Skinfaxi - 01.04.1939, Blaðsíða 77
SIÍINFAXI
77
ina, en hvergi þó seinagang og alstaðar á kostum. Ég grip
hér niður á tveimur stöðum af handahófi, „efst á blaði í
hægri hönd“:
Strauinurinn fram hjá flæðir:
fljót af hornum og ull.
Sveitin í vestri sindrar
af sólskini barmafull.
Straumurinn fram hjá flæðir:
fljót af hornum og ull.
— Hófagnýrinn hlymur ekki lengur.
Hægan maður upp í bjannann gengur,
þar sem mætist morgunsól og kveld.
Nemur staðar. Lýtur höfði hljóður.
Hverfur eins og barn lil sinnar móður,
hverfur, bráðnar inn í hennar eld.
Perludögg á gylltum stcinum glóir.
Gras og lauf í silfurregni flóir.
J. H. O. Djurhuus: Nýggjar yrkingar. Hitl
föroyska studentafelagið gaf út MCMXXXIII.
Höfundurinn er vafalaust meðal fremstu ljóðsnillinga á
Norðurlöndum og vandvirkur svo að af ber, en yrkir lilið.
Þetta er önnur bók hans, og ekki stór. En ljóðin í henni
eru ósvikin vara.
Jakobína Johnson: Iv e r t a 1 j ó s. Úrvalsljóð. ísa-
foldarprentsmiðja h.f. Reykjavík 1938.
Bók þessi er svo nákomin Umf. og Skinfaxa, að hann vill
benda á hana, þó að lionum hafi ekki borizt hún til um-
sagnar. Þetta er ein fallegasta bók að útliti, sem hér hefir
sézt, og útiltið hæfir efninu fullkomlega. Ljóðin eru öll Ijúf
og yndisleg, anda fegurð og ættjarðarást. Lesandanum finnst
bara vera of lítið af þeim. Sjálfsagl þarf ekki að hvetja ljóð-
elska ungmennafélaga lil að afla sér bókarinnar.
Jón Þórðarson frá Borgarholti: Undir heiðum
h i m n i . Ljóð. Rvik 1938.
Höf. er ungur kennari og þekktur ungmennafélagi i Rvik,
og er þetta fyrsta bók hans. Hafa ýmsir hleypt ver úr hlaði
og komizt þó vel áleiðis. Kvæðin eru vel ort, þrungin dreng-
skap og karlmennsku, en ckki stórbrotinn skáldskapur. Vafa-
laust hljóta þau vinsældir.