Morgunblaðið - 19.10.2008, Blaðsíða 42
42 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. OKTÓBER 2008
✝ Guðný Svein-björg Sigurð-
ardóttir fæddist 12.
febrúar 1930 á Mið-
húsum í Eiðaþinghá.
Hún lést á Fjórð-
ungssjúkrahúsinu í
Neskaupstað laug-
ardaginn 4. október
sl.
Foreldrar hennar
voru hjónin Guðný
Sigurveig Jónsdóttir
frá Finnsstöðum í
Eiðaþinghá, f. 18.11.
1893, d. 6.12. 1963,
og Sigurður Steindórsson frá Mið-
húsum í Eiðaþinghá, f. 3.8. 1884, d.
11.7. 1957.
Sveinbjörg átti fimm systkini 1.)
Anna Björg, f. 11.1. 1915, d. 10.9.
1979. 2.) Magnús, f. 14.11. 1917, d.
17.4. 1983. 3.) Jón, f. 28.7. 1920, d.
14.3. 1990. 4.) Ingunn, f. 13.3.
1923, d. 24.4. 1985. 5.) Steindóra, f.
13.3. 1923.
Sveinbjörg giftist í nóvember
1952 Hallgrími Einarssyni, f. 28.9.
1920, d. 24.6. 2001, frá Fjallsseli í
Fellum. Foreldrar hans voru
Kristrún Hall-
grímsdóttir, f. 26.6.
1879, d. 29.6. 1947,
og Einar Eiríksson,
f. í Bót í Hróars-
tungu 9.4. 1881, d.
11.11. 1959. Svein-
björg og Hall-
grímur eignuðust
fjögur börn. 1.)
Guðný Sigríður, f.
23.4. 1953, maki
Sigmar Hjartarson,
börn þeirra a)
Brynjólfur Einar b)
Sigríður. 2.) Krist-
rún, f. 5.5. 1956, maki Hjörleifur
Alfreðsson, barn hans Birna Þor-
björg. Börn hennar Lilja Íris og
Perla Ósk. 3.) Soffía, f. 8.11. 1959.
4.) Ólafur, f. 13.11. 1966, maki
Vilma Lilý Hallgrímsson. Börn
þeirra a) Sara Ósk b) Ísabella Sif.
Sveinbjörg ólst upp á Mið-
húsum. Árið 1950 fluttist hún til
Eskifjarðar og bjó þar til síðasta
dags.
Útför Sveinbjargar fór fram
frá Eskifjarðarkirkju 11. október
sl.
Elsku mamma mín!
Laugardagurinn 4. október sl.
mun seint líða mér úr minni, fjöl-
skyldan hafði vaknað snemma eins
og ævinlega, morgunverkum var
lokið, konan og Sara Ósk farnar að
skoða nýju verslunarmiðstöðina við
Korputorg þegar mér barst fréttin
af andláti þínu. Ég var einn heima
með Ísabellu Sif. Áfallinu ætla ég
ekki að lýsa hér en það var gíf-
urlegt. Mig langar að þakka þér,
mamma mín, fyrir allt sem þú gerð-
ir fyrir mig, meðan þín naut við.
Það má segja að það hafi verið elju
þinni og þrjósku að þakka að ég er
syndur í dag því þú dróst mig há-
grátandi í sundtíma er þeir hófust á
fyrstu skólaárum mínum. Eljan og
þrjóskan er eitthvað sem ég hlaut í
arf frá þér.
Atvik sem átti sér stað þegar ég
var í áttunda bekk líður mér seint
úr minni, ég hafði verið að lesa fyrir
kristnifræðipróf. Þér þótti ég helst
til fljótur að fara yfir efnið en ég
sagðist hafa lesið allt námsefnið og
vildi fara út í fótbolta. Þú vildir
hlýða mér yfir efnið og það var gert.
Það kom á daginn að efnið hafði
ekki orðið mér minnisstætt og ég
mundi nánast ekki neitt. Þú vildir
að ég læsi betur en eftir mikið rifr-
ildi fór svo að ég skildi þig eftir í
tárum og fór í fótbolta. Daginn eftir
fór ég í prófið og daginn þar á eftir
kom ég heim með hæstu einkunn
eða 10. Eftir þetta fórst þú að
treysta mér fyrir náminu.
Það var alveg sama hvað ég tók
mér fyrir hendur þú studdir mig
alltaf af heilum hug. Ferðir mínar
til Ameríku, Englands og Perú tóku
sjálfsagt á þig en þú lést það aldrei í
ljós. Þegar ég kom svo heim með
konuna mína mér við hlið komuð þið
pabbi bæði fram við hana eins og
ykkar eigið barn frá fyrsta degi. Ég
þakka þér af öllu hjarta fyrir hve
góð þú varst henni. Eftir að Sara
Ósk fæddist, tveimur mánuðum fyr-
ir tímann, hófst þú handa að um-
vefja hana þinni miklu ástúð og
höfðuð þið mikla gleði hvor af ann-
arri. Samtölin ykkar augliti til aug-
litis og í síma voru alltaf ansi
spaugileg og vöktu alltaf mikla kát-
ínu. Öll þau föt og peningar til fata-
kaupa sem þú gafst Söru Ósk og
svo síðar Ísabellu Sif þá níu mánuði
sem þú náðir að njóta hennar þakka
ég þér kærlega. Ísabellu Sif þekktir
þú ekki jafn lengi en þó hafðir þú
hana hjá þér í tvær yndislegar vikur
á liðnu sumri og þakka ég fyrir að
hafa tekið þá ákvörðun að hafa bara
verið með ykkur Soffíu systur þessa
daga. Sú ákvörðun er mér mikils
virði í dag.
