Skinfaxi - 01.11.1946, Page 37
SKINFAXI
89
liarminn lijá Norðmönnum yfir fórnum þeim, sem
færa varð lil þess að endurheimta frelsi landsins.
Harmur þessi var þó gleði blandinn, þvi fórnirnar
liöfðu ekki verið færðar til einskis og afreksverkin
ekki unnin fyrir gýg. Þögnin að athöfninni lokinni
var áhrifamikil.
Þennan sama dag (6. júlí), var okkur Islending-
HæSin, sem ólafur helgi er talinn liafa fallið á. Þar er
minnismerki um hann.
unum hoðið til stöðva, er við könnuðumst við úr
fornritum okkar. Fórum við til hins forna jarls-
seturs Hlaða. Þá var okkur sýndur staður sá, er „Orm-
urinn langi“ átti að hafa verið geymdur. Staðinn, þar
sem Kjartan Ólafsson og Ólafur Tryggvason áttu að
itafa þreytt sundið, sáum við líka, o. fl. Var ákaf-
lega gaman og skemmtilegt að sjá staði þessa. Um
kvöldið þennan dag var samkoma haldin í „Stúdenta-
garðinum“. Voru enn fluttar kveðjur og árnaðaróskir
til „Norges Ungdomslag“.
Enn lief ég ekki getið um tvennt, er fram fór sam-