Skinfaxi - 01.04.1939, Qupperneq 24
24
SKINFAXI
afstöðu gegn því, sem illt er, af lieitri og þungri tilfinn-
ingu. Það er ekki gæfulegt, að gæla við bölvun þjóðar
sinnar.
Undanfarna daga liefi eg verið á fundum með ung-
mennafélöguni, sem eg hefi aldrei áður liilt. Og mér
er það vel að skapi, að þar hefi eg hilt fyrir fólk, sem
af þungri alvöru skipar sér gegn eiturnautnunum. Þessir
samfundir hafa styrkt þá trú mína, að á næstu árum
muni ungmennafélög íslands sameina mikla og góða
krafta í bindindisbaráttu, og vinna marga glæsilega
sigra á því sviði. Og eg lilakka til að verða vitni þess
og virkur þátttakandi.
Borgfirzkir ungmennafélagar gerðu myndarlegt átak
á síðasta sumri í sambandi við íþróttamót sitt og hér-
aðshátíð í Ferjukoti. Sú frægðarsaga berst um landið
og vekur samherjunum tivarvetna fögnuð og styrk. Og
öll hin bindindissama æska vonar, að þar liafi Borg-
firðingar valdið straumhvörfum. Fólkið vonar, að
iþróttamótið í Ferjukoti 1938 marki tímamót í skemt-
analífi á Suðvesturlandi. Framvegis verði gleðisam-
komur þar að siðaðra manna liætti, en ekki fyrst og
fremst mótaðar af ölvuðum óróamönnum.
Sunnlenzkir harnakennarar hafa undanfarið talað
um það, að einangra þyrfti harnaskólana frá almenn-
um skemmtunum. Þeir liafa fært mismunandi skýr rök
fyrir jjessu, en þegar greinilegast er til orða tekið skilj-
um við fullvel, að þeir telja það siðspillandi fyrir
hei’nskuna að vera vitni að drykkjuskaparsamkomum
og svalli. Og það er auðvitað rétl. En livaða orð eiga
við um þjóðmenninguna, þar sem börnin mega ekki
sjá gleði foreldra sinna og systkina, án þess að híða
tjón á sálu sinni? Hvað réttlaúir það skemmtanalíf, sem
er siðspillandi?
Verið getur að það sé ekki til hóta, að einangra
skólana, en alltaf verður það ú< af fyrir sig þýðingar-
Htið. Skemmtanalifið verður að breytast, Sú þjóð, sem