Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.11.1940, Page 27

Skinfaxi - 01.11.1940, Page 27
SKINFAXI 107 fæddur í Reykjavík 8. júní 1922, en alinn upp í sveit og á nú heima aö Hvítanesi í Kjós. Hann er stórlega áhugasam- ur og efnilegur íþróttamaSur, og hefir æft jöfnum höndum hlaup, stökk og köst, við annríki sveitamannsins, örSug skilyröi og enga tilsögn. En hann hefir glöggan skilning á tilgangi líkamsæfinga og gildi íþrótta, járnharSan vilja og mikinn metnaS fyrir félag sitt og ungmennafélagsskapinn. —- í sumar fór hann óæföur frá orfinu á drengjamótiS í Reykjavík og gat sér þar góSan oröstír, enda vann félag hans þaS mót. Myndin, sem fylgir hér meS, er af Axel á fermingaraldri. Þetta er þriSja allsherjarmótiS, sem U.M.F.Í. heldur. Fyrsta mótiö var háö áriS 1911. ViS samanburS á íþróttaf- rekum þá og nú kemur í ljós, aS í öllum greinum, sem sam- bærilegar eru, hefir nú náSst betri árangur, nema í 100 metra hlaupi. Þar hafa íþróttamenn ungmennafélaganna fyrir 30 árum reynzt æskumönnum þeirra áriS 1940 fremri. Kann þó aö vera, aö aSstöSumunur um v'eSur eSa hlaupa- braut valdi þar einhverju um. — AnnaS mótiS var haldiS I9þ4- Öllum þeim, er sóttu Haukadalsmótiö, ber saman um, aö þaS hafi veriS hin glæsilegasta samkoma og fariS fram meS hinni fyllstu prýöi. Hjálpaöist þar allt aS: afbragSsgott veSur, prúSir og reifir samkomugestir, fagur og tilkomu- mikill mótsstaöur og góS stjórn. En stjórn mótsins og und- irbúningur þess var í höndum SigurSar Greipssonar skóla- stjóra og bónda í Haukadal. Vann hann þar mikiö verk og örSugt af slíkri prýöi, aS seint verSur fullþakkaS, og meS þeirri ósérplægni, sem er aSalsmerki góSs ungmenna- félaga.

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.