Morgunblaðið - 19.10.2008, Side 35
miðlablaðamaður að reynslu og upp-
lagi, starfaði á ýmsum helstu blöðum
landsins í tæpan aldarfjórðung áður
en hann réð sig til BBC í febrúar
2006 sem ritstjóri viðskipta- og fjár-
málafrétta.
Frami hans hófst fyrir alvöru þeg-
ar hann réðst til The Finacial Times
1991 þar sem hann starfaði m.a. sem
stjórnmálaritstjóri, fréttastjóri
bankamála og veitti forstöðu rann-
sóknarblaðamennskuteymi sem
hann reyndar kom sjálfur á laggirn-
arnar. Hann varð seinna fjármálarit-
stjóri blaðsins og átti sæti í fram-
kvæmdastjórn ritstjórnar FT sem
aðstoðarritstjóri. Árið 2002 réðst
hann sem viðskipta- og fjármálarit-
stjóri og aðstoðarritstjóri hjá The
Sunday Telegraph og gegndi því til
ársins 2005.
Peston sagði þá nokkuð óvænt
skilið við prentblaðamennskuna og
réðst sem viðskiptaritstjóri frétta-
deildar BBC. Þar hefur honum vaxið
hratt ásmegin, og eins og áður hefur
komið fram telst hann nú einhver
áhrifamesti fjölmiðlafrömuður Bret-
landseyja.
Frumraunir hans í ljósvakamiðl-
um gengu þó heldur brösulega. Roy
Greenslade, einn helsti fjölmiðlarýn-
ir Bretlands, lýsir því þannig að þeg-
ar Peston hafi verið að byrja að
flytja fréttir sínar í ljósvakanum hafi
farið um sig aumingjahrollur, hann
sjálfur farið hjá sér og orðið að líta
undan. Fyrir þessu segist Greens-
lade ekki hafa fundið síðasta árið eða
svo enda þótt ekkert fari enn milli
mála að Peston sé ekkert nátt-
úrubarn í ljósvakamiðlun.
Peston þykir hafa einkennilegan
talanda, eiginlega skyrpa út úr sér
orðum og setningum, oft með
áherslur á röngum stað í lestrinum
og einhverjir hafa kvartað yfir því að
þegar hann flytji fréttir sínar sé allt-
af eins og heimurinn sé að farast.
Sem er kannski allt í lagi í venjulegu
árferði – en lakara núna þegar menn
halda að heimurinn – a.m.k. fjár-
málaheimurinn – sé að farast í raun
og veru á hverri stundu. Menn hafa
getið sér þess til að þessi sérkenni í
talanda Peston sé hægt að rekja til
þess að hann hafi stamað í æsku.
Hvað um það þá tengjast helstu
ávirðingarnar ekki talandanum og
framsögninni heldur því hvernig
hann starfar sem fréttamaður. Eng-
inn efast þó um getu hans og hæfni
sem fréttamanns og hann hefur unn-
ið til margra virtustu blaða-
mannaverðlauna Bretlands á liðnum
árum, bæði á blöðum og þann
skamma tíma sem hann hefur starf-
að í ljósvakanum.
Of valdamikill?
Einn gagnrýnandi hans, Stephen
Glover, segir um hann í grein í The
Independent nýverið að Peston sé
líklega valdamesti breski blaðamað-
urinn sem hann hafi komist í tæri við
á lífsleiðinni. Síðustu vikurnar hafi
orð frá honum getað sett banka á
hvolf – eða bjargað frá falli. Clover
segir þetta merkilega stöðu og
freistar þess síðan að skoða hvort
Peston noti völd sín á ábyrgan hátt
eða hvort hann sé of valdamikill.
Clover tekur fram að hann virði
Peston mjög sem blaðamann, og
hann þekki lítillega til hans persónu-
lega frá því þeir unnu saman á blaði
fyrir margt löngu. Peston sé frétta-
haukur af gamla skólanum, skúbbari
(þ.e. sá sem er fyrstur með frétt-
irnar) af guðs náð og nái fréttum
sem aðrir ná ekki ásamt því að vera
fyrsta flokks greinandi.
