Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.04.1939, Page 27

Skinfaxi - 01.04.1939, Page 27
SKTNFAXI 27 við séum líka margir, sem trúum, að mikil bót yrði að bannlögum, sem nógu mikill meiri hluti þjóðariiinar siæði að. Slik lög væru vel framkvæmanleg ef fólkið gerði sér ljóst, hvílík slysahætta stafar af allri meðferð áfengis. En sú barátta, sem fram færi í sambandi við alkvæðagreiðslu um bannmálið, hlyti að vekja umræð- ur og hugsun, og umhugsun er alltaf hinum góða mál- stað til liðs. Og ungmennafélagar þrá áiök og baráttu um þessi mál. Stundum beyrast raddir um það, að ungmennafélög- in missi mikils i við það, að vera bindindisfélagsskapur. Þá er vitnað í „ýmsa góða krafta“, sem séu fúsir að vinna fyrir „menningarmál“, en vilji ekki játast undir „skilyrðislaust bindindi“. Það er nokkuð til í þessu. En nú ætla eg, máli mínu til stuðnings, að vitna i gamla sögu. Það var i Flóabardaga. Menn Þórðar Kakala voru að leggja frá orustunni á flótta. Svarthöfði Dufgusson var orðinn sár og móður, og lagði að skipi Hrafns Odds- sonar mágs síns og bað liann yfirgefa bardagann með sér. Hrafn spurði, bvað hann vissi til Þórðar. Svart- liöfði vissi ekkerl um hann. Þá svarar Hrafn: „Far ])á sem þig lystir, en liér er nú Ottarr snoþpidangur, bróð- urbani þinn.“ Ungmennafélagar! Hrafn Oddsson var sönn hetja, sem fylgdi málum sínum af heilum hug og miklum drengskap. Hann skal vera okkar fyrirmynd. Þegar okkur er boðið skiprúm hjá Svartliöfða, til að leggja frá baráttunni við áfengið, skulum við rólegir svara: Far sem þig lystir, en hér er nú Óttarr snoppulangur bróðurbani þinn. Óttarr snoppulangur er vínguðinn, og hann er bróðurbani svo margra. Við skulum minna á það, og láta svo hvern gera það, sem drengskapur hans er til. En sjálfir skulum við halda áfram baráttunni. Við kjósum okkur erfitt hlutverk, sem er þjóðarnauð- syn. Á því sigrum við.

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.