Morgunblaðið - 19.10.2008, Side 34
34 Fjölmiðlar
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. OKTÓBER 2008
Eftir Björn Vigni Sigurpálsson
bvs@mbl.is
H
ver er munurinn á Ro-
bert Peston, við-
skiptaritstjóra BBC,
og guði? Guð heldur
ekki að hann sé Ro-
bert Peston!
Hér hefur gamall og sígildur
brandari í bresku blaði nýverið verið
heimfærður upp á mann sem sumir
halda fram að sé sá þriðji valdamesti
á Bretlandseyjum um þessar mundir
– á eftir þeim „Íslandsvinunum“
Gordon Brown og Alistair Darling.
Til eru þeir sem telja Robert Pe-
ston hafa meira og minna einn síns
liðs með skrifum sínum komið
Northern Rock bankanum á hliðina
–kannski með smáhjálp úr Downing-
stræti 10. Þar situr einmitt þessa
dagana maður sem Peston skrifaði
ævisögu um árið 2005 – og heitir á
frummálinu Browns Brittain. Allt
frá þeim tíma þykir Peston hafa ver-
ið betur tengdur og oftar fyrstur
með fréttirnar en flestir aðrir fjöl-
miðlamenn á þessum slóðum.
Ekki er Peston heldur alveg laus
við Íslandsáhuga fremur en margir
aðrir viðskiptablaðamenn Bretlands
þessa dagana.. Hinn 4. október sl.
skrifaði hann á frægu bloggi sínu um
vandræði okkar Íslendinga undir
fyrirsögninni Markets call time on
Iceland og birt var í endursögn hér á
fréttavef mbl.is samdægurs með fyr-
irsögninni Ísland flautað úr leik.
Pistillinn hófst á setningunni: „Best
er að líta á Ísland sem land er breytt
hefur sér í risavaxinn vogunarsjóð.“
Fjórum dögum síðar höfðu þeir
Gordon Brown og fjármálaráðherra
hans, Alistair Darling, látið leggja
hald á innlánssjóði Kaupþings Ed-
ges og sett banka Kaupþings í Bret-
landi, Singer & Friedlander í
greiðslustöðvun, aðgerðir sem
stjórnarformaður Kaupþings, Sig-
urður Einarsson, sagði seinna um
daginn í yfirlýsingu að í reynd hefðu
ýtt Kaupþings-samsteypunni í þrot.
Einhverjir samsæriskenn-
ingasmiðir munu örugglega velta því
fyrir sér hvort beinskeytt bloggið á
BBC-vefnum og harkalegar aðgerð-
ir breskra yfirvalda gegn Kaupþingi
í kjölfarið hafi verið eintóm tilviljun.
Fréttablaðahaukur sem
gerðist ljósvakastjarna
Staðreyndin er sú að allmiklar
umræður hafa verið í bresku dag-
blöðunum undanfarið hvort Robert
Peston sé fjölmiðlamaður af því tagi
að hann hæfi þeirri traustu og var-
káru stofnun sem BBC allajafnan er,
einkum þó á þeim viðsjárverðu tím-
um sem ríkja í fjármálalífinu þar
heima og heiman.
Robert Peston er nefnilega prent-
Valdamestur
fjölmiðlamanna
á Bretlandi?
Robert Peston er ötull viðskiptaritstjóri BBC
Hæfir áreitin fréttamennskan ekki miðlinum?
Viðskiptaritstjóri. Robert Peston hjá BBC hefur farið mikinn í fjármálakreppunni og þykir ýmsum nóg um völd hans.
Hér eru hinar banvænu staðreyndir umÍsland: verg landsframleiðsla jafngildirum 20 milljörðum dala en bankar lands-
ins hafa tekið um 120 milljarða dala að láni í
erlendum gjaldmiðlum. Þetta er almennileg
skuldsetning – og menn verða að muna að
þetta eru aðeins erlendar skuldir viðskipta-
bankanna,“ segir Peston.
