Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.11.1940, Page 24

Skinfaxi - 01.11.1940, Page 24
101 SKINFAXI íþróttamót U. M. F. f. í Haukadal. Allsherjar íþróttamót Ungmennafélaga íslancls fór íram í Haukadal í Biskupstungum um Jónsmessuhelgina í sumar, aö undangengnu 13. sambandsþingi U.M.F.l. Stóö allsherj- armót þetta í tvo daga, laugardag og sunnudag, og var á því hinn rnesti glæsibragur. Mikil þátttaka var og ánægju- leg af hálfu íþróttamanna, veðurblíða og fjölmenni, á ann- að þúsund manns, þegar flest vár. Flokkur U.M.S.K., sem vann HaukadalsmótiÖ. Bjuggu menn mest í tjöldum, meðan dvalið var í Hauka- dal. Séra Eiríkur J. Eiríkssön •sambandsstjóri U.M.F.Í. setti allsherjarmótið á Laugarfjalli kl. 1 á laugardag. Gengu síð- an iþróttamennirnir, 73 talsins. fylktu liði inn á íþróttavöll- inn. Fór þá uni daginn fram fimleikasýning 23 pilta, undir stjórn Sigurðar Greipssonar skólastjóra í Haukadal, íþrótta- kappleikar, ræðuhöld, sýning iþróttakvikmyndar og loks söng Hreppakórinn. Um kvöldið var dansað bæði úti og' inni, en margir voru að öðrum leikum. Á sunnudaginn ávarpaði Sigurður Greipsson mannfjöld- ann, en síðan var hlýtt guðsþjónustu og prédikaði séra Ei- ríkur J. Eiríksson. Þá flutti Helgi Hjiirvar erindi og lúðra-

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.