Morgunblaðið - 19.10.2008, Blaðsíða 39
39
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. OKTÓBER 2008
STAÐBUNDIÐ
lýðræði er þýðing á
enska hugtakinu Lo-
cal Democracy og vís-
ar sérstaklega til
sveitarstjórnarstigsins
og þess verklags að
íbúar eigi skilgreinda
aðkomu að ákvarð-
anatöku, umfram það
að kjósa á fjögurra
ára fresti.
Ef horft er á þá
stöðu sem nú ríkir í ís-
lensku þjóðfélagi og í
hinum vestræna
heimi, er ljóst að þau
kerfi sem við höfum
skapað til stjórnunar
og skipulags í samfélaginu riða til
falls. Staðan kallar á breytingar á
því hvernig við iðkum lýðræðið.
Undanfarin átta ár hefur greinar-
höfundur starfað við þátttöku al-
mennings m.a. við íbúaþing í á
þriðja tug sveitarfélaga. Mörg slík
íbúaþing hafa skilað góðum árangri,
til hefur orðið framtíðarsýn og
stundum hefur viðkomandi sam-
félag komist upp úr hjólförum. Hins
vegar hafa íbúaþingin
almennt ekki stuðlað
að virkari þátttöku
íbúa til lengri tíma.
Víða um heim er þró-
unin í átt að virkari
þátttöku. Sem dæmi
má nefna nýtt leiðbein-
ingarrit Alþjóðabank-
ans um réttindi og
þátttöku íbúa í verk-
efnum sem bankinn
styður. Bresk stjórn-
völd hafa markað
stefnu um þátttöku
íbúa á sveitar-
stjórnarstiginu undir
yfirskriftinni Samfélög
við stjórnvölinn – al-
vöru fólk, alvöru völd.
Með netinu er hægt að
ná til hluta almennings
en það eitt og sér er
ekki nóg.
Á borgaraþingi í
Ástralíu munu með
samspili fundar og nets
um 3000 íbúar fjalla um spurn-
inguna Hvernig gætum við styrkt
stjórnkerfið okkar fyrir fólkið?
Þátttaka almennings og hags-
munaaðila skilar árangri í skóla-
málum, heilbrigðismálum og um-
hverfismálum og er Kanada þar
mjög framarlega.
Hér á landi má auk íbúaþinga,
nefna verkefni Stofnunar stjórn-
sýslufræða og stjórnmála um íbúa-
lýðræði, útvarpsþætti um framtíð
lýðræðis og aukna áherslu nokkurra
sveitarfélaga á samvinnu við íbúa.
Við Íslendingar stöndum frammi
fyrir því stóra verkefni að endur-
skoða framtíð okkar og gildi. Víða í
þjóðfélaginu er verið að taka
ákvarðanir sem varða margvíslega
hagsmuni, einstaklinga og samfélög.
Ef kallað verður eftir aðkomu hags-
munaaðila og almennings skiptir
máli hvernig að því er staðið.
Liggja þarf fyrir hvaða svigrúm er
til að taka mið af samræðunni, hvað
er búið að ákveða og hvað ekki.
Einnig hversu mikil áhrif eða völd
almenningi eru gefin í ferlinu. Eftir
á er greint frá hvernig tekið var
mið af skilaboðunum. Ef haldnir eru
opnir fundir er hugað að samheng-
inu, fyrirkomulagi fundar og eft-
irfylgni. Gagnlegt er að skoða
grunngildi og siðareglur alþjóðlegra
fagsamtaka um þátttöku almenn-
ings, International Association for
Public Participation, IAP2, sem
sýna hvað gott þátttökuferli þarf að
uppfylla.
Framundan eru krefjandi og um
leið spennandi tímar, þar sem við
höfum tækifæri til að skapa nýja
framtíð. Framtíð þar sem íbúar og
hagsmunaaðilar fá raunverulegt
tækifæri til að vera virkir þátttak-
endur í ákvarðanatöku og gang-
verki samfélagsins.
Evrópsk vika um staðbundið lýð-
ræði var í fyrsta sinn haldin á þessu
ári, vikuna í kringum 15. október sl.
Íbúalýðræði
Sigurborg Kr.
Hannesdóttir skrif-
ar um gildi þess að
íbúar komi að
ákvarðanatöku sem
varðar hagsmuni
þeirra
Sigurborg Kr.
Hannesdóttir
» Við Íslend-
ingar stönd-
um frammi fyrir
því stóra verk-
efni að endur-
skoða framtíð
okkar og gildi.
