Morgunblaðið - 19.10.2008, Síða 48
48
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. OKTÓBER 2008
Orð dagsins: Vaknið því, þér vitið eigi,
hvaða dag Drottinn yðar kemur.
(Matth. 24, 42.)
Víkverji gladdist þegar hann sá aðjólavörurnar eru komnar í Hag-
kaup. Víkverji er einlægt jólabarn og
er einmitt að byrja að setja sig í réttu
stemninguna. Þess vegna finnst hon-
um jólaskrautið síst of snemma á
ferðinni.
Afgreiðslukonan í Hagkaupum
hafði þó efasemdir um að rétt væri að
hefja sölu á jólaskrauti í október. Vík-
verji lagði sitt af mörkum til að sann-
færa hana um annað og tókst það
þokkalega. „Við þurfum vott af jólum
núna strax,“ sagði Víkverji og af-
greiðslukonan kinkaði samþykkjandi
kolli.
x x x
Víkverji er einlægur aðdáandiBreta og mun aldrei víkja illu
orði að þessari merku þjóð Shake-
speares. Honum finnst ofsi Íslend-
inga í garð bresku þjóðarinnar full-
mikill. Vitaskuld getur kastast í kekki
milli þjóða eins og nú hefur gerst en
þannig mál á að leysa. Það er hlut-
verk stjórnmálamanna og þeir eiga
að standa sig í því. Víkverji ætlar síst
að halda því fram að Gordon Brown
hafi allan sannleikann sín megin en
getur ekki verið að hann hafi eitthvað
örlítið til síns máls? Að þessu spyr
Víkverji í mesta sakleysi en sennilega
er þetta ekki vinsæl spurning.
x x x
Víkverji leggur sitt af mörkum tilað halda hjólum atvinnulífsins
gangandi. Hann kaupir peysur, rauð-
vín, kerti, lambahryggi og alls kyns
skraut. Hann ætlar sannarlega ekki
að verða til þess að kaupmenn þurfi
að loka búðum sínum. Í inn-
kaupaferðum sínum finnur Víkverji
fyrir mikilli samstöðu fólks. Allir
segja það sama: „Við komumst í
gegnum þetta!“
Víkverji fagnar þessu hugarfari.
Hann finnur sterklega til þess að
hann er hluti af þjóð sem verður að
standa saman ætli hún sér að lifa af.
En um leið harðneitar Víkverji að
hata Breta, sína miklu vinaþjóð. vík-
verji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 skessa, 4
bjarta, 7 þreyttur, 8
vottar fyrir, 9 vond, 11
elskuðu, 13 skjótur, 14
svera, 15 hrúgu, 17 lofa,
20 hryggur, 22 spjalla,
23 fastheldni, 24 veslast
upp, 25 virðir.
Lóðrétt | 1 borguðu, 2
ágengur, 3 fífl, 4 stutta
leið, 5 hyggur, 6 hinar,
10 jurt, 12 ótta, 13 skip,
15 vitur, 16 heimild, 18
logið, 19 verur, 20
drepa, 21 brosa.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt:1 gjörvuleg, 8 hendi, 9 tylft, 10 púa, 11 flani, 13
narra, 15 stutt, 18 órögu, 21 arg, 22 lamið, 23 ellin, 24
glaðnings.
Lóðrétt: 2 jánka, 3 reipi, 4 urtan, 5 eflir, 6 óhóf, 7 átta,
12 nyt, 14 aur, 15 súld, 16 urmul, 17 taðið, 18 ógeði, 19
öflug, 20 unna.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Þreyttur Þjóðverji.
Norður
♠KG92
♥Á4
♦Á1097
♣ÁK4
Vestur Austur
♠104 ♠83
♥KG972 ♥D1083
♦D42 ♦G83
♣985 ♣G632
Suður
♠ÁD765
♥65
♦K65
♣D107
Suður spilar 6♠.
Menn geta ruglast í ríminu í löngum
mótum. Í viðureign við Hollendinga í 8
liða úrslitum heimsleikanna fékk Þjóð-
verjinn Josef Piekarek út hjarta gegn
6♠. Hvernig myndi lesandinn spila?
Ef til vill eins og Hollendingurinn
Huub Bertens á hinu borðinu. Hann
fékk líka út hjarta, tók með ás og tvisv-
ar tromp. Hreinsaði upp laufið og sendi
vörnina inn á hjarta. Það gefur samn-
inginn strax að spila í tvöfalda eyðu og
því er skárra að opna tígulinn, þótt það
dygði ekki. Austur skipti yfir í ♦G, en
sagnhafi drap heima og svínaði fyrir
♦D í vestur. Vanur maður.
En hvað gerði Piekarek? Hann tók
fimm sinnum spaða (?!) og fór á end-
anum þrjá niður. Skýringin kom í ljós
síðar – Piekarek hélt að hann væri að
spila sex grönd en ekki sex spaða.
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Himintunglin gefa ekki í skyn nein
frávik frá daglegri rútínu hrútsins en samt
sem áður er eitthvað öðruvísi í hans fari.