„Ef þetta væri fyrirtæki og það ætti ekki
kost á öðrum lánum (sem Ísland hefur auðvit-
að) væri skuldastaðan sex sinnum hærri en
framleiðnin.
Með öðrum orðum þá hefur Ísland ekki
nægar tekjur til að standa undir slíkum skuld-
um,“ segir Peston.
Hann segir að ef íslenska ríkisstjórnin
myndi ábyrgjast formlega allar þessar skuld-
bindingar – sem hún kunni að neyðast til í
ljósi þess að aðrir bankar og fjármálastofn-
anir vilji ekki snerta á Íslandi með lengsta
stjaka sem hafi verið smíðaður, myndu skuldir
hins opinbera í hlutfalli við landsframleiðslu
ná hæðum sem gerðu Bretland á áttunda ára-
tug síðustu aldar hófstillt í samanburði.
Og ef íslenskir skattgreiðendur ættu að
axla þær byrðar yrði ekki mikið eftir fyrir
nauðþurftir.
„Þetta er heljarinnar klandur,“ segir Pe-
ston.
Alltof mikil lán
Hann bætir við, að auðvitað sé hann ekki al-
veg sanngjarn því bankarnir, sem hafi á
heimskulegan hátt tekið allt þetta fé að láni,
hafi líka fjárfest í eignum í útlöndum. Þannig
hafi mikið af breskum tískuverslunum, fast-
eignir og Hammers (knattspyrnuliðið West
Ham) verið fjármagnað eða sé í eigu íslenskra
banka og fjármálamanna. Og þeir sem hafi
fengið fé að láni hjá íslenskum bönkum hafi
tekið allt of mikil lán. Það þýði, að þeir verði
að leita að annarri peningauppsprettu á tím-
um þegar skuldsett fyrirtæki séu ekki sérlega
vinsæl hjá breskum bönkum.
Þess vegna hafi vandamál Íslands bein áhrif
á breska hagkerfið og enginn viti í raun
hversu tengdir bresku bankarnir eru þeim ís-
lensku gegnum millibankamarkaðinn og af-
leiðumarkaðinn. Þá sé einn breskur banki,
Singer & Friedlander, í eigu Kaupþings.
Ljóst sé að breska fjármálaeftirlitið hljóti
að verða órólegt vegna þess að Kaupþing,
sem sé engin smásmíði með 73 milljarða
dala eignir, hafi það versta tilfelli af fjár-
málauppdráttarsýki sem sést hafi og hefði
einhver á föstudag viljað taka út tryggingu
á skuldabréfamarkaði til að tryggja endur-
greiðslu á skuldabréfi Kaupþings hefði
þurft að greiða 625 þúsund pund til að
tryggja endurgreiðslu 1 milljónar punda
skuldabréfs. Það þýði, að Kaupþing geti
ekki gefið út ný skuldabréf þótt bankinn
vilji. Jafnvel íslenska ríkið sé komið í ónáð
á markaðnum.
„Hver verða þá örlög vesalings skuld-
setta Íslands?
Þótt seðlabankinn hafi frekar mikinn
gjaldeyrisforða – nóg, að sögn seðla-
bankastjóra til að mæta innflutningi í átta
til níu mánuði – er erfitt að hjá hvernig
landið kemst aftur á flot án alþjóðlegrar
aðstoðar,“ segir Peston.
(Úr bloggi Robert Pestons 4. október
sl. – millifyrirsögn er Morgunblaðsins)
Vandamál Íslands hafa bein áhrif á breska hagkerfið
Áhlaup Langar biðraðir mynduðust fyrir ut-
an Norhern Rock bankann eftir frétt Pestons
um inngrip Englandsbanka og úr varð fyrsta
bankaáhlaup í Bretlandi í meira en 140 ár.
Þ
egar stjórn Kaupþings
banka hf. fór yfir stöðu
bankans á vinnufundi dag-
ana 25.-26. september gekk
rekstur bankans vel og ljóst þótti
að afkoma þriðja ársfjórðungs
yrði góð. Að meðaltali höfðu inn-
lán aukist um tæpa fjóra millj-
arða króna hvern dag undanfarna
sex mánuði. Lausafjárstaða bank-
ans var því góð og áform uppi um
að hefja uppkaup á skuldabréfum
útgefnum af bankanum.