Þetta geri hann að mjög ein-
stökum blaðamanni því að oftar en
ekki séu frábærir fréttamenn frekar
slappir í greiningu fréttaviðburða og
í umsögnum um þá meðan skoð-
anablaðamenn og greinendur séu
oftar en ekki þannig innréttaðir að
sjá ekki fréttina þótt hún æpi beint
framan í þá. Peston hafi þetta allt
–fyrir utan að geta tæpast komið
fréttum sínum almennilega til skila í
sjónvarpi og útvarpi.
Peston getur þó misstigið sig, seg-
ir Clover. Hann hverfur 11 ár aftur í
tímann þegar Peston vann á The
Financial Times. Þá skrifaði hann í
blað sitt að hin nýja ríkisstjórn
Verkamannaflokksins hefði markað
sér þá stefnu að taka upp evruna á
fyrsta kjörtímabili sínu. Fréttin varð
til að umturna fjármálamörk-
uðunum.
Fréttin reyndist nefnilega röng.
Fréttin sjálf varð
pólitískur viðburður
Sjálfur gerði Peston þetta atvik
upp í grein þremur árum síðar. „Í
einfeldni minni hélt ég að ég væri
einfaldlega að vinna verk hlutlægs
fréttamanns með því að lýsa þanka-
gangi innan ríkisstjórnarinnar,
byggt á samtölum við ráðherra og
embættismenn í Downingstræti, ut-
anríkisráðuneytinu og fjármálaráðu-
neytinu. Þetta var eitt af þessum fá-
gætu tilvikum þegar frétt verður
pólitískur viðburður í sjálfu sér,“
eins og vitnað er í þessi orð hans í
Mail Online fyrr í mánuðinum.
Stephen Clover á The Independ-
ent segir hins vegar að þótt Peston
hafi haft rangt fyrir sér í þetta skipt-
ið séu hin skiptin langtum fleiri þar
sem hann hafi haft á réttu að standa.
Og í framhaldinu spyr Clover sig
hvers vegna hann hafi þá yfirleitt
þessa fyrirvara á Robert Peston í
núverandi hlutverki?
Hann segir áhyggjur sínar stafa af
því hlutverki sem BBC gegni í
bresku samfélagi og þeirri ótrúlegu
stöðu sem Peston hafi nú innan
stofnunarinnar. Ólíkt mörgum dag-
blöðunum sé fréttahefð BBC ekki
„skúbb-drifin“, þ.e. hún gerir ekki út
á að vera fyrst með fréttirnar.
Stefna stofnunarinnar sé að vera yf-
irveguð, upplýsandi og gæta allra
sjónarmiða. Fréttastefnan sé alla-
jafnan varkár.
Peston, segir Clover, er þvert á
móti uppalinn í öðru umhverfi. Áreit-
in nálgun hans sé á skjön við íhalds-
söm fréttagildi BBC. Við venjulegar
aðstæður kæmi þetta þó ekki að sök,
jafnvel hollt að láta hrista aðeins upp
í stofnuninni og að Peston með sí-
snuðrandi fréttanef sitt gæti alveg
verið maðurinn til þess. En nú séu
aðstæður ekki eðlilegar. Umheim-
urinn á heljarþröm – og Clover efast
um að tónninn hjá Peston henti þeg-
ar þannig stendur á.