Lymskulegt bros ber því vitni.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Þú leggur þitt af mörkum, þótt ekki
sé beðið um það, og ástvinir reiða sig á það.
Framlag þitt er mikils metið.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Þú leiðir einhvern, sporðdreka
eða krabba, á ókunna stigu sem þú þekkir
vel. Þú ert fullkominn leiðsögumaður og
vekur traust hjá hinum óttaslegnu.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Þú vinnur innan kröfuharðrar
stofnunar og þarft að taka þér frí. Andi
þinn lyftist í návígi við manneskju sem
neitar að falla inn í fjöldann.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Eitt af því sem er aðlaðandi í fari
ljónsins, er getan til þess að segja hvert er
vandamálið. Til allrar hamingju er hlut-
tekning einn af kostum þínum líka.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Meyjan er misskilin og nú hjálpa
himintunglin henni við að laga það. Talaðu
máli þínu einu sinni enn. Bogmenn og fisk-
ar eru líklegastir til að leggja þér lið.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Vogin sér heiminn í gegnum linsu
duttlunganna. Það er engu líkara en að
ástargyðjan Venus hafi smellt fingrunum
og snúið öllu því sem þú þekkir á hvolf.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Margbrotnar áætlanir um frí
þarfnast skipulagningar fyrirfram og nú er
rétti tíminn til þess að sinna þeim.
Skemmtilegar fyrirætlanir ýta undir stöð-
ugleika í heimilislífinu.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Einhver kærkominn úr fortíð-
inni þráir eitthvað í þínu fari sem ekki er
hægt að lýsa öðruvísi en sem áru. Styrkur
hugsana viðkomandi gæti náð að hafa áhrif
á þínar eigin hugsanir.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Himintunglin efla leiðtogann
sem býr innra með þér. Þú ræður við það
sem gengur á í vinnunni. En er ekki kom-
inn tími til að aðrir leggi sitt af mörkum?
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Aðstæður sem skapast eftir há-
degi í dag tappa af uppsprettu tilfinning-
anna innra með þér. Það er svo hrærandi
upplifun að þú vilt borga fyrir meira.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Kominn er tími fyrir fiskinn til að
finna sér hjálp sem getur létt undir í dag-
legu amstri. Einhver sem áður var hægt að
leita til er ekki jafn oft til reiðu .
Stjörnuspá
Holiday Mathis
19. október 1898
Hús Barnaskóla Reykjavíkur
við Fríkirkjuveg var vígt (nú
nefnt Miðbæjarskólinn). Húsið
var byggt úr timbri vegna þess
að jarðskjálftarnir haustið
1896 „voru ráðandi mönnum í
bæjarstjórn í of fersku minni til
þess að þeir teldu hættandi á að
byggja steinhús,“ segir í Ár-
bókum Reykjavíkur.
19. október 1918
Spænska veikin barst til lands-
ins með tveimur skipum, öðru
frá Kaupmannahöfn, hinu frá
New York. Í þessari skæðu
inflúensu létust á fimmta
hundrað manns.
19. október 1919
Smásaga eftir Halldór Lax-
ness, sú fyrsta á erlendu máli,
birtist í danska blaðinu Sön-
dags BT. Hann var þá 17 ára.
Sagan heitir „Den tusindaarige
Islænding“ og síðar birt á ís-
lensku undir nafninu Heiðbæs.
19. október 1929
Símalínur sunnanlands og aust-
an voru tengdar saman, þegar
framkvæmdum lauk við lagn-
ingu síma á Skeiðarársandi.
„Þar með er í fyrsta sinn komið
samfellt símasamband kring-
um allt land,“ sagði Lögrétta.
19. október 1965
Fyrsta plata Hljómsveitar Ingi-
mars Eydal kom út. Á plötunni
voru fjögur lög, Litla sæta ljúf-
an góða, Á sjó, Komdu og Bara
að hann hangi þurr.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist …
HALLDÓRA Ólafsdóttir, geðlæknir, fagnar 60 ára af-
mæli sínu í dag. Halldóra er fædd og uppalin á Ak-
ureyri, en fluttist til Reykjavíkur þegar hún hóf nám í
læknadeild Háskólans og hefur búið þar síðan, að und-
anskildum nokkrum árum sem hún dvaldi við fram-
haldsnám í geðlækningum í Bandaríkjunum. Halldóra
er gift Kjartani Mogensen landslagsarkitekt. Halldór á
tvær dætur.
Sú eldri, Anna, er doktor í atferlisfræði og búsett í
Texas sem háskólakennari, en sú yngri, Helga, er búsett heima ennþá og er
í læknanámi. „Þetta er arfgengur kvilli að fara í læknisfræðina, faðir minn
var læknir líka,“ segir Halldóra. Sjálf starfar hún sem yfirlæknir á göngu-
deild og bráðamóttöku hjá geðdeild Landspítalans og segir að baráttan við
geðsjúkdómana sé hennar aðalstarf en um leið helsta áhugamál líka.
