Morgunblaðið - 19.10.2008, Qupperneq 40
40 Umræðan
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. OKTÓBER 2008
Í NÚTÍMASAMFÉLAGI sem ein-
kennist af örum breytingum er
menntun æviverk og einstaklingar
þurfa að taka ákvörðun um nám
og störf oft á ævinni. Fyrirtæki
breytast, sameinast eða hætta og
starfsfólkið þarf að finna nýtt
starf. Verkefnavinna hefur aukist í
fyrirtækjum og þá er ein-
staklingur ekki starfandi hjá ein-
um vinnuveitanda nema í þann
tíma sem verkefnið stendur yfir.
Auk þessa þarf starfsfólk símennt-
un til að vera samkeppnishæft á
vinnumarkaði.
Allt þetta gerir kröfur um að
einstaklingar hafi færni til að taka
viðeigandi ákvarðanir til þess að
þeim farnist vel í samfélaginu.
Þessi færni er hluti af náms- og
starfsfræðslu, sem auk þess að
upplýsa einstaklinga um nám og
störf er kennsla í að þekkja sjálfan
sig og geta tekið upplýstar
ákvarðanir sem henta hverju sinni.
Í aðalnámskrá grunnskóla 1999
er lögð áhersla á að skólinn búi
bæði kynin undir þátttöku í at-
vinnulífi, fjölskyldulífi og sam-
félagi. Í námskrá lífsleikni er gert
ráð fyrir að nemendur í 10. bekk
geti nýtt sér þekkingu og ráðgjöf
náms- og starfsráðgjafa auk þess
að geta sett sér markmið og fram-
tíðaráætlun til að stefna að og
hafa unnið úr upplýsingum um
námsleiðir í framhaldsskólum með
tilliti til áhuga og framtíðaráforma
hvað varðar störf og atvinnutæki-
færi. En það er undir hælinn lagt
hvort einhver tími er ætlaður til
að ná þessum markmiðum. Það fer
eftir skólum og skólastjórnendum
hvort þessu verkefni er sinnt eða
ekki. Í skýrslu um greiningu á
starfi náms- og starfsráðgjafa í
grunnskólum Reykjavíkur 2006
kemur fram að náms- og starfs-
fræðsla fari ekki fram í um 30%
grunnskóla með unglingadeildir. Í
skýrslunni kemur einnig fram að
einungis 38% náms- og starfs-
ráðgjafa töldu að 70-99% nemenda
væru vel undirbúin til að taka
ákvörðun um nám að loknum
grunnskóla við lok 10. bekkjar.
Til að náms- og starfsfræðsla
verði öflug grein og hluti af námi
hvers nemanda allan grunnskólann
en ekki bara olnbogabarn þarf að
gera viðamiklar breytingar. Nauð-
synlegt er að hafa heildstæða
áætlun í náms- og starfsráðgjöf
þar sem náms- og starfsfræðsla er
einn hluti ásamt öðrum fyrirbyggj-
andi þáttum sem undirbúa nem-
endur fyrir líf og starf í nútíma-
samfélagi. Þá fyrst er hægt að
tryggja að nemendur verði færir í
að taka upplýstar ákvarðanir um
nám og störf alla ævi.
SIGRÍÐUR
BÍLDDAL RUESCH,
náms- og starfsráðgjafi í
grunnskóla.
Náms- og starfsfræðsla,
olnbogabarn eða nauðsyn?
Frá Sigríði Bílddal Ruesch:
MARGIR finna nú fyrir óöryggi
og kvíða. Ég er vissum að næst-
um því allir Íslendingar spyrja:
„Hvað er eig-
inlega að gerast
og hvernig
komumst við út
úr þessu?“
Þjóðin mun
auðvitað komast
út úr vandanum
þó að það taki
kannski lengri
tíma en við sjálf
óskum.
Í erfiðleikum
og umróti er alltaf mikilvægt að
halda ró sinni og vera æðrulaus.
Ef okkur tekst það erum við bet-
ur fær um að taka réttar ákvarð-
anir. Til þess að öðlast æðruleysi
er gott að fara á staði þar sem já-
kvæð andleg iðkun á sér stað.
Guðsþjónustur kirkjunnar eru
góður vettvangur til þess, ekki
aðeins vegna þess að þar er kyrrð
og friður heldur líka vegna þess
að þar er okkur boðað lifandi Orð
Guðs sem byggir upp og er örugg
leið til vaxtar og þroska.
Æðruleysismessurnar hafa ver-
ið í Dómkirkjunni í rúman áratug
og hef ég notið þess að vera þar
með ótrúlegum fjölda fólks sem á
þá sameiginlegu reynslu að and-
leg ró og friður skipta mestu máli
í lífinu.
