Morgunblaðið - 19.10.2008, Síða 47

Morgunblaðið - 19.10.2008, Síða 47
Auðlesið 47 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. OKTÓBER 2008 Tveir menn, Jónas Ingi Ragnarsson og Tindur Jónsson, hafa verið úr-skurðaðir í gæslu-varð-hald til 30. október vegna gruns um aðild að umfangs-mikilli fíkni-efna-framleiðslu í iðnaðar-húsnæði í Hafnarfirði. Hús-leitir voru gerðar á tveimur stöðum í iðnaðar-hverfi í Hafnarfirði þar sem framleiðslan var talin fara fram. Lagt var hald á há-þróaðan tækja-búnað sem nota má til fíkni-efna-framleiðslu. Við hús-leitirnar fundust 20 kíló af hassi, efni á framleiðslu-stigi og full-unnið amfetamín og meta-amfetamín meðal annars. Um nokkurt magn er að ræða. Ekki er hægt að útiloka að efni sem framleidd hafi verið í amfetamínverksmiðjunni hafi verið komið á markaðinn. Mennirnir eru báðir á reynslu-lausn eftir að hafa setið í fangelsi fyrir alvarlega glæpi. Jónas Ingi var dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi árið 2005 fyrir aðild sína að hinu svo-kallaða lík-fundar-máli. Tindur var vorið 2006 dæmdur í sex ára fangelsi fyrir tilraun til mann-dráps með sveðju og fjórar aðrar líkams-árásir. Fyrir dóms-upp-kvaðningu hafði Tindur setið í gæslu-varð-haldi í sex mánuði. Umfangs-mikil fíkni-efna- framleiðsla í Hafnarfirði Hluti af fíkni-efna-framleiðslunni úr amfetamín-verksmiðjunni sem lögreglan hefur lagt hald á. Góð stemning var síðast-liðinn miðvikudag, á fyrsta kvöldi Air-waves-hátíðarinnar, og mætingin ágæt. Á tón-leikum Klives á Hressó og Kerrang-kvöldi á Nasa, þar sem hljóm-sveitirinar Vicky og Our Lives komu meðal annarra fram, slagaði upp í fullan sal. Hinar marg-frægu Air-waves-raðir voru hvergi sjáan-legar og því auðvelt að hoppa á milli staða til að sjá allar mest spennandi hljóm-sveitirnar. Út-sendari Morgun-blaðsins veitti því athygli að bjór-verð hafði verið hysjað tals-vert upp á veitinga-stöðum, hvort sem skýringin á því liggur í óða-verð-bólgu eða hefð-bundinni tæki-færis-mennsku. Bryndís Jakobsdóttir, Dísa, er ein af mörgum tónlistar-mönnum sem koma fram á hátíðinni. Rokkað í skugga kreppu Mikil heift er í heild-sölum vegna þess að viðskipta-sambönd sem hafa varað í ára-tugi eru að flosna upp og verða heild-salar fyrir ó-mældu tjóni því þeir eru á-litnir vera van-skila-menn. Þeir segjast eiga peninga en fá ekki gjald-eyri. Menn fá þau svör að ekki sé til gjald-eyrir. Fólk í út-löndum skilur það almennt ekki. Seðla-bankinn stjórnar flæði gjald-eyris og njóta greiðslur fyrir t.d. mat-vöru og lyf for-gangs. Seðla-bankinn tekur undir með Sam-tökum iðnaðarins um mikil-vægi þess að íslenskum iðnaði verði tryggð að-föng og hrá-efni og tekur fram að að-föng og hrá-efni til iðnaðar verði í forgangs-flokki. En bankinn bendir einnig á að gjald-eyrir er af skornum skammti og því mikil-vægt að inn-flutningur sé tak-markaður við brýnar þarfir. Seðla-bankinn stjórnar flæði gjald-eyris Heildar-ábyrgðir Íslands vegna Ice-save-reikninga Lands-bankans verða um fjórir mill-jarðar evra eða rúm-lega 600 mill-jarðar króna. Breska og hol-lenska ríkið munu gera upp við eigendur reikninganna upp að því marki sem inni-stæður þeirra voru tryggðar og lána íslenskum stjórn-völdum fyrir þeirra hlut í upp-hæðinni. Eignir úr þrota-búi Lands-bankans verða síðan seldar og and-virði þeirra rennur til greiðslu lánsins. Upp-hæðirnar miðast við há-mark þess sem íslenska ríkið gæti þurft að greiða vegna Icesave-reikninganna, 20.887 evrur fyrir hvern reikning. Heildar-upp-hæðin lækkar síðan í takt við hversu mikið tekst að selja af eignum Lands-bankans. Ef Íslendingar þurfa að greiða eitt-hvað úr ríkis-sjóði vegna þessara skuld-bindinga munu þær greiðslur ekki hefjast fyrr en eftir nokkur ár. 600 millj- arða lán Íslensku lands-liðs-mennirnir í fót-bolta færðu íslensku þjóðinni lang-þráða gleði í þeim erfið-leikum sem hún á við að glíma þessa dagana með því að leggja Make-dóna að velli, 1:0, í undan-keppni HM á miðviku-dag. Það var að duga eða drepast fyrir íslenska liðið. Tap hefði þýtt nær von-lausa baráttu um að blanda sér í baráttuna um annað sætið í riðlinum en eftir sigurinn í gær eru allir vegir færir og Ís-land komið í topp-baráttu riðilsins. Make-dónum gekk illa að koma takti í sinn leik og það var aðeins einu sinni í fyrri hálf-leik sem þeir gerðust hættu-legir en Gunn-leifur varði þá vel frá Goran Pandev. Í síðari hálf-leik fór að draga af íslenska liðinu og voru Make-dónar fljótir að bíta á agnið. Smátt og smátt tóku þeir völdin og saumuðu að Íslendingum. Vörnin, sem hafði haldið vel í fyrri hálf-leik, fór að opnast. Jöfnunar-markið virtist í loftinu og pressuðu Make-dónar stíft á. Um tíma voru nánast allir leik-menn Íslands í og við víta-teiginn. Indriði Sigurðsson kom til bjargar á 75. mínútu þegar hann setti fótinn fyrir skot Goran Pandevs. Gunnleifur steig ekki feil-spor í markinu og var öruggur. Hermann átti þó til að hlaupa úr stöðu sinni, Kristján Örn stóð fyrir sínu og bak-verðirnir Indriði og Grétar Rafn. Stefán Gíslason lék vel, einkum framan af, og þeir Aron Einar og Theódór Elmar áttu góða inn-komu. Veigar og Eiður Smári áttu sína spretti en Emil og Birkir Már náðu sér ekki á strik, þeir eiga að geta gert betur. Ísland sigraði Makedóníu Veigar Páll Gunnarsson skoraði sigurmark íslenska liðsins. Morgunblaðið/Brynjar Gauti Kosningar til öryggis-ráðs Sameinuðu þjóðanna fyrir tíma-bilið 2009-2010 fóru fram síðast-liðinn föstu-dag. Ísland var í fram-boði úr hópi Vestur-Evrópu og annarra ríkja sem svo er nefndur, sem jafnan á tvo full-trúa í ráðinu. Ísland náði ekki kjöri heldur voru Austur-ríki og Tyrk-land kosin. Alls greiddu 192 þjóðir at-kvæði og þurfti 128 at-kvæði til að ná kjöri í fyrstu umferð. Tyrk-land fékk 151 at-kvæði, Austur-ríki 133 og Ísland 87. Ákvörðun um fram-boð Íslands var tekin fyrir tíu árum. Ísland náði ekki kjöri

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.