Morgunblaðið - 10.10.2008, Blaðsíða 38
38 FÖSTUDAGUR 10. OKTÓBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
Morgunblaðið/Frikki
Samstarfsmenn Finnbogi Pétursson, Ingólfur Arnarson, Björn Quiring og Darri Lorenzen unnu saman að sýning-
unni OPEN. „Síðan gengur fólk inn í rými sem er nánast tómt, eins og framtíðin,“ segir verkstjórinn Darri.
Eftir Einar Fal Ingólfsson
efi@mbl.is
ÞESSI sýning er að vissu leyti um
söfn, starfsemina innan slíkra stofn-
ana og það sem rammar hana inn,“
segir Darri Lorenzen myndlist-
armaður. Hann má titla sem verk-
stjóra og hvatamann að sýningunni
OPEN sem opnuð verður í Ný-
listasafninu á morgun, laugardag,
klukkan 14. Aðrir listamenn sem
standa að sýningunni eru Ingólfur
Arnarson, Finnbogi Pétursson,
BJNilsen og dr. Björn Quiring.
OPEN er hluti af dagskrá Sequences
hátíðarinnar.
Síðustu daga hefur verið unnið að
smíðum innan safnsins. Gestir á sýn-
inguna munu ganga eftir hækkuðum
gangvegi, með yfirsýn yfir starfsemi
Nýló og safneignina, sem verið er að
skrá og skoða þetta árið.
„Þetta er nánast eins og þegar dýr
eru skoðuð í dýragarði,“ segir Darri.
„Síðan gengur fólk inn í rými sem er
nánast tómt, eins og framtíðin. Þar
er komið að glugga sem leiðir út á
götuna, út úr safninu, og rammar inn
það sem er fyrir utan.“
Í þessu endarými verða stök verk
eftir sýnendur, þá Darra, Finnboga
og Ingólf, en þau eru sparlega notuð.
Þarna er performansrými.
Eftirlíking raunverulega lífsins
„Að hluta til er þetta sameiginleg
vinna, en Darri var frumkvöðullinn
og hefur haldið utan um verkið,“ seg-
ir Ingólfur Arnarson. „Umgjörðin
sem við sköpum á samræðu við safn-
eignina. Þetta er ein af sýningunum á
árinu, þar sem unnið er inn í verkin
og starfsemina sem fyrir er í Nýló.
Við breyttum arkitektúrnum aðeins,
erum með inngrip í hann.“
Hugmyndir sýnendanna um söfn
og sýningarstaði birtast í skrifum dr.
Björns Quiring. Hann hefur setið í
safninu síðustu daga og skrifað, en
hann flytur fyrirlestur á sunnudag
um sýninguna.
Quiring fjallar meðal annars um
tvíþætt eðli safns, sem samanstendur
annarsvegar af samansafni hluta og
hinsvegar sýningarrými; opnu rými
sem almenningur hefur aðgang að og
lokuðu, innra rými. „Listin verður á
einhvern hátt að takast á við form-
ræna spennu milli sýningarýmis og
safns; í langan tíma hafa listaverk því
annaðhvort verið eftirlíkingar raun-
verulega lífsins utan safnanna eða út-
koma sköpunar út frá innra lífi lista-
mannsins sem sett er inn í
sýningarrými,“ skrifar Quiring.
„Þetta er samkrull,“ segir Darri.
„Fólki er boðið inn með okkur, eins
og sést á neonskiltinu sem hefur ver-
ið sett fyrir framan Nýlistasafnið.“
Sýningin OPEN opnuð í Nýlistasafninu á morgun Er hluti af Sequences-listahátíðinni
Sýning um söfn og starfsemi safna
ANNAÐ starfsár Lista-
félags Langholtskirkju
hefst um helgina með tón-
leikum þeirra Þóru Ein-
arsdóttur sópransöngkonu
og Dimitri Ashkenazy klar-
ínettuleikara. Meðleikari á
tónleikunum verður píanó-
leikarinn Alexander
Schmalcz.
Tónleikarnir verða haldn-
ir á sunnudaginn, 12. október, í Langholts-
kirkju og hefjast klukkan átta.
