Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.11.1946, Page 55

Skinfaxi - 01.11.1946, Page 55
SIUNFAXI 107 ari í Reykholti, tilkynnti, að sund Sigurðar byrjaði, og ís- landsmetið væri nú 18:58,0 mín., sett af Sigurði Jónssyni í K.R. Margir tóku upp úr sín og allir biðu þess með mikilli efirvæntingu, hvernig Sigurði reiddi af þessar 10 ferðir, sem bann fór í tjörninni frain og aftur. Þegar liann hafði lokið sundinu, gullu við fagnaðarlæti, þvi auðséð var að liann hafði sett metið, en hámarki sinu náðu þau, þegar tilkynnt var, að hann liafði synt vegalengdina á 17:25,7 mín. og þannig stórbætt íslandsmetið. Fór vissulega vel á því, að ljúka þessu glæsilega móti með slíku afreki, þvi hér var ekki um venju- lega sundlaug að ræða, heldur kaldan poll. Sigurður er á þrí- tugs aldri, stór og gjörfulegur og hefur aðallega numið sund að Laugum. Á hann vafalaust eftir að geta sér oft frægð fyrir sundleikni sína. Þegar þessari athöfn var lokið, skemmti fólk sér við dans úti á pallinum, en þangað var komin hin góðkunna hljóm- sveit Bjarna Böðvarssonar og byrjuð að leika fyrir dansinum, sem hún gerði til kl. 1.30 um nóttina. Einnig fóru fram kvik- myndasýningar í leikfimishúsinu, og leituðu ýmsir þangað sér til skemmtunar. Stjórnendur mótsins settust siðan á rökstóla og reiknuðu út stig og undirbjuggu verðlaunaafhendingu mótsins. Var frá Þjóðdansaflokkur Þórs á Akureyri. Stjórnandinn Jónas Jóns- son sést lengst til hægri á myndinni.

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.