Höfundur er ráðgjafi hjá ILDI og
hefur sérhæft sig í þátttöku almenn-
ings.
ÍSLAND, já takk!
hefur fengið þveröfuga
merkingu. Erlendar
vinaþjóðir segja ein-
faldlega: Ísland, nei
takk! Nú stöndum við
andspænis þeirri stað-
reynd að hafa farið
óvarlega í fjármálum og
ég segi við, þar sem við
kusum þessa óstjórn yf-
ir okkar í síðustu kosningum. Aga-
leysið endurspeglast alls staðar, jafnt
í sinni smæstu mynd sem stærstu,
sbr. sundrung heimila, agaleysi nem-
enda og nú óráðsía „nýríkra“ banka-
manna og ráðamanna. Og svo er eins
og engu sé treystandi, ekki einu sinni
því sem heyrist í fjölmiðlum – fólk er
róað niður með því að segja því að
sparifé þess sé tryggt, þrátt fyrir tak-
markaða úttektarheimild við-
skiptavina bankanna. En svo kemur í
ljós að svo er ekki. Ég ætla að deila
með ykkur, lesendur góðir, einni sögu
sem er sönn, ísköld staðreynd …
Amma mín, 76 ára ekkja til 10 ára,
stendur núna andspænis því að vera
búin að tapa sparnaði sínum til 7 ára.
Þessi dásemdarkona missti eig-
inmann sinn og verald-
legar eigur á svipuðum
tíma. Allt í einu stóð
hún uppi ein og eign-
arlaus. Og blessaður afi
minn féll frá án þess að
takast að bjarga mál-
unum, eins og sagt er.
En hann dó með reisn
því að mannorð hans
var óflekkað.
Gott og vel. Amma
mín þurfti að sníða sér
stakk eftir vexti; fara í
lítið leiguhúsnæði á veg-
um hins opinbera og lifa á ellilífeyri
einum saman. En hún byrjaði að
spara, leggja til hliðar 5 þúsund krón-
ur á mánuði. Síðan var það starfs-
maður Landsbankans sem benti
henni á betri ávöxtunarleið, leið sem
kallaðist peningabréf. Starfsmaður
þuldi upp, símleiðis, alla kosti þess –
en „gleymdi“ að greina frá því hvað
gæti gerst ef illa færi. Slíkt var ekki
tekið með í reikninginn, enda átti
landið að vera í bullandi uppsiglingu
og góðærið allsráðandi. Blessuð
amma mín féllst á „markaðsátak“
Landsbankans í algjöru grandaleysi
og stofnaði slíkan reikning. Og mun-
ið: Henni var aldrei sagt hvað gæti
gerst ef illa færi.
Síðan liðu 7 ár og þegar hún ætlaði
að taka út af þessum reikningi sínum
til að greiða fyrir tannaðgerð og brú-
arsmíð var búið að „frysta“ reikning-
inn og óvíst hvort hún fengi þessar
krónur nokkurn tímann aftur, krónur
sem hún var búin að leggja til hliðar
af einskærri nýtni og sparsemi. Um
er að ræða rúmar 600 þúsund krónur.
Síðan fer þjóðfélagið á hvolf eftir
margra ára peningafyllirí og þessir
saklausu, heiðvirðu borgarar þurfa að
gjalda þess. Er slíkt réttlátt? Nei. Nú
vil ég hvetja alla Íslendinga til að taka
höndum saman og standa vörð um
rétt sinn. Og hvernig gerum við það?
Jú, með því að virkja lýðræðið. Ekki
sitja heima og segja innra með ykkur
að ykkar atkvæði skipti engu máli.
Ykkar atkvæði og samstaða skiptir
öllu máli. Hingað og ekki lengra.
Stöndum saman, öll sem eitt!
Virkjum lýðræðið
Magnea Ólafz skrif-
ar um sparifé aldr-
aðrar konu
» Amma mín, 76 ára
ekkja til 10 ára,
stendur núna and-
spænis því að vera búin
að tapa sparnaði sínum
til 7 ára.
Magnea Ólafz
Höfundur er kennari.
