Morgunblaðið - 19.10.2008, Síða 60
SUNNUDAGUR 19. OKTÓBER 293. DAGUR ÁRSINS 2008
Heitast 4 °C | Kaldast -6 °C
NA og slydda eða
snjókoma SA-lands,
18-23 m/s síðdegis.
Annars NA 5-13 og
skýjað m. köflum. » 10
ÞETTA HELST»
Blóðslettur ljúga ekki
Rannsóknir á blóði og blóðslettum
geta staðfest eða hrakið frásagnir
vitna af því hvernig atburðarás sem
leiddi til glæps fór fram. Það sann-
aðist glögglega í tveimur nýlegum
dæmum frá tæknideild lögregl-
unnar. »20–21
Einn valdamesti Bretinn
Robert Peston, viðskiptaritstjóri
BBC, er talinn valdamesti fjölmiðla-
maður Bretlands og þriðji valda-
mesti maður á eftir Gordon Brown
og Alistair Darling. Sagt hefur verið
um hann síðustu vikurnar að orð frá
honum hafi getað sett banka á hvolf
eða bjargað þeim frá falli. »34–35
Fordæmi frá Færeyjum
Frændur okkar í Færeyjum hafa
gengið í gegnum svipaðar þreng-
ingar og við tökumst nú á við en á 10.
áratugnum urðu stærstu viðskipta-
bankar þeirra gjaldþrota einn af
öðrum. Bankakreppa okkar er þó
ólík þeirra að því leyti að vandamál
okkar eiga sér rætur í alþjóðlegum
aðstæðum. »28
Ekki venjulegur fundur
Fulltrúar Seðlabankans og við-
skiptaráðuneytisins voru meðal
þeirra sem viðstaddir voru fund
Landsbankans í sumar þar sem
skýrsla breskra hagfræðinga um ís-
lenska hagkerfið var kynnt. Nið-
urstöðurnar voru þær að ógnvæn-
legar blikur væru á lofti. »2
SKOÐANIR»
Staksteinar: Áfram konur!
Forystugreinar: Glæpir á Íslandi
Reykjavíkurbréf
Ljósvakinn: Trúi og huggast læt
UMRÆÐAN»
Borgar sig að leita vinnu erlendis?
Grænakortslotterí á hverju ári
Lítil bón um að ætla sér af
Efnahagsbandalag N-Atlantshafs
Ráðherrar, ráðningar …
Virkjum lýðræðið
ATVINNA»
TÓNLIST»
Ekkert að gerast hjá
Merzedes Club. » 57
Liam Watson, upp-
tökustjóri Lay Low
og White Stripes,
notast nær eingöngu
við tæki framleidd
fyrir 1963. » 50
TÓNLIST»
Diskar ekki
alslæmir
TÓNLIST»
Nýi diskurinn er „sann-
kallað listaverk“. » 52
TÓNLIST»
Salurinn trylltist á
hápunkti Airwaves. » 56
Bjork.com er ítar-
legasta síða sem
gerð hefur verið fyr-
ir íslenskan tónlist-
armann; mikið magn
upplýsinga. » 54
Allt um
Björk
VEFSÍÐA»
reykjavíkreykjavík
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í LAUSASÖLU 395 ÁSKRIFT 2950 HELGARÁSKRIFT 1800 PDF Á MBL.IS 1700
VEÐUR»
» VEÐUR mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Milljarða bakreikningur
2. Ísland hafi orðið fyrir auðmýkingu
3. „Það er búið að þurrausa sjóðinn“
4. Millifærslur milljarðamærings …
Þjóðleikhúsinu
Frida...
viva la vida
Eftir Ylfu Kristínu K. Árnadóttur
ylfa@mbl.is
ÓNEITANLEGA var töluverð
spenna í húsnæði Frumherja í gær
þegar tuttugu blindir og sjónskertir
fengu fágætt tækifæri til að setjast í
ökumannssæti bifreiðar og aka um
nálæg svæði – að sjálfsögðu undir
vökulum augum ökukennara í far-
þegasætinu sem gátu gripið í taum-
ana ef þess gerðist þörf.
