Skinfaxi - 01.11.1946, Page 48
100
SKINFAXI
Frá skrúðgöngunni.
því logn og sólskin vai' allan daginn. Margar þúsundir manna
geta prýðilega notið þess, sem fram fer á vellinum, og liaft
hin ágætustu sæti, ef veður er hagstætt.
Þcgar kl. var rúmlega 17, var haldið heim að tjörninni við
skólann og hófst þar sundkeppni. Mannfjöldinn skipaði sér um-
hverfis tjörnina, einkum á þrjá vegu. Sundið virtist eiga sterk
ítök í mönnum. Þarna setti Áslaug Stefánsdóttir, úr Héraðs-
sambandinu Skarpliéðinn, íslandsmet i 500 metra sundi kvenna,
á 9:00.7 mín. — Varð hún og hlutskörpust i öllum sundgrein-
um kvenna á mótinu og þótti vel af sér vikið. Hún hefur
numið og æft sund á Laugarvatni, og er 16 ára að aldri. Sund-
keppni þessari var lokið kh rumlega 19.
Allan laugardaginn var fólkið að koma á mótið víðsvegar
að. Mest voru þetta hópar á stórum fólksflutningabifreiðum,
en einnig kom margt af smærri bifreiðum. Samkomugestir
voru einkum úr Þingeyjarsýslum báðum, Eyjafjarðarsýslu, Ak-
ureyri og Skagafirði. Tjöld voru reist á eyrunum fram með
ánni, og þegar komið var fram á lágnætti mátti telja þar á
þriðja hundrað tjöld. Var indælt að koma sér þar fyrir í
kvöldkyrrðinni og veðurblíðunni.
Ungmennafélagsfundur.
Eftir kvöldmatinn hófst almennur ungmennafélagsfundur
úti við tjörnina og var þar sérstaklega minnst 40 ára afmælis