Morgunblaðið - 19.10.2008, Blaðsíða 30
30 Umhverfismál
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. OKTÓBER 2008
V
atnajökull laðar að sér fjöl-
marga vísindamenn. Leiðangr-
arnir eru misstórir enda rann-
sóknirnar mismunandi. Í júní,
ár hvert, slást vísindamenn í
för með sjálfboðaliðum Jöklarannsókna-
félags Íslands. Þessar ferðir hafa verið
nær árlegar síðan um 1950. Mæligögn sem
aflað hefur verið í þessum ferðum hafa
m.a. nýst til aukins
skilnings á hreyfingu og
afkomu jökulsins, jök-
ulhlaupum frá Gríms-
vötnum og eldvirkni í
Vatnajökli.
Jöklarannsóknafélagið
(JÖRFÍ) hefur á að
skipa mörgum af
fremstu jarðvís-
indamönnum Íslands, en
öllum er heimill aðgang-
ur að félaginu og flestir
eru félagsmenn venjulegt fólk með áhuga
á fjalla- og jöklaferðum. Vorferðin á
Vatnajökul er ávallt stærsti viðburður í
dagatali félagsmanna. Félagsmenn JÖRFÍ
hafa auk þess mælt hop og framskrið
skriðjökla með því að mæla sporða þeirra.
Árlega eru um 40 jökulsporðar mældir og
eru gögnin sem safnast hafa víðtækustu
heimildir um þróun jökla á Íslandi á 20.
öld.
Vatnajökull er stærsti jökull Evrópu.
Að flatarmáli er hann 8.100 ferkílómetr-
ar eða áttundi hluti Íslands og 10 sinnum
stærri en New York. Rúmmál jökulíssins
er 3.100 rúmkílómetrar sem myndi
nægja til að þekja allt Ísland með 30
metra þykkum ís. Þykkastur er ísinn
nærri 980 metrar en meðalþykktin er
380 metrar. Líkt og aðrir íslenskir jöklar
hefur hann farið minnkandi nær alla
tuttugustu öldina en hraðasta bráðnunin
hefur átt sér stað síðan 1995. Á síðustu
10 árum hefur rúmmál hans minnkað um
3%. Ef Vatnajökull allur bráðnaði myndi
sjávarborðið hækka um 1 cm á heims-
vísu.
Vegna bráðnunar jöklanna er búist við
að rennsli í jökulánum aukist næstu 50 –
100 árin, en fari svo ört minnkandi þegar
flatarmál jöklanna minnkar. Áhrifin
skipta vatnsaflsvirkjanirnar mestu máli
en líka má búast við að farvegir fallvatna
muni breytast verulega, sum jafnvel
hverfa alveg en önnur stækka. Þá munu
ný lón og stöðuvötn myndast sem gætu
haft áhrif á samgöngukerfið.
2
2
Vorferð Jöklarannsóknafélags Íslands er með viða-
meiri rannsóknarleiðöngrum sem farnir eru hér á
landi. Í henni er m.a. kannað ástand eldstöðva, jarð-
hitasvæða og jökullóna í Vatnajökli og afkoma vetr-
arins mæld. Vorferðin nú var með fjölmennara móti
en sú nýbreytni var að litlir hópar dvöldu við rann-
sóknir í Kverkfjöllum og á Goðahnjúkum auk meg-
inhópsins sem hélt til á Grímsfjalli. Brynjar Gunn-
arsson ljósmyndari slóst með í för.
5
1
Jökullinn
bráðnar
Brynjar
Gunnarsson
5