Morgunblaðið - 19.10.2008, Qupperneq 53
53
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. OKTÓBER 2008
Áráðstefnunni bar fjöl-margt forvitnilegt ágóma, sem við var að bú-ast, ekki síst það að eftir
allan þann tíma frá því tónlist tók
að streyma um netið snúast um-
ræður að stórum hluta enn um það
sama: Hvernig getum við bjargað
tónlistariðnaðinum?
Annað sem ég hjó eftir var þeg-
ar Mark Chung, sem var eitt sinn
bassaleikari í Einstürzende
Neubaten, mærði þá hugmynd sem
menn virðast vera að velta fyrir
sér austur í Frakklandi og lýsa má
sem svo að sú kvöð verði lögð á
netþjónustur að fylgjast með net-
notkun notenda sinna (les: njósna
um viðskiptavini sína) svo hægt sé
að loka fyrir þá sem deila tónlist
eða höfundarréttarvörðu efni í
leyfisleysi.
Geggjaðar hugmyndir
Nú er það ekkert nýtt að frá
plötufyrirtækjum komi geggjaðar
hugmyndir um það hvernig þau
geti helst komið í veg fyrir fram-
tíðina, geti svipt fólk því frelsi sem
netvæðing hefur haft í för með sér.
Það er þó merkilegt að menn séu
enn við sama heygarðshornið eftir
allan þennan tíma, og ekki síður
merkilegt að þeir telji vænlegri til
árangurs hugmyndir sem eru ekki
framkvæmanlegar tæknilega og
brjóta í bága við almenn mannrétt-
indi (nema kannski undir alræð-
isstjórn að kínverskri fyrirmynd).
Annað þótti mér merkilegt í máli
Chungs þegar hann talaði um að
enginn hefði „meikað það“ á
Myspace (álíka bergmálaði reynd-
ar í orðum Einars Arnar Bene-
diktssonar í erindi sem hann flutti
síðar um daginn þegar hann
heimtaði af áheyrendum tölu yfir
fjölda MySpace-milljónunga).
Þetta sýnir að nokkru hve lituð
umræðan er af hugmyndum fyrri
tíma, þess tíma þegar menn voru
ekki búnir að „meika“ það nema
þeir væru komnir á þann stall að
geta geta reitt peninga og eiturlyf
í sekkjum og haft mök við fyr-
irsætur í límúsínum.
Óskirnar rætast
Á MySpace eru milljónir tónlist-
armanna með síður, hugsanlega
tugmilljón tónlistarmanna og
hljómsveita. Víst langar flestar,
jafnvel allar, til að græðast svo
mikið fé að geta lifað í vellyst-
ingum endlalaust, en velflestar eru
ekki beinlínis að leita að því þegar
þær setja lag inn á MySpace.
Kynni mín af tónlistarmönnum í
gegnum árin hafa nefnilega leitt
mér í ljós þau sannindi að alla
jafna eru listamenn að leita að eyr-
um, að leita að einhverjum sem vill
hlusta og um leið með þá von í
hjarta að geta hugsanlega fundið
svo mörg eyru að geta jafnvel gert
tónlistina að aðalstarfi.
Hvað ætli margir listamenn sem
hafa sett lag eða lög inn á My-
Space í þeirri von að þeir fengju
að spila á tónleikum hafi fengið
ósk sína uppfyllta? Ég myndi giska
á að þeir skipti hundruðum þús-
unda. Eru þeir þá ekki búnir að ná
takmarki sínu? Búnir að „meika“
það?
Hvað ætli margir listamenn sem
hafa sett lag eða lög inn á My-
Space í þeirri von að þeir gætu
gefið út plötu eða komið lagi á
safnplötu hafi fengið ósk sína upp-
fyllta? Þeir eru einhver þúsund,
hlaupa kannski á tugum þúsunda.
Eru þeir þá ekki búnir að ná því
sem þeir ætluðu sér og búnir að
„meika“ það?
Uppskurðurinn mikli
Á ráðstefnunni stóð kanadískur
blaðamaður upp og skýrði frá því
að allir hans kunningjar og vinir
ræddu aldrei um stóru plötufyr-
irtækin án þess að tvinna saman
við heiti þeirra einhverju mergjuðu
blótsyrði. Að mínu viti ættu menn
að spyrja sig: Hvers vegna ættum
við að bjarga tónlistariðnaðinum í
núverandi mynd? Er hann ekki
gott dæmi um óskilvirkt og kostn-
aðarsamt fyrirbæri sem þarf sár-
lega á endurskipulagningu að
halda, þarf að bregðast við breytt-
um tímum, finna nýjar leiðir til
tekjuöflunar og nýjar leiðir til að
endurvinna það traust sem hann
hefur tapað á undanförnum árum?
Innan tónlistariðnaðarins býr
mikil þekking og þar starfar fjöl-
margt fólk sem valdi sér vinnuna
vegna tónlistarástríðu. Til þess að
það fái að njóta sín þarf að skera
upp, breyta áherslum og bregðast
við nýjum tímum. Það vinnur eng-
inn sitt dauðastríð.
Hverju á að bjarga?
» Það er ekkert nýtt aðfrá plötufyrirtækjum
komi geggjaðar hug-
myndir um það hvernig
þau geti helst komið í
veg fyrir framtíðina.
Öflugir Bandaríska tvíeykið I Set My Friends on Fire setti lög inn á
MySpace og fékk plötusamning í kjölfarið. Sveitarmenn eru því búnir að
„meika“ það þótt þeir séu ekki orðnir milljónungar.
Nýir tímar í dreifingu og markaðssetningu á tónlist eru í deiglunni nú sem
endranær og þá bar á góma í ráðstefnunni You Are in Control sem Útflutn-
ingsskrifstofa íslenskrar tónlistar hélt í vikunni.
TÓNLIST Á SUNNUDEGI
Árni Matthíasson
í samstarfi við Borg
arleikhúsið kynnir:
Höfundar og flytjendur:
Margrét Sara Guðjónsdóttir
Sveinbjörg Þórhallsdóttir
Jared Gradinger
30. október kl. 20 UPPSELT
1. nóvember kl. 15
2. nóvember kl. 20
Aðeins þessar 3 sýningar!
Sýnt á Stóra sviði
Borgarleikhússins
Tryggðu þér miða núna!
s. 568 8000 eða á midi.is
PRIVATE DANCER
www.panicproductions.is
MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ
ÁSKRIFTASÍMI 569 1100
Vöggusæn
gur
vöggusett
PÓSTSENDUM
Skólavörðustíg 21 ● sími 551 4050 ● Reykjavík