Skinfaxi - 01.11.1940, Blaðsíða 1
Skinfaxi II. 1940.
Aðalsteinn Sigmundsson:
Vér mótmælum allir!
i.
Um þúsund ára skeið liaí’a íslendingar búið á íslandi.
b'orfeður þeirra komu hér að óbyggðu iandi, námu það
friðsamlega og byggðu, stofnuðu hér menningarríki og
unnu menningarafrek, sem sanna tilverurétt þeirra sem
þjóðar meðal þjóða. Afkomendur forfeðranna, íslend-
ingar liðinna alda og nútíðar, liafa nytjað land þetta og
lifað við kost þess, blíðan stundum, en oftar harðan.
Landið er helgað störfum þeirra i þúsund ár, vígt ást
þeirra, vonum og vilja, gleði þeirra og harmi, sælu og
sárum raunum, sigrum og ósigrum lífi og dauða
kynslóðanna. Það er íslenzkri þjóð land Iielgra minn-
inga, en umfram allt land vona og fyrirheita — lienni
og engum öðrum. Það er hennar land, sem hún
hefir fná engum tekið og á ein og alein rétt á og tilka.ll
tii. Island er land lslendinga. Þeir lifa i
landi sínu sjálfbjarga og alls óreitnir um annarra hag,
en krefjast þess í krafti allrar mannlegrar réttlætis-
lcenndar, að aðrir láli þá einnig óáreitta.
Á þúsund ára æfi íslenzkrar þjóðar hefir hún myndað
sér íslenzka menningu, íslenzlca hugsun og íslenzka lífs-
skoðun. Menning sú er að vísu ekki rishá né áburðar-
mikil hið vtra, en hún er gróin með þjóðinni og eign
hennar allrar, jafnt í koti og liöll. Og hún hefir reynzt
drjúg og staðgóð, þar sem landinn liefir komið fram
„með alþjóð fvrir keppinaut“. Sú staðreynd sannar
ótvírætt réttmæti kröfunnar um það, að Islendingar
6