Clover bendir einnig á hvernig
BBC noti Peston. Í stjórnmála-
umfjöllun BBC sé stjórnmálarit-
stjórinn Nick Robinson með marga
hæfa og sýnilega samstarfsmenn á
oddinum. Í umfjöllun BBC af fjár-
málakreppunni sé Peston sjálfur
allsráðandi, að morgni, degi og
kvöldi. Hann veki Breta af værum
svefni í morgunútsendingunni og
sendi fólk í háttinn í 10-fréttum
BBC1. Hann vinni ósjaldan heiman
frá sér þaðan sem hann sé bein-
tengdur við BBC, hendi þaðan
bloggi sínu inn á vefinn, snögg-
soðnum innslögum í ljósvakafrétt-
irnar og gangi ósjaldan sjálfur beint
í fréttaöflunina og vinnslu. Ekki bæti
hin sérstæða framsögn hans á frétt-
um úr skák. – Væri herra Peston að
lesa Skipafréttirnar myndi hann fá
margsjóaðar áhafnirnar til að yf-
irgefa skip sín umsvifalaust, segir
Clover.
Öfund undirrót gagnrýninnar?
Roy Greenslade sem áður er
nefndur, veltir fyrir sér í pistli Even-
ing Standard í síðustu viku hvort allt
umtalið um ofurvöld Robert Peston
sé einfaldlega ekki sprottið af því að
menn sjái ofsjónir yfir velgengni
hans. Hann dregur saman gagnrýn-
ina á Peston og segir hana snúast um
þrennt. Í fyrsta lagi að áhrif hans
séu orðin slík að hann geti sett
banka á hvolf, í öðru lagi að ákefð
hans í að „skúbba“ gangi í berhögg
við vinnuhefðir BBC og í þriðja lagi
sé hann of handgenginn Gordon
Brown og það liti greiningar hans á
atburðunum.
Greenslade hafnar þessari gagn-
rýni. Þegar komi að því að taka fyrir
umdeild mál eins og nú ráða ríkjum í
fjármálaheiminum séu fjölmiðlarnir
fordæmdir ef þeir fjalli ekki um mál-
in og ekki síður ef þeir geri það.
Þetta sé hin eilífa valþraut fjöl-
miðlanna og bæði Peston og yf-
irmenn frétta BBC séu fullmeðvit-
aðir um hana. Fjölmiðlarnir eru
sendiboðar en ekki sendingin sjálf,
segir Greenslade. Allir fréttamenn
viti að það sé nær undantekning-
arlaust meiri höfuðsynd að sitja á
fréttum en að opinbera upplýsing-
arnar. Sem fréttamaður með ára-
tuga reynslu í fjármálafréttum hafi
Peston því örugglega verið fullljóst
um hugsanlegar afleiðingar fréttar
hans um Northern Rock-bankann.
Skúbbfrétt Peston fyrir um þrett-
án mánuðum um Northern Rock
greindi frá því að Englandsbanki
væri í þann veginn að bregðast við
því hlutverki sínu að gerast lánveit-
andi Northern Rock til þrautavara,
sem er ævinlega neyðarúrræði og
aðeins gripið til þegar banki stendur
frammi fyrir því að fara í þrot. Nema
hvað – daginn eftir varð fyrsta
bankaáhlaupið í Bretlandi í 140 ár.
Bent hefur verið á í þessu sam-
hengi að gamall félagi Pestons frá
Financial Times-árunum, Rolland
Rud, reki almenningstengslafyr-
irtækið Finsbury sem einmitt vann
fyrir Northern Rock á þessum tíma.
Aðrir gera því skóna að líklegra sé
að fréttin eigi upptök sín í Downing-
stræti númer 10. Peston hafi þar góð
sambönd allt frá því að hann skrifaði
ævisögu Brown. Spunameistararnir
í nr. 10 séu hins vegar vanari póli-
tískum klækjafréttum heldur en
efnahagslegum og ekki séð fyrir af-
leiðingarnar af ragnarakaskrifum
Pestons um Northern Rock.