Síðumúla 21 • 108 Reykjavík • S . 588 9090 • fax 588 9095
www.eignamidlun. is • e ignamidlun@eignamidlun. is
Sverr ir Kr ist insson, löggi ltur fasteignasal i
LÁLAND - ALLT ENDURNÝJAÐ
Einstaklega glæsilegt einbýli á einni hæð við
Láland í Fossvoginum. Húsið er staðsett
innst í botnlanga á stórri hornlóð og hefur
nýlega verið endurnýjað á mjög fallegan og
fágaðan hátt. Lóðin er gróin með stórri timb-
urverönd og heitum potti. Allar innréttingar í
húsinu eru sérsmíðaðar, gólfefni eru eikarp-
arket og flísar, allt rafmagn er endurnýjað,
lagnir endurnýjaðar auk þess sem hitastýrt
gólfhitakerfi var sett í húsið. V. 101 m. 4222
NORÐURBAKKI 23-25 - VIÐ SJÓINN
Glæsileg fullbúnar 3ja og 4ra herbergja íbúð-
ir við sjávarsíðuna. Húsið stendur fremst á
Norðurbakkanum í Hafnarfirði með óskert
útsýni á sjóndeildarhringinn og hafflötinn til
suðurs og vesturs Íbúðir í húsinu njóta því
besta útsýnis af Norðurbakkanum og sólar-
lagið blasir við úr stofugluggunum. 577
LANGALÍNA 27-29 - TIL AFHENDINGAR STRAX
Glæsilegar 3ja og 4ra herbergja íbúðir. Ein-
stök samsetning áræðinna hugmynda og
klassískrar hönnunar. Skýrar útlínur og hag-
nýt hönnun sem höfðar til allra skilningarvita.
Þ.G. Verk hefur ákveðið að stíga skrefið til
fulls og velja aðeins það besta þegar kemur
að innréttingum í Löngulínu 27-29 í Garða-
bæ. 7486
BRÖNDUKVÍSL - EINBÝLI Á 1. HÆÐ
Mjög fallegt og mikið endurnýjað einlyft
233 fm einbýlishús með innbyggðum bíl-
skúr í Kvíslunum í Árbænum. Eignin skipt-
ist í forstofu, snyrtingu, hol, stofu, betri
stofu, eldhús, geymslu, baðherbergi og
fjögur herbergi. Garðurinn er afgirtur með
hárri girðingu og nýrri timbur verönd..
Eignin virðist í góðu ástandi að utan er ný-
lega máluð. V. 69,0 m. 4214
ÁLFAHEIÐI - GLÆSILEGT ÚTSÝNI
Mjög vel staðsett 3ja herbergja 82,0 fm íbúð
á 2. hæð innst í lokaðri botnlangagötu -
glæsilegt útsýni, stutt í skóla og aðra þjón-
ustu. Íbúðin skiptist í hol, eldhús, borðstofu,
stofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi og
þvottahús. Flott íbúð þar sem stut er í skóla,
íþróttahús, kirkju og þ.h. - gott leiksvæði er
fyrir aftan húsið V. 22,0 m. 4223
BLÓMVANGUR - NÝLEGA STANDSETT
Nýlega standsett 143,3 fm einbýlishús
ásamt 40 fm bílskúr samtals 183 fm í rót-
grónu hverfi við Blómvang í Hafnarfirði.
Húsið var tekið í gegn að utan fyrir ca 3 ár-
um, þar á meðal þak málað og gluggar og
póstar endurnýjaðir sem og þakkantur og
húsið málað. Falleg lóð sem er ræktuð en
eftir á að ganga frá bílaplani fyrir framan
bílskúr. 4195
OKKAR METNAÐUR – ÞINN HAGUR
Ísak V. Jóhannsson,
sölustjóri
822 5588
Agnar Agnarsson,
lögg. fasteignasali
820 1002
Hrafnhildur Bridde
lögg. fasteignasali
821 4400
Við Ísak, Agnar, Hrafnhildur og Sigurberg höfum sameinað krafta okkar hjá
HB FASTEIGNUM OG STÓRHÚS, Bæjarlind 4, Kópavogi. Við veitum persónulega
og góða þjónustu auk mikillar reynslu og þekkingar á sviði fasteignaviðskipta.
SKRÁÐU EIGN ÞÍNA HJÁ OKKUR
ENGINN KOSTNAÐUR NEMA VIÐ SELJUM
Óskum eftir umsóknum frá reynsluríkum sölumönnum fasteigna.
Við bjóðum upp á fyrsta flokks húsnæði og vinnu með frábæru fólki
með áratuga reynslu. Miklir tekjumöguleikar fyrir duglegt fólk, há söluþóknun í boði.
Áhugasamir vinsamlegast sendið umóknir til : storhus@storhus.is.
Bæjarlind 4 • 201 Kópavogi • sími 534 2000 Sigurberg
Guðjónsson,
hdl.