Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.11.1946, Side 30

Skinfaxi - 01.11.1946, Side 30
82 SKINFAXI Kveðja lil V.M.F.1. ddrá próp. dr. l^ichard ÍddecL. (Úr bréfi frá 28. júní 1946). Kæru félagsskystkini! Fyrstu orð mín að þessu sinni verða eðlilega: „Hjart- ans þökk fyrir síðast!“ Já, innilegustu þakkir fyrir liinar hlýju og ágætu við- tökur, sem ég átti að fagna af ykkar hálfu viðsvegar heima á ættjörðinni — á Hvítárbökkum í Borgarfirði, í átthögum minum á Austurlandi, að Núpi í Dýrafirði og á Álfaskeiði í Hreppum — í ógleymanlegri heimsókn minni sumarið sigur- og söguríka 1944. Minningarnar úr þeirri heimför til „gamla landsins góðra erfða“ hita mér um hjartarætur til daganna enda, eru mér andleg yngingarlind og uppspretta orku til nýrra og stærri dáða. Og nú á 40 ára afmæli ungmennafélagshreyfingar- innar minnisl ég þakklátlega þeirrar skuldar, sem ég stend í við þann merka og áhrifaríka félagsskap. Á ung- hngsárum mínum heima á Austfjörðum las ég Skin- faxa árum saman, og glæddi hann mér í brjósti, sem fjölmörgum öðrum æskumönnum þeirrar kynslóðar, heitari og djúpstæðari ást á ættjörð minni, íslenzkri tungu og öðrum menningarerfðum, hugsjónaást og framsóknaranda. Um nokkurt skeið var ég einnig fé- lagi í Ungmennafélagi Akureyrar, og á þaðan hugljúf- ar endurminningar. Ég reikna mér það einnig til sæmdarauka að mega telja í hópi góðvina minna marga þá menn, sem bæði hafa verið leiðtogar innan ung- mennafélagsskaparins og á sviðum ýmsra þjóðmála og menningarmála. Hitt tel ég þó mikilvægast og er þakklátur fyrir, að

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.