Þó að æðruleysismessurnar séu
hugsaðar til stuðnings þeim sem
kjósa styrk trúarinnar á nýrri
leið sinni í baráttunni við ýmsar
fíknir og þá einkum alkóhól og
önnur vímuefni eru þær líka vel
til þess fallnar að byggja upp alla
þá sem þangað koma og veita
þeim styrk sem lifa erfiða eða tví-
sýna tíma. Æðruleysismessurnar
eru kvöldmessur og þær einkenn-
ast af trausti, von og gleði. Tón-
listin er líka mjög fjölbreytt og
hefur Bræðrabandið ásamt Önnu
Sigríði Helgadóttur verið í aðal-
hlutverkinu í gegnum árin.
Bræðrabandið skipa þeir Hörður
Bragason, organisti og píanóleik-
ari, Birgir Bragason, sem spilar
á kontrabassa, og Hjörleifur
Valsson sem spilar á fiðlu. Þetta
frábæra tónlistarfólk mun gleðja
þá sem sækja æðruleysismess-
urnar í vetur og verður svo einn-
ig á sunnudaginn kemur, en þá
er æðruleysismessa kl. 20.00.
Prestarnir sem annast aðra þjón-
ustu eru Anna Sigríður Páls-
dóttir, sem mun predika, Þor-
valdur Víðisson mun annast
bænina og Karl V. Matthíasson
mun leiða messuna.
Í lok æðruleysismessanna eru
svo oft fyrirbænir en þá ganga
þeir sem vilja upp að altarinu og
leggja ýmis bænarefni sín fram
og er þá beðið fyrri hverju því
sem fólki liggur á hjarta.
Æðruleysismessurnar eru
venjubundið starf í Dómkirkj-
unni, þó þannig að ein messa er í
hverjum mánuði yfir vetrartím-
ann, messan í nóvember var hinn
16., en verður 14. desember.
Allir menn vilja lifa góðu og
áhyggjulausu lífi. Til þess að það
sé hægt verða þeir að hafa ein-
hvern góðan grunn til að standa
á og sá grunnur fæst hvorki úr
ríki Mammons né Bakkusar.
Trúin sem boðuð er í kirkjum
landsins er góður lífsgrunnur og
hefur hún reynst þúsundum
blessun, björgun og líkn. Við
sem stöndum að æðruleysismess-
unum í vetur minnum á að allir
eru velkomnir í þær og vonum
við að sem flestir mæti sjálfum
sér og öðrum til blessunar og
gleði.
KARL V. MATTHÍASSON,
prestur og alþingismaður.
Æðruleysismessur
eru öllum opnar
Frá Karli V. Matthíassyni:
Karl V.
Matthíasson.
Ólafur B. Blöndal, löggiltur fasteignasali.
Borgartúni 22 • 105 Reykjavík • Fax 5 900 808
fasteign@fasteign.is • www.fasteign.is
5 900 800
TIL SÖLU Í LITLAKRIKA MOSFELLSBÆ
M
b
l1056681
Litlikriki 31 einbýlishús með 2 íbúðum.
Um er að ræða 342 m2 einbýlishús á 2.hæðum þar sem að eru 2 íbúðir á
neðri hæð í útleigu alls 170 m2 & aðalhæð með bílskúr alls 172 m2 sem
er tæplega tilbúin til innréttinga. 12 mánaðar leigusamningar með 3ja
mánaðar uppsagnarfresti á íbúðum neðri hæðar. Leigutekjur kr: 210.000.-
á mánuði.
Laust til afhendingar.
Upplýsingar: Sveinn Eyland sölumaður fasteign.is gsm: 6900-820
Litlikriki 25 – fokhelt & fullbúið að utan
Glæsilegt 252,0 m2 einbýlishús á einni hæð með innbyggðum bílskúr. Um
er að ræða vel skipulagt einbýlihús, hannað af arkitektum hjá EON. Húsið
skilast fokhelt í samræmi við ÍST 51:2001. Að utan skilast húsið fullbúið
með ómálaðri hvítri múrhúð en rúmlega fokhelt að innan, öll loft tilbúin til
sandspörslunar.
Verð: 44,8.- millj. rúmlega fokhelt / fullbúið að utan
Verð: 54,3.- millj. tilbúið til innréttinga.
Sími 575 8585 FASTEIGNASALAN ÞÍN www.fmg.is
ÞÓRÐARSVEIGUR - 3JA HERB.
AUK STÆÐIS Í BÍLAGEYMSLU
Mjög falleg og björt 85,9 fm., 3ja herb., íbúð á 2.
hæð auk stæðis í bílageymslu í fallegu lyftuhúsi í
Grafarholti. Þvottahús innan íbúðar. Ljóst beyki
parket og flísar á gólfum. Eldhús, stofa og borð-
stofa er eitt opið og bjart rými, ljóst parket á gólf-
um. Ljós viðarinnrétting í eldhúsi, nýleg Siemens
uppþvottavél fylgir. Þvottaherbergi er rúmgott
með flísum á gólfi. HAGSTÆÐ ÁHVÍLANDI LÁN
TIL YFIRTÖKU CA. 18 MILLJ. V. 23.5 millj.