Á efnisskrá tónleikanna verða verk eftir De-
bussy, Schumann, Schubert og Camille Saint-
Saëns.
Tónlist
Sópran, klarínett
og píanó
Þóra Einarsdóttir
Í JÚLÍ voru 200 ár liðin frá
fæðingu Konráðs Gísla-
sonar málfræðings og
Fjölnismanns.
Íslenska málfræðifélagið
og Málvísindastofnun Há-
skóla Íslands efna af því til-
efni til málþings á morgun
um ævi og störf Konráðs.
Meðal fyrirlesara eru Guð-
rún Kvaran, sem fjallar um
orðabókarmanninn Konráð og Gunnar Karls-
son sem fjallar um þjóðerniskennd og staf-
setningarstefnu.
Ráðstefnan er haldin í fyrirlestrasal Þjóð-
arbókhlöðunnar og hefst klukkan 11.
Hugvísindi
Málþing í minn-
ingu Konráðs
Gunnar Karlsson
SEQUENCES 2008 listahá-
tíðin verður sett á morgun,
laugardag. Næstu vikuna
verður boðið upp á ýmiss
konar viðburði; tímatengd
listaverk. Gjörninga, hljóð-
verk, myndbandsverk, tónlist
og annars konar viðburði.
Meðal helstu atburða eru:
Laugardagur 11. október
14:00 Sequences sett með
opnun OPEN í Ný-
listasafninu.
15:30 Lortadans undir stjórn
Gunnlaugs Egilssonar í
Kling & Bang.
16:00 Fumiko Imano opnar
sýningu í Belleville við
Laugarveg 55.
17:00 Hljóð- og vídeó-verk í
Lost Horse Gallery. FM
Belfast og Reykjavík
skemmta.
19:00 Andrew Burgess sýnir í
Kronkron, Laugarvegi
63B.
20:00 Magnús Árnason,
Magnús Helgason og Björk
Viggósdóttir í Norræna
húsinu.
21:00 Auxpan & Hanna
Christel Sigurkarlsdóttir
opna sýningu að Hverf-
isgötu 59.
21:30-23:20 Bílferð nr. II í
Nýlistasafninu.
22:00-00:02 Fort, þýskur
gjörningahópur, opnar sýn-
ingu, Point Gray, við bens-
ínstöðina í Ánanaustum.
Sunnudagur 12. október
16:00 Dr. Björn Quering
heldur fyrirlestur í Ný-
listasafni.
17:00 Stilluppsteypa, sýning í
kjallara Listasafns Íslands.
20:00 Rúrí og Jóhann Jó-
hannsson: VOCAL IV.
Gjörningur í Listasafni
Reykjavíkur, Hafnarhús-
inu.
21:30 Elín Hansdóttir og Úlf-
ur Hansson fremja kór-
gjörning sinn Shepardśs
Scale ásamt kór Seltjarn-
arness í Gróttuvita.
21:00-00:02 Fort. Point Gray.
Ánanaust.
Þriðjudagur 14. október
19:00 Trong Nguyen. Marcel
Duchamp versus Bobby
Fischer. Gallerí Dvergur.
21:00 Hildur Guðnadóttir
ásamt Elínu Hansdóttur &
Caput. Héðinshúsið.
Miðvikudagur 15. október
17:00 Íslenski dansflokkurinn
sýnir brot úr Djöflafúgunni
e. Gunnlaug Egilsson.
Kling & Bang.
18:00 Moss Stories í Gallery
Turpentine.
22:00 Tvær íslenskar heim-
ildarmyndir frumsýndar.
Kling & Bang.
Fimmtudagur 16. október
17:00 Orgelkvartettinn An-
anas og gestir. Kling &
Bang.
17:00 Tamy Ben-Tor. Opnun
í 101 Projects, Hverfisgötu
18b.
18:00 Klive í Kling & Bang.
20:00 Tónleikar í Norræna
húsinu með þeim Björk
Viggósdóttur, Caroline
Mallonée, Borgari Magna-
syni og Kristínu Marínellu
Friðjónsdóttur.
22:00 Sara Riel sýnir Himna-
sendingu í porti við Cafe
Oliver.
