Morgunblaðið - 19.10.2008, Blaðsíða 56
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. OKTÓBER 2008
SÝND Í KRINGLUNNI
VIPSALURINNER BARA LÚXUS
ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA
OG AKUREYRI
BESTA MYNDIN
TEDDY AWARDS BERLINALE FILM FESTIVAL
„HUGLJÚF SKEMMTUN”
- HS, MBL
„MYND SEM EKKI ER
HÆGT AÐ GLEYMA SVO
AUÐVELDLEGA”
- S.M.E., MANNLÍF
SÝND Í KRINGLUNNI
JÁKVÆÐASTA MYND ÁRSINS
MYND SEM ÞÚ VERÐUR AÐ SJÁ
-BBC
-HJ.,MBLSÝND Á KEFLAVÍK OG SELFOSSI
-IcelandReview
-B.S., FRÉTTABLAÐIÐ
-S.M.E., MANNLÍF
-DÓRI DNA, DV
SPARBÍÓ á Journey To The Centre Of The Earth sýningar merktar með grænu850 krr
SEX DRIVE kl. 6 - 8:10 - 10:30 B.i. 12 ára
NIGHTS IN RODANTHE kl. 5:50 - 8:10 LEYFÐ
HAPPY GO LUCKY kl. 8 B.i. 12 ára
QUEEN RAQUELA kl. 10:20D B.i. 12 ára DIGITAL
DEATH RACE kl. 10:20 B.i. 16 ára
JOURNEY TO THE... kl.1:403D-3:503D-63D LEYFÐ 3D - DIGITAL
WILD CHILD kl. 1:40 - 3:50 LEYFÐ
GEIMAPARNIR m/ísl. tali kl. 2 - 4 LEYFÐ
/ KRINGLUNNI
SEX DRIVE kl. 1:50 - 5:50 - 8 - 10:20 B.i. 12 ára
SEX DRIVE kl. 3:40 - 8 - 10:20 LÚXUS VIP
MAX PAYNE kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:10 B.i. 16 ára
NIGHTS IN RODANTHE kl. 1:30 - 3:40 - 5:50 - 8 - 10:10 LEYFÐ
PATHOLOGY kl. 8 - 10:20 B.i. 16 ára
WILD CHILD kl. 3:40 - 8 LEYFÐ
GEIMAPARNIR m/ísl. tali kl. 1:50 - 4 LEYFÐ
JOURNEY TO ... kl. 3:40 3D - 5:50 3D LEYFÐ 3D-DIGITAL
TROPIC THUNDER kl. 10:20 B.i. 16 ára
SVEITABRÚÐKAUP kl. 5:50 LEYFÐ
S.W. - CLONE WARS kl. 1:30 LEYFÐ
WALL-E m/ísl. tali kl. 1:30 LEYFÐ
/ ÁLFABAKKA
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, KEFLAVÍK OG AKUREYRI SÝND Í ÁLFABAKKA
SEX DRIVE FER FRAM
ÚR AMERICAN PIE
Á 100 KM HRAÐA!
MAGNAÐUR SPENNUTRYLLIR!
ENGIN MISKUNN. BARA SÁRSAUKI!
HVERNIG MYNDI LÆKNANEMI
FRAMKVÆMA HIÐ FULLKOMNA MORÐ!?
ATH. STRANGLEGA
BÖNNUÐ INNAN 16 ÁRA.
SÝND Í KRINGLUNNI
„VIÐBJÓÐSLEGA FYNDIN OG SKEMMTILEG
GRÍNMYND. KLÁRLEGA EIN AF ÓVÆNTARI
RÆMUMÁRSINS. TÉKKIÐ Á HENNI!”
-TOMMI, KVIKMYNDIR.IS
ÁLFABAKKA OG AKUREYRI
TOPP
GRÍNMYND
Valið var erfitt í upphafi þriðja Air-waves-kvöldsins, það stóð á milli töff-aradúettanna Esju eða BB & Blake. Sá
fyrrnefndi varð fyrir valinu, salurinn var orð-
inn nokkuð þéttur þetta snemma kvölds og
Esjumennirnir Daníel Ágúst og Krummi ollu
engum vonbrigðum. Mjaðmahnykkir þeirra
félaga bættu einhverjum töfrum við tónlistina
og kynþokkinn nánast lak niður af sviðinu.
Gott var að koma út í ferskt kvöldloftið eftir
þennan funhita og rölta í Iðnó þar sem Ben
Frost átti næsta leik á Bedroom Community-
kvöldi. Þar var stemningin ívið rólegri, flottu
vídeólistaverki var varpað á tjald í takt við
raftónlist Bens sem leiddi fólk í hálfgerðan
trans. Í listrænum hápunkti eins lagsins, sem
var nánast þögn, missti einn áhorfandi bjór-
flösku í gólfið með tilheyrandi hávaða og
kippti fólki aftur til raunveruleikans.
Næst á eftir komu á svið stúlkurnar í Amiinu ásamt raftónlistarmanninum
Kippa Kanínus. Þessi samsuða gekk mjög vel
upp, krúttin urðu allt í einu svolítið röff. Eftir
nokkra tóna frá Bandaríkjamanninum Sam
Amidon var komið að Seabear í Hafnarhús-
inu. Ég heyrði í þeim á Airwaves í fyrra í Iðnó
og eitthvað fannst mér upp á vanta þá. Slíkt
var ekki í boði nú, það var kraftur í sveitinni
sem stóðst allar væntingar og vel það. Það
átti vel við að Hjaltalín í viðhafnarútgáfu tæki
við af Seabear, tvær heimilislegar hljóm-
sveitir sem kalla á kaffi og eldhúsborð. Há-
punktur tónleika Hjaltalín ef ekki hápunktur
Airwaves var þegar lagið „Þú komst við
hjartað í mér“ var leikið og stuðkóngurinn
Páll Óskar var kallaður á sviðið. Salurinn
trylltist og þegar Páll bað fólk um að klappa
fór hver einasta lúka á loft.
Valgeir Sigurðsson átti næstur leik í Iðnóen þegar þangað var komið hafði dag-
skránni seinkað um klukkutíma. Er það óvið-
unandi á slíkri hátíð. Valgeir byrjaði hálf-
brösulega vegna tækniörðugleika en fann
fljótt taktinn og náði upp góðri stemningu.
Kvöldinu lauk svo á Motion Boys á Nasa. Ekki
sá fyrir endann á röðinni sem hafði myndast
fyrir utan staðinn, fólk var greinilega komið í
þörf fyrir að skekja skankana. Motion Boys
stóðust allar skemmtanavæntingar en það
verður að segjast að Björn trommari hefði
getað staðið einn fyrir stuðinu, svo öflugur
var hann á settinu. ingveldur@mbl.is
Blússandi kynþokki og röff krútt
FRÁ AIRWAVES
Ingveldur Geirsdóttir
»Hápunktur tónleika Hjaltalín ef ekki hápunktur
Airwaves var þegar lagið „Þú
komst við hjartað í mér“ var
leikið og stuðkóngurinn Páll
Óskar var kallaður á sviðið.
Salurinn trylltist.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Heimilislegir Hjaltalín kom fram í viðhafnarútgáfu í Hafnarhúsinu.