Að lokum aðeins þetta, elsku
mamma mín. Fjölskyldan í Gullengi
13 mun sárt sakna þín. Við viljum
þakka þér allt sem þú gerðir fyrir
mig og okkur þessi ár sem við átt-
um saman. Minningin um þig mun
ávallt lifa með okkur þó svo að þú
sért nú komin á vit nýrra ævintýra í
öðru lífi við hlið pabba. Hjartans
þakkir fyrir allt, elsku mamma mín,
og megir þú hvíla í friði.
Þinn sonur,
Ólafur Hallgrímsson.
Fyrir ellefu árum urðu mín fyrstu
kynni af Guðnýju Sveinbjörgu Sig-
urðardóttur þegar ég kom til Eski-
fjarðar með manni mínum Ólafi
Hallgrímssyni.
Frá fyrsta degi komu hjónin
Hallgrímur og Sveinbjörg fram við
mig eins og eina af fjölskyldunni.
Þau hófust þegar handa við að
kenna mér íslenskuna svo ég gæti
tjáð mig við þau og fjölskylduna
alla.
Alltaf gat ég leitað til þín með allt
sem þurfti í það og það skiptið og
skipti þá engu hvort við Óli byggj-
um í Líma eða á Íslandi. Þú varst
alltaf mjög hjálpleg við mig með allt
sem sneri að matseld og bakstri og
varst þú kennari minn í íslenskri
matargerð og er ég þér ævinlega
þakklát fyrir það.
Seint gleymast mér öll þau skipti
er ég kom í kaffi til ykkar Hall-
gríms og hafði ég á orði við son þinn
í fyrsta skipti að sjaldan eða aldrei
hefði ég kynnst öðru eins góðgæti.
Okkur hjónunum lukkaðist að
eignast tvær dætur, Söru Ósk og
Ísabellu Sif og sem betur fer náðir
þú að kynnast þeim báðum áður en
þú kvaddir okkur fyrir fullt og allt.
Mig langar til að þakka þér fyrir þá
ástúð og þann kærleik sem þú sýnd-
ir dætrum mínum og þá sérstaklega
fyrir öll fötin sem þú gerðir á þær
báðar.
Mér eru minnisstæð öll samtölin
sem þú áttir við Söru Ósk í síma og
var mikil kátína þeim fylgjandi.
Nú þegar þú hefur kvatt þetta líf
og sameinast Hallgrími, manni þín-
um, ætla ég ekki að reyna að lýsa
þeim tilfinningum sem mér bærðust
í brjósti og bærast enn við að heyra
þau tíðindi að þú værir dáin.
Tómarúmið sem þú skilur eftir
þig er mjög mikið og það er ekki
það sama að vera hérna á Kirkju-
stíg 8 eins og þegar þú varst á lífi.
Þú munt alltaf vera með okkur í
öllu sem við tökum okkur fyrir
hendur og ég mun sjá til þess að
dætur mínar gleymi ekki Sveinu
ömmu. Ég mun heldur ekki gleyma
þér, Sveina mín.
Vilma Lilý Hallgrímsson
og dætur.
Sveina frænka er kvödd í dag.
Lífsstarf hennar einkenndist öðru
fremur af því að hlúa að fjölskyld-
unni. Hún einskorðaði sig ekki við
Hallgrím manninn sinn og þeirra
börn og barnabörn heldur fannst
okkur frændsystkinum hennar við
öll vera í innsta hring. Sveina rak
heimili af myndarskap og var góð
heim að sækja. Hún var sannur
fulltrúi kynslóðar sem reiddi fram
17 sortir á kaffiborðið og ýmsar
smákökuuppskriftir finnast í okkar
fórum frá henni svo sem eins og
„Veislukökur Sveinu“. Það er samt
svo að þó nákvæmlega hafi verið
farið eftir leiðbeiningunum voru
kökurnar betri þegar þær voru bak-
aðar af og borðaðar með henni.
Sveina var sögumaður og gat
kveðið fast að ef henni þótti þurfa.
Oft gamansöm og tók sjálfa sig
mátulega alvarlega. Það var ekki
alltaf björgulegt vöruúrval á 20. öld-
inni, en systurnar frá Miðhúsum
voru vel skólaðar í höndunum, þær
unnu jöfnum höndum klæðnað á sig
og sína og fína handavinnu. Eitt af
því skemmtilegasta sem maður
skoðaði þegar komið var austur var
þessi afrakstur. Þar voru dúkar,
púðar, ungbarnaföt, peysur og sjöl,
saumur, prjón og hekl. Sköpunar-
gleðin naut sín og með nýrri kyn-
slóð ný tækni eins og afar fagrir
málaðir dúkar Soffíu yngstu dóttur
Sveinu eru gott dæmi um.
