Skinfaxi - 01.11.1946, Qupperneq 42
94
SKINFAXI
Það rættist vel úr með veðrið, eftir liádegi tiætti aa
rigna og gerði blíðu veður, öllum til óblandinnar
ánægju.
Um kvöldið voru þjóðdansarnir sýndir i stóru
liringmynduðu rjóðri í skóginum. Fyrst dönsuðu Sví-
ar, svo Danir og var livorttveggja mjög skemmti-
legt á að horfa. Siðasl dansaði stór liópur Norð-
manna. Það var frjálslegur liópur ungra manna og
kvenna, og búningarnir litskrúðugir, þvi allir voru
í þjóðbúningum.
Dansarnir voru bæði fjörugir og fallegir, dans-
aðir af lífi og sál. Hinir grönnu tónar fiðlunnar áttu
mjög vel við bin gömlu lög, sem spiluð voru. Gleði-
legt var að sjá norska fólkið svo frjálst og glatt aft-
ur, laust við okið, sem á þvi hafði livilt undanfarin
striðsár.
Lengi hefði verið liægt að horfa á hina ævinlýra-
legu dansa, sem minntu mann á brúðkaup til forna,
eða álfadansa. Kl. 10 að kvöldi var samkomunni
slitið og lagt af stað til Þrándheims. — Rétt fvrir
kl. 1 þessa nótt kvöddum við kunningja og vini með
söknuði, og lögðum leið okkar suður eftir Noregi í
húmi næturinnar, þakklát og ánægð eftir góðar sam-
verustundir. Óskuðum við Norðmönnum, frændum
okkar, góðs gengis og frama á komandi tímum og
um alla framtíð.
Haukur Jörundsson.
Verð Skinfaxa.
Þar sem kaupendatala Skinfaxa er enn minni og skilvisin
lakari en við mætti búast, hefur sú ákvörðun verið tekin af
sambandsþingi, að hækka verðið í kr. 10.00 árganginn. Er
þess jafnframt vænzt, að með þessu verði fjárráðin það góð,
að unnt verði fljótlega að stækka ritið og bæta á ýmsan
hátt. Er það von útgefanda, að þessu verði vel tekið. Ung-
mennafélagar! Greiðið Skinfaxa strax til innheimtumannsins
í ungtnennafélaginu ykkar. Verðið er kr. 10.00 fyrir árið 1946.