Morgunblaðið - 10.10.2008, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. OKTÓBER 2008 47
- kemur þér við
Starfsfólki Kaupþings
boðin áfallahjálp
Flesta Dani skortir
áfengisbremsuna
Gamlir peningaseðlar
á ný í umferð
Eignir lífeyrissjóða
niður um fjórðung
Villi naglbítur ekki
ráðalaus í kreppunni
Fleiri prestar leita
til Herberts
Hvað ætlar þú
að lesa í dag?
MYNDLIST
Verksmiðjan á Hjalteyri
Grasrót – Björk Viggósdóttir, Guðmundur
Vignir Karlsson (Kippi Kanínus), Halldór
Ragnarsson, Jeanette Castioni og Jóna
Hlíf Halldórsdóttir
bbbbm
Opið laugardaga og sunnudaga frá
14:00-17:00. Sýningu lýkur 11. október.
Aðgangur ókeypis.
SÝNINGIN Grasrót hefur fest sig
í sessi hjá Nýlistasafninu síðan
fyrstu sýningunni var hrint af stað
árið 2000 með það að markmiði að
gera skil á því helsta sem yngsta
kynslóð myndlistarmanna er að
sýsla. Hefur þemað svo gengið
gegnum misgóð ár. Við höfum
fengið stofnanalega Grasrót, Gras-
rót fyrir alla grasrót og Grasrót
með einum útvöldum fulltrúa.
Sýningarstjóri Grasrótar 2008 er
Þórarinn Blöndal og er sýningin
unnin í samvinnu Nýlistasafnsins
og Sjónlistar. Í ár er því enn nýtt
snið á Grasrótinni. Sýningin er
nefnilega ekki í Nýlistasafninu.
Hún er í yfirgefinni síldarverk-
smiðju á Hjalteyri.
Um leið og maður gengur inn í
sýningarsalinn blasir við súla Jónu
Hlífar Halldórsdóttur sem á stend-
ur í þrívíðum hástöfum: „HÉR“.
Verkið heitir „Alls staðar annars
staðar“, en í viðbót við súluna eru
ritaðir textar eða ljóð sem fjalla
um staðsetningar og tekst henni
þannig, þrátt fyrir að merkja stað
með súlu, að gera staðinn marg-
ræðan.
Lengra inn eftir salnum hefur
Björk Viggósdóttir ráðist í rýmið
með því að fylla hluta þess með
fjöldaframleiddum regnhlífum. Hún
lýsir þær upp þannig að þær ýmist
endurvarpa eða hleypa ljósi í gegn-
um sig. Þessi einfaldi gjörningur
umbreytir rýminu en minnir mann
um leið á breytta tíma á Íslandi.
Í öðru rými sýnir hún seiðandi
skjáverk sem vísar út fyrir rýmið.
Beinist að glugga og maður situr
eins og á stafni eða bakborði skips,
horfir út og ruggar sér með.
Framlag Guðmundar Vignis
Karlssonar vísar einnig út fyrir
rýmið en byggist jafnframt á sögu
þess eða tengingu við sjóinn. Í
myrku herbergi stendur sjónvarp
sem sýnir blóðrauðar öldur, en á
vegg beinist ljóskastari á titrandi
stálplötu sem endurvarpar mer-
landi geislum á vegginn á móti á
meðan platan drynur líkt og ólg-
andi ölduhaf. Þetta er hádrama-
tískt listaverk þar sem tekist er á
við rýmið með skynsömum og vafn-
ingalausum hætti.
Verkið „Irdó“ er tilraun Halldórs
Ragnarssonar til að búta niður
tungumálið, en listamaðurinn tekur
gælunafn sitt og ruglar því út og
suður. Auk þess sem hann vinnur
málverk með texta og rithönd.
Léttpönkað og skoplegt og nógu
gróft til að höndla hrátt rýmið og
vinna með því.
Að öðrum ólöstuðum er verk
Jeanette Castioni, „The Law of
dialectic“, með eindæmum vel
heppnað. Hún merkir staði víðs-
vegar í verksmiðjunni með núm-
erum þar sem maður getur hlustað
á eina hlið samtals manna á milli.
Hver staður á þannig í samtali við
alla hina.
Fyrir miðri verksmiðjunni hefur
Castioni svo komið fyrir hreyfi-
mynd sem sýnir arkítóníska beina-
grind borgar þar sem staðir eru
merktir með lituðum punktum svo
maður getur ímyndað sér samskon-
ar samtöl þar á milli.
Hvað heildarmynd varðar þá
upplifði ég eins og listaverkin öll
merktu sér staði inn í rýminu en
að sama skapi væru listamennirnir
að merkja sér stað í listinni. Þá er
tungumálið áberandi hjá listamönn-
unum sem abstrakt og ljóðrænt
fyrirbæri og meðvitund fyrir rým-
inu öllu þótt hver og einn væri með
sinn stað.
Sýningarstaðurinn er líka áskor-
un út af fyrir sig, hrátt og stórt
rými sem rekur listamenn til að
hugsa upp á nýtt, eða allavega út
fyrir hvíta kubbinn og inn í hrá-
leika veðurbarinnar verksmiðj-
unnar.
Nota listamennirnir gólfið áber-
andi mikið þannig að athygli
manns dregst frá áreiti rýmisins og
máski er það um leið táknrænt fyr-
ir þessa grasrót að hún lætur
mann ekki sleikja yfirborðið heldur
beinir manni ofan í svörðinn.
Jón B.K. Ransu
Staðir ofan í sverðinum
Áskorun Listamennirnir á Grasrót takast á við krefjandi rými.
JAPANSKI hárgreiðslumeistarinn Shunji Matsuo lagði lín-
urnar fyrir næsta ár í hártískunni á sýningu í Singapúr í vik-
unni.
Eins og svo margir landar hans í tískuheiminum fer Matsuo
ótroðnar slóðir og hannar fyrir fólk sem er ekki hrætt við að
láta á sér bera.
Matsuo er leiðandi í sínu fagi og hefur séð um hárgreiðslu á
fyrirsætum í sýningum Jeans Pauls Gaultiers, Oscars de la
Renta, Donnu Karan og Calvins Kleins, svo einhverjir hönn-
uðir séu nefndir. Það er því ekki ólíklegt að greiðslurnar sem
hér sjást eigi eftir að rata upp á íslenska kolla innan tíðar.
Krullur og
kambar
Litríkar Rómantískum áhrifum sást bregða fyrir á sýningunni
með tilheyrandi krullum, hársátum og fjaðraskrauti.
Reuters
Pönk Litagleðin
og pönkið mætast
hér í tilkomumik-
illi greiðslu.
REUTERS
Páfugl Fjaðrirnar í hárinu og litirnir í
förðuninni spila saman.