 | Hárgreiðsla, böðun,
leikfimi, handavinna, kertaskreyting,
dagblöð, fótaaðgerð, myndlist.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Bók-
menntahópur kl. 13 undir stjórn Ólafs
Sigurgeirss.
Félagsheimilið Gjábakki | Bossía kl.
9.20, málm- og silfursmíði kl. 9.30, jóga
kl. 10.50 og félagsvist kl. 20.30.
Félagsheimilið Gullsmára 13 | Vefn-
aður kl. 9, jóga kl. 9.15, ganga kl. 10, leik-
fimi kl. 10.30. Gleðigjafarnir syngja kl.
14. Kaffiveitingar að söng loknum.
Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ |
Vatnsleikfimi kl. 9.30, gler og leir kl. 10,
bútasaumur og ull kl. 13, félagsvist kl.
13.30, bíll frá Hleinum kl. 13 og Garða-
bergi kl. 13.15.
Félagsstarf Gerðubergs | Vinnustofur
opnar kl. 9-16.30, m.a. bókband, leið-
beinandi Þröstur Jónsson, prjónakaffi/
bragakaffi kl. 10 og létt ganga um ná-
grennið kl. 10.30. Frá hádegi er spilasal-
ur opinn, leikfimi kl. 13 í ÍR heimilinu v/
Skógarsel, umsj. Júlíus Arnarsson
íþróttakennari. Kóræfing kl. 14.30.
Hraunbær 105 | Almenn handavinna hjá
Erlu kl. 9, baðþjónusta, bókabíllinn kl.
14.45. Fótaaðgerðastofa sími 861-4959
og hárgreiðslustofa sími 894-6856.
Hraunsel | Opið frá kl. 9, leikfimi kl.
11.30, brids kl. 13, boccia kl. 13.30.
Hvassaleiti 56-58 | Lífsorkuleikfimi kl.
9 og 10 hjá Björgu F., opin vinnustofa kl.
9, postulínsmálning, bingó kl. 13.30,
spilaðar sex umferðir, kaffiveitingar í
hléi. Böðun fyrir hádegi og hársnyrting.
Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Blaða-
klúbbur kl. 10, hópleikfimi kl. 11, opið hús
kl. 13, vist/brids o.fl. Hárgreiðslustofa,
sími 862-7097, og fótaaðgerðastofa,
sími 552-7522.
Norðurbrún 1 | Myndlistarnámskeið hjá
Hafdísi kl. 9-12, leikfimi hjá Janick kl. 13.
Opið smíðaverkstæði – útskurður. Um-
ræðuhópur hjá Margréti djákna frá Ás-
kirkju kl. 13.45.
Vesturgata 7 | Fótaaðgerðir, hárgreiðsla
og handavinna kl. 9, spænska (fram-
hald) kl. 9.15, spænska (byrjendur) kl.
10.45, sungið við flygilinn kl. 13.30, kaffi-
veitingar, dansað í aðalsal kl. 14.30.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Fyrir hádegi
er smiðja, leirmótun, postulínsmálun,
morgunstund, leikfimi, upplestur. Bingó
kl. 13.30. Uppl. í síma 411-9450. Haust-
fagnaður verður fimmtud. 16. október og
er hann opinn fólki á öllum aldri. Matur,
skemmtikraftar og dans við undirleik
Vitatorgsbandsins. Húsið opnað kl. 17.
Uppl. í síma 411-9450.
Þórðarsveigur 3 | Bingó á föstudag kl.
14.15 í salnum.