Hún föðursystir okkar var heil-
steypt manneskja sem kom til dyr-
anna eins og hún var klædd. Við
viljum þakka henni skemmtilegheit-
in og allan góðan viðurgjörning
gegnum tíðina. Það var alltaf sól á
Eskifirði og jafnlíklegt að hún sæti
á tröppunum þegar við litum við.
Birna, Sigurður, Guðný,
Hans og Guðrún Jónsbörn.
Elsku Sveina frænka.
Ég ætla að skrifa fáein kveðjuorð
til þín. Fyrst kemur upp í hugann
þakklæti fyrir allt sem við áttum
saman. Hlátur því oft var mikið
hlegið við eldhúsborðið og hlýja
faðmlagið þitt og kossarnir. Alltaf
var gaman að heimsækja þig á
Eskifjörð og fá að smakka allar fínu
kökurnar og terturnar sem þú
galdraðir fram úr búrinu. Þú varst
svo myndarleg húsmóðir. Ég heim-
sótti þig í sumar og ekki datt mér í
hug að það væri í síðasta sinn. Takk
elsku Sveina mín fyrir allt.
Börnum þínum, tengdabörnum
og barnabörnum votta ég mína
dýpstu samúð. Blessuð sé minning
þín.
Steinunn Gunnarsdóttir.
Guðný Sveinbjörg
Sigurðardóttir
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is
Vaktsími: 565 5892 & 896 8242 • Sólarhringsvakt
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur
Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar
Suðurhlíð 35 Fossvogi • www.utforin.is
Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 • Sólarhringsvakt
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
Bryndís ValbjarnardóttirSverrir Einarsson
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför
Hermann Jónasson Yvonne Tix
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, systir, amma og
langamma,
INGIBJÖRG GUNNLAUGSDÓTTIR,
Lindargötu 61,
Reykjavík,
lést á heimili sínu sunnudaginn 12. október.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar
látnu.
Steinunn Káradóttir, Eyjólfur Matthíasson,
Gunnlaugur Kárason, Ingibjörg Eðvarðsdóttir,
Guðríður Erla Káradóttir, Kaj J. Durhuus,
Halla Gunnlaugsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Okkar ástkæra móðir, tengdamóðir, amma, lang-
amma og langalangamma,
SVEINSÍNA ODDSDÓTTIR,
Vogatungu 23,
áður Hlíðarvegi 5,
Kópavogi,
sem lést mánudaginn 6. október, verður jarðsungin
frá Kópavogskirkju mánudaginn 20. október
kl. 13.00.
Sigríður Lúthersdóttir, Sveinn Þórðarson,
Jóhann Lúthersson, Magnea Þorfinnsdóttir,
Hilmar Lúthersson, Kolbrún Guðmundsdóttir,
Reynir Lúthersson,
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabörn.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir
og afi,
EINAR KRISTINN FRIÐRIKSSON,
Stelkshólum 4,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju
mánudaginn 20. október kl. 13.00.
María Vilbogadóttir,
Vilbogi M. Einarsson, Heiða B. Jónsdóttir,
Friðrik S. Einarsson, Jakobína Þórey Hjelm,
Kristín H. Einarsdóttir, Þorsteinn A. Þorgeirsson
og barnabörn.
✝
ÍVAR REYNIR STEINDÓRSSON
frá Teigi
Furugrund 66
200 kópavogi,
lést á Landspítalanum við Hringbraut fimmtu-
daginn 16. október.
Útförin fer fram frá Hjallakirkju föstudaginn 24.
október kl. 13.00.
Sólveig Jóhannesdóttir,
Þórarinn Ívarsson, Maitza Esther Pacifico Ospino,
Steindór Ívarsson, Jón Sigurðsson,
Sigurjón Ívarsson, Ásta Guðríður Björnsdóttir,
Guðrún Ívarsdóttir, Þorvaldur Siggason,
Rúnar Ívarsson, Sigrún Sölvey Gísladóttir,
Kolbrún Ívardóttir, Jóhann Anton Ragnarsson,
Ólafur Björn Heimisson, Júlíana Ósk Guðmundsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Hjartans eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
ANNA STEINUNN HJARTARDÓTTIR,
áður til heimilis að Melhaga 6,
Reykjavík,
lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund
aðfaranótt miðvikudagsins 8. október.
Útförin fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík
mánudaginn 20. október kl. 15.00.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Barna-
spítalasjóð Hringsins.
Hannes Þorsteinsson,
Hjörtur Hannesson, Sigrún Axelsdóttir,
Guðrún Hannesdóttir, Vilhjálmur Þór Kjartansson,
Una Hannesdóttir, Geir Ingimarsson,
barnabörn og barnabarnabarn.