Skinfaxi - 01.11.1940, Blaðsíða 19
SIvlNFAXI
99
Þingskjal VI.
1. Sambandsstjórn leitist viö, með tilstyrk fulltrúa Umf.'
sem mæta á aöalfundi Í.S.Í. 1940, og væntanlegrar íþrótta-
nefndar ríkisins, aS fá því framgengt, aö lögum Í.S.Í. veröi
breytt í það horf, að héraðssambönd Umf. fái að ganga í
I.S.Í. og taka þátt í allsherjarmótum þess.
2. Sambandsþingið skorar á Í.S.Í. að koma því til leiðar^
að hér eftir verði keppt í íslenzkri glímu á allsherjarmótum
I.S.I.
3. Sambandsþingið skorar á Í.S.Í. að breyta reglum um
áhugamenn í það horf, að leiðbeinendur í frjálsum íþrótt-
um og gdímu haldi áhugamannsréttindum sínum, enda þótt
þeir taki þóknun fyrir störf sín.
4. Sambandsþingið telur hið nýja lagafrumvarp I.S.I.
til engra bóta og leggur því til, að það verði ekki að lög-
um. íþróttanefnd.
Þingskjal VII.
Sambandsþing U.M.F.Í. 1940 lýsir ánægju sinni á þeirri
ráðstöfun, að ráða farkennara í íþróttum fyrir ungmenna-
félög, og vonast til, að hægt verði að halda þeirri starf-
semi áfram. íþróttanefnd.
Þingskjal VIII.
13. sambandsþing U.M.F.Í. 1940 samþykkir, að U.M.F.I.
haldi landsmót í íþróttum ekki sjaldnar en fjórða hvert ár.
Dan. Ág.;t Halldór Sigurðsson, Eirikur J. Eiriksson.
Þingskjal IX.
1. Sambandsþing U.M.F.Í. 1940 leggur áherzlu á, að
sendir verði menn í héraðsskólana og fleiri skóla í byrjun
næsta skólaárs, ef mögulegt er, til þess að fræða um stefnu-
skrármál Umf. og ræða við nemendur og kennara um mögu-
leika til félagsstofnana, og stofna félög, ef skilyrði eru fyrir
hendi.
2. Sambandsþing U.M.F.Í. 1940 samþykkir, að Umf., er
stofnuð kunna að verða i skólunum, skuli vera skattfrjáls.
3. Sambandsþing U.M.F.Í. 1940 samþykkir að veita ár-
lega verðlaun til Umf. í skólum, enda séu þau í U.M.F.Í.
Skulu kennarar skólanna úthluta verðlaunum þessum til
einstakra nemenda, sem skara fram úr í félagsstöríum. Séu
í þessu skyni veittar 40 kr. árlega.
Útbreiðslu- og menntamálanefnd.