Engu að síður á Halldóra sér ýmis önnur áhugamál líka, er t.d. mikill
lestrarhestur og segir jólabókaflóðið árvissa tilhlökkun. „Ég les mikið fag-
bækur en líka skáldsögur og svo ævisögur, sérstaklega núna þegar maður
er farinn að eldast,“ segir Halldóra og hlær. Hún nýtur þess jafnframt að
vera í góðum félagsskap vina og kunningja en ekki síður hundsins síns,
hennar Mónu Lísu, sem er stór og falleg gul labradortík. Halldóra segist
ekki vera vön því að halda upp á afmælið, „en í þetta skiptið ætlar ég að
bjóða nánustu samstarfsmönnum auk nokkurra vina og ættingja heim í létt-
ar veigar.“ una@mbl.is
Halldóra Ólafsdóttir, geðlæknir, 60 ára
Læknisfræði algengur kvilli
Neskaupstaður Smári
Leví fæddist 1. september.
Hann vó 3.480 g og var 51
cm langur. Foreldrar
hans eru William Geir
Þorsteinsson og Jóhanna
Smáradóttir.
Odense Hekla Rós fædd-
ist 2. september kl. 21.45 í
Danmörku. Hún vó 3.645
g og var 51 cm löng. For-
eldrar hennar eru Jac G.
Norðquist og Guðbjörg
Jónsdóttir.
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig töl-
urnar 1-9 og aldrei má tví-
taka neina tölu í röðinni.
Sudoku
dagbók
Í dag er sunnudagur 19. október,
293. dagur ársins 2008
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. d4 d6 2. Rf3 Rf6 3. c4 g6 4. Rc3 Bg7
5. e4 0-0 6. Be2 Bg4 7. Be3 Rfd7 8. Hc1
c5 9. d5 Ra6 10. h3 Bxf3 11. Bxf3 Rc7
12. Be2 a6 13. a4 He8 14. h4 e6 15. h5
exd5 16. exd5 Hxe3 17. fxe3 Dg5 18.
Kf2 He8 19. Hh3 Hxe3 20. Hxe3 Bd4
21. Dd2 f5 22. Rd1 f4 23. Bf3 Re5 24.
Ke2 fxe3 25. Rxe3 b5 26. b3 De7 27.
hxg6 hxg6 28. Dc2 bxc4 29. bxc4 Bxe3
30. Kxe3 Rxc4+ 31. Kf2 De3+ 32. Kg3
Re5 33. Hd1 Dg5+ 34. Kf2 Re8 35. Db3
Df4 36. Kg1 Kg7 37. Be2 a5 38. Db7+
Kh6 39. De7 Rf6 40. De6 De3+ 41. Kf1
Staðan kom upp spænska meist-
aramótinu í Ceuta. Stórmeistarinn Yu-
len Arizmendi (2.524) hafði svart gegn
alþjóðlega meistaranum Aljeandro
Franco (2.472). 41. … Reg4! og hvítur
gafst upp þar sem fátt væri til varnar
eftir 42. Bxg4 Re4.
Svartur á leik.
Nýirborgarar
Reykjavík Kalla María
fæddist 2. júní kl. 11.32.
Hún vó 4.775 g og var 57
cm löng. Foreldrar henn-
ar eru Andrea Hilm-
arsdóttir og Hjörtur Lín-
dal Jóhannsson.
2 3 5 4 1
1 3 8 7
4 6 1
4 2 9
8 5 6 2 7
9 7 8
9 4 2
5 7 4 6
9 2 1 6 7
Frumstig
6 2
2 9 8 5 1
7 1 9
3 7 4 1
3 2 1 7
7 1 6 4
7 5 9
2 9 8 7 5
5 2
Miðstig
3 6 5 7
5 8 2
8 7 3 2 5
2 1 4 7
4
6 4 3 1
2 9 5 6 7
8 4 6
6 4 2 3
Efstastig
6 9 7 8 3 1 4 5 2
1 4 2 5 6 7 8 3 9
8 5 3 9 2 4 1 6 7
5 7 8 3 4 2 9 1 6
9 2 6 1 8 5 7 4 3
4 3 1 7 9 6 2 8 5
3 1 4 6 7 9 5 2 8
2 6 9 4 5 8 3 7 1
7 8 5 2 1 3 6 9 4
Lausn síðustu Sudoku.
8 5 6 2 9 4 7 1 3
7 3 4 8 5 1 6 2 9
9 1 2 7 6 3 4 5 8
1 7 9 5 4 2 3 8 6
6 2 5 3 7 8 9 4 1
4 8 3 9 1 6 2 7 5
3 6 7 1 2 5 8 9 4
5 9 8 4 3 7 1 6 2
2 4 1 6 8 9 5 3 7
9 8 2 4 1 6 7 3 5
4 3 6 8 7 5 2 9 1
1 7 5 2 3 9 4 6 8
6 1 8 9 4 2 5 7 3
7 2 9 1 5 3 8 4 6
3 5 4 6 8 7 1 2 9
2 6 7 5 9 8 3 1 4
5 9 1 3 2 4 6 8 7
8 4 3 7 6 1 9 5 2