Ökudagur blindra og sjónskertra
hefur einu sinni verið haldinn áður
en það var fyrir tólf árum og því ljóst
að lengi hafði verið beðið eftir þessu
tækifæri. Augljóst var að fleiri en
ökumennirnir voru upprifnir yfir
ökutúrnum því margir ættingjar
stóðu úti þennan kalda laugardags-
morgun með myndavélar og fylgdust
spenntir með ökukennurunum leiða
hina tilvonandi ökumenn að bílunum.
Meðan beðið var eftir að röðin
kæmi að þeim sátu nokkrir inni og
yljuðu sér og slógu á létta strengi.
Tveir blindrahundar biðu spakir hjá
og stakk einhver upp á því að þeim
yrði einnig leyft að keyra. Þá var
svarað að bragði að hundarnir væru
eflaust betri ökumenn en eigendurn-
ir og uppskar það mikinn hlátur.
Ekki voru allir að keyra í fyrsta
skipti en nokkrir höfðu fengið að
spreyta sig fyrir tólf árum. Þá voru
nokkrir sem höfðu tekið bílprófið áð-
ur en sjónin skertist eða hvarf með
öllu. Sumir fengu að hafa farþega í
bílnum en ekki treystu allir sér til
þess. „Ég fer ekki með þér í bíl, ekki
að ræða það!“ heyrðist ein segja
glettnislega við blindan kærasta
sinn.
Blindir undir stýri
„Ég fer ekki með
þér í bíl, ekki að
ræða það!“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Spenntur Friðgeir Jóhannesson missti sjónina í slysi fyrir 10 árum. Hann viðurkenndi að þetta væri ekki í fyrsta
sinn sem hann æki bíl eftir slysið. Hann hefur tvisvar ekið eftir flugbrautinni á Ólafsfirði, undir eftirliti.
„MAÐUR verður talsvert var við fordóma hjá
unglingunum og þeir beinast fyrst og fremst
gegn útlendingum, aðallega Pólverjum,“ segir
Hafsteinn Vilhelmsson, starfsmaður í fé-
lagsmiðstöðinni Miðbergi í Breiðholti. „Mér
fannst þetta talsvert vandamál í fyrra og hitti-
fyrra en það er eins og þetta sé aðeins að lagast
núna. Kannski vegna þess að krakkarnir eru
byrjaðir að venjast því að hér sé fjölmennur hóp-
ur Pólverja.“ Hafsteinn segir jafnframt að ung-
menni, eins og eldra fólk raunar líka, hafi til-
hneigingu til að alhæfa.
Viðmælendur Morgunblaðsins eru sammála
um að fordómar beinist einkum gegn útlend-
ingum á Íslandi en samkynhneigðir verði ekki
varir við þá í ríkum mæli og kvenfyrirlitning
virðist á undanhaldi. | 36
Fordómar bitna
á útlendingum
UM 400 manns misstu vinnuna, nánast á einu
bretti, þegar Nýi Landsbankinn og Nýi Glitnir
tóku yfir starfsemi gömlu bankanna og fleiri upp-
sagnir í bankageiranum eru yfirvofandi.
Í afgreiðslu aðalútibúsins var allt yfirfullt af
fólki sem vildi taka út peninga sína en vissi samt
ekki hvað það vildi gera við þá. Það hrikti í und-
irstöðum samfélagsins. „Það var eins og hafið
væri stríð,“ sagði bankastarfsmaður. „Ég get
ímyndað mér að ástandið hafi verið svipað þegar
Bretar komu með herskipin í þorskastríðinu á sín-
um tíma. Það var búið að taka af fólki ráðin – og
sjálfstæðinu var ógnað.“
Starfsmönnum bankanna í útlöndum fannst
ömurlegt að fylgjast með hruninu og ekki bætti úr
skák að sumir urðu fyrir áreitni og ágengni fjöl-
miðla. | 26
„Eins og hafið væri stríð“
Allt yfirfullt af fólki sem vildi taka út peningana sína
Morgunblaðið/Árni Sæberg