Hitt stóra skúbbið hjá Peston er
nýrra af nálinni en það var frétt hans
í morgunútsendingu BBC fyrir fá-
einum dögum þess efnis að þrír
stærstu bankar Bretlands hefðu
óskað eftir milljarða innspýtingu hjá
Darling fjármálaráðherra og væru
ókátir með að vera dregnir á svör-
um. Gengi hlutabréfa í Royal Bank
of Scotland hrapaði um 40% við
fréttina. Hefði ákvörðunin dregist
degi lengur hefði bankinn sennilega
farið yfirum. Að margra mati varð
frétt Pestons til þess að breska rík-
isstjórnin mátti einhenda sér í neyð-
arpakka handa bönkunum þremur
með hraði og getum hefur verið að
því leitt að lekinn til Pestons í þetta
skiptið hafi verið frá einhverjum eða
öllum bönkunum sem stóðu frammi
fyrir bráðavanda.
Roy Greenslade veltir fyrir sér, í
pistli sínum í Evening Standard,
ásökunum um óeðlileg tengsl Pe-
stons við Downingstræti 10 og segir
alls óljóst hvort ævisöguskrifin hafi
veitt honum beina línu að forsætis-
ráðherranum. Hann bendir reyndar
á að hvorugt bankaskúbbanna hafi
komið ríkisstjórninni vel, og leggur
áherslu á að Robert Peston sé víðar
vel tengdur, svo sem í City, fjár-
málamiðstöð Lundúnaborgar.
– Að rækta sambönd og tengsl er
höfuðskylda blaðamanna, segir
Greenslade. „Blaðamenn nú til dags
eyða of miklum tíma í að reyna að
hafa uppi á því hvernig keppinaut-
arnir nái í fréttir sínar í stað þess að
grafa upp eigin skúbb. Slíkt er hluti
af sjálfhverfu fjölmiðlanna og þótt
það sé áhugavert fyrir okkur, innan-
búðarmenn í fjölmiðlaheiminum, á
það ekkert erindi við almenning.“
Niðurstaðan samkvæmt þessu
gæti verið: Spjótin sem standa á Ro-
bert Peston eru einfaldlega öfund út
í einstakan en jafnframt mjög sér-
stakan fréttahauk.
35
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. OKTÓBER 2008
Heimsferðir bjóða frábært sértilboð á síðustu sætunum til Búda-
pest 23. október. Bjóðum ótrúlegt sértilboð á gistingu á Hotel Nov-
otel Centrum sem er gott og mjög vel staðsett fjögurra stjörnu
hótel. Búdapest er ein fegursta borg Evrópu og haustið er einstak-
ur tími til að heimsækja borgina. Fararstjórar Heimsferða gjör-
þekkja borgina og kynna þér sögu hennar og heillandi menningu.
Búdapest býður einstakt mannlíf, menningu og skemmtun að
ógleymdri getrisni Ungverja auk frábærra veitinga- og skemmti-
staða. Þetta eru síðustu lausu sætin til Búdapest í haust!
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Búdapest
23. október
frá kr. 29.990
Ótrúlegt sértilboð - einstök helgarferð!
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku.
Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.
Verð kr. 29.990
Netverð á mann. Flugsæti báðar leiðir með
sköttum.
Verð kr. 44.990
- helgarferð
Netverð á mann, m.v. 2 í herbergi í 3 nætur
á Hotel Novotel Centrum **** með morg-
unmat. Sértilboð 23. október. Aukagjald fyrir
einbýli kr. 14.000.
FRÁBÆR GIS
TING
Hotel Novote
l Centrum
* * * *
Polarolje
Selolía, einstök olía
Gott fyrir:
Maga- og þarma starfsemi
Hjarta og æðar
Ónæmiskerfið
Liðina
Polarolían fæst í:
apótekum, Þín verlsun Seljabraut,
heilsuhúsum, Fjarðarkaupum,
og Melabúð
Meiri virkni
Hátt hlutfall Omega 3
fitusýrur
Fiskbúðinni Trönuhrauni
Stepp ehf Ármúla 32 Sími 533 5060 www.stepp.is stepp@stepp.is
G
ra
fí
k
a
2
0
0
8
GÓLFEFNI ÞEKKING ÞJÓNUSTA
TEPPI Á STIGAGANGINN
Fáðu úrslitin
send í símann þinn