Morgunblaðið - 19.10.2008, Side 27
Jólahlaðborðin 2008
Stórglæsilegt sérblað um jólahlaðborð
og aðra spennnandi viðburði
á aðventunni fylgir Morgunblaðinu
laugardaginn 1. nóvember.
Meðal efnis er:
• Jólahlaðborð og aðrar matarveislur.
• Jólahlaðborð á helstu veitingahúsum.
• Hópur sem fer árlega á jólahlaðborð.
• Jólahlaðborð heima, skemmtilegar
uppskriftir.
• Fallega skreytt jólahlaðborð.
• Tónleikar og aðrar uppákomur.
Allar nánari upplýsingar veitir Katrín Theódórsdóttir
í síma 569 1105 eða kata@mbl.is.
Ásamt fullt af öðru spennandi efni
og fróðleiksmolum.
Auglýsendur!
Pantið fyrir klukkan 16,
mánudaginn 27. október.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. OKTÓBER 2008
ekki má gleyma því að börnin eru
komin í erlendan skóla. Víst verður
búslóðin flutt heim fyrir okkur og við
fáum flugmiða, en annað þurfum við
að kljúfa sjálf.“
Ekki hefur bætt úr skák að sumir
starfsmenn erlendis hafa orðið fyrir
áreitni og ágangi fjölmiðla, einkum út
af Icesave, myndir birst af þeim í fjöl-
miðlum og þeir jafnvel verið kallaðir
fyrir dómara. Ástandið er raunar litlu
skárra á Íslandi, þar sem sumir hafa
orðið fyrir áreitni og eru jafnvel komn-
ir með lífverði. Og þótt það sé ekkert
spennandi að flytja heim, þá finnst
sumum það skárra en að vera úti.
„Allar fréttastöðvar fjalla um Ís-
land,“ sagði starfsmaður erlendis.
„Ég bý í fjölbýlishúsi og þar starir
fólk á mig, af því að það veit að ég er
Íslendingur. Ég er farinn að opna rifu
á dyrnar og gæta að mannaferðum
áður en ég hætti mér út. Svo hleyp ég
út í leigubíl. Því miður heyra leigubíl-
stjórar líka fréttirnar. Ég hef aldrei
upplifað það áður að skammast mín
fyrir að vera Íslendingur.“ Annar
segist bara vilja „komast heim undir
sæng“.
Rjúpnavertíðin að byrja
„Ekki var vitað nákvæmlega hvaða
lína yrði dregin og því hafa dagarnir
verið óþægilegir,“ segir fyrrverandi
starfsmaður Glitnis. Og annar við-
mælandi, sem missti starfið, bíður nú
tíðinda af því hvort konan hans haldi
vinnunni hjá öðrum banka.
„Það yrði mjög óþægilegt ef hún
missti starfið líka,“ segir hann, „en
mér skilst að félagsmálaráðherra hafi
sagt í fréttum að reynt yrði að koma
til móts við sambúðarfólk sem ynni í
banka og þess gætt að ekki misstu
báðir vinnuna. Ég bind vonir við að
það sé rétt.“
Ekki eru allt uppsagnir hjá bönk-
unum, því sumir hætta sjálfviljugir
eða hafa ekki enn gefið svar af eða á.
Almennt eru viðmælendur sammála
um að flestir hafi tekið uppsögnum
með stillingu og beri sig vel, en marg-
ir séu stressaðir. Ástandið komi verst
við þá sem hafi spennt bogann til hins
ýtrasta, skuldsett sig meira en aðrir
og jafnvel keypt hlutabréf í bönk-
unum.
„Fólk getur ekki minnkað við sig,
því það er enginn markaður fyrir hús
eða bíla,“ segir einn. „Þú gætir ekki
einu sinni selt reiðhjól, nema kannski
af því að það gengur ekki fyrir bens-
íni. Þess vegna hringja margir í lög-
fræðinga og velta fyrir sér lagalegri
þýðingu þess að verða gjaldþrota. Ég
veit um lögfræðing sem hefur fengið
tugi símtala. Það er mikil reiði og
sorg í fólki, en þegar það hættir að
koma plús inn á tékkareikninginn, þá
versnar ástandið. Nú reynir á kerfið –
hvort hægt verði að koma til móts við
þetta fólk.“
Þá er sárt fyrir marga að horfa á
það uppbyggingarstarf sem unnið
hefur verið á undanförnum árum fara
í vaskinn. En að sama skapi sjá sumir
tækifæri í því að búa til sjálfstæðan
rekstur um það og fullyrt er að slík
sprotafyrirtæki séu í uppsiglingu.
„Ég veit það ekki,“ svarar einn af
þeim starfsmönnum sem misstu
starfið, er hann er spurður hvað taki
við. „Rjúpnavertíðin er að byrja. Og
mér dettur eitthvað í hug. Ég hef
ekki stórar áhyggjur af þessu. Ekki
ætla ég að leggjast í eymd og volæði.
Þetta verður bara tækifæri. Ég held
að næstu tólf mánuðir verði strembn-
ir á markaðnum, en svo gerist eitt-
hvað. Nú er fullt af góðu fólki á lausu.
Er ekki sagt að bestu viðskipta-
hugmyndirnar komi í kreppu?“
Morgunblaðið/Golli
Uppsveiflan Starfsmenn verðbréfafyrirtækisins Teather and Greenwood í London, sem var í eigu Landsbankans, á
meðan allt lék í lyndi. Þá voru bresk stjórnvöld ekki búin að fella bankann undir hryðjuverkalöggjöf.
‘‘RJÚPNAVERTÍÐIN ER AÐBYRJA. OG MANNI DETTUREITTHVAÐ Í HUG. ÉG HEFEKKI STÓRAR ÁHYGGJUR AFÞESSU. EKKI ÆTLA ÉG AÐ
LEGGJAST Í EYMD OG
VOLÆÐI. ÞETTA VERÐUR
BARA TÆKIFÆRI.
„Ég hef aldrei haldið eins
mikið með íslenska landslið-
inu og á leiknum í vikunni.
Það er spurning um að fresta
jólunum, fara að dæmi Cast-
ros, sem frestaði jólunum
fram á sumar út af upp-
skerubresti.“
Fyrirtækja-
ráðgjöf
„Ég hlakka til að komast
heim og geta farið út í búð án
þess að skammast mín fyrir að
vera Íslendingur. Ég var á bar
í gærkvöldi og aðspurður
sagðist ég vera frá Rúmeníu.
Það veit enginn hvar Rúmenía
er. Í alvörunni – það er enginn
að spá í það!“
Útibú erlendis
„Ég hef engan áhuga á að
vinna í Nýja Landsbank-
anum. Mér hefur reyndar
ekki verið boðið það, en ég á
kost á öðru starfi og myndi
ekki nenna að rífast um
þriggja milljóna lán til Kaup-
félagsins á Hellissandi.“
Alþjóðasvið
„Starfsfólkið í framlínunni var
undir mestu álagi. Enda var
bankaáhlaup í heila viku og
útibúin full af fólki, stundum
var það reitt og ekki alltaf að
beina reiðinni að réttum
starfsmönnum. Og á sama
tíma var starfsfólkið uggandi
um eigin hag. Það er ótrúlegt
hvað það stóð sig vel undir
þessum kringumstæðum.“
Lögfræðingur