Skinfaxi - 01.11.1940, Blaðsíða 42
122
SKINFAXI
og selcli hann aftur í sumar, hefir gefiö sambaridinu 5000
króna sjóö, skuldabréf, er greiöist meS 250 kr. á ári, ásamt
vöxtum. Skal verja fénu til skógræktar, og mun því variö
til aukinnar skógplöntunar í Þrastaskógi.
Þau systkinin Rannveig Þorsteinsdóttir og Ólafur Þor-
steinsson hafa gefiö sambandinu skjiild útskorinn eftir
Martein Guömundsson myndhöggvara, forkunnar góðan
grip. Á hann aö veröa farandveröíaun í iþróttum, handa
því héraössambandi, er flesta vinninga hlýtur á allsherjar-
mótum sambandsins. Er Ums. Kjalarnesþings fyrsti hand-
hafi hans, því að það varð sigurvegari. á 1 Jaukadalsmót-
inu í sumar. Mynd af grip þessum birtist síðar í Skinfaxa.
Rannveig Þorsteinsdóttir hefir setið í sambandsstjórn
U. M. Ir. I. sjö ár undanfarin, frá 1933, en baðst undan
endurkosningii á þingi í sumar. Var hún gjaldkeri allan
tímann, en auk þess starfsmaður samljandsins síðustu árin,
og er það enn um sinn. Hefir liún unnið mikið og óeigin-
gjarnt verk fyrir Umf. og átt sinn þátt i þeirri vakningu,
sem nú er orðiu i íélagsskapnum, — Ólafur liefir starfað
mikið í Umf. Velvakandi, verið formaður þess um hríð,
en er nú formaður U. M. S. K.
Tvö íþróttamót.
Það er hæði fróðlegt og gaman að virða fyrir sér alls-
herjarmótin tvö, sem haldin voru í sumar, mót U. M. F. í.
í Haukadal og mót 1. S. í. i Reykjavík, læra þau saman
og draga ályktanir af samanl>urðinum. Á móti U. M. I7. I.
voru 73 þátttakendur í íþróttum, allir frá Umf. utan- Reykja-
víkur. Þátttakendur í móti í. S. í. voru 62 skráðir, en blöð-
in herma, að um 20% aí þehn hafi ekki komið til leiks;
hafa þá raunverulegir þátttakendur verið um 50, — allir
nema 2—3 úr Reykjavík og Hafnarfiröi. Þessar tölur tala
sínu máli. Starfsemi í.. S. í. nær einkum til kaupstaðanna
og sérstaklega J^v. og J-Jf. Iþróttastarfsemi Umf. er öll
að heita má í dreifbýlinu. Þetta er mjög eðlilegt, þegar þess
er gætt, aö mannfæö sveitanna gerir þaö að verkum, að
félög þeirra verða að vera alhliða, þ. e. ungmennafélög, en
þar er ekki mannafli til að kljúfa i sérfélög. Er þá og eðli-
legt og sjálfsagt, að Umf. séu í landssambandi síriu, U. M.
F. í., svo um íþróttastarfsemi sem önnur framkvæmdamál.
Ums. Kjalarnesþings bar sigur af hólmi á Haukadalsmót-
inu, sem kunnugt er, og voru lielztu garpar þess ungir