BERJARIMI - 2JA HERBERGJA
AUK STÆÐIS Í BÍLAGEYMSLU
Falleg 2ja herb.íbúð á 2. hæð í tveggja hæða
fjölbýli, auk stæði í bílageymslu, alls 88,8 fm
með bílskýli. Parket á stofu, borðstofu, gangi og
svefnherbergi, flísar á eldhúsi og baðherbergi.
Opið eldhús með hvítri innréttingu. Rúmgóðar
svalir með markísu yfir. Þvottaherbergi er innan
íbúðar. Geymsla í kjallara. HAGSTÆÐ ÁHVÍL-
ANDI LÁN FRÁ ÍBÚÐALÁNASJÓÐI KR. 17.5
MILLJ. V.20.9 millj.
NÝTT
Á SKR
Á
DOFRABORGIR - 4RA HERB. ENDA-
ÍBÚÐ M. BÍLSKÚR - FRÁB. ÚTSÝNI
Íbúðin er 92,3 fm, geymsla er 11,4 fm og bíl-
skúr 19,5 fm samtals 123,2 fm. Parket á öllum
gólfum nema baðherbergi, þar eru flísar. Fata-
skápar í öllum herbergjum. Rúmgott flísalagt
baðherbergi, tengt fyrir þvottavél. Tvennar svalir
með frábæru útsýni. Bílskúr með sjálfvirkum
hurðaopnara, góðu vinnuplássi og 11,4 fm
geymslu. EIN FALLEGASTA GATAN Í GRAFAR-
VOGI. V. 29,9 millj.
Spöngin 37, 2. hæð. 112 Reykjavík
Sími 575 8585. Fax 575 8586
Sigrún Stella Einarsdóttir
Lögggiltur fasteignasali
NÝTT
Á SKR
Á
NÝTT
Á SKR
Á
FASTEIGN ER TRAUST FJÁRFESTING - ÁHUGAVERÐAR EIGNIR Á WWW.FMG.IS
GSM 824-0610
Áhugavert viðskiptatækifæri
fyrir fjárfesta
TIL SÖLU eignarhaldsfélag með sterka eiginfjárstöðu, sem er
eigandi að stóru óskipulögðu landi á höfuðborgarsvæðinu. Til
greina kemur bæði sala og hlutdeild eða sala á félaginu í heild.
Allar nánari upplýsingar veita Einar Páll Kjærnested og Þorleif-
ur St. Guðmundsson hjá Eignamiðlun Mosfellsbæ í síma
586 8080.
Kjarna • Þverhol t i 2 • 270 Mosfe l lsbær • S. 586 8080 • fax 586 8081
www.fastmos. is, www.eignamidlun. is • Einar Pál l K jærnested löggi l tur faste ignasal i
BRÉF TIL BLAÐSINS
VANDAMÁL eru til þess að leysa
þau og við stöndum frammi fyrir
einu slíku, okkar sterka íslenska
þjóð. Núna höfum við tækifæri á
að gera verulegar umbætur í okk-
ar litla þjóðfélagi, núllstillum.
Við vitum að á undanförnum ár-
um og áratugum hafa ein-
staklingar og ættir á Íslandi söls-
að undir sig mikinn hluta af okkar
sameiginlega afrakstri, afrakstri
dugnaðar og samviskusemi al-
mennings sem á sér fáar hlið-
stæður. Það skal alltaf vera þann-
ig að einn hefur meira en annar
en við vitum að okkur er ekki
sama um þann gífurlega mun sem
hefur verið á Jóni og séra Jóni.
Tölum um hlutina eins og þeir
eru. Það erum við Jón og almenn-
ingur vinir hans, sem þurfum nú
að blæða fyrir sofandahátt þing-
manna, linkind eftirlitsaðila og
taumlausa græðgi efnamanna. Ég
vil að nú sé notað tækifærið og
jafnræði komið á í þjóðfélaginu á
nýjan leik og allir sitji við sama
borð. Fellum niður allar skuldir
einstaklinga við bankakerfið og
látum bönkunum eftir það fé sem
við eigum inni í bönkunum. Þann-
ig losnum við við að reyna að
finna einhvern gengisgrunn til
þess að ákvarða endurgreiðslu á
lánunum og sá auður sem féll í
fárra hendur við kótaúthlutun
kemur að einverju leyti til baka.
80% þjóðarinnar, Jón og hans vin-
ir (jafnvel börn), sem þurfa á
komandi árum að borga óráð-
síueftirstöðvarnar, geta þá gengið
til þess verks.
JÓN ÞÓRARINSSON
Efra-Skarði, Akranesi.
Örlítið annar vinkill
Frá Jóni Þórarinssyni: