Skinfaxi - 01.11.1940, Blaðsíða 18
98
y. Kosningar.
8. Þingslit.
SKINFAXI
Þingskjal III.
Fastar nefndir:
a) Starfsmálanefnd: Halldór Sigurösson, Siguröur
Björnsson, Kristján Jónsson, Emil Ásgeirsson, Hall-
dór Krjstiánsson.
b) Fjármálanefnd: Ásmundur Jónsson, Ágúst Þorvalds-
son, Þórarinn Kristjánsson.
c) Útbreiöslu- og menntamálanefnd: Guömundur Jóns-
son, Þórður Loftsson, Gunnar Guðbjartsson, Eggert
Ólafsson, Högni Sigurðsson.
íþróttanefnd: Grímur S. Norðdahl, Leifur Auðunsson,
Guðjón Magnússon.
Allsherjarnefnd: Þorsteinn Sigurðsson, Hlöðver Sigurðs-
son, Björn Jónsson, Sigurður Haraldsson, Daníel
Ágústínusson.
Þingskjal IV.
13. sambandsþing U.M.F.Í. lýsir ánægju sinni yfir þeirri
byrjun, sem orðin er á ræktunarstörfum Umf., og vill fyrir
engan mun, að sú starfsemi falli niður. Telur þingið nauð-
synlegt, að þau félög, sem slíka starfsemi hafa með höndum,
eigi sér ráðunaut eða ræktunarforingja heima, svo að betri
not verði að ráðunaut samb. með viðráðanlegri kostnaði.
Þingið felur sambandsstjórn að sækja um styrk til þessarar
starfsemi, til B. 1. Starfsmálanefnd.
1
»
Þingskjal V.
1. 13. þing U.M.F.Í. skorar á stjórn þess, að láta fara
fram atkvæðagreiðslu meðal ungmennafélaga innan sam-
bandsins, er leiði það skýrt í ljós, hve mikill hluti félags-
manna vill aftur taka drengskaparheit um vínbindindi inn
í lög U.M.F.Í. Með hliðsjón af þeirri atkvæðagreiðslu skal
stjórnin endurskoða stefnuskrá sambandsins og leggja fyrir
næta sambandsþing.
2. Þar sem síðasta alþingi taldi ekki fært að leyfa ein-
stökum héruðum að ákveða, hvort áfengissala sknli leyfð
þar eða ekki, vill 13. þing U.M.F.Í. leggja áherzlu á, að
takmarkað verði það áfengismagn, sem selja megi sama
manni í einu, með því að taka upp notkun áfengisbóka.
Útbreiðslu- og menntamálanefnd.