Föstudagur 17. október
16:00 Kid Twist í Kling &
Bang.
17:00 Skakkamanage í Kling
& Bang.
18:00 Rósa Sigrún Jónsdóttir
sýnir vídeó í gallerí
Dvergi.
19:00-24:00 Kanadíska gjörn-
ingateymið Fastwurms
kemur fram í Iðnó.
19:00 Audio/visual-tónleikar í
Iðnó.
Sequences að hefjast og stendur fram á föstudag Uppákomur víða í miðborginni og í Gróttuvita
Dansarinn Gunnlaugur
Egilsson semur fyrir ÍD.
Gjörningur Rúrí fremur
gjörning í Hafnarhúsinu.
Með Caput Hildur I. Guðna-
dóttir flytur verk Enos.
Tónskáld Úlfur Hansson
semur verk fyrir Gróttuvita.
Hátíð helguð hvers kyns
tímatengdum listaverkum
GUÐRÚN Ingimarsdóttir
sópransöngkona er ein-
söngvari á Vínartónleikum í
Reykholtskirkju á laug-
ardaginn. Aðrir flytjendur
eru Sigrún Eðvaldsdóttir,
Pálína Árnadóttir, Bryndís
Halla Gylfadóttir, Hávarð-
ur Tryggvason, Martial
Nardeau, Sigurður Ingvi
Snorrason, Anna Guðný
Guðmundsdóttir og Pétur
Grétarsson.
Guðrún hefur á liðnum árum starfað við óp-
eruhús í Evrópu og hlotið ýmsar viðurkenn-
ingar. Tónleikarnir hefjast kl. 20 annað kvöld.
Tónlist
Vínartónlist í
Reykholtskirkju
Guðrún
Ingimarsdóttir
KYNJADAGAR Listahá-
skóla Íslands eru haldnir
þessa dagana. Dagskráin er
helguð kynjunum og kynja-
ímyndum.
Í dag verða tvær uppá-
komur í húsnæði tónlistar-
og leiklistardeildar skólans
að Sölvhólsgötu 13. Klukk-
an 12 fjallar Karólína Ei-
ríksdóttir tónskáld um
kventónskáld á barokk-
tímabilinu. Þó kventónskáld séu ekki áberandi
í tónlistarsögunni, voru þó nokkrar sem létu að
sér kveða á því tímabili. Þá munu nemendur
flytja stutt verk, er nefnist „Skafur greflist.“
Fræði
Kventónskáld á
barokktímanum
Karólína
Eiríksdóttir
ÁRIÐ 1979 gaf Dieter’s Rot Verlag
út verk á vínilplötu í 300 eintök-
um er nefnist Bílferð nr.1/
Autofahrt nr.1. Verkið er hljóð-
upptaka af bílferð þeirra feðga
Dieters og Björns Roth, og er ein-
tak af verkinu til í safni Ný-
listasafnsins.
„Á laugardagskvöldið, þegar
sýningin opnar og Sequenses-
hátíðin hefst, verðum við með
sameiginlega hljóð-uppákomu í
Nýló,“ segir Darri Lorezen, verk-
stjórinn að baki sýningunni OPEN.
Sýnendurnir ákváðu að taka
eitt verk úr safneigninni og vinna
út frá því. Fyrir valinu varð eitt
margra verka úr fórum Dieters
Roth sem þar eru varðveitt.
„Við ákváðum að endurgera
þetta verk Roth-feðganna, gera
einskonar remix. Bílferð nr.2. Við
fórum því í vikunni í bílferð upp í
Mosfellssveit og hljóðrituðum
ferðalagið. Það verður notað sem
efni, sem við umbreytum á laug-
ardagskvöldið á lifandi hátt,“
bætir Ingólfur Arnarson við.
Uppákoman Bílferð Nr.2 verður
í Nýlistasafninu, annað kvöld,
laugardag, kl. 21:30 - 23:20.
Á sunnudaginn kl.16 flytur dr.
Björn Quirling fyrirlesturinn „Re-
framing the Open Archive: A Live
Show,“ í Nýlistasafninu,við undir-
leik BJNilsen.
Endurgera
hljóðverk Roth-feðga