Skinfaxi - 01.11.1946, Side 38
90
SKINFAXI
liliða liátíðahöldunum, en það er: Aðalfundur „Norges
Ungdomslag" og ársmót vikivakaflokkanna, sem
starfa innan ungmennafélaganna, en þó sjálfstætt að
miklu leyti.
Málefni þau, sem norsku ungmennafélögin liafa á
stefnuskrá sinni, eru mörg hin sömu og ungmenna-
félögin hjá okkur, t. d.: Bindindismál, skógrækt, hér-
aðsskólamál o. fl. Hins vegar eru sum mál þar efsl
á baugi, er minna gætir hér. — Barátta fyrir útbreiðslu
og viðhaldi nýnorskunnar er t. d. eitt af aðaláliuga-
málum þeirra. Annars var við ýmis mál að fást af
völdum stríðsins. — Ársskýrsla fyrir árin 1942—1945
var lögð fram á fundinum.
Ráðuneyti Quislings gaf árið 1942 út ný lög fyrir
„Norges Ungdomslag“. Lögin voru samin eftir ein-
ræðisreglum, og var stjórn sambandsins bannað að
starfa, og henni vikið frá. Þetta liafði þau áhrif, að
meðlimir sögðu sig úr félögunum, og fækkaði með-
limum úr 70,000 1942 niður í 500 í árslok 1944.
Skiljanlega var samvinna öll í molum fyrst i stað,
eftir að stríðinu lauk, en nú færist félagsstarfsemin
óðum í eðlilegt liorf.
Nefnd hafði verið kosin til þess að athuga mögu-
leikana fyrir því, að reisa unglingaskóla, sem veitti
æskulýðsleiðtogum nauðsynlega uppfræðslu. Til
bráðabirgða liafði verið samið við unglingaskólann
í Voss urn að annast þetta hlutverk næstu fimm ár.
Þörfin fyrir fleiri leiðsögumenn er sérstaklega brýn
einmitt nú, þar sem slitnað hefur þráðurinn milli fé-
laganna, en áhuginn fyrir ungmennafélagsskapnum
aftur á móti aldrei jafnmikill og nú. Stafar þetta
af því, að ekki hefur mönnum áður verið jafn lióst
og nú, að stríðinu loknu, live dýrmætur og sterkur
múr ungmennafél. eru i þjóðarbyggiiigunni. t ráði
er að semia handbók fyrir U.M.F., og er þegar liafinn
undirbúningur.