Lausafjárstaða Kaupthing Singer
& Friedlander, dótturfélags bank-
ans í Bretlandi, var einnig góð –
líkast til best meðal allra banka í
Bretlandi.
Kaupþing hafði um langt skeið
búið sig undir niðursveiflu á verð-
bréfamörkuðum og þá einkum og
sér í lagi á Íslandi enda hafði það
blasað við í allnokkur ár að gengi
krónunnar var alltof hátt skráð.
Til að mæta hugsanlegri nið-
ursveiflu hafði Kaupþing varið
eigið fé sitt með því að færa það í
erlenda mynt, dregið úr vexti lána
til fyrirtækja á Íslandi og gefið
eftir markaðshlutdeild á því sviði.
Kaupþing hafði ekki markaðssett
lán í erlendri mynt. Þá hafði bank-
inn aukið verðtryggðar eignir í
eignasafni sínu á Íslandi og stór-
aukið hlut innlána í fjármögnun
sinni.
Um svipað leyti voru óveðursský
tekin að hrannast upp á alþjóð-
legum fjármálamörkuðum og
traust þvarr hratt á milli fjár-
málastofnana. Bankar urðu treg-
ari til að lána hver öðrum og köll-
uðu inn lán. Að morgni 29.
september bárust fréttir af erf-
iðleikum Glitnis og yfirvöld til-
kynntu áform um kaup á 75%
hlut í bankanum. Hófst þá at-
burðarás sem enginn sá fyrir eða
gat haft stjórn á. Þetta smitaði út
frá sér í íslenska hagkerfinu og
krónan hóf frjálst fall.
Lánshæfismatsfyrirtæki lækkuðu
lánshæfismat ríkisins og íslensku
bankanna og erlendir fjárfestar
hrundu af stað skriðu þar sem
þeir reyndu að losa sig við ís-
lenskar eignir óháð því hversu
traustar þær voru.
Eftir að breskir innstæðueigend-
ur drógu innstæður sínar úr Ice-
save, innlánareikningi Lands-
bankans í Bretlandi, tók
Fjármálaeftirlitið yfir stjórnun
Landsbankans. Í kjölfar þeirra
frétta jókst verulega útflæði inn-
lána hjá Kaupthing Edge í Bret-
landi, þrátt fyrir að sá grundvall-
armunur væri á Kaupthing Edge
og Icesave að Kaupthing Edge var
tryggt af breska innstæðutrygg-
ingasjóðnum en Icesave af þeim
íslenska.
Afskipti breskra
yfirvalda í Bretlandi
Eftir að breski fjármálaráðherr-
ann lýsti því yfir að Íslendingar
hygðust ekki standa við skuld-
bindingar sínar gagnvart bresk-
um innstæðueigendum, tók
breska fjármálaeftirlitið Kaup-
thing Edge af dótturfyrirtæki
bankans Kaupthing Singer &
Friedlander. Í kjölfar þess var
Kaupthing Singer & Friedlander
sett í greiðslustöðvun og vísuðu
lánardrottnar Kaupþings banka
hf. þá til þess að greiðslustöðvun
dótturfyrirtækis væri vanefnd
samkvæmt ákvæðum lánasamn-
inga móðurfélagsins og því ígildi
greiðslufalls. Skipti þá engu að
lausafé móðurfélagsins væri
nægjanlegt og staða þess góð.“
(Úr yfirlýsingu Sigurðar Ein-
arssonar, stjórnarformanns Kaup-
þings 8. október sl. Millifyrirsögn
er Morgunblaðsins)
Lausafjárstaða S&F
líkast til best allra
banka í Bretlandi
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Aðdragandi Sigurður Einarsson og Hreiðar Már Sigurðsson koma af fundi
forsætisráðherra í stjórnarráðinu fáeinum dögum fyrir hrun bankans.